Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 74/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 74/2015

Fimmtudaginn 26. maí 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni þann 25. nóvember 2015, kærði A, til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2015, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar þar til hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, þ.m.t. mál kæranda, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 og 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti síðast um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 10. júlí 2015 og var umsóknin samþykkt. Með bréfi, dags. 2. nóvember 2015, var kæranda tilkynnt að við samkeyrslu tölvugagna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi virst að kærandi hafi verið með tekjur í ágúst 2015 frá B að fjárhæð 66.113 kr. án þess að gera grein fyrir þeim, á sama tíma og hún hafi þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun. Þá var óskað eftir skýringum kæranda á framangreindum tekjum. Sama dag barst stofnuninni tölvupóstur frá kæranda þar sem hún segir meðal annars að hún hafi unnið í þrjá daga hjá B í ágúst 2015.

Með bréfi, dags. 25. nóvember 2015, var kæranda tilkynnt um þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að hún skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hefði starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði þar sem hún hafi verið að vinna hjá B samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna Vinnumálastofnun um vinnuna.

Kæra barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 25. nóvember 2015. Með bréfi, dags. 1. desember 2015, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 7. janúar 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. janúar 2016, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að hin kærða ákvörðun sé byggð á misskilningi og að kröfur kæranda séu þær að fá áfram greiddar atvinnuleysisbætur í ljósi þeirra upplýsinga sem fylgi með kærunni.

Hin kærða ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli upplýsinga um launaseðil sem fyrir mistök hafi verið gefinn út og greiddur mánuði seinna en hann hafi í raun og veru átt að greiðast. Kærandi hafi unnið hjá B dagana 15., 16. og 20. júlí 2015 en fyrir mistök hafi fyrirtækið greitt laun vegna vinnunar 1. september 2015 í stað 1. ágúst 2015. Vinnumálastofnun telji að kærandi hafi verið að vinna í ágúst á sama tíma og hún hafi verið að þiggja greiðslur atvinnuleysistrygginga.

Kærandi fái ekki samþykktar bætur fyrr en 6. ágúst 2015 og hafi ekki fengið fyrstu greiðslu atvinnuleysistrygginga fyrr en 15. september 2015. Gögn með kæru sýni staðfestingu frá vinnuveitanda um að kærandi hafi unnið í júlí en ekki ágúst 2015 auk þess sem kæru fylgi tölvupóstur sem sýni að hún hafi haft samband við Vinnumálastofnun til þess að spyrjast fyrir um þetta en engin svör fengið. Kærandi voni í ljósi fyrirliggjandi gagna og upplýsinga að hún fái atvinnuleysisbætur á ný. Hún telji sig hafa gert allt rétt hvað varði mál sitt hjá Vinnumálastofnun.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál þetta lúti að ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Annar málsliður 60. gr. laganna taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína samkvæmt 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín.

Í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laganna sé að finna nánari útlistun á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Á þeim, sem fái greiðslur atvinnuleysistrygginga frá Vinnumálastofnun, hvíli rík skylda til að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar um hagi viðkomandi. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem þessi skylda sé ítrekuð. Þannig segi í 3. mgr. 9. gr. laganna að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um tekjur sem hann fái fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan standi yfir eða ef atvinnuleit sé hætt. Sérstaklega hafi verið vakin athygli á þessari skyldu þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur og einnig með tilkynningum, dags. 10. og 13. júlí 2015.

Í málinu liggi fyrir að kærandi hafi starfað hjá B á meðan hún hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Vinnumálastofnun hafi aldrei borist tilkynning um vinnu kæranda. Stofnuninni hafi fyrst verið kunnugt um vinnu hennar eftir samkeyrslu tölvugagna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra í nóvember 2015.

Í kæru til úrskurðarnefndarinnar segi kærandi að ákvörðun Vinnumálastofnunar sé byggð á misskilningi og að laun vegna vinnu kæranda hafi verið greidd einum mánuði seinna en til hafi staðið. Kærandi hafi verið að vinna 15., 16. og 17. júlí en ekki í ágúst. Athugasemdir kæranda um vinnutíma séu ekki í samræmi við upplýsingar frá ríkisskattstjóra og yfirlýsingar kæranda í tölvupósti, dags. 2. nóvember 2015. Meðfylgjandi kæru sé tölvupóstur frá vinnuveitanda kæranda þar sem segi að kærandi hafi verið við vinnu frá 15. til 17. júlí en ekki ágúst. Þegar greinargerðin sé rituð sé þó ekki búið að breyta tekjuskráningu hjá ríkisskattstjóra. Samkvæmt nýjustu upplýsingum um launagreiðslur kæranda hafi hún verið með tekjur í ágústmánuði 2015 fyrir vinnu sína hjá B.

Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að framangreindur málflutningur geti þar að auki ekki haft áhrif á niðurstöðu í málinu. Kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga frá og með 10. júlí 2015. Hvort sem vinnutími hennar hjá B hafi verið í ágúst eða frá 15. til 17. júlí breyti því ekki að kæranda hafi borið að tilkynna um vinnu til stofnunarinnar. Þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur 10. júlí hafi henni verið send tilkynning. Í þeirri tilkynningu komi meðal annars fram að hún þurfi að upplýsa um allar breytingar á högum sínum, s.s. hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur, styrki, veikindi, heimilsfang, símanúmer, netfang og fleira. Framangreint komi einnig fram í sjálfri umsókn um atvinnuleysisbætur. Samkvæmt yfirlýsingu kæranda hafi hún engu að síður hafið störf fjórum dögum síðar án þess að tilkynna Vinnumálastofnun um vinnu sína. Verði því ekki séð að athugasemdir kæranda um vinnutíma sinn hafi áhrif á niðurstöðu málsins.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn sinnt störfum á innlendum vinnumarkaði án þess að tilkynna um vinnu sína. Í ljósi þeirrar skyldu, sem hvíli á atvinnuleitendum um að tilkynna stofnuninni um tekjur og skýrrar verknaðarlýsingar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum við stofnunina og eigi að sæta viðurlögum í samræmi við brot sitt.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verði staðið að ákvörðun í máli kæranda.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hún hefur starfað að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, hljóðar svo:

„Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Af gögnum málsins verður ráðið að hin kærða ákvörðun sé byggð á 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. mars 2016 (E-2547/2015) var leyst úr ágreiningi sem varðaði ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga samkvæmt 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dóminum var fjallað ítarlega um túlkun framangreinds ákvæðis. Í niðurstöðunni segir meðal annars svo:

„Samkvæmt framangreindu verður fallist á þá efnislegu niðurstöðu umboðsmanns Alþingis, í fyrrgreindu áliti hans, að miða verði við að í verknaðarlýsingu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 felist krafa um atvinnuleitandi hafi ætlað að afla sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Af hálfu stefndu er því ómótmælt að mál stefnanda hafi ekki verið rannsakað sérstaklega með hliðsjón af huglægri afstöðu hans, enda byggir málatilbúnaður þeirra á því að slík afstaða hafi ekki haft þýðingu um meðferð og niðurstöðu stjórnsýslumálsins. Að virtri framagreindri niðurstöðu um skýringu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 liggur þannig fyrir að verulegir annmarkar voru á málsmeðferð stefnda Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga svo og rökstuðningi ákvarðana. Er jafnframt ljóst að umræddir annmarkar voru til þess fallnir að hafa áhrif á niðurstöðu málsins. Verður því að fallist á kröfu stefnanda um að umræddar stjórnvaldsákvarðanir stefndu Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga um sviptingu bótaréttar stefnanda verði felldar úr gildi.“ 

Samkvæmt framangreindu er það skilyrði fyrir beitingu viðurlaga á grundvelli 2. málsl. 60. gr. að atvinnuleitandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að af gögnum málsins verði ráðið að Vinnumálastofnun hafi beitt kæranda viðurlögum á grundvelli framangreinds ákvæðis þar sem hún hafi starfað á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hún hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt stofnuninni um vinnuna. Því virðist huglæg afstaða kæranda ekki hafa verið könnuð áður en ákvörðun um beitingu viðurlaga var tekin. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að málið hafi ekki verið nægjanlega upplýst áður en Vinnumálastofnun tók hina kærðu ákvörðun, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því verður ekki hjá því komist að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og vísa málinu til baka til mats á því hvort kærandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga og innheimtu ofgreiddra bóta felld úr gildi og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 25. nóvember 2015, í máli A, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta er felld úr gildi. Málinu er vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.


F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta