Hoppa yfir valmynd

Nr. 219/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 9. júní 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 219/2022

í stjórnsýslumálum nr. KNU22040038 og KNU22040039

 

Kæra [...],

[...]og barna þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 22. apríl 2022 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Írak (hér eftir K) og [...], fd. [...], ríkisborgari Írak (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. mars 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda og barna þeirra, [...], fd. [...] (hér eftir A), [...], fd. [...] (hér eftir B), [...], fd. [...] (hér eftir C) og [...], fd. [...] (hér eftir D), ríkisborgarar Írak, um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Kærendur krefjast þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi verði teknar til efnismeðferðar, aðallega á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 1. mgr. 42. gr. sömu laga, en til vara á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Til þrautavara krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi verði teknar til nýrrar málsmeðferðar vegna brota á 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi dagana 11. og 29. október 2021. Við leit að fingraförum kærenda í Eurodac gagnagrunninum dagana 18. október og 4. nóvember 2021 kom í ljós að fingraför þeirra höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Dagana 27. október og 25. nóvember 2021 var upplýsingabeiðnum beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dagana 29. desember 2021 og 17. janúar 2022, kom fram að kærendum hefði verið veitt alþjóðleg vernd 9. október 2018 og hefðu verið með gilt dvalarleyfi í Grikklandi til 5. nóvember 2021. Þá kom fram að kærendur hefðu sótt um framlengingu á dvalarleyfum sínum sem væri enn til skoðunar hjá grískum stjórnvöldum. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. dagana 27. október og 15. nóvember 2021, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 31. mars 2022 að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum 5. apríl 2022 og kærðu þau ákvarðanirnar 20. apríl 2022 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 9. maí 2022, ásamt fylgigögnum.

III.       Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendum hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Grikklands.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum þeirra væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til Grikklands.

IV.       Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að þau vilji ekki snúa aftur til Grikklands þar sem þeim hafi verið hótað og ógnað þar í landi. Kærendur hafi greint frá því að þau hafi misst alla opinbera aðstoð í Grikklandi fjórum mánuðum eftir að þeim hafi verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi. Þegar þeim hafi verið snúið aftur til Grikklands frá Finnlandi hafi þau ekki fengið húsnæði og þau þurft að tjalda í almenningsgarði. Aðeins eftir að hafa hlotið aðstoð kristins safnaðar í Finnlandi hafi þau getað leigt húsnæði og komist af götunni í Grikklandi. Þá hafi þau fengið mat og klæðnað frá grískri kirkju auk þess sem þau hafi þurft að betla sér til matar. Börn kærenda hafi ekki fengið pláss á leikskóla eða aðra þjónustu í Grikklandi. Þá hafi heilbrigðisþjónustan í Grikklandi verið léleg og ómögulegt hafi verið að finna atvinnu. Kærendur hafi upplifað spillingu, fordóma og ofbeldi frá grískum almenningi, embættisfólki og lögreglu. Þá hafi kærendur ekki haft aðgang að grískukennslu.

Kærendur gera athugasemd við að Útlendingastofnun meti það svo að þau hafi ekki sannað auðkenni sitt en þau hafi lagt fram grísk skilríki. Kærendur vísa til 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga og lögskýringargagna með ákvæðinu en þar komi fram að skilríkin geti verið af ýmsum toga.

Kærendur fjalla um sérstaklega viðkvæma stöðu fjölskyldunnar. M glími við líkamleg og andleg vandamál, s.s. vandamál í baki auk þess sem hann hafi leitað til sálfræðings í Þýskalandi sem hafi greint hann með áfallastreituröskun og þunglyndi. Þá hafi M farið í kviðarholsaðgerð hér á landi til að fjarlægja gallstein. Þá beri heilsufarsgögn með sér að mögulega sé þörf fyrir frekara inngrip m.a. gallblöðrutöku. Þá gera kærendur athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki óskað eftir vottorði frá þeim læknum sem hafi annast M eða trúnaðarlækni stofnunarinnar. Kærendur telja ómögulegt fyrir íslensk stjórnvöld að meta aðstæður hans í Grikklandi, komi til endursendingar, og hvort þjónustuþörf hans verði mætt þar í landi, liggi ekki fyrir skýrar upplýsingar um alvarlega einstaklingsbundna stöðu hans. Þá hafi K lýst bæði líkamlegum og andlegum vandamálum, þ. á m. streitu og mikilli vanlíðan. Skimunarlisti Útlendingastofnunar hafi leitt í ljós að hún hafi verið langt yfir viðmiðum og leiðbeiningum listans sjálfs. Þá hafi K orðið fyrir nauðgun í heimaríki. Kærendur hafi lýst þeim áföllum sem A hafi orðið fyrir í heimaríki og Grikklandi og hvaða áhrif þau hafi haft á andlega líðan hennar. Þá hafi sálfræðingur í Þýskalandi talið A sýna einkenni áfallastreituröskunar. Gögn málsins beri með sér að A sé í þörf fyrir stuðning og aðstoð. Þá hafi kærendur greint frá því að B glími við vandamál tengd tali og heyrn auk þess sem hann glími við hegðunarvandamál. Jafnframt hafi kærendur greint frá því að C glími við vandamál tengd líðan og hegðun auk þess sem hugsanlega kunni D að glíma við […]. Kærendur gera athugasemd við mat hjúkrunarfræðings á Göngudeild sóttvarna þegar komi að heilsufari þeirra og telja að matið sé ekki fullnægjandi.

Kærendur fjalla um grundvallarreglu barnaréttar um að það sem barni sé fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar séu ákvarðanir um málefni þess. Kærendur telja að túlkun og nálgun Útlendingastofnunar á þessari grundvallarreglu í hinum kærðu ákvörðunum vera ranga en reglan skuli ganga framar reglunni um einingu fjölskyldunnar. Kærendur vísa til 2. mgr. 2. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem fram kemur að börnum skuli ekki mismunað vegna stöðu eða athafna aðstandenda sinna eða ættingja. Kærendur vísa til þess að börn séu sérstaklega viðkvæmur þjóðfélagshópur og beri því að veita þeim sérstaka vernd og umönnun. Kærendur vísa til þess að þau eigi erfitt í foreldrahlutverki sínu og séu í þörf fyrir nauðsynlegan stuðning. Kærendur vísa í þessu samhengi til úrskurðar kærunefndar í stjórnsýslumálum nr. KNU21040026 og KNU21040027 frá 1. júlí 2021 og telja að aðstæður séu svipaðar þegar komi að getu þeirra til að sjá fyrir sér og annast hvert annað. Kærendur gera athugasemd við mat Útlendingastofnunar á möguleikum barna þeirra til að fá menntun í Grikklandi og vísa til þess að lítill hluti flóttabarna í Grikklandi hafi raunverulegan aðgang að menntun þar í landi. Kærendur telja það ekki í samræmi við hagsmuni barnanna að snúa aftur til Grikklands þar sem þau muni ekki hafa aðgang að húsnæði, framfærslu, menntun, heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu.

Kærendur fjalla um aðstæður flóttafólks í Grikklandi og gera athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir. Kærendur fjalla um nauðsynlega skráningu, heilbrigðis- og félagsþjónustu, atvinnumöguleika og húsnæði sem þeim standi til boða í Grikklandi. Kærendur vísa í greinargerð sinni til heimilda sem þau telja að gefi til kynna að raunveruleg staða flóttafólks í Grikklandi sé önnur en Útlendingastofnun leggi til grundvallar í málum þeirra. Þá fjalla kærendur um efnahagslegar ástæður og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærendur vísa til þess að samkvæmt mannréttindasáttmálanum geti efnahagslegar ástæður einar og sér talist til brota gegn sáttmálanum, þ.e. þegar aðstæður ná ákveðnum alvarleikaþröskuldi. Kærendur telja að aðstæður fólks með alþjóðlega vernd í Grikklandi, sem sé afskiptalaust og án nokkurrar vonar, falli undir túlkun Mannréttindadómstóls Evrópu. Þá telja kærendur að aðstæður þeirra og hvernig þau séu útilokuð frá fjárhagsaðstoð í Grikklandi nái framangreindum alvarleikaþröskuldi. Þá fjalla kærendur um hatursglæpi og fordóma í Grikklandi en þau telja yfir allan vafa hafið að verði þau send aftur til Grikklands muni þau eiga á hættu fordóma og ofbeldi þar í landi, jafnvel af hálfu grísku lögreglunnar og því standi þeim ekki raunhæf úrræði til boða í Grikklandi. Þá vísa kærendur til þess að óvissa vegna Covid-19 hafi alls ekki minnkað en fordæmalaust ástand ríki nú í Grikklandi vegna faraldursins. Kærendur telja að verði þau send aftur til Grikklands muni þau verða í viðkvæmari stöðu en ella vegna Covid-19, bæði vegna þess ástands sem nú sé í Grikklandi og þeirrar óvissu sem faraldurinn hafi í för með sér.

Kærendur krefjast þess aðallega að umsóknir þeirra um alþjóðleg vernd á Íslandi verði teknar til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 42. gr. sömu laga. Íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglunni um að vísa fólki ekki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu samkvæmt skuldbindingum í alþjóðlegum mannréttindasamningum og eftir viðurkenndum grundvallarreglum þjóðaréttar. Kærendur telja í ljósi frásagna sinna af aðstæðum sínum í Grikklandi og fjölmargra heimilda sem beri saman um óviðunandi aðstæður flóttafólks með alþjóðlega vernd í Grikklandi, að endursending þeirra til Grikklands feli í sér verulega hættu á því að þau verði fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærendur telja að þeirra muni bíða heimilisleysi og örbirgð í Grikklandi verði þau endursend þangað og þau muni verða útilokuð frá grundvallarréttindum auk þess sem þau verði fyrir áreiti, fordómum og ofbeldi vegna uppruna síns.

Til vara byggja kærendur á því að umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi verði teknar til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærendur vísa til þess að þau viðmið sem sett séu fram í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga séu nefnd í dæmaskyni og því sé ekki um að ræða tæmandi talningu á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Ljóst sé að atriði sem talin séu upp í dæmaskyni í reglugerðinni geti með engum hætti komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda um alþjóðlega vernd. Þá séu frásagnir kærenda í samræmi við opinberar og áreiðanlegar heimildir um þá alvarlegu mismunun sem ríki gagnvart fólki með alþjóðlega vernd í Grikklandi. Kærendur telja að þau séu útilokuð frá húsnæði, framfærslu, atvinnu og viðunandi heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og að þar verði þau þolendur fordóma, áreitis og ofbeldis vegna uppruna síns. Kærendur telja að þegar litið sé til skilyrða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga falli staða þeirra þar undir en grísk stjórnvöld útiloki þau m.a. frá grískukennslu, leikskóla og atvinnuþátttöku. Þá sé viðunandi heilbrigðisþjónusta þeim óaðgengileg. Jafnframt sé staða kærenda verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Þá hafna kærendur mati Útlendingastofnunar en þau telja að stofnunin líti eingöngu til skilyrða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga við mat sitt auk þess sem stofnunin meti ekki alvarlegan og margþættan heilsufarsvanda kærenda. Jafnframt líti stofnunin aðeins til lagalegrar stöðu flóttafólks í Grikklandi en ekki raunveruleikans. Þá telja kærendur að þau séu einstaklingar í viðkvæmri stöðu. Kærendur telja því að sérstakar ástæður séu uppi í máli þessu í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Til þrautavara krefjast kærendur að umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd verði teknar til nýrrar meðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærendur vísa til þess að rannsókn Útlendingastofnunar á heilsufari þeirra og hagsmunum barna þeirra hafi verið ábótavant. Þá telja kærendur að rétt hafi verið að taka viðtal við elsta barn kærenda en þau hafi lýst því að minningar frá Grikklandi sæki á barnið. Kærendur telja slíkt nauðsynlegt vegna 28. gr. laga um útlendinga sem og 2. mgr. 23. gr. sömu laga og 10. gr. stjórnsýslulaga.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kærenda

Samkvæmt gögnum málsins eru kærendur par á [...]sem eru stödd hér á landi ásamt fjórum börnum sínum sem eru [...], [...], [...] og [...] ára. Við meðferð málsins hafa kærendur greint frá því að hafa lagt á flótta frá heimaríki í kjölfar þess að vopnaðir hópar hafi hótað M og lamið hann auk þess sem þeir hafi nauðgað K. Þá hafi A verið lamin í höfuðið með byssu. Kærendur hafi komið til viðtökuríkis árið 2018 og hlotið alþjóðlega vernd þar í landi hinn 6. nóvember 2018. Kærendur hafi þaðan farið til Þýskalands og sótt um alþjóðlega vernd þar í landi 24. maí 2019. Þá hafi kærendur sótt um alþjóðlega vernd í Finnlandi 8. nóvember 2019. Kærendur hafi svo farið aftur til Grikklands og dvalið þar til ársins 2021 þegar þau hafi lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að þau hafi þurft að hafast við í tjaldi í Grikklandi eftir að þau hlutu alþjóðlega vernd þar í landi. Aðeins eftir að hafa hlotið aðstoð kristins safnaðar í Finnlandi hafi þau getað leigt húsnæði og komist af götunni. Kærendur greindu frá því að börn sín hafi ekki haft aðgang að skóla eða leikskóla í viðtökuríki auk þess sem kærendur hefðu ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu. Þá hafi M reynt að leita að atvinnu í Grikklandi án árangurs. Kærendur hafi greint frá því að vera með skatt- og almannatrygginganúmer í Grikklandi. Kærendur hafa greint frá því að hafa sætt hótunum í Grikklandi af hendi einstaklinga með fjölskyldutengsl við M, m.a. vegna trúskipta kærenda. Framlögð heilsufarsgögn bera með sér að M hafi greinst með […] og sykursýki. Þá hafi M hitt sálfræðing hér á landi. K sé almennt við góða heilsu en hafi greinst með vítamínskort. Þá séu börn kærenda almennt við góða heilsu en A hafi greinst með […] sýkingu hér á landi auk þess sem kærendur hafi greint frá því að B heyri illa og tali því lítið.

Réttarstaða barna kærenda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna og af þeim verður ekki annað ráðið en að hagsmunum barnanna sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða þeirra verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin eru í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála þeirra í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var kærendum og börnum þeirra veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi hinn 9. október 2018 og höfðu þau gilt dvalarleyfi þar í landi til 5. nóvember 2021. Þá liggur fyrir að kærendur hafi sótt um framlengingu á dvalarleyfum sínum sem sé enn til skoðunar hjá grískum stjórnvöldum. Af þeim skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður ráðið að alþjóðleg vernd kærenda haldi áfram að vera gild þótt dvalarleyfi þeirra renni út en sækja þurfi sérstaklega um endurnýjun á dvalarleyfum. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærendur og börn þeirra njóta í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2021 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 12. apríl 2022);
  • Amnesty International Report 2021/22 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 29. mars 2022);

  • Annual report 2020 (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2020);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 30. maí 2022);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 31. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Excluded and segregated – The vanishing education of refugee children in Greece (Refugee Support Aegean, 13. apríl 2021);

  • Freedom in the World 2021 – Greece (Freedom House, 26. febrúar 2021);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Growing up in lockdown: Europe´s children in the age of Covid-19 – Eurochild report (Eurochild, nóvember 2020);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefsíðu Eurochild (http://eurochild.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu Unicef (http://unicef.org);

  • Upplýsingasíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (https://help.unhcr.org/greece/living-in-greece/access-to-education/, sótt 9. júní 2022);
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 9. júní 2022);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 9. júní 2022);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 9. júní 2022) og
  • World Report 2022: Greece – European Union (Human Rights Watch, 10. janúar 2022).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslum European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í maí 2022 og Passerell frá því í nóvember 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir flóttafólk þurfa einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt skýrslu ECRE er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslum ECRE  og Passerell hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Í skýrslu ECRE kemur fram að samkvæmt grískum lögum sé skólaskylda fyrir börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi á grunnskólaaldri. Í skýrslu Refugee Support Aegean (RSA) kemur fram að Covid-19 faraldurinn hafi haft neikvæð áhrif á menntun flóttabarna. Mörg börn hafi ekki náð að sækja skóla í meira en ár auk þess sem það hafi verið erfiðleikum bundið að skrá sig til náms. Jafnframt eigi stór hluti flóttabarna í erfiðleikum með fjarnám vegna tungumálaerfiðleika og skorts á nauðsynlegum búnaði.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Þá kemur fram að flóttabörn hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi. Þrátt fyrir að lögin kveði á um bann við líkamlegum refsingum og illri meðferð á börnum sé framfylgni laganna af hálfu stjórnvalda ekki talin fullnægjandi. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Í skýrslu ECRE kemur fram að handhöfum alþjóðlegrar verndar á Grikklandi sé veitt dvalarleyfi (ADET) til þriggja ára. Þá fái einstaklingar sem hafa hlotið viðbótarvernd, dvalarleyfi til eins árs sem sé hægt að framlengja að þeim tíma loknum til tveggja ára og sama gildir um þá sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. Þá kemur fram að umsókn um framlengingu dvalarleyfis skuli fara fram ekki seinna en 30 dögum áður en leyfið rennur út. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint kemur fram að það eitt og sér hafi ekki í för með sér að umsókninni verði synjað. Frá árinu 2017 hefur umsókn um endurnýjun farið fram í gegnum tölvupóst. Þeir einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru ólæsir hafa því mætt hindrunum við að fá endurnýjun á dvalarleyfum sínum. Þá kemur fram í skýrslunni að yfirleitt taki um einn og hálfan mánuð að fá dvalarleyfi endurnýjað þó dæmi séu um að endurnýjun hafi tekið um sex mánuði. Við endurnýjun fari fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun eigi hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefur til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun og er gilt í fjóra mánuði. Dæmi eru þó um að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Þá sé vinnumálastofnun Grikklands (e. Manpower Employment Organization) gjarnan treg til að taka á móti slíkum vottorðum þar sem vottorðin séu m.a. án myndar af einstaklingnum og ekki vatnsmerkt.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 23. nóvember 2021, kemur fram að M hafi greint frá því að vera með sögu um astma. M hafi greint frá því að líða illa andlega og takast á við vanlíðan sína með áfengisdrykkju. Þá greindi M frá því að glíma við höfuðverk, verk í hálsi, baki og fæti eftir að hafa verið laminn í heimaríki. Þá hafi M verið með þykkildi undir húð á höfði og stóra fæðingarbletti undir holhönd. Í komunótu frá Bráðadeild, dags. 3. janúar 2022, kemur fram að M hafi verið vísað þangað af Læknavaktinni til nánara mats. M hafi haft grun um að hann væri með sykursýki en hann hafi undanfarið haft tíðari þvaglát og fundið fyrir slappleika. M hafi mælst með vægan háþrýsting og verið ávísað viðeigandi lyfjum og eftirfylgni á vegum heilsugæslu. Í komunótu frá heilsugæslunni Sólvangi, dags. 24. janúar 2022, kemur fram að M hafi leitað þangað m.a. vegna verkjar í mjóbaki, útbrota í nára, fyrirferðar í hársverði og risvanda. M hafi fengið tilvísun til lýtalæknis vegna fyrirferðar í hársverði. Þá hafi verið útbúin beiðni um sjúkraþjálfun vegna verkja í mjóbaki. Jafnframt hafi M fengið ávísað kremi og lyfi við framangreindum kvillum. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni Sólvangi, dags. 11. febrúar 2022, kemur fram að M hafi leitað þangað vegna húðvandamála í nára og harðlífis. M hafi fengið ávísað kremi og viðeigandi lyfi. Í komunótum frá Bráðadeild, dags. 2. til 3. mars 2022, kemur m.a. fram að M hafi leitað þangað vegna kviðverkja, ógleði og uppkasta. Samkvæmt sneiðmyndatöku hafi M verið með […]. Í komunótum frá Meltingar- og nýrnadeild, dags. 3. til 9. mars 2022, kemur fram að M hafi verið lagður inn. Blóðprufur hafi sýnt merki um lifrarbólgu. Þá hafi segulómun leitt í ljós fitulifur, blöðru í lifur með kalkaða jaðra og steina í gallgöngum en ekki víkkun á gallgöngum. M hafi undirgengist aðgerð þar sem skorið hafi verið í gallrásarop um skeifugörn í holspeglun og gallsteinn fjarlægður. Gallsteinninn hafi ekki verið hefðbundinn steinn og því verið sendur í ræktun en hugsanlega hafi verið um að ræða […]. Í dagáli meltingarlæknis, dags. 8. mars 2022, kemur fram að M hafi byrjað að finna fyrir verkjum ofarlega í kvið og særindum í hálsi. M hafi verið gefin verkjalyf. Í læknabréfi, dags. 21. mars 2022, kemur fram að í vefjabolta hafi ekki fundist nein sníkjudýr en sýni hafi verið sent til Þýskalands til frekari rannsóknar. Þá hafi M verið gefin tími í endurkomu hjá meltingarlækni. Í göngudeildarskrá Meltingar- og nýrnadeildar, dags. 22. mars 2022, kemur fram að M hafi látið vel af sér. M hafi fengið þrjú verkjaköst í kvið sem standi yfir í hálfa til eina klukkustund í senn. Þá hafi M verið ávísað lyfjum við sykursýki. Í komunótu frá heilsugæslunni Sólvangi, dags. 29. mars 2022, kemur fram að M hafi m.a. leitað þangað vegna harðlífis og gyllinæðar. M sé í yfirþyngd og sé í þörf fyrir matarræðisráðleggingar og hvatningu um hreyfingu. M hafi verið ávísað viðeigandi lyfi og kremi. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 2. desember 2021 og 12. apríl 2022, kemur fram að M hafi hitt sálfræðing þar í tvö skipti. Í komunótu frá Göngudeild lyflækninga, dags. 13. apríl 2022, kemur fram að sýni hafi reynst jákvætt og því væntanlega um […] að ræða. M hafi verið ávísað viðeigandi lyfi. Þá sé M í þörf fyrir frekari ómun. Í göngudeildarskrá, dags. 20. apríl 2022, kemur fram að M hafi komið á göngudeild vegna sullaveiki í lifur. M hafi verið bókaður í endurkomu eftir þrjár vikur. Þá sé M í þörf fyrir ómun á lifur á ný. Í komunótu frá Meltingar- og nýrnadeild, dags. 26. apríl 2022, kemur fram að M hafi leitað þangað vegna eftirlits með gallstasa. Að mati læknis sé ekki öruggt að fjarlægja gallblöðru en honum ráðlagt að bíða og íhuga eftir annað kast. M hafi verið útskrifaður úr eftirliti. Þá hefur M lagt fram gögn frá sálfræðingi í Þýskalandi, dags. 10. október 2019, þar sem m.a. kemur fram að hann sé með þunglyndi og einkenni áfallastreituröskunar.

Í komunótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 16. nóvember 2021, kemur fram að K sé almennt heilbrigð. K hafi greint frá því að vera með loft í maga og tannvandamál. Þá hafi K greint frá því að vera andlega þreytt. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni Sólvangi, dags. 28. desember 2021, kemur fram að K hafi greint frá því að sofa illa og finna fyrir verkjum í fótum. Þá hafi K greint frá því að vera með óreglulegar blæðingar eftir síðustu fæðingu. K hafi jafnframt greint frá því að vera með hægðatregðu og gyllinæð. Bókaður hafi verið tími í blóðrannsókn fyrir K og henni ávísað hægðalosandi lyfi og kremi vegna gyllinæðar. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni Sólvangi, dags. 11. janúar 2022, kemur fram að blóðprufa hafi leitt í ljós járnskort og D-vítamín skort. K hafi fengið ávísað viðeigandi lyfjum. Þá hafi K verið ráðlagt að fá tíma hjá kvensjúkdómalækni vegna óreglulegra blæðinga.

Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 16. nóvember til 2. desember 2021, kemur fram að A sé almennt heilbrigð. K hafi greint frá því við heilsufarsskoðun að A hafi orðið vitni af miklum áföllum sem hafi dunið á fjölskylduna. Þá hafi K greint frá því að A sé með litla matarlyst og þjáist af hægðatregðu. Þá hafi K séð orma í hægðum A. Í samskiptaseðli kemur fram að […] sýking hafi greinst í saursýni A og hún sé með skemmdir í tönnum. A hafi fengið þær bólusetningar sem hana hafi vantað. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi K greint frá því að A glími við hræðslu í kjölfar atburða í heimaríki. Þá liggja fyrir gögn frá sálfræðingi í Þýskalandi vegna A.

Í komunótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 16. nóvember til 2. desember 2021, kemur fram að B sé almennt heilbrigður. K hafi greint frá því að B heyri illa og tali því lítið. Við skoðun hafi B talað og tjáð sig á eðlilegan hátt. B hafi fengið þær bólusetningar sem hann hafi vantað. Í málinu liggja fyrir gögn frá finnskum barnataugalækni, dags. 23. júní 2020, þar sem m.a. kemur fram að B sé í þörf fyrir talþjálfun. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi K hafi greint frá því að B hagi sér illa og beiti systkini sín ofbeldi. Þá liggja einnig fyrir þýsk heilsufarsgögn.

Í komunótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 16. nóvember til 2. desember 2021, kemur fram að C sé almennt heilbrigður drengur. C hafi fengið þær bólusetningar sem hann hafi vantað. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni Sólvangi, dags. 28. apríl 2022, kemur fram að C hafi leitað þangað vegna eyrnaverkjar sem hafi stafað af mergtappa.

Í komunótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 16. nóvember til 2. desember 2021, kemur fram að D sé almennt heilbrigð stúlka. D hafi fengið þær bólusetningar sem hana hafi vantað. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að kærendum gruni að D sé með […].

Kærunefnd tekur fram að kærendum var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dagana 27. október og 15. nóvember 2021, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærendur teldu hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun. Þá var kærendum, sem njóta aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 22. apríl 2022, um framlagningu frekari gagna í málinu. Frekari gögn bárust með greinargerð kærenda hinn 9. maí 2022. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kærenda séu nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kærenda og barna þeirra og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar þeirra geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kærenda og barna þeirra sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kærenda og barna þeirra ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur og börn þeirra hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kærenda og barna þeirra tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kærenda og barna þeirra geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærendur hafa jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið félagslega framfærslu eða atvinnu í Grikklandi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kærenda séu ekki slíkar að þau geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem þau eiga að lögum rétt á og þurfa á að halda í Grikklandi. Þá hefur komið fram í framburði kærenda að þau hafi fengið húsnæði í Grikklandi eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og einnig eftir að þau snéru aftur til Grikklands frá Finnlandi. Líkt og komið hefur fram eiga handhafar alþjóðlegar verndar í Grikklandi sem búa undir fátæktarmörkum m.a. rétt á fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna.

Í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051 er fjallað um skattnúmer í Grikklandi. Skattnúmer er nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Í því máli sem hér er til meðferðar eru kærendur að mestu heilbrigð og vinnufær. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að þau sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem þau þurfi á að halda í viðtökuríki, en þau hafa greint frá því að vera með skatt- og almannatrygginganúmer í Grikklandi.

Kærendur hafa jafnframt borið fyrir sig að hafa orðið fyrir fordómum og mismunun í Grikklandi. Þá hafa kærendur greint frá því að þeim hafi verið hótað af fjölskyldu M vegna trúskipta þeirra auk þess sem kærendur óttist herskáa hópa frá heimaríki þeirra sem þau telji að séu með útsendara í Grikklandi. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærendur um öryggi sitt geti þau leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að þau vænst þess að staða þeirra, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærendur hafa ekki sýnt fram á að aðstæður þeirra í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsóknir kærenda til efnismeðferðar hér á landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsóknir kærenda og barna þeirra hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi skerst á síðustu mánuðum þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kærenda til efnismeðferðar hér á landi. Þá er bólusetning langt á veg komin í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu auk þess sem kærendur hafa greint frá því að vera bólusett gegn Covid-19.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Grikklands geti ekki eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsóknir kærenda og barna þeirra verði teknar til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Líkt og að framan er rakið eru kærendur og börn þeirra handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreinda upplýsinga um aðstæður í Grikklandi og gagna málanna að flutningur kærenda og barna þeirra til Grikklands muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist. Að því er varðar aðgengi barnanna að menntun tekur kærunefnd fram að þótt skýrslur bendi til þess að kærendur þurfi að yfirstíga ákveðnar stjórnsýsluhindranir til að skrá börn sín í skóla er að mati kærunefndar ljóst að börn kærenda eigi lagalegan rétt á menntun í Grikklandi fram til 15 ára aldurs og í kjölfarið rétt til endurgjaldslausrar grískukennslu. Jafnframt geta foreldrar sótt um pláss á leikskóla fyrir börn sín frá 2 ára aldri. Til þess að sækja um pláss á leikskóla þurfi að sýna fram á staðfestingu á heimilisfangi og staðfestingu á því að barnið hafi verið bólusett.

Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í máli kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Grikklands samrýmist hagsmunum barnanna þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir barna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barna kærenda að umsóknir þeirra verði ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda og barna þeirra og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður þeirra er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

K kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun hinn 27. október 2021 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þá kvaðst M í viðtali hjá Útlendingastofnun dagana 9. og 15. nóvember 2021 eiga frænda hér á landi en hann hefði misst allt samband við hann fyrir tveimur árum. Kærendur hafa ekki lagt fram gögn til að renna stoðum undir þá staðhæfingu að þau hafi sérstök tengsl við Ísland. Þá er ekki byggt á sérstökum tengslum í greinargerð kærenda til kærunefndar. Að teknu tillit til þess eru ekki forsendur til að telja að kærendur hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar dagana 11. og 29. október 2021. Samkvæmt 32. gr. c reglugerðar um útlendinga, eins og henni var breytt með reglugerð nr. 638/2019, er Útlendingastofnun heimilt að taka til efnismeðferðar umsókn barns sem hefur fengið vernd í öðru ríki, séu meira en 10 mánuðir liðnir frá því umsókn barst íslenskum stjórnvöldum.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærendur og börn þeirra eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærendur og börn þeirra njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Sú staðreynd að dvalarleyfi kærenda sé útrunnið hefur að mati kærunefndar ekki áhrif á þessa niðurstöðu enda njóta kærendur áfram alþjóðlegrar verndar í Grikklandi þrátt fyrir að þurfa að endurnýja dvalarleyfi sitt, sbr. framangreindar landaupplýsingar.

Samkvæmt framansögðu verða mál kærenda og barna þeirra ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kærenda við hinar kærðu ákvarðanir og reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gera kærendur ýmsar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi.

Vegna umfjöllunar kærenda í greinargerð um að þau séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu samkvæmt 1. mgr. Skilgreining á stöðu samkvæmt 1. mgr. hefur ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kærenda og barna þeirra tekur kærunefnd fram að kærendum var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali þeirra var þeim leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem þau teldu hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hafa kærendur auk þess lagt fram frekari heilsufarsgögn í málinu og er það mat kærunefndar að mál kærenda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar þeirra og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þegar litið er til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga setur fram er ljóst að þau gögn sem liggja fyrir í málinu benda ekki til þess að frekari gagnaöflun geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kærenda og barna þeirra sem horfa beri til við mat á því hvort rétt sé að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar hér á landi.

Vegna tilvísunar í greinargerð kærenda til úrskurðar kærunefndar í málum nr. KNU21040026 og KNU21040027 frá 1. júlí 2021 tekur kærunefnd fram að í málunum voru kærendur hjón með þrjú ung börn á sínu framfæri. Lá fyrir að annar kærenda var lögblindur á báðum augum vegna augnsjúkdóms. Kærandi væri því í þörf fyrir talsverða hjálp varðandi hjálpartæki og umferli. Taldi kærunefnd í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi og þá sérstaklega þegar litið væri til fötlunar hans að ástæða væri til að ætla að kærendur væru í verri aðstöðu en aðrir til þess að sækja sér réttindi sín og framfleyta fjölskyldu sinni. Taldi kærunefnd það ekki vera í samræmi við öryggi, velferð og þroska barnanna þriggja að fara aftur til Grikklands þar sem óvissa væri um trygga framfærslu barnanna, húsnæði og aðgang þeirra að grunnþjónustu. Af þeim sökum telur kærunefnd að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda í framangreindum málum séu frábrugðnar aðstæðum kærenda í fyrirliggjandi máli.

Vegna athugasemdar kærenda um að taka hefði átt viðtal við A tekur kærunefnd fram að samkvæmt verklagi Útlendingastofnunar eru viðtöl tekin við börn niður að sex ára aldri. Á þeim tíma sem viðtöl við kærendur voru tekin hafði A ekki náð þeim aldri. Af þeim sökum telur kærunefnd að ekki sé ástæða til að gera athugasemd við þá framkvæmd. Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við þær. Í ljósi framangreinds fellst kærunefnd ekki á þrautavarakröfu kærenda um að ógilda hinar kærðu ákvarðanir og senda þær til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Frávísun

Samkvæmt gögnum máls komu kærendur hingað til lands dagana 11. og 29. október 2021 ásamt börnum sínum og sóttu um alþjóðlega vernd. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kærenda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                             Gunnar Páll Baldvinsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta