Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 178/2011

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 5. desember 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 178/2011.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 5. desember 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum 1. desember 2011 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Umsóknin var samþykkt en með vísan til starfsloka hjá B var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá móttöku umsóknarinnar. Vinnumálastofnun tók ákvörðun þessa á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi mótteknu 15. desember 2011. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að hin kærða ákvörðun sé rétt.

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 24. október 2011. Vinnumálastofnun barst vottorð vinnuveitanda frá B 9. nóvember 2011. Í vottorðinu er ástæða starfsloka sögð vera tímabundin ráðning en fæðingarorlof er tilgreint sem aðrar ástæður starfsloka. Vinnumálastofnun kallaði eftir upplýsingum frá B við afgreiðslu umsóknar kæranda og samkvæmt þeim upplýsingum hafði kærandi verið fastráðin hjá félaginu en ekki mætt til starfa eftir fæðingarorlof. Þar sem upplýsingar í vottorði vinnuveitanda og frá B stönguðust á kallaði starfsmaður úrskurðarnefndarinnar eftir skýringum á því hjá B. Fram kom að kærandi hefði verið í tímabundinni ráðningu og 29. desember 2010 hafi kærandi lagt fram læknisvottorð, farið í veikindaleyfi og hætt störfum. Hún hafi síðan farið í fæðingarorlof 8. febrúar 2011 og hafi B ekki heyrt í kæranda eftir það. Hún hafi ekki sagt upp störfum sínum og vinnuveitandinn hafi ekki gert reka að því að kalla eftir afstöðu kæranda til frekari starfa.

 

Með bréfi, dags. 21. nóvember 2011, óskaði Vinnumálastofnun eftir skriflegum athugasemdum hjá kæranda á ástæðum uppsagnarinnar. Skýringarbréf kæranda barst Vinnumálastofnun þann 22. nóvember 2011. Í bréfi kæranda kemur fram að það henti kæranda ekki að vera einungis í 30% hlutastarfi og að hún þurfi á því að halda að vera í fullu starfi.

 

Í kæru, dags. 13. desember 2011, kemur fram að kærandi hafi haustið 2010 farið úr 100% sumarstarfi hjá B í 30‒50% starf sem hún hafi getað verið í fram að fæðingu barns hennar í byrjun árs 2011. Kærandi kveðst ekki hafa getað fengið meiri vinnu á þessum tíma. Eftir að fæðingarorlofi kæranda lauk hafi hún byrjað að leita sér að vinnu. Hún hafi haldið að hún myndi fá vinnu fljótt og hafi því ekki strax sótt um atvinnuleysisbætur. Eftir um tveggja mánaða árangurslausa leit að starfi hafi hún svo sótt um atvinnuleysisbætur en fengið þau svör að hún þyrfti að bíða í aðra tvo mánuði.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 19. mars 2012, kemur fram að málið varði 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um afleiðingar þess ef starfi er sagt upp án gildra ástæðna. Vísar stofnunin til þess að í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði.

 

Vinnumálastofnun bendir á að í athugasemdum við 1. mgr. 1. gr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar segi meðal annars að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða aðstæður sem liggja að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum sem séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan yrði matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

 

Vinnumálastofnun áréttar að tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir eru og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segja upp störfum sínum, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Er það mat Vinnumálastofnunar að ágreiningur milli launamanna og vinnuveitanda um, launakjör, vinnutíma og aðstæður á vinnustað flokkist almennt ekki sem gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Vinnumálastofnun greinir frá því að ágreiningur málsins snúist um hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hjá B teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Hafi orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafi fá tilvik verið talin falla þar undir. Vinnumálastofnun bendir á að kærandi mætti ekki til starfa hjá B eftir að fæðingarorlofi hennar lauk. Í skýringum kæranda til stofnunarinnar segi kærandi meðal annars að 30% starf hentaði henni ekki og því hafi hún hætt í vinnu sinni til að leita að 100% starfi. Þá bendir Vinnumálastofnun á að kærandi hafi áður sinnt 30% starfi hjá B og ekki verði séð að fyrra starfshlutfall geti haft áhrif á biðtímaákvörðun stofnunarinnar enda feli starfið í sér launaða vinnu í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli, sbr. a-lið 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hvergi sé heimild til að ákvarða biðtíma á grundvelli 54. gr. laganna, í samræmi við hlutfall þess starfs er atvinnuleitandi starfaði áður við. Samkvæmt 1. mgr. 54. gr. skuli atvinnuleitandi ekki eiga rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla laganna, þar sem mælt sé fyrir um fjárhæð atvinnuleysisbóta og tilhögun greiðslna atvinnuleysistrygginga, fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur.

 

Samkvæmt framangreindu er það mat Vinnumálstofnunar að ástæður kæranda fyrir uppsögn sinni teljist ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og er það niðurstaða stofnunarinnar að greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda skuli fyrst hefjast þegar umsækjandi hafi verið skráð hjá Vinnumálastofnun án greiðslna atvinnuleysistrygginga í tvo mánuði.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 21. mars 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 4. apríl 2012. Engar athugasemdir bárust frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 27. mars 2012, var kærandi látinn vita um tafir á afgreiðslu málsins vegna gríðarlegs fjölda kærumála hjá úrskurðarnefndinni.

 

 

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

 

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.

 

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

 

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

 

Að sögn B var kærandi í tímabundinni 30% vinnu þar til hún fór í veikindaleyfi 29. desember 2010 og í framhaldi af því í fæðingarorlof 8. febrúar 2011. Hún kom ekki aftur til starfa hjá B að loknu fæðingarorlofi og vinnuveitandi hennar virðist ekki hafa gert ráð fyrir því að svo yrði. Það er mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerða að ekki hafi verið um að ræða ráðningarsamband á milli kæranda og vinnuveitandans og beri því að fella ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði úr gildi.


 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 1. desember 2011 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er felld úr gildi.

 

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúríksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta