Hoppa yfir valmynd

Nr. 171/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 7.maí 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 171/2020

í stjórnsýslumálum nr. KNU20020024 og KNU20040017

Beiðni […] um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 35/2020, dags. 29. janúar 2020, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. september 2019, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefnd kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa henni frá landinu.

Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 3. febrúar 2020. Kærandi óskaði eftir frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 10. febrúar 2020. Þann 8. apríl 2020 leiðbeindi kærunefnd kæranda, með vísan til þeirrar stöðu sem uppi sé vegna Covid-19 faraldursins, að óska eftir endurupptöku máls hennar hjá nefndinni. Þann 15. apríl 2020 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hennar byggir á 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Í beiðni kæranda er vísað til þess að þann 8. apríl síðastliðinn hafi lögmanni kæranda borist tölvupóstur frá formanni kærunefndar útlendingamála þar sem kærandi telji að fram hafi komið að til stæði að endurskoða og eftir atvikum endurupptaka mál kæranda vegna Covid-19 heimsfaraldurs. Með vísan til framangreinds óski kærandi eftir því að mál hennar verði endurupptekið án tafar.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í máli kæranda þann 29. janúar 2020. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi og frávísun frá landinu bryti ekki gegn 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá var ekki talið að kærandi hefði slík tengsl við landið að nærtækast væri að hún fái hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Af endurupptökubeiðni kæranda má ráða að hún byggi beiðni sína um endurupptöku á því að aðstæður í máli hennar hafi breyst vegna heimsfaraldursins Covid-19.

Við úrlausn málsins hefur kærunefnd litið til hinna sérstöku aðstæðna sem eru uppi í ljósi Covid-19 faraldursins, þeirra áhrifa sem hann kann að hafa á aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og þeirrar óvissu sem framundan er. Þá hefur kærunefnd jafnframt litið til forsendna úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 35/2020 og málsins í heild. Með vísan til þess er það mat kærunefndar að aðstæður hafi breyst verulega frá því að úrskurður í máli kæranda var kveðinn upp, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunefnd fellst því á beiðni kæranda um endurupptöku máls hennar.

Í ljósi þess að endurupptökubeiðni kæranda hefur verið samþykkt leiðir það til þess að upphaflegur úrskurður kærunefndar frá 29. janúar sl. hefur fallið úr gildi. Hefur það því ekki þýðingu fyrir mál kæranda að taka beiðni hennar um frestun réttaráhrifa á umræddum úrskurði til úrlausnar og er henni hér með vísað frá.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Kærandi er með viðbótarvernd í Grikklandi og hefur m.a. greint frá bágum aðstæðum sínum þar í landi. Hún hafi t.a.m. ekki fengið félagslega framfærslu. Í gögnum máls kæranda kemur fram að hún glími m.a. við háþrýsting, sykursýki og hún […]. Í úrskurði kærunefndar í máli kæranda, dags. 29. janúar sl., byggði kærunefnd á því að ekki væru forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem lægju fyrir um aðstæður í Grikklandi og gagna í málinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi hefði aðgang að viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Þá var jafnframt lagt til grundvallar að ekki væru forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi gæti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, og var áréttað að einstaklingar sem hlotið hafi alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð og ríkisborgarar Grikklands, þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til þess að sækja þá þjónustu.

Frá því að kærunefnd útlendingamála úrskurðaði í máli kæranda þann 29. janúar sl. hafa aðstæður breyst verulega með tilkomu Covid-19 faraldursins. Ljóst er að faraldurinn mun hafa verulegar neikvæðar efnahagslegar afleiðingar sem og neikvæð áhrif á innviði viðtökuríkisins. Að mati kærunefndar getur þetta leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd, þ. á m. heilbrigðisþjónustu.

Þá liggur fyrir að vegna útbreiðslu Covid-19 faraldursins hafa mörg ríki, þ.m.t. viðtökuríkið, sett á ferðatakmarkanir og mörg hver lokað tímabundið fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með vernd og á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, en óvíst er hvenær opnað verði aftur fyrir endursendingar.

Ennfremur, í ljósi þeirra áskorana sem viðtökuríkið hefur glímt við um nokkurt skeið í tengslum við aðgengi þeirra sem njóta alþjóðlegrar verndar að innviðum og lagalegum réttindum og með vísan til þeirra erfiðleika sem ætla má að Covid-19 faraldurinn leiði til í ríkinu telur kærunefnd, að svo stöddu, að ástæða sé til að ætla að ekki sé um að ræða svo tímabundið ástand að hjá því verði litið.

Að mati kærunefndar mæla því sérstakar ástæður, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, með því að mál kæranda verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, m.a. með vísan til samverkandi áhrifa stöðu kæranda í viðtökuríki, áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Grikklands og þeirrar óvissu sem af faraldrinum leiðir að öðru leyti.

Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar, eins og hér stendur sérstaklega á og í ljósi heildarmats á aðstæðum kæranda, að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hennar og leggja fyrir stofnunina að taka mál hennar til efnislegrar meðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda og leggja fyrir stofnunina að taka mál hennar til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.  

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hennar.

Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa er vísað frá.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of her case is granted.

The appellant´s request to suspend legal effects is dismissed. The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s application for international protection in Iceland.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Árni Helgason                                                                                     Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta