Hoppa yfir valmynd

Nr. 531/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 25. nóvember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 531/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18100027

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestur og kæruheimild

Með kæru, dags. 9. október 2018, kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir nefnd kærandi), þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. september 2018, að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru kæranda má ráða að hún krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 31. ágúst 2018, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands í 14 daga hjá sendiráði Íslands í Peking í Kína. Við meðferð umsóknarinnar kom fram að tilgangur ferðar kæranda hingað til lands væri að ferðast um landið ásamt vinkonu sinni, sem væri með útgefna vegabréfsáritun frá Frakklandi. Umsókn kæranda var synjað þann 26. september 2018 og var ákvörðun Útlendingastofnunar send með tölvupósti til sendiráðs Íslands í Peking, til birtingar fyrir kæranda. Ekki liggja fyrir upplýsingar um það hvenær ákvörðunin var birt kæranda. Þann 9. október 2018 barst Útlendingastofnun kæra í málinu en kæru fylgdu athugasemdir.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Útlendingastofnun synjaði kæranda um vegabréfsáritun þar sem tilgangur dvalar hennar þótti ótrúverðugur. Upphafleg ferðaáætlun kæranda hefði verið ótrúverðug, enda hefði kærandi aðspurð viðurkennt að sú áætlun hefði einungis verið útbúin til þess að fá vegabréfsáritun. Þá væri síðari ferðaáætlun kæranda einnig ótrúverðug, m.a. fyrirhuguð gönguferð á einum degi sem taki a.m.k. tvo daga í göngu. Var tilgangur ferðar kæranda hingað til lands því dregin í efa. Þar sem kærandi þótti ekki uppfylla skilyrði 20. gr. laga um útlendinga og 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir nr. 1160/2010 um skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar þótti ástæða til að synja umsókn hennar.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í athugasemdum kæranda kemur fram að hún hafi ákveðið ferðina í flýti. Vinkona kæranda hafi dvalist í Evrópu í ágúst sl. og spurt hana hvort hún vildi koma og sjá norðurljósin með henni. Þar sem frídagar væru framundan í Kína gæti hún tekið sér langt frí til að ferðast. Kærandi hafi vitað lítið um Ísland og hafi vinkona hennar því séð um fyrri ferðaáætlunina. Vinkona hennar hafi hins vegar verið í fríi og því hafi ferðaáætlunin ekki verið nákvæmari. Þá gætu komið kringumstæður þar sem ferðaáætlunin gengi ekki alveg eftir, t.a.m. varðandi fyrirhugaða göngu sem vísað hafi verið til í ákvörðun Útlendingastofnunar. Tók kærandi fram að hún væri í traustri vinnu og hafi engan hug á því að búa utan Kína. Áður en hún hafi keypt flugmiða til Íslands hafi hún einnig keypt flugmiða til Rússlands þann 7. febrúar 2019, til að sjá norðurljósin. Tók kærandi loks fram að hún hygðist fara seinnipart október til Íslands og útbúa þá nýja ferðaáætlun.

IV. Niðurstaða

Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016 ásamt reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 1160/2010, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er skv. fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. útlendingalaga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins þann 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið útlendingalaganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Ennfremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru er ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út.

Íslenska sendiráðið í Peking tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Peking, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar. Fulltrúi íslenska sendiráðsins í Peking taldi tilgang ferðar kæranda ótrúverðugan og því var umsókn kæranda send til Útlendingastofnunar til ákvörðunar.

Meginástæða synjunar á umsókn kæranda um vegabréfsáritun var sú að Útlendingastofnun taldi hana ekki uppfylla skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, þar sem ferðáætlun hennar hér á landi væri ótrúverðug.

Kærunefnd fellst á mat Útlendingastofnunar um að ferðaáætlun kæranda geti gefið til kynna að ástæða sé að draga í efa réttmæti upplýsinga um tilgang eða skilyrði dvalar kæranda, sem átti að eiga sér stað í september-október sl. í 9 daga. Telur kærunefnd að þær athugasemdir sem kærandi hefur komið á framfæri breyti ekki því mati. Er það jafnframt mat kærunefndar að afgreiðsla íslenska sendiráðsins í Peking hafi verið í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, þar sem kæranda var við meðferð umsóknar sinnar gefin kostur á að skila inn nýrri ferðaáætlun, sem og hún gerði. Hefur kærunefndin lagt mat öll gögn málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar því staðfest.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta