Mannanafnanefnd, úrskurður 2. maí 2012
Mál nr. 21/2012 Eiginnafn: Marísól
Hinn 2. maí 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 21/2012 en erindið barst nefndinni 24. apríl.
Eiginnafnið Marísól (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Marísólar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Marísól (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.