Mál nr. 81/2010
Úrskurður
Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 7. desember 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 81/2010.
1.
Málsatvik og kæruefni
Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 6. maí 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hafi á fundi sínum þann 4. maí 2010 fjallað um beiðni hennar um stimplanir aftur í tímann. Umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur var samþykkt samkvæmt framlögðum gögnum samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Beiðni hennar um að staðfestingu mánaðarlegrar atvinnuleitar væri samþykkt og greidd afturvirkt var hafnað enda væri ekki séð að um mistök af hálfu Vinnumálastofnunar væri að ræða. Kærandi vildi ekki una þessu og kærði ákvörðunina til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi, dags. 18. maí 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 7. október 2009. Hún staðfesti ekki atvinnuleit sína í febrúar og mars 2010 eins og henni bar skylda til. Kærandi hafði samband við Vinnumálastofnun þann 8. apríl 2010 og sagðist hafa staðfest atvinnuleit bæði í febrúar og mars 2010. Tölvudeild Vinnumálastofnunar fann engin merki í tölvukerfinu um að kærandi hefði reynt að staðfesta atvinnuleit sína rafrænt. Kærandi fékk ekki greitt fyrir umrætt tímabil, þ.e. frá 26. janúar til 7. apríl 2010 er hún hafði aftur samband við stofnunina.
Kærandi kveðst hafa skráð sig atvinnulausa í tölvunni og hafi talið sig gera allt rétt en henni hafi láðst að kanna móttöku skráningar. Kærandi vonar að hún verði ekki látin gjalda þessara mistaka þar sem hún hafi verið í góðri trú og þyki þetta mjög miður. Mistökin megi skrifa á lélega tölvukunnáttu en ekki viljaleysi til atvinnuleitar.
Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 14. október 2010, kemur fram að kærandi hafi ekki staðfest atvinnuleit sína skv. 6. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eins og henni væri skylt að gera. Í athugasemdum sem fylgdi frumvarpi til breytingalaga nr. 134/2009 á lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að mikilvægt sé að festa framangreinda framkvæmd stofnunarinnar enn frekar í sessi innan atvinnuleysistryggingakerfisins og undirstrika þannig að eftir að umsókn hins tryggða um atvinnuleysisbætur hafi verið samþykkt beri honum skylda til að hafa samband við stofnunina með reglulegum hætti samkvæmt því fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þessi lagabreyting hafi tekið gildi 1. janúar 2010.
Fram kemur af hálfu Vinnumálastofnunar að það sé óumdeilt í máli þessu að kæranda hafi verið ljóst að staðfesting á atvinnuleit hjá stofnuninni sé nauðsynleg til að greiðslur atvinnuleysistrygginga berist atvinnuleitanda. Að öðrum kosti sé Vinnumálastofnun ekki kunnugt um að umsækjandi um atvinnuleysisbætur sé virkur í atvinnuleit. Þeir sem ekki staðfesti atvinnuleit séu sjálfkrafa afskráðir hjá stofnuninni. Fyrir liggi að kærandi hafi staðfest atvinnuleit mánaðarlega, rafrænt, á heimasíðu stofnunarinnar, frá október til janúar 2010. Fyrir liggi að kærandi hafi verið nægilega upplýstur um skyldur sínar gagnvart Vinnumálastofnun, sbr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
Af hálfu Vinnumálastofnunar kemur fram að regluleg staðfesting á atvinnuleit sé nauðsynleg til að tryggja greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þau samskipti milli umsækjenda um atvinnuleysisbætur og Vinnumálastofnunar sem felist í því að staðfesta mánaðarlega atvinnuleit séu því mikilvægur þáttur í því að vera skráður atvinnulaus hjá stofnuninni. Vinnumálastofnun haldi úti heimasíðu stofnunarinnar þar sem atvinnuleitendum sé gert kleift að staðfesta atvinnuleit mánaðarlega. Staðfestingin fari fram með þeim hætti að atvinnuleitandinn skrái inn kennitölu sína og lykilorð. Þá sé mögulegt að koma að skriflegum athugasemdum með staðfestingu. Þegar atvinnuleitandi hafi staðfest atvinnuleit sína á heimasíðu stofnunarinnar sé tölvupóstur sendur á netfang hans. Tölvupóstur sé sendur á netfang viðkomandi til að koma í veg fyrir að greiðslur til atvinnuleitenda skerðist, kunni svo að fara að tölvukerfi stofnunarinnar hafi ekki móttekið rafræna skráningu. Takist ekki að skrá inn rafræna staðfestingu, til dæmis ef lykilorð eða kennitala séu ranglega skráð, komi upp villa í síðu Vinnumálastofnunar sem ætti ekki að geta farið fram hjá þeim er staðfesti atvinnuleit sína rafrænt á heimasíðu stofnunarinnar. Kærandi sé með skráð tölvupóstfang hjá stofnuninni. Fram kemur að ef stofnuninni berist afrit af tölvupósti þar sem fram komi að kærandi hafi staðfest atvinnuleit á því tímabili sem um ræðir muni stofnunin taka mál hans upp að nýju.
Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 19. október 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 2. nóvember 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.
2.
Niðurstaða
Kærandi í máli þessu taldi sig hafa staðfest atvinnuleit sína rafrænt í febrúar og mars 2010. Engin merki fundust í tölvukerfi Vinnumálastofnunar um að kærandi hefði reynt að staðfesta atvinnuleit sína rafrænt. Í 6. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009, segir:
„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal eftir að umsókn hans skv. 1. mgr. hefur verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveður.“
Í athugasemdum sem fylgdi frumvarpi til breytingalaga nr. 134/2009 á lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að eftir að umsókn hins tryggða um atvinnuleysisbætur hefur verið samþykkt beri honum skylda til að hafa samband við stofnunina með reglulegum hætti samkvæmt því fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Talið var að þetta fyrirkomulag væri þýðingarmikið í því skyni að efla eftirlit með því að atvinnuleitendur væru að sinna skyldum sínum samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til framanritaðs sem og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir ákvörðun sinni verður hin kærða ákvörðun staðfest.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar í máli A um synjun atvinnuleysisbóta frá 26. janúar til 7. apríl 2010 er staðfest.
Brynhildur Georgsdóttir, formaður
Hulda Rós Rúriksdóttir
Helgi Áss Grétarsson