Hoppa yfir valmynd

Nr. 248/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 3. júní 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 248/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21030033

 

Kæra  [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 9. mars 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Afganistan (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. febrúar 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnislegrar meðferðar á Íslandi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en að öðrum kosti með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga. Þá er þess krafist til vara að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að málinu verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun vegna brota á reglum um andmælarétt, sbr. 12. gr. laga um útlendinga og 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 1. júlí 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann 14. júlí 2020, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Ungverjalandi. Þann 17. september 2020 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda í Ungverjalandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá ungverskum yfirvöldum, dags. 22. september 2020, kom fram að kæranda hefði verið veitt viðbótarvernd í Ungverjalandi þann 26. maí 2015, sú vernd sé enn í gildi og kærandi hafi síðast fengið útgefin ferðaskilríki þann 9. mars 2020. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. dagana 7. og 10. september 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 5. nóvember 2020 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Þann 24. nóvember 2020 kærði kærandi ákvörðun Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála og þann 4. febrúar 2021 sendi kærunefnd málið til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun. Þann 19. febrúar 2021 ákvað Útlendingastofnun að nýju að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 23. febrúar 2021 og kærði kærandi ákvörðunina þann 9. mars 2021 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 17. mars 2021. Þá bárust viðbótargögn frá kæranda þann 20. maí 2021.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Ungverjalandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ungverjalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Ungverjalands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd í Ungverjalandi árið 2014 og fengið vernd í landinu ári síðar. Kærandi hafi átt erfitt með að finna atvinnu í Ungverjalandi þar sem vinnuveitendur vilji ekki ráða umsækjendur um alþjóðlega vernd eða flóttafólk í störf. Kærandi hafi þó fundið sér verkamannavinnu og starfað í Ungverjalandi frá árinu 2016 þar til hann hafi orðið atvinnulaus í upphafi árs 2020. Hann hafi að mestu starfað á svörtum markaði og honum ekki verið tryggð ýmis réttindi. Þá hafi vinnuveitendur hans ekki skilað hluta af launum hans til skattayfirvalda. Kærandi hafi leigt herbergi af Rauða krossinum frá árinu 2015 en það hafi einungis staðið til boða til loka árs 2020. Kærandi hafi orðið fyrir fordómum í Ungverjalandi og tali ekki ungversku, m.a. þar sem tungumálið sé flókið.

Kærandi byggir á því að ekki sé tilefni til að víkja frá þeirri stjórnsýsluframkvæmd að mál þeirra sem hingað sæki til lands eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd í Ungverjalandi hljóti efnismeðferð. Þann 7. janúar 2021 hafi kærunefnd kveðið upp úrskurð í máli nr. KNU20110024 en í málinu hafi nefndin fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka mál kæranda, sem veitt hafði verið viðbótarvernd í Ungverjalandi í mars árið 2009, ekki til efnismeðferðar og hafi gert Útlendingastofnun að taka málið til nýrrar meðferðar. Úrskurður kærunefndar hafi verið byggður á því að stofnunin hefði ekki rökstutt með fullnægjandi hætti hvaða breytingar hafi orðið á aðstæðum þeirra sem hlotið hafi vernd í Ungverjalandi frá því að ákvarðanir hafi verið teknar, að því er hafi virst, í sambærilegum málum undir lok árs 2019. Kærandi vísar til þess að jafnræðisreglan sé grundvallarregla í íslenskum stjórnsýslurétti en í reglunni felist að leysa beri úr sambærilegum málum á sambærilegan hátt. Jafnframt telur kærandi að jafnvel þó fallast megi á að við gildistöku reglugerðar nr. 276/2018, þann 6. mars 2018, hafi verið gerðar breytingar sem hafi haft áhrif á túlkun á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þá hafi ekki verið gerðar frekari breytingar frá haustinu 2018 þegar kærunefnd hafi úrskurðað á nýjan leik í þremur málum er varðað höfðu endursendingar á einstaklingum með alþjóðlega vernd í Ungverjalandi. Þá hafi engar slíkar breytingar orðið á aðstæðum flóttafólks í Ungverjalandi sem gefi tilefni til endurskoðunar á þeirri framkvæmd sem mótuð hafi verið með úrskurðunum. Þvert á móti beri skýrslur, fréttaflutningur og aðrar heimildir með sér að aðstæður flóttafólks í Ungverjalandi hafi síst skánað, viðhorf gagnvart flóttafólki í landinu fari stöðugt versnandi og að mismunun hafi aukist.

Kærandi gerir athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi gerir athugasemd við umfjöllun stofnunarinnar um réttarstöðu hans í Ungverjalandi og ýmsar almennar staðhæfingar sem settar hafi verið fram um stöðu flóttafólks í landinu. Kærandi gerir athugasemdir við umfjöllun stofnunarinnar um aðgengi flóttafólks að húsnæði, heilbrigðisþjónustu, félagslegum stuðningi og atvinnu. Ýmsar hindranir standi í vegi fyrir því að flóttafólk geti nýtt sér þá þjónustu, megi þar t.a.m. nefna tungumálaörðugleika og fordóma. Þá sé byggt á því í hinni kærðu ákvörðun að á þeim tíma sem kærandi hafi dvalið í Ungverjalandi hafi hann átt möguleika á að aðlagast samfélaginu og ná tökum á ungversku. Kærandi gerir athugasemd við það mat stofnunarinnar. Síðastliðin ár hafi verið gerðar breytingar á lögum sem hafi það eitt að markmiði að mismuna flóttafólki og grafa undan aðlögun þeirra. Kærandi vísar í þessu samhengi til úrskurða kærunefndar útlendingamála í málum nr. KNU18070005 og KNU18070022 frá 27. september 2018 og nr. KNU18100003 frá 6. nóvember 2018.

Kærandi byggir aðallega á því að taka skuli mál hans til efnislegrar meðferðar hér á landi. Að mati kæranda verði ekki séð að rannsókn hafi farið fram af hálfu Útlendingastofnunar á því hvað hafi breyst til batnaðar með tillitli til aðstæðna einstaklinga með alþjóðlega vernd í Ungverjalandi eða að stofnunin hafi gert grein fyrir þeim meginsjónarmiðum sem hafi legið til grundvallar því að þær breyttu aðstæður hafi leitt til annarrar niðurstöðu frá því að fyrrnefnd ákvörðun stofnunarinnar hafi legið fyrir, fyrir rúmu ári síðan. Kærandi telur að af þeim heimildum sem liggi fyrir hafi engar breytingar orðið til batnaðar í landinu á umræddu tímabili heldur hafi aðstæður versnað ef eitthvað sé. Kærandi geti fallist á það sjónarmið sem fram komi í hinni kærðu ákvörðun að því lengri tíma sem flóttamenn dvelji í viðtökuríki því meiri möguleika eigi þeir almennt á að aðlagast samfélaginu. Sá tími sem kærandi hafi dvalið í Ungverjalandi sé hins vegar afar langur vegur frá þeim tíu árum sem kærandi í máli nr. KNU17030060 hafði haft vernd í landinu. Að mati kæranda séu því málsatvik og aðstæður í úrskurði kærunefndar í því máli ólíkar aðstæðum kæranda og eigi því ekki að koma til skoðunar í því máli sem hér sé til meðferðar. Kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd rétt um það leyti sem ungverska ríkisstjórnin hafi lýst yfir neyðarástandi og sett á neyðarlög vegna fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd. Öll þjónusta og möguleikar kæranda til aðlögunar í kjölfarið þurfi því að skoðast í því ljósi. Líkt og fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar standi viðurkenndum flóttamönnum ekki til boða bein aðstoð eða stuðningur frá ungverskum yfirvöldum við að nýta sér réttindi sín. Ekki verði séð að ungversk yfirvöld hafi gripið til aðgerða til að draga úr hindrunum flóttafólks við að sækja réttindi sín heldur þvert á móti hafi þau unnið að því að takmarka möguleika einstaklinga með alþjóðlega vernd til aðlögunar. Þá hafi fordómar og hatursorðræða stigmagnast síðustu ár vegna strangrar innflytjendastefnu stjórnvalda. Þá hafi núverandi lagaumhverfi einnig verið gagnrýnt fyrir að grafa undan aðlögun viðurkenndra flóttamanna í landinu. Kærandi telur ekki rétt að líta svo á, eins og Útlendingastofnun geri í hinni kærðu ákvörðun, að þar sem kærandi hafi dvalið í fimm ár í landinu, hafi notið aðgengis að húsnæði og heilbrigðisþjónustu, eigi rétt á félagslegri aðstoð, hafi þó nokkra möguleika til atvinnu, hafi hann átt kost á að aðlagast samfélaginu og ná tökum á ungversku og því sé ekkert því til fyrirstöðu að senda hann þangað aftur. Kærandi vísar til þess að aðlögun sé fjölþætt, flókið og vandasamt ferli og snúist að mati kæranda ekki einungis um dvalartíma flóttamanns og hvernig viðkomandi hafi reitt af í viðkomandi ríki. Með tilliti til uppruna kæranda, frásagnar hans og með hliðsjón af upplýsingum um þær aðstæður sem bíði hans í Ungverjalandi telur kærandi að hann muni áfram eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar á grundvelli kynþáttar og hann geti vænst þess að staða hans verði verulega síðri en almennings í viðtökuríki, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá beri hér einnig að líta til áhrifa útbreiðslu Covid-19 faraldursins í ungversku samfélagi. Að mati kæranda séu fyrir hendi sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og Útlendingastofnun beri því að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar. Enn fremur sé af framangreindu ljóst að kærandi muni standa frammi fyrir ómannúðlegum aðstæðum í Ungverjalandi og með endursendingu hans myndu íslensk stjórnvöld gerast brotleg við grundvallarreglu þjóðarréttar um bann við endursendingu (non-refoulement), auk samsvarandi ákvæða íslenskra laga og mannréttindasamninga sem Ísland eigi aðild að, þ.e. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga, 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Til vara gerir kærandi þá kröfu að mál hans hljóti nýja meðferð. Í ákvörðun Útlendingastofnunar frá 19. febrúar 2021 sé að finna umfjöllun og viðbótarröksemdir um mál kæranda sem ekki hafi verið að finna í fyrri ákvörðun stofnunarinnar frá 5. nóvember 2020. Telur kærandi að bréf Útlendingastofnunar til kærunefndar, dags. 29. janúar 2021, ásamt fylgiskjali, og úrskurður kærunefndar frá 4. febrúar 2021 hafi átt að gefa Útlendingastofnun tilefni til að veita kæranda kost á að koma á framfæri andmælum þegar Útlendingastofnun hafi haft umsókn hans til meðferðar öðru sinni og áður en hin kærða ákvörðun hafi verið tekin. Að mati kæranda hafi hér verið um að ræða viðbótarrökstuðning um atriði sem skipt hafi máli fyrir niðurstöðu málsins og hafi verið grundvöllur synjunar um efnislega meðferð á umsókn kæranda, sem kærandi hafi ekki fengið tækifæri til þess að tjá sig um. Kærandi telur með vísan til framangreinds að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið ábótavant hvað þetta atriði varðar og farið gegn 12. gr. laga um útlendinga og 13. gr. stjórnsýslulaga. Því beri að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi og vísa málinu til nýrrar meðferðar hjá stofnuninni.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins hefur kæranda verið veitt alþjóðleg vernd í Ungverjalandi. Samkvæmt svari frá ungverskum stjórnvöldum, dags. 22. september 2020, hlaut kærandi viðbótarvernd í landinu þann 26. maí 2015, vernd hans sé enn virk og hann hafi fengið útgefin ferðaskilríki þann 9. mars 2020. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Ungverjalandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Ungverjalandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Ungverjalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

·         2020 Country Reports on Human Rights Practices - Hungary (U.S. Department of State, 30. mars 2021);

·         Amnesty International Report 2020/21 – Hungary (Amnesty International, 7. apríl 2021);

·         Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union (EASO, 1. júlí 2020);

·         Asylum in Hungary: Damaged Beyond Repair? ECRE‘s call for states to end transfers to Hungary under Dublin and bilateral arrangements (European Council on Refugees and Exiles, 2017);

·         Asylum Information Database National Country Report: Hungary (European Council on Refugees and Exiles, febrúar 2020);

·         Asylum Information Database National Country Report: Hungary (European Council on Refugees and Exiles, 15. apríl 2021);

·         ECRI conclusions on the implementation of the recommendations in respect of Hungary subject to interim follow-up (European Commission against Racism and Intolerance, 15. maí 2018);

·         Freedom in the World 2021 – Hungary (Freedom House, 2021);

·         Hungary: Definition of hate crime according to Hungarian law; recourse available to victims (2015-March 2017) (Immigration and Refugee Board of Canada, 29. mars 2017);

·         Hungary: Legal amendments to detain all asylum-seekers a deliberate new attack on the rights of refugees and migrants (Amnesty International, 9. mars 2017);

·         Hungary as a country of asylum: Observations on restrictive measures and subsequent practice implemented between July 2015 and March 2016 (UNHCR, maí 2016);

·         Hungary Immigration Detention Profile (Global Detention Project, september 2016);

·         Hungary‘s Government Strengthens its Anti-NGO Smear Campaign (Human Rights Watch, 20. janúar 2018);

·         Integration of Refugees in Greece, Hungary and Italy: Comparative Analysis (European Parliament, 20. desember 2017);

·         Migration and Asylum: Commission takes further steps in infringement procedures against Hungary (European Commission, 19. júlí 2018);

·         Report by Dunja Mijatović Commissioner for Human Rights of the Council of Europe Following her Visit to Hungary from 4 to 7 February 2019 (Council of Europe, 21. maí 2019);

·         Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council of Europe Following his Visit to Hungary from 1 to 4 July 2014 (Council of Europe, 16. desember 2014);

·         Report on the human rights situation covering 2019 (Amnesty International, 16. apríl 2020);

·         Report to the Hungarian Government on the visit to Hungary carried out by the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment (CPT) from 20 to 26 October 2017 (Council of Europe, 18. september 2018);

·         Research on integration for beneficiaries of international protection in Hungary (The UN Refugee Agency, febrúar 2019);

·         Response of the Hungarian Government of the report of the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment (CPT) on its visit to Hungary from 20 to 29 November 2018 (Council of Europe, 17. mars 2020);

·         Ungarn: Situasjonen for personer med beskyttelse (Landinfo, 30. ágúst 2016);

·         Upplýsingar af vefsíðu Hungarian Helsinki Committee (https://helsinki.hu);

·         Upplýsingar af vefsíu OSCE – Office for Democratic Institutions and Human Rights (ODIHR)(https://hatecrime.osce.org/hungary);

·         Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 3. júní 2021);

·         Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 3. júní 2021);

·         Your social security rights in Hungary (European Commission, 2020);

·         World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 14. janúar 2020) og

·         World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í apríl 2021 fá einstaklingar sem hljóta alþjóðlega vernd í Ungverjalandi ekki útgefin dvalarleyfi heldur ungversk skilríki. Útgáfa framangreindra skilríkja taki a.m.k. einn mánuð frá því að ákvörðun um veitingu verndar hafi verið tekin og gildi skilríkin í sex ár frá útgáfu. Þá kemur fram að einstaklingar geti sótt um ótímabundið dvalarleyfi hafi þeir haft alþjóðlega vernd í landinu í að minnsta kosti þrjú ár. Í framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu ECRE, kemur einnig fram að alþjóðleg vernd sæti kerfisbundinni endurskoðun á þriggja ára fresti þar sem útlendingastofnun Ungverjalands skoði hvort skilyrði verndar séu enn til staðar. Skuli slík endurskoðun ekki taka meira en 60 daga. Einstaklingurinn sé þá kallaður í viðtal og ef ekki sé grundvöllur fyrir afturköllun sé málsmeðferð hætt. Vernd sé ekki afturkölluð nema að tilteknum skilyrðum uppfylltum, s.s. hafi viðkomandi öðlast ríkisborgararétt, snúið aftur til heimaríkis eða framið alvarlegan glæp sem brjóti í bága við ungversk lög. Einstaklingur geti borið ákvörðun um afturköllun verndar undir dómstóla, sem geti þá fellt ákvörðunina úr gildi eða gert útlendingastofnun að taka málið til meðferðar að nýju. Þeir sem hlotið hafi réttastöðu flóttamanns geti sótt um ríkisborgararétt í landinu eftir þriggja ára dvöl en handhafar viðbótarverndar eftir átta ára dvöl að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi lagst gegn endursendingum umsækjenda til Ungverjalands en ekki endursendingum þeirra sem þegar hafi hlotið vernd í landinu.

Í skýrslu ECRE kemur fram að handhafar alþjóðlegrar verndar hafi heimild til að dvelja í flóttamannabúðum í allt að 30 daga frá verndarveitingu. Frá árinu 2016 hafi flóttamenn ekki notið frekari stuðnings ríkisins varðandi húsnæði eða framfærslu en eigi þó rétt á félagslegri aðstoð og aðgengi að húsnæðismarkaði til jafns við ungverska ríkisborgara þrátt fyrir að ýmsar hindranir geti staðið því í vegi að þeir geti nýtt sér þá aðstoð. Vegna almenns húsnæðisskorts í landinu sé leiguverð almennt hátt og þá gæti mismununar á leigumarkaði en talið sé að Ungverjar kjósi fremur að leigja öðrum Ungverjum húsnæði sitt en erlendum aðilum. Frjáls félagasamtök og kirkjur hafi veitt flóttafólki aðstoð, m.a. endurgjaldslausa gistingu. Flest gistiskýlin séu staðsett í Búdapest og dvelji því flestir flóttamenn í höfuðborginni. Þá hafi handhafar alþjóðlegrar verndar aðgang að félagslega kerfi landsins, s.s. atvinnuleysisbótum, veikindarétti og fæðingarorlofi, til jafns við ungverska ríkisborgara, þó krefjist sum sveitarfélög þess að viðkomandi hafi haft lögheimili á svæðinu í vissan árafjölda. Þá séu skilyrði atvinnuleysisbóta að viðkomandi einstaklingur hafi starfað í landinu í að lágmarki 365 daga á síðustu þremur árum. Í skýrslu ECRE kemur fram að handhafar alþjóðlegrar verndar í Ungverjalandi hafi aðgang að vinnumarkaðnum þar í landi til jafns við ungverska ríkisborgara, að undanskilinni starfsemi þar sem þess sé krafist í lögum að ungverskir ríkisborgarar sinni. Handhafar alþjóðlegrar verndar í Ungverjalandi glími þó við ýmsar hindranir á vinnumarkaðnum þar í landi, m.a. vegna tungumálaörðugleika og því standi margir í reynd frammi fyrir atvinnuleysi í Ungverjalandi. Þá hafi handhafar alþjóðlegrar verndar í Ungverjalandi sama aðgang að þjónustu vinnumálastofnunar þar í landi og ungverskir ríkisborgarar þó að erfitt geti verið í sumum tilvikum að finna enskumælandi þjónustufulltrúa.

Í skýrslu ECRE kemur einnig fram að handhafar alþjóðlegrar verndar í Ungverjalandi hafi, að sex mánuðum liðnum frá veitingu verndar, aðgang að heilbrigðisþjónustu til jafns við ungverska ríkisborgara en fram að þeim tíma njóti þeir sömu réttinda og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í framangreindum skýrslum kemur þá fram að þegar einstaklingur hafi atvinnu í Ungverjalandi sé hann sjúkratryggður og eigi rétt á allri þeirri heilbrigðisþjónustu sem hann hafi þörf á, sem að meginstefnu til sé gjaldfrjáls, t.d. almennum læknisskoðunum, sjúkrahúsdvöl, lyfjum og tannlækningum. Í einhverjum tilvikum þurfi einstaklingar þó að greiða fyrir hluta sérfræðiþjónustu eða lyfja. Sé einstaklingur af einhverjum ástæðum ekki sjúkratryggður eigi hann rétt á heilbrigðisþjónustu til jafns við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Feli það í sér aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu, s.s. læknisskoðunum auk sérfræðilækninga í neyðartilfellum. Ýmsar hindranir séu þó við nýtingu þjónustunnar m.a. vegna tungumálaörðugleika, þekkingarleysis á ungverskum lögum og stjórnsýslu og mismununar af hálfu opinberra starfsmanna, þ.m.t. lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks.

Af framangreindum skýrslum verður ráðið að ungversk yfirvöld hafi átt við margvíslegan vanda að etja við móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd og hefur hæliskerfið í Ungverjalandi verið harðlega gagnrýnt. Í skýrslu European Parliament frá desember 2017 kemur m.a. fram að öfugt við grísk og ítölsk yfirvöld hafi ungversk yfirvöld lagt kapp á að takmarka aðgerðir og stuðning til handa flóttafólki. Því séu frjáls félagasamtök í landinu afar mikilvæg þessum hópi. Kemur þá m.a. fram í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 að í júlí 2018 hafi ungverska þingið samþykkt löggjöf sem geri það að verkum að lögmenn, ráðgjafar, sjálfboðaliðar og aðrir sem aðstoði m.a. umsækjendur um alþjóðlega vernd geti átt yfir höfði sér fangelsisrefsingu. Þá hafi ungverskum skattalögum verið breytt á þá leið að 25% skattur skuli lagður á starfsemi frjálsra félagasamtaka sem snúi að stuðningi við innflytjendur.

Í skýrslu United Nations Human Rights frá árinu 2019 kemur fram að á síðustu árum hafi umsóknum um alþjóðlega vernd í Ungverjalandi fjölgað verulega en í kjölfarið hafi orðið vart við umburðarleysi og hatursorðræðu gagnvart þessum hópi, svo og flóttafólki og innflytjendum. Hatursglæpir og hatursorðræða séu refsiverð samkvæmt ungverskum hegningarlögum en eftirfylgni með löggjöfinni skorti. Í skjóli þess refsileysis sem viðgangist í málaflokknum hafi hatursorðræða rutt sér til rúms á opinberum vettvangi og ofbeldi gegn innflytjendum, umsækjendum um alþjóðlega vernd og flóttafólki aukist til muna. Í skýrslunni kemur þó fram að í höfuðstöðvum lögreglu ríkisins hafi sérstök áhersla verið lögð á að uppfæra áætlun um hatursglæpi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur þá jafnframt fram að yfirvöld í Ungverjalandi hafi vísað til þess að Covid-19 faraldurinn í landinu eigi m.a. rætur að rekja til fjölda innflytjenda þar í landi sem flestir komi frá ríkjum þar sem mikill fjöldi Covid-19 tilfella hafi greinst auk þess sem þeir einstaklingar geti borið með sér aðra sjúkdóma sem ekki séu lengur algengir í landinu.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að líkamleg og andleg heilsa hans væri góð. Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 23. júlí 2020, kemur fram að kærandi sé með væga hjartastækkun á lungnamynd og mjög háan blóðþrýsting. Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 16. september 2020, kemur fram að kærandi glími við svefnvandamál vegna atburða í heimaríki. Þá hafi kærandi greint frá því að eiga erfitt með að vera í margmenni auk þess sem samtöl við annað fólk þreyti hann og pirri. Jafnframt sé kærandi með litla matarlyst. Kærandi þjáist hugsanlega af þunglyndi og þurfi meðferð við því. Þá sé kærandi með væga hjartastækkun. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni í Keflavík, dags. 21. september 2020, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna verkja og kláða frá báðum eyrum. Þá hafi kærandi óskað eftir blóðþrýstingsmælingu og greint frá því að hann sé gjarn á að fá höfuðverki og móðusjón sem gangi yfir á stuttum tíma. Kæranda hafi verið ávísað eyrnadropum og mælt með því að hann fari í heyrnamælingu. Þá hafi kærandi mælst með háan blóðþrýsting og honum verið ávísað lyfjum vegna þess. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni í Keflavík, dags. 5. október 2020, kemur fram að kærandi hafi komið í endurkomu vegna háþrýstings en hann svari lyfjameðferð vel. Þá hafi kærandi greint frá heyrnartapi og óþægindum frá eyrum. Skoðun hafi leitt í ljós hávaðaskemmdir og aldurstengdan heyrnaskaða. Kærandi þurfi á heyrnatæki að halda fari heyrnin versnandi. Þá hafi kæranda verið ávísað geðdeyfðarlyfi vegna þunglyndis. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni í Grafarvogi, dags. 10. desember 2020, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna svefnvanda. Þá sé kærandi með verki í bringu og kláða í báðum eyrum. Kæranda hafi verið ávísað kvíða- og svefnlyfjum auk þess sem honum hafi verið ráðlagt að taka inn bakflæðislyf vegna brjóstverkja. Þá hafi kæranda verið ávísað ofnæmislyfi vegna kláða í eyrum. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni í Grafarvogi, dags. 15. apríl 2021, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna svefnvanda, höfuðverkjar, verkjar í hægri öxl og vandamála í eyrum. Blóðþrýstingur kæranda hafi mælst hár og honum ávísað lyfi vegna þess. Þá hafi hann fengið ávísað lyfi við taugaverkjum. Í samskiptaseðli frá heilsugæslunni Grafarvogi, dags. 6. maí 2021, kemur fram að kærandi hafi komið í eftirlit vegna blóðþrýstings og eftirfylgni vegna verkjar í öxl. Kærandi hafi fengið tilvísun til sjúkraþjálfara og ráðlagt að halda áfram að taka inn lyf vegna blóðþrýstings.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dagana 7. og 10. september 2020, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða kross Íslands, leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 18. maí 2021, um framlagningu frekari gagna í málinu, t.a.m. heilsufarsgagna. Bárust frekari gögn um heilsufar þann 20. maí 2021. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Ungverjalandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Ungverjalandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Ungverjalands, þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hafa fengið læknisþjónustu þar í landi. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Þá hefur kærandi jafnframt greint frá því að aðstæður hans í Ungverjalandi hafi verið erfiðar, m.a. í ljósi skorts á félagslegri framfærslu og erfiðleikum við að finna húsnæði. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Ungverjalandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og ungverskir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður segir. Þótt skýrslur um aðstæður í Ungverjalandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Ungverjalandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda í Ungverjalandi. Þá hefur kærandi við meðferð málsins greint frá því að hafa frá árinu 2016 haft atvinnu í Ungverjalandi.

Kærandi hefur borið fyrir sig að hafa orðið fyrir fordómum í Ungverjalandi. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir fordómum og hatursorðræðu í Ungverjalandi. Í stjórnarskrá Ungverjalands er m.a. kveðið á um bann við mismunun minnihlutahópa, m.a. á grundvelli þjóðernis og þá er í hegningarlögum landsins kveðið á um refsingu fyrir það að svipta einstakling grundvallarréttindum sínum m.a. á grundvelli þjóðernis eða uppruna. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu OSCE – ODIHR (Office for Democratic Institutions and Human Rights (ODIHR)) kemur fram að árið 2019 hafi lögreglan í Ungverjalandi gefið út leiðbeiningar til að samræma framkvæmd verkefna er tengjast hatursglæpum. Samkvæmt leiðbeiningunum eigi yfirvöld að líta til og taka tillit til vísbendinga um fordóma og hlutdrægni þegar þau greini og rannsaki glæpi með það að markmiði að útrýma og bregðast á áhrifaríkan hátt við kynþáttafordómum, kynþáttamisrétti, útlendingahatri og tengdum glæpum. Á hverri lögreglustöð á að skipa sérstakan leiðbeinanda til að auðvelda rannsóknir á hatursglæpum og hver héraðslögregla skal skipa a.m.k. einn fulltrúa fyrir hatursglæpi sem aðstoði staðarlögregluna í störfum sínum. Þá geti einstaklingar leitað til hjálparsamtakanna Hungarian Helsinki Committee í Ungverjalandi en samtökin hafa það m.a. að markmiði að vernda minnihlutahópa gegn hvers konar mismunun og hatursorðræðu. Þá bjóði samtökin innflytjendum og flóttafólki upp á gjaldfrjálsa lögfræðiþjónustu og aðstoða við aðlögun að samfélaginu. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað sér aðstoðar yfirvalda eða hjálparsamtaka verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Hafa aðgerðirnar m.a. falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg ríki sett á ferðatakmarkanir og á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með alþjóðlega vernd og á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríkir um það hvenær framkvæmd endursendinga verður komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Samkvæmt upplýsingasíðu Johns Hopkins háskólans í Bandaríkjunum og vefsíðu Sóttvarnarstofnunar Evrópu hefur nýgengi Covid-19 smita í Ungverjalandi sveiflast nokkuð en samkvæmt síðarnefndu vefsíðunni er nýgengi smita í Ungverjalandi síðustu tvær vikur það hæsta meðal EES ríkjanna. Yfirvöld í Ungverjalandi hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til að sporna við útbreiðslu veirunnar, m.a. með lokun landamæra, útgöngubanni á ákveðnum tíma dags, grímuskyldu á almenningsstöðum, í verslunum, heilbrigðisstofnunum og almenningssamgöngum, landamæraskimun og sóttkví. Þá eru bólusetningar komnar vel á veg í Ungverjalandi og hefur um þriðjungur íbúa landsins verið bólusettur. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu Hungarian Helsinki Committee eru skrifstofur útlendingastofnunar Ungverjalands opnar en panta þarf tíma fyrir hvers konar aðstoð áður en komið er á staðinn. Þá yrði gildistími dvalarleyfa og skilríkja sem rynnu út á tímabilinu 4. nóvember 2020 til 22. maí 2021 framlengdur sjálfkrafa um 30 daga. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem eru við lýði vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar og komi ekki til með að hafa teljandi áhrif á stöðu kæranda þar í landi þegar takmörkunum hefur verið aflétt. Í því sambandi lítur kærunefnd einnig til þess að Lyfjastofnun Evrópu hefur samþykkt notkun á fjórum tegundum bóluefna gegn veirunni sem veldur Covid-19 og að vænta megi að notkun fleiri bóluefna verði samþykkt á næstunni. Þá hefur bólusetning hafist í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu líkt og að framan greinir.

Kærunefnd telur að verulega hafi dregið úr óvissu sem til staðar var í upphafi faraldursins m.a. um áhrif faraldursins á innviði viðtökuríkisins og hefur kærunefnd hér að framan lagt einstaklingsbundið mat á væntanlegar aðstæður kæranda í viðtökuríkinu í samræmi við stöðu mála þar í landi eins og þær horfa við nú um stundir. Kærunefnd telur með vísan til þeirra skýrslna og gagna sem nefndin hefur kynnt sér að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar í Ungverjalandi hafi skerst á síðustu mánuðum vegna Covid-19 faraldursins þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Ungverjalands geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurða kærunefndar í málum nr. KNU18070022 og KNU18070005 frá 27. september 2018 og KNU18100003 frá 6. nóvember 2018, telur kærunefnd að þrátt fyrir að um sama viðtökuríki sé að ræða sé ekki unnt að jafna aðstæðum kæranda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum málum. Í framangreindum úrskurðum var fjallað um aðgerðir ungverskra stjórnvalda sem hafi verið til þess fallnar að takmarka möguleika umsækjenda um alþjóðlega vernd til aðlögunar en niðurstaða kærunefndar byggði m.a. á því að staða einstaklinga sem hlotið höfðu alþjóðlega vernd í Ungverjalandi, sem væru af öðrum kynþætti en almenningur þar í landi og höfðu ekki aðlagast samfélaginu, væri verulega síðri en staða almennings þar í landi. Af framangreindum skýrslum má sjá að árið 2015 hafi orðið mikil aukning á umsóknum um alþjóðlega vernd í Ungverjalandi og að í kjölfarið hafi ungversk stjórnvöld gripið til hertra aðgerða í því skyni að sporna við þeirri þróun. Í framangreindum úrskurðum er fjallað um þessar aðgerðir sem hafi m.a. lýst sér í skerðingu á þjónustu við umsækjendur og aðgerðum til þess að draga úr möguleikum frjálsra félagasamtaka til að aðstoða einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Ungverjalandi.

Kærunefnd hefur lagt einstaklingsbundið mat á aðstæður kæranda í viðtökuríkinu og við það mat einkum litið til þess hvort viðkomandi hafi og komi til með að hafa aðgang að grunnþjónustu í viðtökuríki sem sé grundvöllur fyrir aðlögun í viðkomandi ríki. Í framangreindum úrskurðum frá árinu 2018 kemur fram að í júní 2018 hafi ungverska þingið samþykkt löggjöf sem hafi gert það refsivert að aðstoða umsækjendur um alþjóðlega vernd. Umrædd löggjöf lýtur einungis að umsækjendum um alþjóðlega vernd en ekki handhöfum alþjóðlegrar verndar í Ungverjalandi og þær heimildir sem kærunefnd hefur kynnt sér bera ekki með sér að viðurlögum hafi verið beitt gegn þeim sem aðstoði einstaklinga með alþjóðlega vernd í Ungverjalandi frá því að lögin voru sett. Þá kemur fram að ungverskum skattalögum hafi verið breytt á þá leið að tiltekinn skattur hafi verið lagður á starfsemi frjálsra félagasamtaka. Með dómi Evrópudómstólsins í máli Framkvæmdastjórnarinnar gegn Ungverjalandi, nr. C-78/18, frá 18. júní 2020 komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að umrædd löggjöf færi í bága við skuldbindingar Ungverjalands samkvæmt sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Í kjölfar dómsins hefur ríkisstjórn Ungverjalands lagt fram frumvarp þess efnis að afnema skuli lögin. Þá bera heimildir, s.s. skýrsla ECRE, og frásögn kæranda með sér að hjálparsamtök hafi verið starfrækt í viðtökuríki síðustu ár en kærandi hafi til að mynda greint frá því að hafa búið í gistiúrræðum á vegum hjálparsamtaka þann tíma sem hann hafi dvalið í Ungverjalandi og hefur kærunefnd ekki forsendur til að ætla annað en að sú þjónusta standi honum enn til boða. Hér að framan var því lýst að handhafar alþjóðlegrar verndar hafi heimild til að dvelja í flóttamannabúðum í allt að 30 daga frá verndarveitingu en að frá árinu 2016 hafi flóttamenn ekki notið frekari stuðnings ríkisins varðandi húsnæði eða framfærslu en þeir eigi þó rétt á félagslegri aðstoð og aðgengi að húsnæðismarkaði til jafns á við ungverska ríkisborgara þrátt fyrir að ýmsar hindranir geti staðið þeim í vegi. Kærandi í því máli sem hér er til meðferðar hefur dvalið í Ungverjalandi í tæp sjö ár. Hann hefur að eigin sögn haft atvinnu í landinu frá árinu 2016. Jafnframt greindi kærandi frá því að hafa haft aðgang að heilbrigðiskerfi landsins sem hann hefur nýtt sér í allavega tvö skipti. Þá hefur kærandi greint frá því að hafa búið í gistiúrræði á vegum hjálparsamtaka þann tíma sem hann hefur dvalið í Ungverjalandi. Með vísan til alls framangreinds telur kærunefnd að réttindi hans þar í landi geti ekki talist verulega síðri en almennings. Líkt og áður hefur komið fram þurfa einstaklingar í vissum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir við að nýta sér þá þjónustu sem í boði er en samkvæmt framangreindum skýrslum og gögnum og framburði kæranda er ekki annað að sjá en að kærandi hafi haft aðgengi að nauðsynlegri grunnþjónustu þar í landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun dagana 7. og 10. september 2020 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 1. júlí 2020.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann verði þar eða við flutninginn fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hans til viðtökuríkis leiði því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar og reglur stjórnsýsluréttar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Ungverjalandi.

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann telji að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið ábótavant og farið gegn 12. gr. laga um útlendinga og 13. gr. stjórnsýslulaga. Í kjölfar úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU20110052 frá 4. febrúar 2021 hafi kæranda ekki verið gefinn kostur á að koma á framfæri andmælum áður en ákvörðun Útlendingastofnunar hafi legið fyrir þann 19. febrúar 2021 en í ákvörðuninni sé að finna umfjöllun og viðbótarröksemdir um mál kæranda sem ekki hafi verið að finna í fyrri ákvörðun stofnunarinnar frá 5. nóvember 2020. Með áðurnefndum úrskurði kærunefndar þann 4. febrúar 2021 var ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. nóvember 2020, í máli kæranda felld úr gildi á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Þann 19. febrúar 2021 tók Útlendingastofnun nýja ákvörðun í máli kæranda sem hér er til umfjöllunar. Kærunefnd fellst ekki á að Útlendingastofnun hafi borið, við hina nýju meðferð, að gefa kæranda færi á að koma að andmælum við rökstuðning sem hafi legið til grundvallar hinnar upphaflegu ákvörðunar Útlendingastofnunar, dags. 5. nóvember 2020, sem kærunefnd hafði fellt úr gildi. Kærunefnd áréttar að kærandi hafi átt kost á því að tjá sig um efni málsins bæði hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála auk þess sem að hann hafi ávallt haft öll gögn málsins undir höndum. Þá hafi afstaða kærandi í málinu verið skýr en í áðurnefndum úrskurði kærunefndar frá 4. febrúar 2021 féllst nefndin á þá málsástæðu kæranda að rökstuðningur Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun hafi verið ábótavant, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Með hliðsjón af framangreindu er varakröfu kæranda hafnað.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.

Frávísun

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd þann 1. júlí 2020. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda bendir allt til þess að hann hafi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og vera alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.


 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

   Sindri M. Stephensen                                                                                   Þorbjörg I. Jónsdóttir

             Sandra Hlíf Ocares                                                                                         Ívar Örn Ívarsson

                       Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                    Gunnar Páll Baldvinsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta