Hoppa yfir valmynd

Nr. 118/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 13. mars 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 118/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19020033

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 12. febrúar 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […], og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. janúar 2019, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að honum verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 13. mars 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 14. maí 2018 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 22. janúar 2019, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 12. janúar 2019. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 25. febrúar 2019. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III.        Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana sinna sem og vegna þátttöku sinnar í mótmælum gegn stjórnvöldum.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga og dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið skv. 1. mgr. 78. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.        Málsástæður og rök kæranda

Kærandi kveðst vera fæddur í Kirkuk í norðausturhluta Íraks. Þegar kærandi hafi verið barn að aldri hafi hann og fjölskylda hans verið rekin burt frá Kirkuk samkvæmt skipunum Baath flokksins, en fjölskylda kæranda séu Kúrdar. Kærandi og fjölskylda hans hafi því flust til Ranya í sjálfstjórnarhéraði Kúrda (Kurdistan Region of Iraq, KRI) þar sem kærandi hafi alist upp. Kærandi kveðst vera stuðningsmaður Gorran flokksins þrátt fyrir að hann sé ekki formlega meðlimur flokksins. Í greinargerð kemur fram að vandræði kæranda hafi hafist árið 2014 þegar Daesh hafi hafið innreið sína í KRI en fjármálakreppa hafi fylgt í kjölfarið og hafi fólk mótmælt stjórnvöldum KRI. Kærandi kveður ríkjandi stjórnmálaflokka PUK (Patriotic Union of Kurdistan) og KDP (Kurdistan Democratic Party) hafa notað ástandið til að kvelja fólk. Ástandið hafi farið síversnandi og að endingu hafi PUK og KDP selt stóran hlut kúrdíska landsvæðisins. Þegar írakska ríkisstjórnin hafi tekið yfir borgina Kirkuk hafi Peshmerga snúið aftur til KRI. Fólk hafi reiðst mikið jafnframt sem mótmæli hafi aukist og hafi kærandi tekið þátt í mótmælum dagana 19. til 24. október 2017. Ríkjandi stjórnmálaflokkar hafi sent menn á sínum vegum á mótmælin m.a. í þeim tilgangi að taka ljósmyndir af mótmælendum. Grímuklæddir meðlimir Peshmerga og Asayish hafi svo í skjóli nætur farið á milli húsa og handtekið mótmælendur. Kærandi kveður mann að nafni […] hafa haft yfirumsjón með því verkefni að handtaka mótmælendur, en hann hafi starfað fyrir báða stjórnmálaflokka og sé með Peshmerga og Asayish á sínum snærum. Mótmælendur hafi verið handteknir og pyntaðir á þessum tíma. Þeir einstaklingar sem hafi verið leystir úr haldi hafi verið í mjög slæmu ástandi jafnframt sem þeir hafi verið hvattir til að skrifa undir samning þess efnis að þeir muni aldrei mótmæla stjórnvöldum framar. Kærandi greindi frá því að eina nóttina í lok október hafi menn á vegum Abdulla Bor komið að heimili hans og ruðst inn í leit að kæranda. Kærandi hafi ekki verið heima heldur hafi hann verið í bænum með vini sínum. Kærandi hafi orðið mjög óttasleginn þegar hann hafi heyrt að stjórnvöld hafi verið að leita að honum og hafi kærandi í kjölfarið farið í felur heima hjá vini sínum. Eftir að hafa ráðfært sig við bróður sinn hafi kærandi ákveðið að flýja heimaríki. Stjórnvöld hafi síðast leitað hans í nóvember á síðasta ári að heimili hans í Ranya. Þegar stjórnvöld hafi leitað kæranda hafi þau sagt við fjölskyldu kæranda að þau muni hefna sín á kæranda. Stjórnvöld hafi ekki gefið út formleg gögn á borð við handtökutilskipun enda vilji þau ekki skilja eftir rekjanlega slóð.

Í greinargerð kemur fram að þegar Gorran flokkurinn hafi verið stofnaður hafi flestir íbúar Ranya stutt hann og hafi flokkurinn unnið sigur í kosningum í borginni. Stjórnmálaflokkurinn PUK hafi ekki unað því þar sem hann hafi verið við völd á svæðinu. Kærandi kveður að stjórnvöld viti að hann styðji Gorran flokkinn, enda viti stjórnvöld allt og stjórni öllu. Kærandi ásaki stjórnvöld KRI um að hafa staðið að kosningasvindli árið 2018 jafnframt sem kosningarnar hafi ekki verið leynilegar. Kærandi kveðst ekki geta leitað verndar yfirvalda KRI enda séu það stjórnvöld sem hann óttist. Þá heyri lögregla, Peshmerga og Asayish öll undir PUK og KDP. Verði kærandi endursendur til heimaríkis óttist hann að verða beittur ofbeldi jafnframt sem hann telji að hann verði myrtur komist yfirvöld KRI að því að hann hafi talað illa um þau í Evrópu. Ef kærandi verði ekki myrtur þá verði hann a.m.k. fangelsaður ævilangt. Þá hafi kærandi miklar áhyggjur af öryggi fjölskyldu sinnar.

Í greinargerð er fjallað almennt um stöðu mannréttindamála í Írak. Þá er einnig fjallað um aðstæður á yfirráðasvæði Kúrda í Írak og heldur kærandi því fram að heimildir beri með sér að kúrdísk yfirvöld hafi möguleika á því að veita skilvirkt öryggi á þeim svæðum sem þau stjórni en að sama skapi geti yfirvöld einnig gengið mjög hart fram um að neita fólki um vernd. Hvort yfirvöld Kúrda veiti vernd fari eftir því hver það sé sem standi að ofsóknum, yfirvöld veiti t.am. ekki vernd hafi einstaklingur átt í deilum við kúrdískan stjórnmálamann. Kærandi vísar til skýrslna sem hann telur styðja mál sitt.

Kærandi heldur því aðallega fram að hann uppfylli skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem ofsóknir í hans garð megi rekja til stjórnmálaskoðana hans. Kærandi hafi tekið þátt í mótmælum gegn yfirvöldum í heimaborg sinni, Ranya, í október 2017, í kjölfar þess að íröksk yfirvöld hafi tekið yfir borgina Kirkuk á ný, en hart sé tekið á mótmælendum í KRI. Pólitísk orðræða sem og mótmæli í KRI geti leitt af sér handahófskennt varðhald, líkamlegt ofbeldi eða annars konar refsingar af hálfu yfirvalda og heimildir beri með sér að fólki hafi verið ógnað bæði fyrir og eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í september 2017. Kærandi sé stuðningsmaður Gorran flokksins sem sé í stjórnarandstöðu í KRI. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi í mál kærunefndar nr. KNU18060048 þar sem kærunefnd vísi í álit flóttamannastofnunar þar sem komi fram að það sé skilningur stofnunarinnar að einstaklingar sem gagnrýni, eða séu taldir gagnrýna, kúrdísk stjórnvöld eða ráðandi stjórnmálaöfl hafi í einhverjum tilvikum orðið fyrir ofsóknum eða áreiti af hálfu stjórnvalda, stjórnmálafólks eða öryggissveita stjórnmálaflokka. Ólíklegt sé að einstaklingur geti fengið vernd frá yfirvöldum vegna áreitis af hálfu öryggissveita ríkjandi stjórnmálaflokka. Í fyrrgreindum úrskurði kærunefndar hafi nefndin komist að þeirri niðurstöðu að líkur stæðu til þess að tilteknir menn innan PUK flokksins myndu líta svo á að kærandi þess máls væri andsnúinn PUK flokknum og þar af leiðandi ógn við flokkinn sem og stjórnvöld í Sulaymaniyah. Kærandi heldur því fram að sömu verndarsjónarmið eigi við í máli hans enda álíti yfirvöld hann andsnúinn sér eftir að kærandi hafi tekið þátt í mótmælum í heimaborg sinni auk þess sem hann sé stuðningsmaður Gorran flokksins.

Verði kæranda gert að snúa aftur til heimaríkis telji hann að það brjóti gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Auk þess sem slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár Íslands, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Til vara heldur kærandi því fram í greinargerð að hann uppfylli skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið taki mið af tilskipun Evrópusambandsins nr. 2004/83/EB um lágmarksskilyrði til að ríkisborgarar þriðju landa eða ríkisfangslausir einstaklingar teljist flóttamenn eða menn sem að öðru leyti þarfnist alþjóðlegrar verndar og um inntak slíkrar verndar. Þá fjallar kærandi um samspil ákvæðisins við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 3. gr. samnings gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Með vísan til framangreinds telji kærandi ljóst að raunhæf ástæða sé til að ætlast að hann eigi á hættu pyndingar eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Í greinargerð heldur kærandi því fram að dæmi séu um að einstaklingar í svipaðri stöðu og kærandi hafi sætt illri meðferð, pyndingum og dauðarefsingu í heimaríki kæranda. Yfirvöld hafi ítrekað komið á heimili kæranda í leit að honum, nú síðast í nóvember 2018, og haft uppi hótanir gegn honum.

Til þrautavara gerir kærandi kröfu um að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi því sem varð að lögum komi fram að taka verði mið af svipuðum sjónarmiðum og gert sé við mat á öðrum ákvæðum kaflans s.s. almennum aðstæðum í heimaríki, þ. á m. hvort grundvallarmannréttindi séu nægilega tryggð. Í fyrrgreindum athugasemdum komi fram að með almennum aðstæðum sé m.a. vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Kærandi heldur því fram að mannréttindabrot viðgangist í Írak en langvarandi stríðsástand hafi ríkt í heimaríki kæranda frá árinu 2003. Þá veiti yfirvöld þegnum sínum ekki nægilega vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum. Í fyrrgreindum athugasemdum komi fram að með erfiðum félagslegum aðstæðum sé m.a. vísað í að einstaklingur hafi þörf á vernd vegna erfiðra félagslegra aðstæðna í heimaríki. Kærandi telji að verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis muni hann búa við afar erfiðar félagslegar aðstæður. Með hliðsjón af öllu því sem þegar hafi verið rakið telji kærandi ljóst að hann uppfylli skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga og því beri að honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar og niðurstöðu stofnunarinnar um að borið hafi á ákveðnu ósamræmi og óskýrleika í frásögn kæranda og að hann hafi ekki lagt fram fullnægjandi gögn. Útlendingastofnun hafi komist að þeirri niðurstöðu að frásögn kæranda, hvað varðar þátttöku hans í mótmælum og að hann hafi orðið fyrir ofsóknum stjórnvalda í kjölfar þeirra, hafi verið ótrúverðug. Kærandi mótmælir þessu mati Útlendingastofnunar og vísar í einstaka hluta frásagnar sinnar með skýringum máli sínu til stuðnings.

V.         Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi lagt fram ljósrit af írökskum skilríkjum sínum til að sanna á sér deili. Var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hefði ekki sannað með fullnægjandi hætti hver hann væri og að leysa yrði úr auðkenni hans á grundvelli trúverðugleikamats. Verður ekki annað séð af ákvörðun Útlendingastofnunar en að stofnunin hafi lagt til grundvallar að kærandi sé ríkisborgari Íraks. Kærunefnd telur ekkert hafa komið fram í málinu sem gefur tilefni til að draga í efa mat Útlendingastofnunar á þjóðerni kæranda og verður því lagt til grundvallar að hann sé írakskur ríkisborgari af kúrdískum uppruna og frá Sulaymaniyah héraði.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

·         Kurdistan Region of Iraq (KRI) - Report on issuance of the new Iraqi ID card (Udlændingestyrelsen, 5. nóvember 2018);

·         Northern Iraq - Security situation and the situation for internally displaced persons (IDPs) in the disputed areas, incl. possibility to enter and access the Kurdistan Region of Iraq (KRI) (Udlændingestyrelsen, 5. nóvember 2018);

·         Country Policy and Information Note Iraq: Internal relocation, civil documentation and returns (UK Home Office, 1. september 2018);

·         Rättsligt ställningstagande angående situationen i Irak (Migrationsverket, 19. janúar 2018);

·         Iraq - Political demonstrations - Easo COI Query Response (EASO, 24. maí 2018);

·         Iraq 2017 Human Rights Report (U.S. Department of State, 25. apríl 2018);

·         Kurdistan Region of Iraq: Protesters Beaten, Journalists Detained: Security Forces Suppress Demonstrations on Economic Crisis (Human Rights Watch, 15. apríl 2018);

·         Kurdistan Region of Iraq: Protesters Beaten, Journalists Detained: Freedom of Assembly Suppressed (Human Rights Watch, 28. febrúar 2018);

·         Thematic report: The Security Situation in Iraq -July 2016-November 2017 (version 4.0) (Migrationsverket, 18. desember 2017);

·         Country Policy and Information Note Iraq: Political opinion in the Kurdistan Region of Iraq (KRI) (UK Home Office, ágúst 2017);

·         Freedom in the World 2017 - Iraq (Freedom House, 2. júní 2017);

·         Wilting in the Kurdish sun; the hopes and fears of religious minorities in Northern Iraq (USCIRF, 1. maí 2017);

·         Mänskliga rättigheter, demokrati och rättsstatens principer i Irak 2015-2016 (Utrikesdepartimentet 26. apríl 2017);

·         Iraq: Relevant COI for Assessments on the Availability of an Internal Flight or Relocation Alternative (IFA/IRA) (UNHCR, 12. apríl 2017);

·         Country Policy and Information Note Iraq: Security and humanitarian situation (UK Home Office, 14. mars 2017);

·         Iraq Country of origin information (COI) report (UK Home Office, 25. mars 2011);

·         UNHCR position on returns to Iraq (UNHCR, 14. nóvember 2016);

·         Country Information and Guidance Iraq: Return/Internal relocation (UK Home Office, ágúst 2016);

·         Rättsligt ställningstagande angående situationen i Irak (Migrationsverket, 19. janúar 2018);

·         Irak: Politi og rettsvesen i de tre kurdiskstyrte provinsene (KRI) (Landinfo, 27. október 2016);

·         The Kurdistan Region of Iraq (KRI) Access, Possibility of Protection, Security and Humanitarian Situation (Danish Immigration Service, 1. apríl 2016) og

·         Irak: Basisinfo (Landinfo, 6. janúar 2016).

Samkvæmt ofangreindum gögnum er Írak lýðræðisríki með rúmlega 32 milljónir íbúa. Írak varð til sem ríki eftir fyrri heimsstyrjöldina, þegar sigurvegarar stríðsins skiptu Mið-Austurlöndum á milli sín. Ríkið var breskt yfirráðasvæði fram til ársins 1932, þá tók við tímabil sem einkenndist af pólitískum óstöðugleika sem lauk árið 1958 þegar komið var á fót lýðveldi í Írak. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011 og alþjóðasamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010.

Í framangreindum gögnum kemur fram að flestir Kúrdar í Írak búi í norðurhluta landsins. Áður en ráðist hafi verið inn í Írak árið 2003 hafi héruð í norðurhluta landsins lotið stjórn pólitískra yfirvalda Kúrda. Árið 2005 hafi Kúrdum verið tryggð svæðisbundin sjálfstjórn í stjórnarskrá Íraks og sé norðausturhluti landsins skilgreindur sem sjálfsstjórnarsvæði Kúrda, Kúrdistan (e. Kurdish Region of Iraq (KRI)). Löggæsla sé mun markvissari í KRI, sé það landsvæði borið saman við suður og mið-Írak. Stofnanir eins og lögregla, saksóknari, dómstólar og fangelsi séu til staðar á svæðinu og heyri þær undir svæðisstjórn Kúrda en ekki ríkisstjórn Íraks. Fyrir utan hefðbundna lögreglu sé KRI einnig með öryggissveitir sem nefnist Asayish. Hersveitir kúrdíska hersins, Peshmerga, tryggi að sjálfsstjórnarhéruð Kúrda séu tiltölulega örugg miðað við önnur svæði í Írak. Her Kúrda og öryggissveitir þeirra hafi unnið hörðum höndum við að verja svæðið gegn uppreisnarmönnum Daesh og annarra tengdra samtaka.

Ráða má að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Á tímabilinu 2005 til 2014 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin nefnist EUJUST-LEX og hafi m.a. 1800 lögreglumenn og 900 dómarar undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd.

Af framangreindum gögnum má ráða að á undanförnum árum og áratugum hafi verið spenna milli Kúrda og stjórnvalda í Írak. Meðal annars hafi verið deilt um stærð þess svæðis sem lúti sjálfsstjórn Kúrda. Þann 25. september 2017 hafi farið fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa KRI að tilstuðlan forseta KRI þar sem kosið hafi verið um stofnun sjálfstæðs ríkis Kúrdistan. Íröksk stjórnvöld hafi mótmælt atkvæðagreiðslunni og viðurkenni ekki niðurstöður kosninganna. Tæplega 93% kjósenda hafi kosið með sjálfstæði en fréttir hafi borist af því að minnihlutahópar á deilusvæðum hafi verið beittir miklum þrýstingi til að taka afstöðu í kosningunum. Í kjölfar kosninganna hafi írakski stjórnarherinn tekið aftur yfir stjórn ytri landamæra Íraks innan KRI og landsvæði sem hafi verið undir stjórn kúrdískra yfirvalda frá árinu 2014, þ. á m. borgina Kirkuk. Þá hafi forseti KRI sagt af sér í nóvember 2017. Áratugum saman hafi tveir stjórnmálaflokkar verið ráðandi í KRI en það séu PUK flokkurinn (e. The Patriotic Union of Kurdistan) og KDP flokkurinn (e. The Kurdistan Democratic Party). Í september 2013 hafi orðið talsverðar breytingar þegar PUK flokkurinn hafi misst stöðu sína sem næststærsti flokkurinn til klofningsframboðsins Gorran (e. The Movement for Change). Í nýafstöðnum kosningum sem hafi farið fram þann 30. september 2018 hafi PUK flokkurinn endurheimt stöðu sína sem annar stærsti flokkurinn og KDP flokkurinn haldið stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í KRI. Fyrrgreindir flokkar séu með fulltrúa í ríkisstjórn KRI. Tveir stærstu flokkarnir, KDP og PUK, hafi myndað bandalag þar sem flokkarnir hafi skipt landsvæði KRI á milli sín og fari KDP flokkurinn með stjórn héraðanna Erbil og Dohuk, en PUK flokkurinn ráði ríkjum í Sulaymaniyah héraði. Þrátt fyrir að Gorran flokkurinn sé þriðji stærsti flokkurinn í KRI þá hafi hann ekki sama tengslanet og hinir tveir flokkarnir sem hafi stjórnað í KRI til margra ára. Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá árinu 2017 sé samband flokkanna þriggja stirt og einkennist af vantrausti. Hins vegar bendi gögn ekki til þess að einstaklingar séu í raunverulegri hættu á alvarlegum skaða eða ofsóknum fyrir það eitt að styðja stjórnarandstöðuna eða að hafa tekið þátt í mótmælum gegn KDP eða PUK.

Þó svo að rétturinn til fundahalda og friðsamlegra mótmæla sé verndaður í íröksku stjórnarskránni þá sé hann háður ýmsum takmörkunum, en stjórnvöld verði að gefa leyfi fyrir mótmælum og sé slíkt leyfi háð því að ástæðum mótmælanna sé lýst og greint sé frá því hverjir standi að mótmælunum. Bannað sé samkvæmt lögum að hvetja til ofbeldisfullra mótmæla. Samkvæmt skýrslu sænska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2017 hafi mótmælahrina gegn stjórnvöldum gengið yfir Írak á síðustu árum. Lækkun olíuverðs hafi haft slæm áhrif á efnahagskerfi Íraks sem hafi verið veikburða fyrir, en útflutningur olíu sé um 90 % af tekjum ríkisins. Í kjölfar efnahagskreppu í landinu hafi mikil óánægja ríkt hjá Írökum og líði flestir skort á aðgengi að félagsþjónustu og atvinnu, en hátt hlutfall Íraka séu atvinnulausir. Efnahagsástand ríkisins sé mjög óstöðugt og hafi fyrirtæki og stjórnvöld þurft að bregða til þess ráðs að lækka laun og séu dæmi um að fólk hafi fengið greidd laun seint. Frjálsu félagasamtökin Human Rights Watch greina frá því að í desember 2017 hafi kennarar skipulagt mótmæli í Sulaymaniyah héraði vegna vangoldinna launa. Mótmælin hafi varað í um fimm daga og hafi hópur mótmælenda orðið ofbeldisfullur og kveikt í byggingum tengdum stjórnvöldum sem og húsnæðum Asayish. Þá hafi m.a. höfuðstöðvar PUK í Ranya verið eyðilagðar af mótmælendum. Í kjölfarið hafi átök brotist út milli mótmælenda og öryggis- og hersveita KRI og hafi yfirvöld handtekið mótmælendur jafnframt sem dæmi séu um að mótmælendur hafi verið neyddir til að undirrita yfirlýsingu þar sem þeir lofi að gagnrýna ekki stjórnvöld framar. Þá kemur jafnframt fram í upplýsingum frá Human Rights Watch að mótmæli hafi einnig átt sér stað út mars 2018 þar sem um 84 mótmælendur og fjórir blaðamenn hafi verið áreittir og í sumum tilvikum hafi einstaklingar verið handteknir af öryggissveitum KRI. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2018 kemur fram að þann 4. mars 2018 hafi öryggissveitir KRI og lögregla handtekið um 32 mótmælendur í Erbil. Þá hafi 23 mótmælendum verið sleppt samdægurs, þrír hafi verið látnir lausir fjórum dögum síðar og sex erlendum ríkisborgurum hafi verið haldið lengur en tíu daga. Heimildir beri með sér að yfirvöld KRI hafi ekki lagt fram kærur á hendur mótmælendunum, þeir hafi einungis beðið aðkomumennina að yfirgefa Erbil. Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá árinu 2017 bendi ekkert til þess að mótmælendur séu kerfisbundið eltir uppi fyrir það eitt að hafa tekið þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Krafa kæranda er byggð á því að hann muni verða fyrir ofsóknum, hótunum og líkamlegu ofbeldi af hálfu yfirvalda í KRI vegna þátttöku sinnar í mótmælum gegn stjórnvöldum. Þá heldur kærandi því fram að hann sé stuðningsmaður Gorran flokksins.

Í greinargerð heldur kærandi því fram að hann sé stuðningsmaður Gorran flokksins en tekur fram að hann sé ekki formlega meðlimur flokksins. Aðspurður í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 7. janúar 2019 hvort kærandi hafi persónulega lent í einhverjum vandræðum fyrir að styðja Gorran flokkinn svaraði kærandi neitandi og bætti við að vandræði þau sem hann hafi lent í stafi af þátttöku hans í mótmælum. Af skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá ágúst 2017 má ráða að almennt séð eigi fólk í Kúrdistan ekki á hættu ofsóknir á grundvelli stjórnmálaþátttöku. Stjórnarandstæðingar hafi í einhverjum tilvikum verið handteknir, beittir ofbeldi eða jafnvel drepnir en ekkert bendi til þess að slík háttsemi beinist gegn almennum stuðningsmönnum stjórnarandstöðu flokka. Þá kemur fram í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna frá árinu 2018 að fundafrelsi sé tryggt í stjórnarskrá Íraks og sé almennt virt af stjórnvöldum. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér má ráða að Gorran flokkurinn sé þriðji stærsti stjórnmálaflokkurinn í Kúrdistan og flokkurinn eigi m.a. fulltrúa á kúrdíska þinginu og í ríkisstjórn Kúrdistan. Þá verður ekki ráðið af gögnum málsins að almennir meðlimir Gorran flokksins eigi almennt á hættu ofsóknir vegna stuðnings við flokkinn.

Í viðtölum kæranda hjá Útlendingastofnun sem og í greinargerð kveðst kærandi hafa tekið þátt í mótmælum í Ranya í október 2017. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að borið hafi á ósamræmi og óskýrleika í frásögn kæranda og vísar stofnunin m.a. til þess að umrædd mótmæli sem kærandi lýsti hafi átt sér stað í desember 2017. Í greinargerð svarar kærandi þessari staðhæfingu Útlendingastofnunar og kveður mótmælin hafa átt sér stað í Ranya bæði í október og desember 2017. Þá hafi mótmæli einnig farið þar fram í febrúar 2018. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur hvergi fram að mótmæli hafi átt sér stað í Ranya eða á nærliggjandi svæðum í október 2017, hins vegar vísa mörg gögn til mótmæla sem hafi farið fram í desember 2017 sem og í mars 2018. Kærandi hefur engin gögn lagt fram sem styðja við þær fullyrðingar að mótmæli þau sem hann segist hafa tekið þátt í hafi átt sér stað. Með hliðsjón af ætluðu umfangi og afleiðingum mótmælanna má gera þá kröfu að kærandi sýni fram á staðhæfingar sínar um að mótmælin hafi átt sér stað.

Ofangreind gögn sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar bera ekki með sér að mótmælendur séu kerfisbundið eltir uppi af öryggissveitum og lögreglu KRI fyrir það eitt að hafa tekið þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum KRI. Dæmi séu þó um að mótmælendur sem hafi brotið gegn lögum KRI með því að t.d. að kveikja í byggingum á meðan mótmælum hafi staðið hafi verið áreittir af öryggissveitum KRI í kjölfar mótmælanna og í sumum tilvikum handteknir.

Að mati kærunefndar benda gögn málsins og framburður kæranda ekki til þess að hann eigi á hættu ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga verði honum gert að snúa til heimaríkis. Þrátt fyrir að kærunefnd útlendingamála telji ekki ástæðu til að útiloka að kærandi hafi tekið þátt í mótmælum á einhverjum tíma þá telur kærunefnd, með vísan til ofangreinds og gagna um heimaríki kæranda, að kærandi eigi ekki hættu á meðferð sem nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Kærandi hefur ekki lagt fram eða vísað til gagna sem leiða að því líkur að staða hans sé önnur og verri en ofangreindar skýrslur benda til eða hann sé að öðru leyti útsettari fyrir athöfnum sem gætu talist ofsóknir heldur en aðrir í sambærilegri stöðu.

Máli sinni til stuðnings vísar kærandi í úrskurð kærunefndar nr. KNU18060048 þar sem nefndin komst að þeirri niðurstöðu að veita einstaklingi alþjóðlega vernd m.a. með vísan til þess að líkur stæðu til þess að tilteknir menn innan PUK flokksins myndu líta svo á að hann væri andsnúinn PUK flokknum og þar af leiðandi ógn við flokkinn sem og stjórnvöld í Sulaymaniyah. Kærandi heldur því fram í greinargerð að sömu verndarsjónarmið eigi við í máli hans. Er það mat kærunefndar með tilliti til gagna málsins að þær einstaklingsbundnu aðstæður sem niðurstaða umrædds máls var byggð á séu ekki sambærilegar aðstæðum í máli kæranda.

Eins og rakið er í greinargerð kæranda hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagst gegn endursendingum einstaklinga til Íraks sem koma frá þeim svæðum þar sem átök geisa; þar sem ástandið er óöruggt eftir að hafa verið undir stjórn Daesh-samtakanna eða þeim svæðum þar sem Daesh er enn við völd. Þá telur Flóttamannastofnun óráðlegt að senda einstaklinga frá slíkum svæðum til annarra svæða innan Íraks. Samkvæmt þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar er ljóst að heimabær kæranda, Ranya, sé á öruggu svæði í KRI. Verður því ekki talið að viðvörun Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna eigi við um einstaklinga sem séu í sambærilegri stöðu og kærandi.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Eins og að framan greinir benda skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur farið yfir eindregið til þess að svæði KRI sé talið öruggt og að lögregla og öryggissveitir Kúrda séu öflugar og vel búnar. Þá sé heimabær kæranda, Ranya, langt inni í landi KRI þar sem lögregla og öryggissveitir hafi stjórn á aðstæðum. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærandi sé í raunverulegri hættu, á heimasvæði sínu í KRI, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til KRI.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að erfiðar almennar aðstæður geta tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Langvarandi stríðstástand hafi ríkt í heimaríki kæranda og heldur kærandi því fram að yfirvöld í Írak geti ekki veitt honum þá vernd sem hann þarfnist. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má draga þá ályktun að þrátt fyrir að ótryggt ástand ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda þá teljist svæðið þar sem kærandi hafði búsetu öruggt svæði. KRI sé jafnframt með virkt refsivörslukerfi sem geti veitt kæranda viðeigandi vernd.

Af gögnum málsins verður ekki séð annað en að kærandi sé heilsuhraustur. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Athugasemdir við málsmeðferð Útlendingastofnunar

Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar og niðurstöðu stofnunarinnar um að borið hafi á ákveðnu ósamræmi og óskýrleika í frásögn kæranda og að hann hafi ekki lagt fram fullnægjandi gögn. Má af greinargerð ráða að kærandi telji að Útlendingastofnun hafi brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga.

Það er mat kærunefndar að ekkert hafi komið fram í málinu sem bendir til þess að skort hafi á að nauðsynlegar upplýsingar lægju fyrir um ástandið í heimaríki kæranda, við ákvörðunartöku hjá Útlendingastofnun. Í því sambandi er tekið fram að kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem aflað var við rekstur málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 12. mars 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann 13. mars s.á. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave the country voluntarily.

 

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Anna Tryggvadóttir                                                                          Erna Kristín Blöndal

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta