Mál nr. 103/2019 Úrskurður 6. nóvember 2019
Mál nr. 103/2019 Aðlögun kenninafns: Viktorsson
Hinn 6. nóvember 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 103/2019.
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 22. október 2019, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XXX um að eiginnafn föður, Viktoras, verði lagað að íslensku máli og að föðurkenning verði Viktorsson.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Viktorsson.