Hoppa yfir valmynd

Nr. 625/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 2. desember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 625/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21090033

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 7. september 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. ágúst 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er aðallega krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og að lagt verði fyrir stofnunina að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til nýrrar meðferðar. Til vara er þess krafist að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd verði tekin til efnislegrar meðferðar á Íslandi með vísan til 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, með síðari breytingum, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga, og til þrautavara með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi hefur áður lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi en þann 25. október 2019 var umsókn hans synjað um efnismeðferð af hálfu Útlendingastofnunar og honum vísað frá landinu. Kærunefnd útlendingamála staðfesti þá ákvörðun Útlendingastofnunar með úrskurði þann 7. maí 2020. Kærandi lagði í annað sinn fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 10. júní 2021. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Tékklandi. Þann 1. júlí 2021 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Tékklandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá tékkneskum yfirvöldum, dags. 9. júlí 2021, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 18. ágúst 2021 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 24. ágúst 2021 og kærði kærandi ákvörðunina þann 7. september 2021 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 16. september 2021 ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn dagana 20. september og 4. nóvember 2021.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að tékknesk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Tékklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Tékklands.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda rekur hann málavexti og þá málsmeðferð sem hann hefur fengið hér á landi og í Tékklandi. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi m.a. greint frá andlegu heilsufari sínu en hann sé þreyttur, kvíðinn og áhyggjufullur vegna þeirrar óvissu um framtíð sína. Kærandi hafi í umræddu viðtali greint frá því að hafa upplifað margt í heimaríki sem hafi haft áhrif á líkamlega og andlega heilsu hans. Er varðar ítarlegri málavaxtalýsingu vísar kærandi til endurrits viðtals hans hjá Útlendingastofnun, greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og annarra gagna málsins.

Kærandi gerir aðallega kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til nýrrar meðferðar. Krafa kæranda byggir á því að slíkir annmarkar hafi verið á málsmeðferð kæranda hjá Útlendingastofnun að rétt sé að ógilda ákvörðunina. Í fyrsta lagi sé í hinni kærðu ákvörðun farið ranglega með hverjar málsástæður kæranda séu. Í öðru lagi hafi Útlendingastofnun neitað að láta þýða neikvæða ákvörðun tékkneskra yfirvalda en kærandi hafi lagt fram frumrit af gögnunum til Útlendingastofnunar. Í þriðja lagi sé í hinni kærðu ákvörðun ekki minnst einu orði á umfjöllun kæranda um tengsl Ísrael og Tékklands og slæma stöðu Palestínumanna þar í landi auk þess sem stofnunin hafi álitið það ótækt að horfa til heildartölfræði umsókna þegar einstaka umsóknir um alþjóðlega vernd séu teknar til skoðunar hér á landi. Í fjórða lagi fjalli Útlendingastofnun ekkert efnislega um það sem hafi komið fram í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar um tilteknar lagabreytingar í Tékklandi sem að mati kæranda séu til þess fallnar að veikja stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í fimmta lagi sé umfjöllun Útlendingastofnunar um aðgang kæranda að grunnþjónustu í Tékklandi byggð á því að hann geri tilkall til slíkra úrræða. Hins vegar liggi fyrir að umsókn kæranda um vernd í Tékklandi hafi verið hafnað og því hafi honum verið gert að yfirgefa landið. Í hinni kærðu ákvörðun sé ekkert vikið að því hvaða réttindi umsækjendur í slíkri stöðu geri raunverulega tilkall til og því sé rannsókn Útlendingastofnunar ábótavant. Með vísan til framangreinds sé byggt á því að verulegir annmarkar hafi verið á málsmeðferð kæranda hjá Útlendingastofnun sem kunni að hafa haft áhrif á niðurstöðu í máli hans.

Varakrafa kæranda byggir á því að taka beri umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli reglunnar um bann við endursendingum (non-refoulement), með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga, enda liggi fyrir að tékknesk stjórnvöld hafi ákveðið að vísa kæranda aftur til heimaríkis þar sem óumdeilt sé að líf hans og frelsi komi til með að vera í hættu. Vísar kærandi m.a. til framangreindra athugasemda hans um málsmeðferð tékkneskra stjórnvalda á umsóknum ríkisborgara Palestínu um alþjóðlega vernd, málsástæðu sinni til stuðnings.

Þá byggir kærandi á því til þrautavara að taka beri mál hans til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Krafan grundvallast bæði á almennt slæmum aðbúnaði og aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Tékklandi og einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda í málinu. Kærandi glími við andleg og líkamleg vandamál og honum muni reynast erfitt að verða sér úti um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu í Tékklandi. Í greinargerð fjallar kærandi um útlendingahatur, opinbera andstöðu tékkneskra ráðamanna gegn flóttaflóki og málstað Palestínu auk þess að fjalla um beitingu varðhalds þar í landi. Þá sé aðgangur umsækjenda um alþjóðlega vernd að ýmissi opinberri þjónustu takmarkaður þrátt fyrir að mælt sé fyrir um þjónustu við umsækjendur í lögum.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Tékklands á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja tékknesk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Tékklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Tékklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 Country Reports on Human Rights Practices – Czech Republic (United States Department of State, 31. mars 2021);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Czech Republic (Amnesty International, 7. apríl 2021);
  • Annual Report 2018 – Refugee Facilities Administration of the Ministry of the Interior (af vefsíðu http://suz.cz/en, ódagsett);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2018 (European Asylum Support Office, 24. júní 2019);
  • Concluding observations on the fourth periodic report of Czechia (United Nations Human Rights Committee, 6. desember 2019);
  • Concluding observations on the sixth periodic report of Czechia (United Nations Committee against Torture, 6. júní 2018);
  • Czech Republic: Health System Review. Health Systems in Transition (European Observatory on Health Systems and Policies, 2015);
  • CJEU: Actions brought against Poland, Hungary and the Czech Republic for failing to fulfill relocation obligations (European Council on Refugees and Exiles, 30. mars 2018);
  • ECRI Report on the Czech Republic (European Commission against Racism and Intolerance, 13. október 2015);
  • EDAL Country Overview – Czech Republic (European Database of Asylum Law, 21. febrúar 2014);
  • Facility for Detention of Foreigners Bělá-Jezová – Evaluation of Systematic Visit (Public Defender of Rights - Ombudsman, 9. september 2015);
  • Freedom in the World 2020 – Czech Republic (Freedom House, 4. mars 2020);
  • Immigration Detention in the Czech Republic (Global Detention Project, 19. desember 2018);
  • Organisation of Migration and Asylum System in the Czech Republic (European Commission, ágúst 2020);
  • Report of the Working Group on the Universal Periodic Review – Czechia (United Nations Human Rights Council, 9. ágúst 2017);
  • Upplýsingar af vefsíðu hjálparsamtakanna Organization for Aid to Refugees (http://www.opu.cz/en/, sótt 3. febrúar 2020);
  • Upplýsingar af vefsíðu tékkneska innanríkisráðuneytisins (www.mvcr.cz, sótt 14. febrúar 2020) og vefsíðu umboðsmannsins (http://www.ochrance.cz/en/, sótt 3. febrúar 2020);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 2. desember 2021) og
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 2. desember 2021).

Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 er í tékkneskum lögum mælt fyrir um á hvaða grundvelli einstaklingar geti hlotið stöðu flóttamanns og fengið hæli í Tékklandi auk þess sem að til staðar er kerfi sem veitir flóttamönnum og öðrum einstaklingum sem eru í hættu vernd þar í landi. Upplýsingar af framangreindum vefsíðum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og tékkneska innanríkisráðuneytisins bera með sér að meðferð umsókna um alþjóðlega vernd er í höndum sérstakrar deildar innan innanríkisráðuneytis Tékklands (e. Department of Asylum and Migration Policy of the Czech Ministry of Interior). Samkvæmt tékkneskum lögum skal almennt afgreiða umsóknir innan sex mánaða frá því að umsókn er lögð fram. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geti kært niðurstöðu ráðuneytisins til héraðsdómstóla. Ákvörðun héraðsdómstóls sé svo hægt að áfrýja til æðsta stjórnsýsludómstóls landsins (e. Supreme Administrative Court). Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu innanríkisráðuneytisins eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd m.a. rétt á heilbrigðisþjónustu og búsetuúrræði á meðan kæra er til meðferðar hjá stjórnvöldum.

Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu tékkneska innanríkisráðuneytisins eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd í Tékklandi að mæta í móttökumiðstöð innan sólarhrings frá því að þeir óskuðu eftir alþjóðlegri vernd. Þar er umsóknin formlega skráð og er þeim skylt að veita atbeina sinn til að upplýsa auðkenni sitt, t.d. með því að afhenda skilríki sín og með töku fingrafara. Þar fara umsækjendur enn fremur í læknisskoðun. Innanríkisráðuneytið getur ákveðið að umsækjandi skuli vera vistaður í slíkri miðstöð í allt að 120 daga og hægt er að kæra slíka ákvörðun til dómstóla. Að öllu jöfnu fá umsækjendur þó úthlutað gistirými í miðstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd (e. accommodation center). Umsækjendur fara í að minnsta kosti eitt viðtal vegna umsóknar þeirra um alþjóðlega vernd áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra og njóta þeir endurgjaldslausrar túlkaþjónustu við málsmeðferðina. Þá eiga umsækjendur rétt á aðstoð lögfræðings í tengslum við umsókn sína en frjáls félagasamtök bjóða upp á endurgjaldslausa lögfræðiþjónustu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Tékklandi njóta jafnframt heilbrigðistryggingar og eiga rétt á grunnheilbrigðisþjónustu.

Í framangreindri skýrslu Global Detention Program kemur fram að árið 2015 voru gerðar breytingar á tékknesku útlendingalöggjöfinni í því skyni að fullgilda móttökutilskipun Evrópusambandsins (EU Reception Conditions Directive, 2013/33/EU) og er þar nú mælt fyrir um nokkur almenn skilyrði fyrir því að heimilt sé að setja umsækjendur um alþjóðlega vernd í varðhald. Slíkt er m.a. heimilt í þeim tilvikum þegar það er talið nauðsynlegt til að staðfesta auðkenni viðkomandi einstaklings, vegna allsherjarreglu og almannaöryggis, eða ef hætta er talin á að einstaklingur muni koma sér undan framkvæmd ákvörðunar vegna umsóknar hans um alþjóðlega vernd. Tékknesku útlendingalögin kveða á um að ekki megi setja umsækjendur í lengra varðhald en sem nemur 120 dögum. Umsækjendur geta þá borið lögmæti varðhalds undir dómstóla. Framangreindar heimildir bera með sér að óhófleg beiting varðhalds gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd hafi verið gagnrýnd af alþjóðlegum stofnunum, m.a. hafi nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu (e. United Nations Committee against Torture) hvatt tékknesk stjórnvöld til að hætta að beita þessu úrræði. Auk þess er varðhaldsföngum almennt gert að greiða fyrir varðhaldsvist sína, u.þ.b. átta til níu evrur á dag. Tékknesku félagasamtökin Organization for Aid to Refugees og umboðsmaður borgara í Tékklandi (e. Public Defender of Rights, Ombudsman) hafa bent á að með auknum fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd hafi aðstæður í varðhaldi versnað á síðustu árum. Að mati eftirlitsaðila hafa aðstæður í varðhaldi þó almennt talist viðunandi, en tékkneski umboðsmaðurinn hefur m.a. eftirlit með aðstæðum í varðhaldsmiðstöðvum. Þá kemur fram í skýrslu Global Detention Project að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sæta varðhaldi eiga rétt á brýnustu nauðsynjum, þ. á m. grunnheilbrigðisþjónustu. Hins vegar geri tungumálaerfiðleikar sumum erfitt fyrir að fá viðeigandi þjónustu, einkum í Bělá-Jezová varðhaldsmiðstöðinni.

Framangreind gögn, s.s. athugasemdir mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, gefa til kynna að fordómar og andúð í garð flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd hafi aukist á undanförnum árum í Tékklandi. Þá hafi stjórnmálamenn tjáð sig með niðrandi hætti um flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Tékknesk stjórnvöld hafi jafnframt gagnrýnt samstarf Evrópusambandsins um tilfærslu flóttamanna milli ríkja (e. relocation) sem miði að því að draga úr álagi á önnur ríki, s.s. Ítalíu og Grikkland, vegna aukins fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd síðustu ára. Tékknesk stjórnvöld hafa tekið við fáu flóttafólki í tengslum við það samstarf. Á undanförnum árum hafa tékknesk yfirvöld þó gripið til ýmissa aðgerða til að berjast gegn kynþáttahatri og fordómum, t.d. með því að veita útlendingum aðstoð við aðlögun að tékknesku samfélagi og aðgerðaráætlunum. Hatursorðræða er refsiverð samkvæmt tékkneskum lögum og við ákvörðun refsinga samkvæmt hegningarlögum landsins er m.a. litið til þess hvort brot byggist á kynþáttahatri. Þá geta almennir borgarar jafnt sem umsækjendur um alþjóðlega vernd leitað til lögreglu ef þörf er á. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 heyra löggæsluyfirvöld undir innanríkisráðuneyti landsins.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni. Ákvæðinu verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra upplýsinga, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]aldri sem sækir nú um alþjóðlega vernd hér á landi í annað sinn en eins og að framan greinir var umsókn hans um alþjóðlega vernd síðast synjað um efnismeðferð með úrskurði kærunefndar í máli nr. KNU19110020, dags. 7. maí 2020.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 23. júní 2021, var kærandi m.a. spurður að því hvort líkamlegt og andlegt heilsufar hans hefði breyst frá því að hann lagði fram fyrri umsókn sína um alþjóðlega vernd hér á landi. Kærandi greindi frá því að nú ætti hann við vandamál að stríða í tönnum og á kynfærasvæði. Þá hafi kærandi greint frá því að andlegt heilsufar hans hafi versnað en hann hafi tapað þyngd og eigi við svefnvandamál að stríða. Af framlögðum heilsufarsgögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 18. febrúar 2020 til 6. júlí 2021, kemur fram að kærandi hafi hitt sálfræðing í þrígang og greint frá kvíða og svefntruflunum vegna þeirrar óvissu sem hann hafi búið við. Samkvæmt samskiptaseðli, dags. 2. júní 2021, hafi kærandi verið langt niðri vegna synjunar á upphaflegri umsókn hans um alþjóðlega vernd. Af samskiptaseðli, dags. 1. júlí 2021, má sjá að kærandi hafi farið í heilbrigðisskoðun og að hann sé hraustlegur. Þá kemur fram að kærandi sé orkulaus og hafi ýmsar kvartanir, s.s. vegna svefnóreglu og streitu. Kærandi lagði við meðferð málsins fram heilsufarsgögn frá Heilsugæslunni Efra Breiðholti, dags. 23. júlí til 8. september 2021, þar sem fram kemur að kærandi hafi greint frá vandamálum í tengslum við kynfæri og eitla og að lögð hafi verið fram beiðni um myndgreiningu og sýkla- eða veirurannsókn. Af niðurstöðu ómskoðunar, dags. 10. september 2021, má sjá að kærandi er með nárahaul (e. inguinal hernia) í vinstra eista og vægan vatnshaul (e. hydrocele) í hægra eista en að það sé engin fyrirferð í eistum. Af samskiptaseðli, dags. 16. september 2021, má sjá að kæranda hafi verið vísað á þvagfæraskurðlækni. Þá bera heilbrigðisgögn með sér að kærandi hafi farið í kverkeitlanám (e. tonsillectomy) en samkvæmt læknabréfi, dags. 29. október 2021, hafi aðgerðin verið gerð án nokkurra vandkvæða. Samkvæmt heilbrigðisgagni, dags. 3. nóvember 2021, hafi kærandi haft samband vegna þess að hann hafi áhyggjur af sýkingu eftir aðgerðina en hann hafi fengið ráðleggingar háls-, nef- og eyrnalæknis varðandi það. Þá liggur fyrir skimunarlisti um andlegt heilsufar kæranda.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 23. júní 2021, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mal sitt og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða krossins, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar þann 8. september 2021 um framlagningu uppfærðra heilsufarsgagna. Kærandi lagði fram frekari gögn um heilsufar dagana 20. september og 4. nóvember 2021. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvar varðar heilsufar hans og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufarkæranda geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Tékklandi verður ráðið að umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu þar í landi. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Hvað varðar sjónarmið kæranda um að varðhald kunni að bíða hans við komuna til Tékklands áréttar kærunefnd það sem þegar hefur komið fram um varðhald þar í landi. Umsækjendum um alþjóðlega vernd sem hlotið hafa endanlega neikvæða niðurstöðu í Tékklandi getur, eftir atvikum, verið gert að sæta varðhaldi í samræmi við skilyrði tékkneskra laga þar um og getur það t.d. átt við þegar einstaklingur á yfir höfði sér brottvísun og grunur leikur á um að hann muni koma sér undan slíkri ákvörðun. Þótt framangreind skýrsla Global Detention Project frá árinu 2018 beri með sér að varðhaldi sé beitt í talsvert ríkum mæli þá lítur kærunefnd til þess að Tékkland hefur fullgilt og tekið upp í landslög móttökutilskipun Evrópusambandsins nr. 2013/33/EU og að umsækjendur sem sæti varðhaldi geti borið lögmæti varðhalds undir stjórnvöld og dómstóla. Þá ber skýrslan enn fremur með sér að aðstæður í varðhaldi séu almennt viðunandi. Með hliðsjón af framangreindu telur nefndin því ljóst að sá möguleiki að kærandi kunni að vera færður í varðhald leiði ekki til þess að fyrir hendi séu sérstakar ástæður í máli hans af þeim sökum.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að þjónusta til umsækjenda um alþjóðlega vernd í Tékklandi hafi skerst á síðustu mánuðum þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá er bólusetning langt á veg komin í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu.

Af skýrslum er ljóst að viðtökuríkið býr við stöðuga stjórnarhætti og sterka innviði. Að mati kærunefndar er því ekkert sem bendir til þess að það tímabundna ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á getu eða vilja viðtökuríkisins til að taka á móti kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt og veita þeim nauðsynlegan stuðning og viðeigandi aðbúnað.

Í því sambandi er rétt að árétta að Dyflinnarreglugerðin gerir ráð fyrir því að samstarfsríkin hafi almennt sex mánuði frá því að lokaákvörðun er tekin um kæru umsækjenda um alþjóðlega vernd til að flytja umsækjanda til viðtökuríkisins, sbr. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 23. júní 2021 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 10. júní 2021.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/10, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af framangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná mjög háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því. 

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Tékklandi, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar hjá tékkneskum yfirvöldum. Tékkneskt yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. m.a. lög nr. 326/1999 um alþjóðlega vernd í Tékklandi (e. Act No. 325/1999 Coll. on Asylum), með síðari breytingum. Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í Tékklandi sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þess eða frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð tékkneskra stjórnvalda á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður þeirra. Vegna athugasemda í greinargerð leggur kærunefnd áherslu á að við túlkun á því hvaða skyldur hvíla á ríkjum sem senda einstaklinga til annarra ríkja þar sem þeir kunna að vera sendir áfram til þriðja ríkis (e. indirect refoulement) hefur nefndin horft á hvort ríkið, sem senda á einstakling til, veiti raunhæfa vernd (e. effective guarentees) gegn því að einstaklingar verði sendir áfram í ómannúðlegar og vanvirðandi aðstæður, sbr. til hliðsjónar áðurnefndan dóm Mannréttindadómstól Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi. Kærunefnd telur gögn málsins benda til þess að í Tékklandi sé slík vernd veitt. Samkvæmt framansögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Tékklandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við mat stofnunarinnar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Tékklandi og málsmeðferð og rannsókn stofnunarinnar.

Kærandi gerir m.a. athugasemd við að Útlendingastofnun hafi neitað að láta þýða ákvörðun tékkneskra útlendingayfirvalda í máli kæranda þar í landi. Af þessu tilefni áréttar kærunefnd það sem áður hefur komið fram að heimildir um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Tékklandi beri með sér að tékknesk stjórnvöld leggi einstaklingsbundið mat á umsóknir um alþjóðlega vernd þar í landi og að í Tékklandi sé veitt raunhæf vernd gegn því að einstaklingar verði sendir áfram í ómannúðlegar eða vanvirðandi aðstæður. Þá beri landaupplýsingar með sér að kærandi hafi raunhæf úrræði í Tékklandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sem tryggi að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kunni að vera í hættu. Gögn málsins bera að auki með sér að kærandi hafi ekki tæmt réttarúrræði sín í Tékklandi en hann hafi við meðferð málsins greint frá því að hafa ekki kært umrædda ákvörðun tékkneskra stjórnvalda.

Að öðru leyti hefur kærunefnd farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Af þeim sökum er aðalkröfu kæranda hafnað.

Frávísun

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 10. júní 2021. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda bendir allt til þess að hann hafi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Tékklands innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

 

 

Samantekt

Í máli þessu hafa tékknesk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Tékklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og verða alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta