Mál nr. 61/2024 Úrskurður 24. apríl 2024
Mál nr. 61/2024 Eiginnafn: Láki (kk.)
Hinn 24. apríl 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 61/2024 en erindið barst nefndinni 16. apríl.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Láki (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Láka, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Láki (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.