Mál nr. 49/2016 Úrskurður 3. júní 2016
Mál nr. 49/2016 Eiginnafn: Gaddi
Hinn 3. júní 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 46/2016 en erindið barst nefndinni 19. maí:
Eiginnafnið Gaddi (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Gadda, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Gaddi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.