Hoppa yfir valmynd

Nr. 418/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 13. október 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 418/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22090015

Kæra [...]

á ákvörðun Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 6. september 2022 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. ágúst 2022, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og veita honum viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. sömu laga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt staða flóttamanns á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 18. mars 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 17. maí 2022 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 22. ágúst 2022, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga en veitti honum viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. sömu laga. Að ósk kæranda var veitur frekari rökstuðningur fyrir ákvörðun Útlendingastofnunar 7. september 2022. Var ákvörðun Útlendingastofnunar kærð til kærunefndar útlendingamála hinn 6. september 2022. Kærunefnd barst greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum 23. september 2022. Frekari upplýsingar og gögn bárust kærunefnd frá kæranda 29. september og 11. október 2022.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að lagt var til grundvallar að kærandi óttaðist öryggi sitt og almennt ástand í heimaríki og teldi sig ekki geta leitað til yfirvalda eftir öryggi og aðstoð.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri flóttamaður á grundvelli sjónarmiða um viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Ekki var fallist á að 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ætti við í málinu. Yrði dvalarleyfi gefið út til fjögurra ára með vísan til 73. gr. laga um útlendinga.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá ástæðum flótta frá heimaríki. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi sætt ofsóknum eftir að hann hafi, í starfi sínu sem rafmagnsverkfræðingur á ríkisolíuskipi, orðið vitni að flutningi fíkniefna. Kærandi hafi séð pakka með fíkniefnum í tunnum um borð í skipinu. Kærandi kvaðst hafa greint yfirmanni sínum og samstarfsmanni sínum frá því sem hann hafi séð og fjórum dögum síðar hafi kærandi verið sendur fyrirvaralaust í frí sem hann hafi átt uppsafnað. Í ágúst 2017 hafi verið keyrt á bíl kæranda. Þá hafi verið keyrt á framangreindan samstarfsmann kæranda í júlí 2017 með þeim afleiðingum að hann hafi látist. Eftir að keyrt hafi verið á kæranda hafi hann fengið skilaboð með þeim orðum að hann ætti að keyra betur næst. Í kjölfarið hafi kærandi verið var um sig og í janúar 2018 hafi hann sett upp eftirlitsbúnað í bíl sinn og byrgt gluggana á honum. Kærandi hafi greint frá því að tveimur mánuðum eftir áreksturinn hafi verið brotist inn í bíl hans og eftirlitsbúnaðinum stolið. Frá september 2018 til febrúar 2019 hafi kærandi fengið ógnandi skilaboð og hringingar sem hafi gefið til kynna að verið væri að fylgjast með honum. Meðal annars hafi hann fengið ógnandi sms-skilaboð sem hafi gefið til kynna að sendandi hafi þekkt til heilsufars hans en í þeim hafi verið vísað til blóðtappa sem kærandi hafi fengið eftir aðgerð. Í skilaboðunum hafi staðið: „take care, thrombi (í. blóðtappi) are very dangerous“. Þá hafi kærandi verið leystur frá störfum í september 2019. Kærandi kvað vin hans hafa tjáð honum að ríkisfyrirtækið […] hafi sett hann á svartan lista og hann hafi því ekki getað fengið starf annars staðar. Kærandi kvaðst hafa hringt í vin sinn, J, í mars 2020 og tjáð honum að hann hefði í hyggju að ljóstra upp um hinn ólöglega flutning sem hann hafi orðið vitni að og að hann væri með sannanir. Í kjölfarið hafi kærandi fengið tölvupósta með fjárkúgunum. Eftir það hafi kærandi meira eða minna hætt að fara út úr húsi og hætt að nota samskiptamáta aðra en þá sem gætu talist fyllilega öruggir. Kærandi greindi þá frá því að 3. eða 4. janúar 2021 hafi hann tjáð æskuvini sínum frá atvikunum á skipinu og hafi sagt honum að hann ætlaði að ljóstra upp um þau. Eftir það hafi hann fengið margar hótanir og hringt hafi verið í hann og honum hótað lífláti. Í maí 2021 hafi verið keyrt á hann þar sem hann hafi verið á hjóli og hafi hann hlotið áverka af. Í kjölfarið hafi kærandi fengið sams konar skilaboð og eftir fyrri áreksturinn um að hann ætti í næsta skipti að keyra betur. Eftir það hafi kærandi ekki treyst sér til að ferðast einn síns liðs og ákveðið að yfirgefa landið. Kærandi kvaðst telja að yfirvöld í heimaríki hafi haft vitneskju um eða hafi tekið þátt í flutningnum, en skipstjóri skipsins hafi áður verið handtekinn fyrir smygl.

Í greinargerð er fjallað almennt um aðstæður í Venesúela. Þá er að finna almenna umfjöllun um ástand mannréttindamála og ótryggt öryggisástand og vísar kærandi í alþjóðlegar skýrslur máli sínu til stuðnings. Af þeim skýrslum verði ekki ráðið að ástandið í Venesúela hafi breyst til batnaðar að undanförnu. Þvert á móti bendi nýlegar skýrslur, þ. á m. skýrsla Human Rights Watch frá 2022, til þess að ástandið fari versnandi.

Kærandi telur ljóst að hann tilheyri í fyrsta lagi tilteknum þjóðfélagshópi sem fyrrum ríkisstarfsmaður. Kærandi hafi starfað hjá einu stærsta opinbera fyrirtæki landsins, […]. Kærandi hafi verið gagnrýninn í garð stjórnvalda og hafi haft í hyggju að ljóstra uppi um smygl á fíkniefnum sem hann hafi orðið vitni að í starfi sínu á olíuskipi í eigu […] og telji að stjórnvöld hafi verið viðriðinn við flutninginn. Þá telur kærandi að hann tilheyri í öðru lagi jafnframt minnihlutahópi vegna stjórnmálaskoðana. Kærandi hafi greint frá því að í kjölfar þess að hann hafi reynt að tjá sig um hinn ólöglega flutning hafi hann orðið fyrir ofsóknum. Kærandi sé því utan heimaríkis síns vegna ástæðuríks ótta við ofsóknir. Þá hafi kærandi greint frá því að aðstæður hans vegna starfs hans hafi verið mjög pólitískar. Starfsmenn á vinnustað hans hafi verið píndir til að mæta á mótmæli eða fara að kjósa. Kærandi hafi sjálfur jafnan sloppið við þær þvinganir þar sem hann hafi vanalega verið við störf á sjó. Kærandi hafi greint frá því að sem ríkisstarfsmaður hafi tjáningarfrelsi hans sætt miklum skorðum en hann hafi ekki mátt tjá sig opinberlega, t.d. á samfélagsmiðlum. Kærandi vísar til þess að á miðlinum Espacio Publico sé greint frá því að lögfræðingur […] hafi gefið út yfirlýsingu þar sem öllum starfsmönnum fyrirtækisins hafi verið bannað að nota og fylgja fólki á samfélagsmiðlum nema samkvæmt leyfi frá fyrirtækinu. Þá hafi verið greint frá því á miðlinum að starfmaður hjá […] hafi verið ofsóttur og faðir hans handtekinn eftir að starfsmaðurinn hafi tjáð sig með gagnrýnum hætti í garð fyrirtækisins.

Kærandi byggir aðalkröfu sína um alþjóðlega vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við að vera ofsóttur annars vegar vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi sem fyrrum ríkisstarfsmaður og hins vegar vegna stjórnmálaskoðana. Kærandi hafi unnið á olíuskipi í eigu ríkisfyrirtækisins […] og gert tilraunir til að greina frá flutningi á fíkniefnum á skipinu. Kærandi telur að með framangreindu hafi hann sem fyrrum ríkisstarfsmaður látið í ljós gagnrýnar skoðanir í garð yfirvalda. Kærandi telur að ákvæði 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga eigi við í máli hans þar sem ljóst sé að yfirvöld hafi hrakið hann úr starfi og hafi útilokað hann frá vinnumarkaði. Þá hafi kærandi orðið fyrir hótunum og atvikum af hálfu óþekktra aðila. Kærandi telur að hann eigi á hættu ofsóknir af hálfu ríkisins og hugsanlega einnig af hálfu annarra aðila. Kærandi telur að hann hafi ekki raunhæfan möguleika á vernd í heimaríki þar sem yfirvöld séu meðal þeirra sem séu valdur að ofsóknum sem kærandi óttist.

Þá byggir kærandi á því að öll málsatvik í heild, með hliðsjón af almennu ástandi í Venesúela, geri ótta hans ástæðuríkan. Kærandi hafi vísað til þess að hann hafi orðið fyrir ofsóknum og mismunun sem sé samtvinnað slæmu öryggisástandi í heimaríki hans. Kærandi telur að meta verði stöðu hans með hliðsjón af almennu ástandi í heimaríki ásamt því að taka beri tillit til huglægs ótta hans við ofsóknir. Kærandi hafi greint frá því að hafa verið hrakinn úr starfi og útilokaður frá vinnumarkaði og orðið fyrir viðstöðulausum hótunum, meðal annar líflátshótunum, allt frá árinu 2017. Þá hafi lífi kæranda tvívegis verið stefnt í hættu með árekstri, auk þess sem að vinnufélagi hans sem hann hafi deilt grunsemdum sínum með hafi látið lífið í árekstri. Ofsóknir af hálfu óþekktra aðila sem kærandi telji að stafi af hálfu ríkisins hafi haft margvíslegt áhrif á daglegt líf og heilsu hans. Í fyrsta lagi geti hann ekki séð sér farborða þar sem hann sé útilokaður frá vinnumarkaði og eigi engar eignir. Í öðru lagi hafi hann meira og minna neyðst til þess að halda sig heima við og þurft að breyta ferðavenjum sínum og samskiptamátum. Í þriðja lagi hafi röð þessara atvika haft áhrif á andlega og líkamlega heilsu kæranda og hafi læknir á Íslandi metið kæranda í þörf fyrir einstaklingsmiðaða sálfræðiþjónustu og hafi kærandi fengið vísun til geðteymis Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Kærandi telur að gögn og frásögn hans um áhrif ofsóknanna á andlega heilsu hans renni enn frekar stoðum undir frásögn hans þess efnis að hann hafi sætt ofsóknum.

Í greinargerð eru gerðar athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar. Kærandi vísar til þess að hann hafi lagt fram umtalsvert magn gagna sem hann telji að styðji frásögn hans sem spanni um fimm ára tímabil. Kærandi hafi upplýst talsmann um að sá sími sem hann hafi fengið hótunarskilaboð í á tímabilinu 2017 til 2019 sé nú ónýtur og hafi afrit af skilaboðunum glatast þegar brotist hafi verið inn í tölvu hans 9. apríl 2020. Kærandi gerir athugasemd við það að Útlendingastofnun hafi talið að ekkert í framlögðum gögnum gæfi til kynna að hótanir þær sem kærandi hafi vísað til væru þess eðlis að þær væru í beinum tengslum við fyrri störf hans né vegna stjórnmálaskoðana. Kærandi telur að þau skilaboð sem hann hafi fengið og greint frá styðji frásögn hans um að hótanirnar tengist fyrrum starfi hans. Þá hafi kærandi borist hótanir og hann lent í ógnvekjandi eða óútskýrðum atvikum í hvert skipti sem hann hafi reynt að ljóstra upp um fíkniefnaflutninginn.

Verði ekki fallist á aðalkröfu kæranda gerir hann þá kröfu til vara að ákvörðun Útlendingastofnunar þess efnis að veita honum viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga verði staðfest. Því til stuðnings vísar kærandi til úrskurða kærunefndar nr. 231/2022, 272/2022 og 273/2022 og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hefði lagt fram fullnægjandi sönnun á auðkenni sínu með vísan til 1. mgr. 14. gr. laga um útlendinga með því að framvísa venesúelsku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé venesúelskur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2020 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 30. mars 2021);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report of the Inter-American Commission of Human Rights 2019 (Inter-American Commission on Human Rights, 24. febrúar 2020); •
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2021 – Venezuela (Freedom House, 3. mars 2021);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, júní 2018);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 29. september 2020);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 17. september 2020);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 23. júní 2021);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela: Den humanitære situasjonen (Landinfo, 12. ágúst 2019);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017–January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 13. júlí 2022);
  • World Report 2022 – Venezuela (Human Rights Watch, 15. janúar 2022) og
  • World Report 2021 – Venezuela (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2021 og 2022, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2022 og Human Rights Watch frá 2022, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið hinn 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi Juan Guaido, forseti venesúelska þingsins, tekið við embætti forseta til bráðabirgða. Guaido hafi fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það fari Maduro með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann njóti stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum.

Í skýrslu EASO frá 2020 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð í Venesúela farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki atvinnulífsins, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur og framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria). Fram kemur að um 80% íbúa séu skráðir í kerfið og að kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2019 kemur fram að könnun á vegum þriggja háskóla í Venesúela hafi leitt í ljós að fæðuöryggi um 80% heimila í Venesúela hafi verið ógnað og að um tveir þriðju af þjóðinni hafi lést um að meðaltali 11 kíló árið 2017. Matar- og næringarskortur hafi því orðið að landlægu vandamáli í Venesúela. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2022 kemur fram að einn af hverjum þremur íbúum Venesúela búi ekki við fæðuöryggi og sé í þörf fyrir aðstoð. Þá hafi 5,8% barna sem skoðuð hafi verið af barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) á tímabilinu janúar til júní 2021 verið verulega vannærð. Tæplega sex milljón venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu. Venesúelska flóttamannakrísan sé eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fjölmennustu fólksflutningar í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkistjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum.

Í skýrslu EASO frá 2020 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. 6 Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á sama tíma hafi öðrum glæpum fjölgað, s.s. fjárkúgun, fíkniefnasala og heimilisofbeldi. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021.

Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum, séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro.

Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyninu (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States, OAS) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2022 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á glæpum gegn mannkyni sem framin hafi verið í Venesúela.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020, kemur fram að heilbrigðiskerfið í Venesúela sé að nálgast þolmörk sín. Frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Þá sé skortur á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að 7 barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum við hann hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Kærandi byggir kröfu sína um alþjóðlega vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi sem fyrrum ríkisstarfsmaður og vegna stjórnmálaskoðana.

Kærandi kveðst hafa orðið vitni að smygli á fíkniefnum þegar hann hafi verið við störf á olíuskipi í eigu venesúelska ríkisfyrirtækisins […]. Hafi atburðurinn átt sér stað 5. maí 2017 og hafi kærandi tilkynnt yfirmanni sínum um vitneskju hans auk þess að segja samstarfsfélaga sínum frá. Fjórum dögum síðar hafi kærandi verið settur í leyfi. Kærandi kvaðst hafa verið ofsóttur í kjölfarið með hótunum símleiðis og í skilaboðum auk þess sem keyrt hafi verið á bifreið hans og gerð tilraun til að keyra á hann þar sem hann hafi verið hjólandi. Kærandi kvað yfirvöld í Venesúela hafa átt þátt í smyglinu.

Kærandi hefur lagt fram mikið magn gagna sem hann kveður styðja við frásögn hans af ástæðum flótta. Má þar helst nefna skjal sem er eins konar tímalína yfir röð atvika sem hafi að endingu leitt til flótta kæranda frá heimaríki hans. Þá hefur hann lagt fram ítarleg gögn um atvinnu sína í heimaríki og þykir að mati kærunefndar ekki ástæða til annars en að leggja til grundvallar að kærandi hafi unnið fyrir ríkisfyrirtækið […] frá árinu 2012. Þá hefur hann lagt fram gögn um skilnað við eiginkonu sína, vottorð um samkomulag um umgengi við dóttur hans og myndir af dóttur hans. Kærandi hefur þá lagt fram fjölda mynda m.a. af kæranda við störf um borð á skipi, áverkum, bifreið og ýmsum skilríkjum. Í gögnunum er einnig að finna skjáskot af þrem tölvubréfum sem kærandi kveður staðfesta að einhver hafi komist inn í tölvu hans og hótað honum í kjölfarið, skjáskot af skilaboðum og skjáskot af samskiptum kæranda við barnsmóður hans. Ennfremur er í gögnum málsins skjal sem ber heitið útskýringar á efni mynda, þar er m.a. að finna tengla á fréttir af ólöglegri starfsemi í skipaflutningum og aðgerðir stjórnvalda gegn slíkum glæpum. Tengist þær fréttir m.a. því fyrirtæki sem kærandi hafi unnið fyrir.

Í yfirliti kæranda og í viðtali hans hjá Útlendingastofnun dags. 17. maí 2022, kemur fram að kærandi hafi verið sendur í leyfi í maí 2017 í kjölfar þess að hann hafi greint frá því að hafa séð eitthvað ólöglegt um borð í skipinu, mögulega fíkniefni. Hann hafi ekki átt að fara í leyfi á þessum tímapunkti en hafi átt að sigla með skipinu til Portúgals. Hann hafi síðar komist að því að skipstjórinn á skipinu hafi áður verið handtekinn fyrir smygl á fíkniefnum. Í gögnum kæranda var ekki að finna neinar upplýsingar um að kærandi hafi verið sendur í leyfi, en í yfirliti hans yfir atburði kemur fram að hann hafi fengið tilkynningu um brottför af skipinu (e. disembarkation) Samkvæmt framlögðu yfirliti kæranda yfir tímaröð atvika kemur fram að […] hafi í september 2019 rekið kæranda úr starfi án ástæðu og uppsagnarfrests. Kærandi telur að það hafi verið gert í þeim tilgangi að þagga niður í honum. Kærandi hafi næstu mánuði leitað að starfi hjá erlendum sjóherjum en ekki fengið þar sem […] hafi óformlega bannað hann í allt að þrjú ár.

Hinn 15. september 2022 sendi kærunefnd fyrirspurn á talsmann kæranda þar sem óskað var eftir frekari upplýsingum frá honum. Svör kæranda bárust 29. október 2022. Kærandi var meðal annars spurður að því hvort hann gæti lagt fram gögn um meinta uppsögn, svo sem uppsagnarbréf eða starfslokasamning. Kærandi svaraði því að hann væri ekki með uppsagnarbréf því hann hafi ekki sagt upp, hann hafi verið rekinn símleiðis. Hinn 11. október 2022 lagði kærandi fram afrit af tveimur vottorðum varðandi starfslok hans hjá […]. Annars vegar vottorð frá mannauðsdeild […] og hins vegar afrit, dags. 12. janúar 2022, af einhvers konar uppgjöri fyrir tímabilið 1. júlí 2019 til 31. júlí 2019. Á fyrrnefnda vottorðinu kemur fram að það hafi verið útbúið að beiðni kæranda 3. október 2022 og er tilgreint að upphaf ráðningarsambands milli fyrirtækisins og kæranda hafi verið 20. júní 2012 og lok þess 5. júlí 2019. Á vottorðinu kemur ekki fram hver ástæða sé fyrir starfslokum kæranda hjá […]. Af hinu síðarnefnda vottorði má sjá útlistaða launaliði/áunnin réttindi og frádráttarliði fyrir áðurnefnt tímabil. Á þessu síðara vottorði kemur fram að ástæða fyrir starfsloka kæranda hjá […] hafi verið réttmæt uppsögn. Það er mat kærunefndar að þrátt fyrir að framangreind gögn beri með sér að kæranda hafi verið sagt upp störfum hjá […] þá bendi ekkert til þess framlögðum gögnum að hann hafi verið sendur einhliða í ótímabundið leyfi árið 2017 og síðar sagt upp störfum á ólögmætan hátt af fyrirtækinu í september 2019. Þvert á móti bera gögnin með sér að við uppsögn kæranda hafi farið fram lögmætt uppgjör á áunnum réttindum og ógoldnum launum. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem styðja við framburð hans um að fyrirtækið hafi komið í veg fyrir að hann gæti unnið fyrir önnur fyrirtæki á sama vettvangi. Er það því mat kærunefndar að framanlögð gögn styðji ekki við þá málsástæðu kæranda að aðilar tengdir […] og stjórnvöldum séu á eftir kæranda vegna þess að hann hafi orðið vitni að ólögmætri háttsemi um borð í einu af skipum fyrirtækisins.

Kærandi greindi frá því að í ágúst 2017 hefði vörubíll keyrt framan á bíl hans og stungið af. Kærandi kvað ákeyrsluna tengjast vitneskju sinni um smyglið. Kærandi hafi í kjölfarið fengið skilaboð frá ótilgreindum einstaklingi þess efnis að hann ætti að gæta sín næst. Til stuðnings framburði sínum lagði kærandi fram ódagssettar ljósmyndir af bifreið í mismunandi ástandi. Í fyrirspurn kærunefndar 15. september 2022 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum um hvort kærandi hefði fyllt út tjónaskýrslu vegna árekstursins. Kærandi greindi frá því að lögreglan hafi komið nokkrum klukkustundum eftir slysið og sagt honum að ef hann vildi að umferðarlögreglan kæmi yrði hann að bíða þangað til næsta dags á slysstað en að hún gæti ekki verið á staðnum til að tryggja öryggi hans. Þá væri þessi staður hættulegur á nóttunni, svo hann hafi ákveðið að kalla á krana til að fara með ökutækið heim til sín. Á þeim tíma í heimaríki hans hafi umferðarlögreglan verið aðskilin stofnun frá lögreglunni. Þess vegna hefði hann enga skýrslu um skemmdir eða neitt vegna árekstursins, aðeins myndir af bílnum sem keyrt hafi verið á. Að mati kærunefndar renna framlagðar ljósmyndir af bifreið í mismunandi ástandi ekki stoðum undir þá frásögn kæranda þess efnis að aðili af hálfu yfirvalda hafi keyrt á hann af ásetningi vegna vitneskju hans um mögulegt smygl á fíkniefnum.

Þá var kærandi í fyrirspurn kærunefndar inntur eftir því hvaða sönnunargögn hann hafi ætlað að afhenda fréttamönnum án landamæra, líkt og skráð hafi verið á yfirliti yfir tímaröð atvika 3. – 4. janúar 2021. Þá var kærandi spurður að því hvort hann hafi tekið skjáskot af hótunum sem honum hafi borist á tímabilinu frá september 2018 til febrúar 2019 líkt og hann skráir hjá sér á yfirlitið að hann hafi ætlað að gera. Kærandi svaraði því að sönnunargögnin sem hann hafi viljað afhenda þeim hafi verið myndbönd af því hvernig „þeir“ flytja og smygla fíkniefnum um borð í kaupskipum, ásamt símtölum og smáskilaboðum til hans. Svo hafi viljað til að kærandi hafi orðið fyrir tölvuárás sem hafi dulkóðað næstum allar skrárnar hans og hafi hann aðeins getað bjargað litlu broti af þeim sönnunargögnum sem hann hafi átt. Kærandi kvað framlagðar myndir sýna fram á að eitthvað ólöglegt hafi verið í gangi þar sem sjá megi hvernig skip sé upp við hlið flutningaskipsins án nokkurrar auðkenningar en slíkt sé afar óvenjulegur atburður. Þá hafi verið málmrör á öllu þilfari skipsins og notaðar olíutunnur sem sé bannað. Varðandi hótanir í skilaboðum sem kærandi hafi fengið þá hafi þau týnst þegar gerð hafi verið árás á tölvuna hans.

Þá lagði kærandi fram skjáskot af skilaboðum sendum í gegnum samskiptaforritið Whatsapp úr spænsku númeri. Kærandi kvað skilaboðin vera hótun þar sem sendandi hafi verið að samhryggjast honum vegna andláts móður hans sem hafi þó enn verið á lífi. Dagssetning skilaboðanna er 21. mars 2022 en móðir hans hafi látist mánuði síðar þann 25. apríl 2022. Þá hafi faðir kæranda látist tveimur dögum síðar, þann 27. apríl 2022. Kærandi hefur haldið því fram að dauði þeirra tengist á einhvern hátt hans máli en viti það þó ekki fyrir víst. Í fyrirspurn til kæranda 15. september 2022 var kæranda bent á það að umrædd skilaboð hefðu verið send úr spænsku númeri. Óskaði kærunefnd eftir skýringum frá kæranda þess efnis hvers vegna einhver frá Spáni ætti að senda honum hótunarskilaboð. Kærandi svaraði því að hann hefði vegna svefnleysis hringt í barnsmóður sína úr spænsku númeri og því afhjúpað staðsetningu sína en möguleiki væri á því að „þeir“ hafi verið að fylgjast með síma barnsmóður hans. Að mati kærunefndar voru skýringar kæranda ruglingslegar og ekki til þess fallnar að renna frekari stoðum undir það að um hótunarskilaboð hafi verið að ræða af hálfu ótilgreindra aðila sem kærandi kveður að hafi ofsótt sig í heimaríki.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um helstu gögn kæranda og samræmi þeirra við frásögn hans af þeim atburðum sem hann kveður hafa leitt til flótta hans frá heimaríki er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki leitt líkur að hann hafi sætt ofsóknum af hálfu aðila tengdum því fyrirtæki sem hann hafi unnið hjá eða öðrum aðilum tengdum stjórnvöldum í heimaríki. Þá er það mat kærunefndar að hann eigi ekki á hættu slíkar ofsóknir. Þá er það mat kærunefndar að önnur framlögð gögn leggi ekki frekari grundvöll að frásögn kæranda um ofsóknir af hálfu yfirvalda í heimaríki kæranda

Ennfremur er það mat kærunefndar að þær landaupplýsingar sem kærunefnd hefur kynnt sér gefi ekki til kynna að opinberir starfsmenn í Venesúela eigi á hættu áreiti eða annars konar meðferð af hálfu stjórnvalda sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. sömu laga eingöngu á grundvelli stöðu þeirra sem opinberir starfsmenn eða fyrra starfi þeirra fyrir stjórnvöld.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Til vara gerir kærandi kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar um að veita kæranda viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga verði staðfest.

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Með úrskurði kærunefndar nr. 231/2022 uppkveðnum 18. júlí 2022 var það mat nefndarinnar í máli venesúelsks ríkisborgara að aðstæður í heimaríki hans væru slíkar að raunhæf ástæða væri til þess að ætla að hann ætti á hættu að sæta þar meðferð sem næði því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er afstaða kærunefndar, með vísan í niðurstöðu framangreinds úrskurðar og gagna um Venesúela, að raunhæf ástæða sé til að ætla að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í heimaríki sínu, Venesúela, verði hann sendur þangað, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í ljósi þess að það eru yfirvöld í Venesúela sem eru að mestu ábyrg fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem ríkir þar og heimildir bera með sér að ástandið sé að mestu sambærilegt í öllu landinu er það mat kærunefndar að ekki sé raunhæft eða sanngjarnt að ætlast til þess af kæranda að hann setjist að annars staðar í Venesúela, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Að framangreindu virtu eru ekki forsendur fyrir hendi til annars en að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar þess efnis að kærandi eigi rétt á viðbótarvernd hér á landi á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um Útlendinga.

 

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar um að veita kæranda alþjóðlega vernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.


 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Sindri M. Stephensen                                                                   Þorbjörg I. Jónsdóttir


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta