Mál nr. 83/2016 Úrskurður 14. október 2016
Mál nr. 83/2016 Eiginnafn: Lyngþór
Hinn 14. október 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 83/2016 en erindið barst nefndinni 11. október.
Eiginnafnið Lyngþór (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lyngþórs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Lyngþór (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.