Mál nr. 84/2016 Úrskurður 14. október 2016
Mál nr. 84/2016 Eiginnafn: Elínóra
Hinn 14. október 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 84/2016 en erindið barst nefndinni 12. október.
Eiginnafnið Elínóra (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Elínóru, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Elínóra (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.