Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 292/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 30. ágúst 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 292/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16050014

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 10. maí 2016, kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 6. maí 2016, um að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002, um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og honum veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og honum verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um hæli hér á landi þann 8. janúar 2016 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun dagana 18. og 25. apríl 2016 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 6. maí s.á., synjaði Útlendingastofnun kæranda um hæli ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði ákvörðunina við birtingu hennar þann 10. maí 2016. Þann sama dag óskaði hann jafnframt eftir því að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað. Með bréfi, dags. 11. maí 2016, féllst kærunefnd útlendingamála á kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa. Þann 3. júní 2016 barst greinargerð kæranda.

Kærandi kom þann 14. júlí 2016 fyrir kærunefnd útlendingamála og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga. Viðstaddir voru túlkur og talsmaður kæranda.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Hjá Útlendingastofnun byggði kærandi kröfu sína um hæli hér á landi á því að hann sé[...]og geti ekki [...] í heimaríki sínu án þess að eiga á hættu útskúfun og mismunun. Þá hafi hann verið án atvinnu í langan tíma og það muni verða enn erfiðara fyrir hann að fá vinnu ef hann [...]. Þá geti hann ekki fengið fullnægjandi aðstoð stjórnvalda í heimaríki hans hvorki vegna mögulegrar mismununar vegna [...] sinnar né vegna atvinnuleysis.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að í stjórnarskrá [...] væri mælt fyrir um jafnræðisreglu og að hvers kyns mismunun væri óheimil. Gögn bendi til þess að ástand lögreglumála fari sífellt batnandi í [...] og eftirfylgni við hverslags brot gegn refsilöggjöf sé góð. Íbúar landsins njóti almennra mannréttinda og í landinu sé til staðar kerfi sem þeir geti leitað til sem telji á sér brotið. Í gögnum komi fram að alþingi [...] hafi í maí 2015 samþykkt ályktun sem snúi að verndun réttinda og frelsis [...]. Sú ályktun kalli á aðgerðaráætlun, lagabreytingar og aðrar ráðstafanir til stuðnings og verndunar [...]og var umboðsmanni fólksins í [...]fengið það hlutverk að hafa eftirlit með framkvæmd ályktunarinnar. Þá hafi ýmis samstarfsverkefni er lúta að ofangreindum réttindum litið dagsins ljós. Af þeim gögnum sem Útlendingastofnun hafi kynnt sér verði ekki séð að í [...] sæti fólk kerfisbundnum ofsóknum vegna [...] sinnar af hálfu yfirvalda og sé líf þeirra almennt ekki í hættu í landinu. Kærandi ætti að geta leitað til lögreglu eða yfirvalda og hlotið þar vernd. Þá njóti ríkisborgarar [...] ferðafrelsis og sú ógn sem kærandi telji að sér stafa sé að hans sögn staðbundin og takmarkist af vinum hans og fjölskyldu. Ekkert bendi til þess að kæranda sé ómögulegt að búa annars staðar en í heimabæ sínum og njóta öryggis þar.

Ennfremur kom fram að samkvæmt framvinduskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um [...] hafi áætlun um átak í atvinnumálum farið á fullt skrið árið 2014 og henni sé ætlað að ná til ársins 2020. Af þessu megi ætla að kærandi geti leitað aðstoðar yfirvalda í [...] vegna aðstæðna sinna og fengið þar nauðsynlega aðstoð.

Þá kom fram í ákvörðun stofnunarinnar að samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og lögum nr. 96/2002 um útlendinga megi ráða að efnahagslegar aðstæður skapi ekki grundvöll fyrir alþjóðlegri vernd útlendinga þannig að þeim verði veitt hæli af þeim sökum. Það var niðurstaða Útlendingastofnunar að kærandi eigi ekki á hættu ofsóknir eða meðferð sem jafnað verði til ofsókna í heimalandi sínu. Synjaði því stofnunin kæranda um hæli hér á landi sbr. 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga og taldi kæranda ekki eiga á hættu að sæta illri meðferð skv. 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Einnig taldi stofnunin endursendingu kæranda ekki brjóta gegn ákvæði 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.

Útlendingastofnun taldi ennfremur að ekki yrði talið að kærandi væri í þeirri aðstöðu í [...] að hann eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Því þótti ekki ástæða til að veita kæranda dvalarleyfi með vísan til mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla hans við Ísland skv. 12. gr. f laga um útlendinga.

Að lokum var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 56. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga. Með tilliti til atvika málsins ákvað stofnunin að kæra myndi ekki fresta framkvæmd ákvörðunar með vísan til c-liðar 1. mgr. 32. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að ástæða flótta hans frá heimaríki séu bágar efnahagslegar aðstæður hans þar. Kærandi hafi verið án atvinnu í heimalandi sínu lengi. Þá kveðst kærandi vera [...] og að hann geti ekki [...] í heimalandi sínu af ótta við að vera litinn hornauga. Hann óttist viðbrögð fjölskyldu sinnar og vina en ekki stjórnvalda. Vegna þess hve fátækur hann sé geti hann ekki hafið nýtt líf á svæðum innan [...] þar sem [...] séu ekki litnir eins miklu hornauga.

Í greinargerð kæranda er fjallað um ákvæði 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga og samspil þess við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 15. gr. tilskipunar Evrópusambandsins nr. 2004/83/EB um lágmarksskilyrði til að ríkisborgarar þriðju landa eða ríkisfangslausir einstaklingar teljist flóttamenn eða menn sem að öðru leyti þarfnast alþjóðlegrar verndar og um inntak slíkrar verndar. Tilskipunin hefur nú verið uppfærð með tilskipun nr. 2011/95/ESB. Í II. kafla tilskipunarinnar séu talin upp þau viðmið sem hafa beri til hliðsjónar við mat á þörf einstaklings fyrir alþjóðlegri vernd. Skuli slíkt mat fara fram á einstaklingsgrundvelli og verði m.a. að meta hvort hægt sé með sanngjörnum hætti að ætlast til þess að umsækjandi leiti verndar stjórnvalda. Ef einstaklingur hefur þegar orðið fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða eða beinum hótunum um slíkar ofsóknir eða skaða sé það vísbending um raunverulega hættu af því að verða fyrir alvarlegum skaða. Með vísan til þessa er þess krafist til vara að kæranda verði veitt viðbótarvernd skv. 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga.

Varðandi þrautavarakröfu kæranda kemur fram í greinargerð að í athugasemdum frumvarps til laga nr. 115/2010, um breytingu á útlendingalögum, segi að með íþyngjandi félagslegum aðstæðum að öðru leyti sé átt við alvarlegar aðstæður í heimaríki, t.d. viðvarandi mannréttindabrot eða þá aðstöðu að stjórnvöld veita ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með hliðsjón af þessu og því sem kærandi hafi greint frá sé ljóst að kærandi uppfylli skilyrði 12. gr. f útlendingalaga, þar sem [...] stjórnvöld annað hvort vilji ekki eða geti ekki veitt þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum af því tagi sem um ræðir, og því beri að veita kæranda dvalarleyfi af mannúðarástæðum.

Einnig kemur fram að staða efnahagsmála í [...] sé afar erfið og hagvöxtur hafi minnkað um helming í kjölfar alþjóðlegu efnahagskreppunnar. Frá árinu 2012 hafi fátækt aukist og almennt atvinnuleysi sömuleiðis. Atvinnuleysi á meðal ungs fólks sé sérstaklega mikið. Kærandi hafi verið atvinnu- og húsnæðislaus í heimalandinu og eigi ekki möguleika á atvinnuleysisbótum þar. Ekki sé útilokað skv. orðanna hljóðan að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 12. gr. f laga um útlendinga vegna efnahagslegra aðstæðna á borð við fátækt og húsnæðisskorts, þó að meginreglan sé að slíkt sé að jafnaði ekki gert. Af ofangreindu megi ætla að aðstæður kæranda í heimalandi séu svo bágbornar að rétt sé að veita kæranda dvalarleyfi hér á landi af mannúðarástæðum.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað [...] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé [...] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

[...].

Kærunefnd útlendingamála hefur m.a. farið yfir eftirfarandi skýrslur og gögn um [...]:

[...]Í ofangreindum gögnum kemur fram að [...] stjórnvöld hafa tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu í löggæslunni og dómsvaldinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Endurnýjun hafi átt sér stað í lögregluliði landsins og sjálfstæði dómstóla og eftirlit með starfsemi þeirra aukið. Stjórnvöld hafi ennfremur unnið að því í samstarfi við Evrópusambandið að efla alla innviði stjórnsýslunnar og bæta þjónustu við borgara landsins.

Einnig kemur fram að unnið hafi verið að því síðustu ár að bæta réttarstöðu [...]í [...]. Löggjöf hafi verið bætt til þess að auka við réttarvernd og réttindi [...]. Þá hafi verið gerð breyting á refsilögum landsins og nú sé það til refsiauka ef ofbeldi hafi verið framið á grundvelli [...]. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins ([...]2015 Human Rights Report (U.S. Department of State, 13. apríl 2016)) kemur fram að þrátt fyrir að lög banni mismunun á grundvelli [...] þá verði [...]fyrir mismunun í daglegu lífi og þeirri löggjöf sé ekki fylgt eftir sem skyldi. [...]verði einkum fyrir mismunun hvað varðar aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu, atvinnu og annarri þjónustu. Þá sé til staðar sérstök löggjöf gegn hatursglæpum og ofbeldi gegn [...]sé refsivert skv. henni.

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann veg að kærandi fái réttarstöðu flóttamanns skv. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna.

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Kærandi byggir kröfu sína á því að hann þurfi vernd hér á landi þar sem hann eigi á hættu að verða fyrir aðkasti og mismunun í heimalandi sínu vegna [...]

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimalandi. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008)).

Kærandi kveðst vera að flýja heimaland sitt vegna bágra efnahagslegra aðstæðna. Þá sé hann [...] og geti ekki [...] í [...]án þess að verða fyrir aðkasti og mismunun. Kærandi kvaðst í viðtali hjá kærunefnd ekki hafa orðið fyrir neinu ofbeldi vegna [...]en að hann væri ekki lengur velkominn hjá fjölskyldu sinni og væri félagslega einangraður. Það væru ekki aðeins fordómar í samfélaginu heldur einnig hjá stjórnvöldum og því væri erfitt að fá raunverulega aðstoð þeirra. Kærandi telji því stjórnvöld í [...]hvorki vilja né geta veitt honum nauðsynlega vernd og aðstoð.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi [...]yfirvalda. Skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur skoðað benda ekki til þess að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita honum vernd gegn ofsóknum, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Í því sambandi er bent á að skv. lögum í [...] er mismunun á grundvelli [...]bönnuð. Ferðafrelsi er ennfremur tryggt í löggjöf landsins og stjórnvöld virða almennt þann rétt. (Country Reports on Human Rights Practices for 2015– [...] (United States Department of State, 13. apríl 2016)). Þó að fallist sé á að efnahagslegar aðstæður kæranda geri honum erfitt fyrir að setjast að á öðrum stað í [...] er það engu að síður mögulegt fyrir hann að flytja sig til innanlands telji hann þess þörf. Er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda og sú mismunun sem hann telji að hann muni verða fyrir teljist ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 44. gr. a laga um útlendinga.

Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu réttarstöðu flóttamanns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga

Kærandi krefst þess til vara að hinni kærðu ákvörðun verði breytt á þann hátt að honum verði veitt viðbótarvernd, sbr. 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga.

Í 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum teljist einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um [...] telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. gr. og 1. mgr. 45 gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 12. gr. f laga um útlendinga

Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Kærandi hefur greint frá erfiðum efnahagslegum aðstæðum sínum og atvinnuleysi. Í greinargerð með frumvarpi því sem færði 2. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga í núverandi horf kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafa ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þeirri greinargerð. Þá telur kærunefnd að kærandi hafi ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd vegna [...]sinnar. Þau óþægindi og útskúfun sem hann hefur og kann að verða fyrir virðist staðbundin og takmörkuð við ákveðna einstaklinga í nærumhverfi kæranda.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í [...] séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í skamman tíma.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson

Anna Tryggvadóttir Pétur Dam Leifsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta