Mál nr. 78/2017 Úrskurður 22. desember 2017
Mál nr. 78/2017 Eiginnafn: Ljóney
Hinn 22. desember 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 78/2017 en erindið barst nefndinni 14. desember.
Eiginnafnið Ljóney (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ljóneyjar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ljóney (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.