Mál nr. 51/2016 Úrskurður 3. júní 2016
Mál nr. 51/2016 Eiginnafn: Elea
Hinn 3. júní 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 51/2016 en erindið barst nefndinni 23. maí:
Eiginnafnið Elea (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eleu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Elea (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.