Mál nr. 37/2020 Úrskurður 19. maí 2020
Mál nr. 37/2020 Eiginnafn: Lennon (kk.)
Hinn 19. maí 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 37/2020 en erindið barst nefndinni 12. maí.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Lennon (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lennons, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Lennon (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.