Mál nr. 52/2024 Úrskurður 16. apríl 2024
Mál nr. 52/2024 Millinafn: Sæ (kvk.)
Hinn 16. apríl 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 52/2024 en erindið barst nefndinni 11. apríl.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:
- millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
- nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
- millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Millinafnið Sæ er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki unnið sér hefð sem eiginnafn og getur ekki orðið nafnbera til ama. Þá er nafnið ekki ættarnafn og uppfyllir því skilyrði 6. gr. laganna.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Sæ er samþykkt.