Mál nr. 3/2013, úrskurður 9. janúar 2013
Mál nr. 3/2013 Eiginnafn: Elinborg
Hinn 9. janúar 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 3/2013 en erindið barst nefndinni 7. janúar:
Eiginnafnið Elinborg (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Elinborgar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Elinborg (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.