Hoppa yfir valmynd

Nr. 373/2017 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 27. júní 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 373/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17050025

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 17. maí 2017 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. apríl 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Danmerkur.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga, og 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 25. febrúar 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Danmörku. Þann 8. mars 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Danmörku, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 13. mars 2017 barst svar frá dönskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 27. apríl 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Danmerkur. Kærandi kærði ákvörðunina þann 17. maí 2017 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda, ásamt fylgigögnum, barst kærunefnd 26. maí 2017.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Danmerkur. Lagt var til grundvallar að Danmörk virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Danmerkur ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Þrátt fyrir að kærandi glími við andleg veikindi var það mat Útlendingastofnunar að kærandi væri ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Danmerkur, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun krafðist hann þess að umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði tekin til efnismeðferðar hér á landi. Fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar að fyrir liggi að dönsk stjórnvöld hafi samþykkt viðtöku á kæranda, sbr. d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Dönsk stjórnvöld séu bundin af alþjóðlegum skuldbindingum á sviði mannréttinda, þar á meðal grundvallarreglunni sem fram komi í 42. gr. laga um útlendinga. Þá búi dönsk stjórnvöld yfir teymi sem haldi utan um landaupplýsingar og hafi því kynnt sér mjög vel aðstæður í heimaríki kæranda enda hafi mál kæranda verið kannað á tveimur stjórnsýslustigum í Danmörku og sé það niðurstaða danskra stjórnvalda að endursenda kæranda til heimaríkis. Jafnframt stríði það gegn tilgangi Dyflinnarsamstarfsins ef ríki endurmeti ákvarðanir ábyrgs viðtökuríkis þegar fyrir liggi að málsmeðferð í viðtökuríkinu sé fullnægjandi. Þá hafi Mannréttindadómstóll Evrópu sett tiltölulega háan þröskuld við mat á því hvað sé ill meðferð skv. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Athugun Útlendingastofnunar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Danmörku hafi ekki leitt í ljós gögn sem gefi tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending umsækjenda um alþjóðlega vernd til Danmerkur brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þá verði einnig haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Danmerkur á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Sé það því mat Útlendingastofnunar að endursending kæranda til Danmerkur sé ekki í andstöðu við 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Fram kemur í greinargerð kæranda að í viðtali hans hjá Útlendingastofnun hafi kærandi upplýst að hann hafi fengið lokasynjun á máli sínu í Danmörku. Hann hafi dvalið í 16 til 17 mánuði þar í landi og aðstæður hafi almennt verið í lagi þar til hann hafi fengið lokasynjun. Eftir það hafi allt breyst og hann fengið litla hjálp og aðstoð. Aðspurður hvort hann óttist eitthvað eða einhvern í Danmörku kveðst hann óttast að vera fangelsaður við endurkomu þangað og í framhaldi fluttur til heimaríkis. Kærandi kveður að líkamlegt heilsufar hans sé ekki gott, hann þjáist af vandamálum í maga og yfirliðstilfinningu. Andlegt heilsufar sé jafnframt slæmt en hann kveðst ekki sofa, líði illa, sé stressaður og stöðugt hræddur. Í viðtölum sínum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að fjölskylda hans hafi flúið frá […] til […] þegar hann hafi verið barn vegna yfirráða […]. Hann hafi alist upp sem flóttamaður í […] og unnið við teppagerð. Ferðalag hans til Evrópu hafi hafist í júní 2015 þegar hann hafi flúið til Danmerkur.

Kærandi byggir á því í greinargerð sinni að hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga sem mæli fyrir um grundvallarregluna um non-refoulement, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Þá kveði c-liður 1. mgr. 36. gr. laganna einungis á um heimild til handa stjórnvöldum til að synja kæranda um efnismeðferð umsóknar sinnar en ekki skyldu. Sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli kæranda, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og því beri stjórnvöldum skylda til að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli meginreglu 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð kæranda er fjallað um aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd og málsmeðferð í Danmörku og í því sambandi vísað til alþjóðlegra skýrslna. Meðal annars kemur fram að Danmörk reki eina ströngustu innflytjendalöggjöf í Evrópu og að málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna hafi verið ofarlega á baugi í stjórnmálum þar í landi. Tiltekin mannréttindavandamál séu í hæliskerfinu, m.a. ófullnægjandi heilbrigðisskoðun og aðgangur að heilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga sem fengið hafi synjun á umsókn sinni, vanhöld á því að lögregluþjónar beri auðkenni og lagalegar takmarkanir á ferðafrelsi. Þá hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna biðlað til danskra stjórnvalda að endurskoða stefnu sína í málaflokknum. Eftir að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Danmörku fái lokasynjun sé viðkomandi sendur í miðstöð fyrir brottflutninga. Dagpeningar séu teknir af viðkomandi, honum gert að hitta lögregluna vikulega og eigi á hættu að vera fangelsaður fari hann ekki eftir settum reglum.

[…] Niðurstaða dönsku útlendingastofnunarinnar frá 31. ágúst 2016 í máli kæranda sé sú að hann sé hvorki flóttamaður né eigi hann rétt á viðbótarvernd í landinu. Kærandi hafi kært niðurstöðuna til kærunefndar sem hafi staðfest ákvörðunina þann 6. janúar sl. Af hálfu kæranda er því haldið fram að ákvarðanir danskra yfirvalda séu rangar enda hafi öryggisástand í […] versnað til muna undanfarin ár með vopnuðum átökum og auknum árásum […] á óbreytta borgara.

Þá er vísað til þess í greinargerð kæranda að Útlendingastofnun hafi eingöngu vísað í þrjár heimildir í ákvörðun sinni og reki ekki efni þeirra heimilda sem vísað sé til. Þá sé hvergi vitnað í heimildir sem styðji þá staðhæfingu stofnunarinnar að ekkert bendi til þess að flutningur kæranda brjóti í bága við grundvallarregluna um non-refoulement. Af hálfu kæranda er byggt á því að ekkert í ákvörðuninni bendi til þess að gögn málsins hafi verið skoðuð á þann hátt sem rannsóknarregla 10. gr. stjórnsýslulaga geri kröfu um.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að dönsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Danmerkur er byggt á því að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd.Í c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. skuli tekin til efnismeðferðar nema heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda. Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum jafnframt að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

  • Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Danmörku, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
  • Denmark 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017)
  • Amnesty International Report 2016/17 - Denmark (Amnesty International, 22. febrúar 2017)
  • Freedom in the world 2016 – Denmark (Freedom House, 2016)
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council of Europe Following his visit to Denmark from 19 to 21 November 2013 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 24. mars 2014)
  • Dublin II – national asylum procedure in Denmark (Danish Refugee Council, 2011)
  • Country Factsheet Denmark (European Union Agency for Fundamental Rights, september 2010)
  • Upplýsingar af heimasíðu sem danska Útlendingastofnunin heldur úti: www.nyidanmark.dk, Udlændingestyrelsen og Styrelsen for International Rekruttering og Integrations
  • Upplýsingar af heimasíðu sem dönsk heilbrigðisyfirvöld halda úti: www.sundhedstyrelsen.dk, Sundhedsstyrelsen

Fram hefur komið í málinu að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Danmörku á tveimur stjórnsýslustigum. Hafi umsækjandi um alþjóðlega vernd í Danmörku fengið lokaniðurstöðu í máli sínu getur hann lagt fram nýja umsókn um alþjóðlega vernd telji hann nýjar ástæður eða breyttar aðstæður vera fyrir hendi í máli hans sem ekki voru fyrir hendi þegar mál hans var áður til meðferðar. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Dönsk yfirvöld tryggja umsækjendum ekki endurgjaldslausa lögfræðiaðstoð við meðferð máls á fyrra stjórnsýslustigi. Hins vegar eiga umsækjendur rétt á lögfræðiaðstoð sér að kostnaðarlausu við meðferð máls á kærustigi. Þá veita frjáls félagasamtök að nafni Dansk Flygtningehjælp lögfræðiráðgjöf til umsækjenda um alþjóðlega vernd þeim að kostnaðarlausu.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á að vera í Danmörku á meðan mál þeirra er til meðferðar fyrir dönskum stjórnvöldum. Af framangreindum gögnum um Danmörku má ráða að umsækjendur fá gistingu í móttökumiðstöðvum þar til ákvörðun um brottvísun kemur til framkvæmda eða umsækjandi yfirgefur Danmörku sjálfviljugur. Jafnframt eiga umsækjendur rétt á dagpeningum til grunnframfærslu eða fríum mat í móttökumiðstöðvum. Þá veitir útlendingastofnun umsækjendum nauðsynlega heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa á að halda.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Danmörku hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending umsækjenda um alþjóðlega vernd til Danmerkur brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að umsækjendum um alþjóðlega vernd séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Danmörku bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Danmerkur á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Fram hefur komið í málinu að kærandi kveði andlega heilsu sína ekki nógu góða, hann geti ekki sofið og líði illa. Þá þjáist hann af magavandamálum og yfirliðstilfinningu. Skilgreiningu á einstaklingi í sérstaklega viðkvæmri stöðu er að finna í 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga en þar kemur fram að átt sé við einstaklinga sem hafa sérþarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls eða geta ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum án aðstoðar eða sérstaks tillits, t.d. fólk með geðraskanir og alvarlega veikir einstaklingar. Með vísan til heildstæðs mats á stöðu kæranda er það mat kærunefndar að kærandi sé ekki einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 22. mars 2017 greindi kærandi frá því að hann hafi fengið aðstoð vegna andlegra veikinda sinna í Danmörku, húsnæði, fæði og lögfræðiaðstoð. Þá hefur komið fram í málinu að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Danmörku. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Danmörku sem fengið hafa endanlega niðurstöðu í máli sínu má ráða að þeim er skylt að dvelja í svokölluðum brottflutningsmiðstöðvum fram að brottvísun þeirra frá landinu. Dæmi eru um að umsækjendur um alþjóðlega vernd dvelji í þessum miðstöðvum í lengri tíma og bíði brottvísunar í töluverðri óvissu um framtíð sína. Fram kemur í alþjóðlegum skýrslum að slík óvissa og skortur á samskiptum við umheiminn geti haft slæmar afleiðingar á líkamlega og andlega heilsu umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í fyrrgreindum skýrslum um aðstæður í Danmörku kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa á að halda fram að brottflutningi þeirra frá landinu. Þó svo að mikið álag sé á hæliskerfi Danmerkur um þessar mundir telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Danmörku, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér heilbrigðisþjónustu við hæfi þar í landi. Þá er það mat kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að framkvæmd synjunar á efnismeðferð umsóknar hans hafi í för með sér verulegar og óafturkræfar afleiðingar fyrir heilsufar hans. Í ljósi aðstæðna í Danmörku og að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það því mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi slíkar sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í áðurnefndu viðtali hjá Útlendingastofnun þann 22. mars 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 25. febrúar 2017.

Í greinargerð byggt á því að Útlendingastofnun hafi ekki fullnægt skyldum sínum skv. rannsóknarreglunni í 10. stjórnsýslulaga. Kærandi telur að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið ábótavant þar sem ákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga m.a. vegna þess að eingöngu hafi verið vísað í þrjár skýrslur og efni þeirra hafi ekki verið rakið í ákvörðun stofnunarinnar. Kærunefnd tekur fram að ekki fáist annað séð af ákvörðun Útlendingastofnunar en að stofnunin hafi byggt á nýjustu tiltæku skýrslum um aðstæður í Danmörku. Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægjanlega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna, sbr. jafnframt 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga þar sem fram kemur að við meðferð mála er varða umsóknir um alþjóðlega vernd skuli afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga. Eins og að framan greinir tekur kærunefnd undir það, sem fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar um aðstæður í Danmörku og telur ekki tilefni til að gera athugasemd við rannsókn málsins er þetta varðar. Er það afstaða kærunefndar að ekkert bendi til þess að slíkur ágalli hafi verið á rannsókn niðurstöðu ákvörðunar Útlendingastofnunar þannig að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi.

Í máli þessu hafa dönsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Danmerkur með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal                                                                  Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta