Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 137/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 19. apríl 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 137/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU15110024

Kæra [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 24. nóvember 2015, kærði [...], [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefnd kærandi), þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. nóvember 2015, að synja henni um hæli á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga. Kærandi sótti um hæli hér á landi ásamt unnusta sínum [...]

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að henni verði veitt hæli sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga, sbr. A-lið 1. gr. Flóttamannasamningsins. Verði ekki fallist á það fer kærandi fram á það til vara að sér verði veitt vernd á grundvelli 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga.

Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að henni verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum á grundvelli 12. gr. f laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi sótt um hæli hér á landi þann 7. ágúst 2015. Hælisviðtal var tekið við kæranda þann 20. október 2015 og ákvörðun tekin í máli hennar hjá Útlendingastofnun þann 18. nóvember s.á. Var kæranda synjað um hæli hér á landi ásamt því að henni var synjað um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga um útlendinga. Sú ákvörðun var birt kæranda þann 24. nóvember 2015. Ákvörðun stofnunarinnar var kærð til kærunefndar útlendingamála sama dag. Kærunefnd útlendingamála barst greinargerð kæranda þann 6. janúar 2016 og viðbótargögn bárust á tímabilinu 25. janúar til 1. mars 2016.

Hinn 16. febrúar 2016 kom kærandi fyrir kærunefnd útlendingamála og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b útlendingalaga.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Kærandi byggði á því hjá Útlendingastofnun að hún hafi þörf fyrir vernd þar sem henni og manni hennar stafi ógn af föður hennar og bróður. Kæranda og manni hennar hafi verið hótað lífláti. Þá byggði hún á því að sér væri mismunað í heimaríki á grundvelli þjóðernis þar sem hún tilheyri [...]. Þá bar kærandi því einnig við að hún sætti kynbundnum ofsóknum og að yfirvöld væru ófær og óviljug til að veita henni fullnægjandi vernd.

Við mat á því hvort veita ætti kæranda hæli eða viðbótarvernd er frásögn hennar talin trúverðug hvað flest varðar að mati Útlendingastofnunar. Fullyrðingum kæranda um að yfirvöld í[...]geti ekki veitt henni viðeigandi aðstoð var þó hafnað.

Útlendingastofnun fjallar um aðstæður í [...] og greindi frá því að samkvæmt heimildum séu borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi þar í megindráttum virt og að staða annarra grundvallarréttinda fari batnandi. Grundvallarmannréttindi njóti verndar samkvæmt stjórnarskrá landsins. [...] sé aðili að mannréttindasáttmála Evrópu og öðrum helstu mannréttindasáttmálum. Mikið hafi verið lagt upp úr því síðari ár að uppræta spillingu sem hafi verið viðvarandi vandamál í landinu. Þá fjallar stofnunin sérstaklega um aðstöðu [...]

Útlendingastofnun taldi að kærandi ætti ekki á hættu að verða fyrir ofsóknum eða meðferð sem jafnað yrði til þeirra sbr. 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Þá mat stofnunin það svo að kærandi ætti ekki á hættu illa meðferð skv. 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Stofnunin fjallaði einnig um hvort grundvöllur væri fyrir því að veita kæranda dvalarleyfi skv. 12. gr. f laga um útlendinga, hvort sem er vegna sérstakra tengsla hennar við landið eða vegna mannúðarsjónarmiða, en synjaði kæranda um dvalarleyfi á þeim grundvelli. Að lokum var það mat stofnunarinnar að endursending kæranda til [...] fæli ekki í sér brot á 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.

Að lokum var kæranda vísað frá landinu á grundvelli 3. mgr. 90. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, sbr. IX. kafla reglugerðarinnar.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi kveðst hafa flúið [...] vegna andstöðu ættingja sinna við samband hennar og manns hennar. Maður kæranda hafi áður verið giftur og hafi átt þrjú börn með fyrri konu sinni þegar þau hófu að eiga í ástarsambandi. Kærandi telur sig í hættu verði henni snúið aftur til heimalandsins.

Ofsóknir þær sem kærandi kveðst sæta í heimalandi sínu byggi á viðhorfum um að kona ráði lífi og líkama sínum ekki fyllilega sjálf en slík viðhorf eigi sér djúpar rætur í samfélaginu sem ekki verði upprættar þrátt fyrir löggjöf og samninga. Því sé ekki unnt að ætlast til þess að hún geti leitað til lögreglu eða annarra yfirvalda til þess að hljóta vernd gegn þeim ofsóknum sem hún sæti enda sé litið á mál sem þessi sem persónuleg deilumál sem fólk þurfi að leysa sjálft innan fjölskyldunnar. Þá verði einstaklingar í hinum [...]fyrir mikilli mismunun.

Kærandi byggir á því að skv. 12. gr. f laga um útlendinga sé heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt ekki sé fullnægt öllum skilyrðum 11. gr., ef rík mannúðarsjónarmið standi til þess eða vegna sérstakra tengsla hans við landið. Í 2. mgr. 12. gr. f komi fram að veita megi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki megi með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sem dæmi um félagslegar aðstæður skv. athugasemdum með frumvarpi því sem hafi orðið að lögum nr. 115/2010 um breytingar á útlendingalögum, séu t.d. aðstæður kvenna sem annað hvort hafi sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt geti til erfiðrar stöðu þeirra í heimalandi, eða aðstæður kvenna sem ekki aðhyllist kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eigi á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu.

Nauðungarhjónabönd séu mikið vandamál í [...]. Barátta [...]yfirvalda hafi litlu skilað. Faðir kæranda, bróðir hennar og frændi, ásamt fleirum, telji hana hafa kallað skömm yfir fjölskyldu sína fyrir að hafa óhlýðnast fyrirmælum karlmanna úr fjölskyldunni. Þar af leiðandi sé ljóst að kærandi eigi á hættu útskúfun eða ofbeldi verði hún endursend til heimaríkis.

Ekki sé hægt að ætlast til þess að kærandi geti leitað ásjár [...] yfirvalda og hlotið þar vernd þegar það liggi fyrir í skýrslum alþjóðlegra stofnana að mikil spilling ríki þar og að réttarkerfið standi höllum fæti. Þá tilheyri kærandi [...]sem halli enn meira á en aðra borgara landsins.

Þá sé í ljósi smæðar heimalands kæranda, stöðu kvenna og samfélagslegra viðhorfa til þeirra, auk getuleysis stjórnvalda í [...] til þess að veita borgurum sínum vernd ekki hægt með sanngirni að ætlast til þess að kærandi flytji sig um set innanlands til þess að flýja þá sem vilji vinna henni mein.

Loks ber að geta þess að í viðbótargögnum sem lögð voru fram við fyrirtöku kæranda hjá kærunefnd er það staðfest að kærandi eigi von á barni í ágúst 2016.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga með síðari breytingum, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hún framvísað [...] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé [...]r ríkisborgari.

Landaupplýsingar

[...][...]Í ofangreindum gögnum kemur m.a. fram að spilling sé þó nokkur í [...] stjórnkerfinu. [...] ríkið hafi hins vegar gripið til ýmissa aðgerða til að sporna við spillingu með misgóðum árangri. Auk þess kemur fram að dómskerfið sé óskilvirkt og meðferð mála taki langan tíma. Þá er jafnframt greint frá því að spenna ríki í samskiptum milli [...]og að hlutfall [...]sem starfi í dómskerfinu sé lágt. Hlutfall [...] af [...]á þjóðþingi [...] fari vaxandi auk þess sem stærsti flokkur [...]eigi nú sæti í ríkisstjórn landsins. Aðgangur einstaklinga að heilbrigðisþjónustu sé almennt góður. Heilsugæsla sé að mestu ókeypis en þátttaka í kostnaði sé tekjutengd og einstaklingar sem tilheyri viðkvæmum hópum séu undanþegnir gjaldtöku.

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. laga um útlendinga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Krafa kæranda um vernd hér á landi byggir á félagslegum aðstæðum hennar í heimalandi og ofsóknum af hálfu fjölskyldu hennar.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli slíkar ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að einhverjar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna. (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008).

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig ofsóknir af hálfu [...] stjórnvalda eða aðilum tengdum þeim. Kærandi hefur þar að auki ekki borið fyrir sig ofsóknir af ástæðum sem taldar eru upp í 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, þ.e. á grundvelli kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu réttarstöðu flóttamanns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Í 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands.

Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. gr. og 1. mgr. 45 gr. laganna. Að öllu framangreindu virtu er kröfu kæranda um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og þeim verði veitt hæli hér á landi hafnað.

Ákvæði 12. gr. f útlendingalaga

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í skýringum með lögum nr. 115/2010 sem breyttu 12. gr. f laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé, í samræmi við framkvæmd í öðrum löndum, miðað við atriði á borð við það hvort um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða sem meðferð er til við hér á landi en ekki í heimalandi viðkomandi. Þá kemur fram að ef um langvarandi sjúkdóm er að ræða séu ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi þegar sjúkdómur er á lokastigi. Jafnframt sé rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki sé læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varða félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu, í málum þar sem til álita kemur að flytja veikan einstakling úr landi, er einungis um brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans að ræða við sérstakar aðstæður þar sem fyrir hendi eru rík mannúðarsjónarmið, sbr. m.a. dóm í máli Tatar gegn Sviss frá 14. apríl 2015. Veikur einstaklingur á ekki kröfu til þess að vera áfram í aðildarríki til þess eins að njóta áfram heilbrigðis- eða félagslegrar þjónustu sem endursendingarríki veitir. Jafnvel þó að lífslíkur einstaklingsins minnki við brottvísun frá aðildarríki mannréttindasáttmálans þá er það eitt og sér ekki nóg til þess að um brot á 3. gr. sáttmálans sé að ræða.

Kærandi á skv. vottorði von á barni í ágúst 2016. Þau gögn sem kærunefndin hefur farið yfir við meðferð máls kæranda benda til þess að einstaklingar hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu í [...] og að endurgjald fyrir slíka þjónustu sé tekjutengt. Kærunefnd telur því að ljós að kærandi geti notið læknisþjónustu í heimalandi sínu.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða eins og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í [...] séu ekki með þeim hætti að rík mannúðarsjónarmið standi til þess að veita henni dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga.

Þá tekur kærunefndin jafnframt undir niðurstöðu Útlendingastofnunar um að kærandi uppfylli ekki skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á landinu í tengslum við umsókn sína um hæli.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Anna Valbjörg Ólafsdóttir Pétur Dam Leifsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta