1177/2024. Úrskurður frá 29. febrúar 2024
Hinn 29. febrúar 2024 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1177/2024 í máli ÚNU 24010002.
Kæra, málsatvik og málsmeðferð
Með erindi, dags. 22. desember 2023, kærði A tafir á afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni hans um gögn. Með kærunni fylgdi handritað afrit af bréfi kæranda til bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar, dags. 6. nóvember 2023, þar sem hann óskar eftir skýrslu Minjastofnunar Íslands varðandi kröfur um mótvægisaðgerðir sem metnar eru út frá niðurstöðum fornleifarannsóknar í Miðgerði auk draga að kostnaðarmati. Kæran var kynnt Vestmannaeyjabæ með erindi, dags. 17. janúar 2024, og upplýsinga óskað um það hvort beiðni kæranda hefði verið afgreidd. Í svari Vestmannaeyjabæjar, dags. 24. janúar 2024, kom fram að beiðni kæranda fyndist ekki og að því yrði að ætla að beiðnin hefði ekki borist sveitarfélaginu.
Niðurstaða
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, er heimilt að bera synjun á beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt lögunum undir úrskurðarnefndina. Hið sama gildir um synjun á beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er. Þá er heimilt að vísa máli til úrskurðarnefndar um upplýsingamál ef beiðni um aðgang að gögnum ekki verið afgreidd innan 30 virkra daga frá móttöku hennar samkvæmt 3. mgr. 17. gr. upplýsingalaga. Af kæru er ljóst að kærandi telur að Vestmannaeyjabær hafi dregið óhæfilega að afgreiða beiðni hans um skýrslu Minjastofnunar o.fl. Af hálfu Vestmannaeyjabæjar hefur hins vegar komið fram að beiðnin finnist ekki í vörslum sveitarfélagsins. Úrskurðarnefndin hefur ekki forsendur til að draga þá staðhæfingu í efa. Af því leiðir að ekki getur verið um óhæfilegan drátt á meðferð málsins að ræða, þar sem sveitarfélagið hefur ekki móttekið beiðni kæranda og þannig ekki haft tækifæri til afgreiða hana, sbr. 3. mgr. 17. gr. upplýsingalaga. Verður kærunni því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Úrskurðarorð
Kæru A, dags. 22. desember 2023, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir