Mál nr. 4/2013, úrskurður 9. janúar 2013
Mál nr. 4/2013 Eiginnafn: Sigri
Hinn 9. janúar 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 4/2013 en erindið barst nefndinni 8. janúar:
Eiginnafnið Sigri (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Sigra, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Sigri (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.