Hoppa yfir valmynd

Nr. 394/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 26. september 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 394/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22070030

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 18. júlí 2022 kærði […], fd. […], ríkisborgari Indlands (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. júlí 2022, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að henni verði veitt vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 1. júní 2022, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands í 8 daga. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. júlí 2022. Hinn 18. júlí 2022 barst kærunefnd kæra frá kæranda, ásamt fylgiskjölum.

III.      Málsástæður og rök kæranda

Kærandi skilaði inn athugasemdum með kæru sinni til kærunefndar þar sem fram kemur m.a. að umsókn hennar hafi verið synjað á þeim grundvelli að hún hafi ekki veitt rökstuðning fyrir tilgangi ferðar sinnar. Kærandi gerir athugasemd við að henni hafi ekki verið leiðbeint eða tilkynnt um það áður en ákvörðun hafi verið tekin. Þá hafi umsókn hennar og fjölskyldu hennar verið synjað löngu eftir áætlaðan komudag þeirra til Íslands. Það hafi verið slæm upplifun fyrir kæranda og fjölskyldu hennar þar sem þau hafi viljað ferðast til Íslands yfir heitasta tímann á Indlandi og sjá helstu ferðamannastaðina á Íslandi. Kærandi telur, í ljósi skorts á samskiptum, að hún og fjölskylda hennar hafi fengið ósanngjarna og óréttláta niðurstöðu þegar umsóknum þeirra hafi verið synjað. Kærandi krefst þess að umsókn hennar og fjölskyldu hennar verði endurskoðaðar með hliðsjón af framlögðum gögnum. Kærandi og fjölskylda hennar séu náin og hafi djúpar rætur í indverskri menningu. Það hafi ekki hvarflað að þeim að búa annars staðar en í heimaríki. Kærandi og fjölskylda hennar vilji einungis ferðast og hafa gaman á Íslandi.

Í tölvubréfi frá kæranda til kærunefndar, dags. 1. ágúst 2022, kveðst kærandi hafa upplifað fjárhagstap vegna þess hve seint ákvörðun Útlendingastofnun hafi verið tekin. Kærandi og fjölskylda hennar hafi lagt fram öll þau gögn sem nauðsynleg séu til að færa rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar þeirra á Íslandi.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016 ásamt reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru í ákvæðinu eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 2 vegna synjunar á umsókn hennar, þ.e. að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Nýju-Delí tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Indlandi, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð hennar hjá sendiráðinu er rakin. Kemur þar m.a. fram að kærandi hafi sótt um vegabréfsáritun til Austurríkis en verið synjað á þeim grundvelli að uppi væri skynsamlegur vafi um tilgang ferðar kæranda og fjölskyldu hennar. Þá kemur fram að kærandi eigi sér enga ferðasögu og hafi ekki lagt fram ferðaáætlun fyrir fyrirhugaða ferð hennar til Íslands. Kærandi hafi getað minnst á nokkra staði á Íslandi en ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókun hennar til landsins. Jafnframt hafi hótelgisting kæranda hér á landi verið afbókuð. Þá eigi kærandi engar eignir í heimaríki sínu og gögn bendi til þess að hún sé án atvinnu. Í símaviðtali hafi kærandi verið spurð út í ferðasögu sína og kvaðst hún ekki hafa ferðast áður. Hún kvaðst hafa sótt um vegabréfsáritun til Austurríkis með aðstoð fulltrúa. Kærandi kvaðst ekki vita hvaða gögn hann hefði lagt fram fyrir þeirra hönd en hann hafi skemmt fyrir umsóknum hennar og foreldra hennar því þeim hafi verið synjað. Kærandi og bróðir hennar hafi því ákveðið að skipuleggja ferð sína til Íslands sjálf og lagt viðeigandi gögn fram hjá milliliðafyrirtækinu Visa Facilitation Services (VFS). Kærandi kvaðst ætla að dvelja í Reykjavík og skoða m.a. söfn, kirkjur, norðurljósin og Bláa Lónið. Það var mat fulltrúa sendiráðsins, í ljósi framangreinds, að umsókn kæranda skyldi synjað í samræmi við ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hennar um vegabréfsáritun. Við það mat horfir kærunefnd m.a. til þess að kærandi hafi greint frá því í símaviðtali að hún myndi dvelja í Reykjavík og skoða sig þar um. Samkvæmt afriti af hótelbókun kæranda sem hún lagði fram hjá Útlendingastofnun máli sínu til stuðnings ætlaði hún þó að gista á hóteli í Reykholti í Borgarfirði í sjö nætur, frá 28. júní til 5. júlí 2022. Líkt og fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar lagði kærandi ekki fram ferðaáætlun. Kærandi gerði athugasemd við að hafa ekki verið leiðbeint af stofnuninni um að leggja slíkt fram en ljóst er að í fylgiblaði með umsóknarformi um vegabréfsáritun gefnu út af sendiráði Íslands í Nýju-Delí er tekið sérstaklega fram að ítarleg ferðaáætlun skuli fylgja umsókn. Samhliða kæru sinni til kærunefndar lagði kærandi fram ferðaáætlun máli sínu til stuðnings. Ferðaáætlunin gerir ráð fyrir 7 daga hringferð um Ísland þar sem lagt sé af stað frá Reykjavík og m.a. stoppað á Hvolsvelli, Höfn, Mývatni og Akureyri. Ljóst er að ferðaáætlunin er afrituð í heild sinni af indverskri vefsíðu og því ekki samin af kæranda og bróður hennar líkt og hún greindi frá. Þá lagði kærandi fram afrit af nýrri hótelbókun samhliða kæru sinni en samkvæmt henni ætlaði hún að gista á hóteli í Keflavík í 7 nætur. Ljóst er af frásögn kæranda að hún er margsaga um ferðaáætlun sína hér á landi. Þá styðja framlögð gögn með engu móti við framburð hennar varðandi dvöl hennar hér á landi.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar á Íslandi, sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Jafnframt telur kærunefnd, með vísan til framangreinds og framlagðrar ferðaáætlunar, að rökstudd ástæða sé til að draga í efa að innihald áætlunarinnar sé rétt, sem og áreiðanleika framburðar hennar eða ásetning hennar að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin rennur út, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta