Hoppa yfir valmynd

Nr. 388/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 14. ágúst 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 388/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19040108 og KNU19040109

Kæra […]

og […]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 23. apríl 2019 kærðu einstaklingar er kveðast heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir A) og […], er kveðst vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir B) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 17. apríl 2019 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Þess er krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 23. nóvember 2018. Þann 6. desember 2018 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 18. janúar 2019, kom fram að kærendum hefði verið veitt alþjóðleg vernd þann 1. september 2017 og væru með gilt dvalarleyfi í Grikklandi til 24. september 2020. Kærandi A kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 4. mars 2019 og kærandi B, m.a. þann 7. mars 2019 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 17. apríl 2019 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 23. apríl 2019 og kærðu kærendur ákvarðanirnar þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 6. maí 2019 ásamt fylgigögnum. Viðbótargögn bárust kærunefnd þann 8. maí 2019 og þá bárust frekari upplýsingar og gögn frá Útlendingastofnun 24., 25. og 29. júlí 2019.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kom fram að kærendum hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefðu kærendur ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að A hafi, í viðtölum hjá Útlendingastofnun, lýst þeim móttökum sem kærendur hafi fengið á flóttanum til Evrópu frá heimaríki. Lögreglumenn í […] hafi stöðvað för kærenda og beitt þau ofbeldi. Hafi lögreglan m.a. barið þau með kylfum og hafi A í kjölfarið þróað með sér streitu og slæma höfuðverki. Kærendur hafi því þurft að sækja um alþjóðlega vernd í Grikklandi. Þar hafi kærendur upplifað mikla fordóma, þau hafi fyrst um sinn dvalið í tjöldum en vegna alvarlegra veikinda móður þeirra hafi hjálparstofnanir útvegað þeim húsnæði í kjallara þar sem öll fjölskyldan hafi dvalið. Þá hafi A lýst því að kærendur hafi þurft að yfirgefa Grikkland þegar bróður þeirra hafi verið synjað um alþjóðlega vernd. Í greinargerð kemur enn fremur fram að B hafi lýst ástæðum flótta kærenda frá heimaríki í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Þá hafi B einnig lýst ofbeldi af hálfu […] lögreglunnar. Hafi B mótmælt því að vera sendur til Grikklands enda hafi líf kærenda verið í hættu og enginn getað ábyrst öryggi þeirra. Í Grikklandi hafi verið mikið um fordóma og þá hafi stjórnvöld ekki viljað aðstoða kærendur. Enga atvinnu hafi verið að fá í Grikklandi, m.a. vegna þess að kærendur tali ekki grísku og vegna fordóma en þau hafi þó fengið fjárhagsaðstoð frá Sameinuðu þjóðunum.

Í greinargerð kærenda koma fram athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar í hinum kærðu ákvörðunum og vísa kærendur til gagna um aðstæður í Grikklandi sem þau kveði að styðji þær. Í fyrsta lagi geri kærendur athugasemd við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar að þeim hafi staðið til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta í Grikklandi. Kærendur kveði að aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í Grikklandi sé verulegum takmörkunum háður og vísi til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings. Þá geri kærendur í öðru lagi athugasemd við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar að þau eigi rétt til aðgengis að félagslega kerfinu í Grikklandi. Kærendur hafni því mati og kveði að sú takmarkaða framfærsla sem þeim hafi staðið til boða í Grikklandi hafi ekki dugað til. Þá geri kærendur í þriðja lagi athugasemd við, að þrátt fyrir að Útlendingastofnun hafi fallist á rök þeirra um að þeim hafi ekki staðið til boða atvinna í Grikklandi, hafi það verið mat stofnunarinnar að kærendur hafi ekki sýnt fram á að þau hafi verið útilokuð frá þeim atvinnuréttindum sem felist í dvalarleyfi þeirra. Kærendur telji að ómögulegt muni verða fyrir þau að fá atvinnu í Grikklandi m.a. vegna þeirra alvarlegu mismununar sem þar þrífist gagnvart þeim sem ekki tali grísku og vegna fordóma grísks samfélags. Í fjórða lagi geri kærendur athugasemd við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar að þau eigi rétt á aðgengi að húsnæði í Grikklandi. Stofnunin hafi ranglega talið að grísk stjórnvöld hafi útvegað þeim húsnæði en hið rétta sé að hjálparsamtökin Praxis hafi útvegað fjölskyldunni húsnæðið. Telji kærendur að þau muni að öllum líkindum þurfa að hafast við á götunni í Grikklandi verði þeim gert að snúa aftur þangað eða treysta alfarið á tekjur sínar frá heimaríki. Þá geri kærendur að lokum athugasemd við mat Útlendingastofnunar á fordómum í Grikklandi sem þau telji vera í andstöðu við gögn um aðstæður þar í landi.

Í greinargerð kærenda er gerð grein fyrir aðstæðum, aðbúnaði og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og er vísað í því sambandi til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka, m.a. til skýrslu mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins frá 6. nóvember 2018. Þar komi fram að aðbúnaður umsækjenda um alþjóðlega vernd í flóttamannabúðum sé mjög slæmur, plássleysi sé mikið og skortur sé á nauðsynlegri heilbrigðis- og félagslegri þjónustu. Þá sé aðgengi að atvinnu í Grikklandi takmörkuð og mikið um fordóma í garð flóttamanna. Kærendur bendi á að íslensk stjórnvöld hafi ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands síðan í október 2010 á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og beri heimildir með sér að staða einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi sé síður en svo betri en staða umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Þá kveði kærendur að einstaklingar með alþjóðlega vernd, sem sendir séu aftur til Grikklands, eigi á hættu að dveljast á götunni án þjónustu. Kærendur fullyrði að endursendingar einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi frá öðrum Evrópuríkjum hafi verið stöðvaðar og vísi því til stuðnings til dóms stjórnsýsludómstóls í Madgeburg í Þýskalandi.

Kröfu sína um efnismeðferð byggja kærendur í fyrsta lagi á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem þau njóti verndar 1. mgr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærendur kveði að íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglunni um non-refoulement þar sem lagt sé bann við því að senda einstakling þangað sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu. Með 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hafi verið áréttaður sá vilji löggjafans að við möguleg brot gegn grundvallarreglunni með endursendingu til annars Evrópuríkis skuli taka umsóknir um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Kærendur telji að túlkun íslenskra stjórnvalda á dómum Mannréttindadómstóls Evrópu sé röng og að með núverandi framkvæmd firri þau sig ábyrgð skv. framangreindri grundvallarreglu langt umfram efni. Kærendur vísi til nánar tilgreinda dóma Mannréttindadómstólsins, máli sínu til stuðnings, og telji að við endursendingu þeirra til Grikklands muni íslensk stjórnvöld gerast brotleg við grundvallarregluna um non-refoulement. Telji kærendur að við endursendingu til Grikklands muni lífsgæði þeirra ekki aðeins versna verulega heldur muni lífskjör þeirra ekki ná því lágmarki sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kveði á um. Kærendur kveði að þörf þeirra fyrir mannúðarvernd hér á landi sé sérstaklega brýn og að fyrir hendi séu sannfærandi mannúðarástæður. Telji kærendur því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kröfu sína um efnismeðferð byggja kærendur í öðru lagi á því að uppi séu sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísa í því sambandi til lagaáskilnaðarreglu 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem setji stjórnvöldum afar þröngar skorður við setningu stjórnvaldsfyrirmæla vegna meðferðar umsókna um alþjóðlega vernd. Kærendur telji að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, brjóti gegn lögmætisreglunni. Þar séu að finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem ekki hafi stoð í settum lögum og önnur sem beinlínis gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Þá vísi kærendur til lögskýringargagna máli sínu til stuðnings og kveði að stjórnvöld hér á landi hafi við túlkun sína á hugtakinu sérstakar ástæður horft í of ríkum mæli til mannréttindasáttmála Evrópu og notað dómafordæmi alþjóðadómstóla til að skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í ljósi markmiðs laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 2. gr. laganna, um að tryggja beri mannúðlega meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga hér á landi, hafni kærendur því að við mat á sérstökum ástæðum hafi sjónarmið um skilvirkni umsóknarferilsins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkurt vægi. Þá bendi kærendur á að hvergi í lögskýringargögnum sé að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur hafi enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Kærendur telji að þau muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, m.a. vegna þeirrar kerfislægu og alvarlegu mismununar sem þar þrífist gagnvart flóttafólki. Kærendur kveði að verði þau send til Grikklands muni staða þeirra verða verulega síðri en staða almennings þar í landi í skilningi 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Telji kærendur því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál þeirra til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að lokum byggja kærendur kröfu sína um efnismeðferð á því að þau hafi sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur bendi á að öll fjölskylda þeirra sé stödd hér á landi, þar á meðal einn bróðir kærenda, en umsókn hans um alþjóðlega vernd var á þeim tíma sem greinargerðin var lögð fram í efnismeðferð hjá Útlendingastofnun. Kærendur telji að í ljósi meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar, sem m.a. megi finna í lögum um útlendinga, beri að gæta þess að sundra fjölskyldunni ekki enda muni það vera sérstaklega þungbært í ljósi þess hve samrýmd og náin þau séu. Kærendur eigi ættingja á Íslandi en ekki í Grikklandi og því hafi þau sérstök tengsl við landið þannig að taka beri umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var kærendum veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 1. september 2017 og hafa þau gilt dvalarleyfi þar í landi til 24. september 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærendur njóta í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Samkvæmt gögnum málsins eru kærendur systkin sem stödd eru hér á landi með þremur systkinum sínum og móður. Kærandi A er […] kona og kærandi B er […] karlmaður. Samkvæmt gögnum málsins eru þau bæði einstæð og barnlaus auk þess sem þau eru almennt við ágæta andlega heilsu. Kærendur kveði þó að árás lögreglu í […] hafi haft áhrif á andlega heilsu sína. A finni fyrir streitu, verði sorgmædd og fái höfuðverk þegar hún hugsi um árásina og þá eigi B mjög erfitt með að rifja hana upp.

Í gögnum málsins kemur fram að kærandi B sé almennt við góða líkamlega heilsu. Hvað varðar líkamlega heilsu A kemur fram í gögnum málsins að hún hafi verið skráð með greininguna […] og hafi verið ávísað lyfjum vegna þess. Þá má ráða af gögnum málsins að A hafi lokið meðferð hér á landi vegna […]. Þá komi auk þess fram í heilsufarsgögnum að A hafi áhyggjur af heyrn og sé haldin streitu. Í gögnum málsins er að finna bréf frá yfirlækni Göngudeildar sóttvarna, dags. 17. apríl 2019, þess efnis að kærandi A sé fær um að ferðast með flugi án aðstoðar (e. Fitness for Travel Assessment).

Að mati kærunefndar er ljóst, m.a. með vísan til fyrirliggjandi heilsufarsgagna, að veikindi kærenda séu ekki þess eðlis að þau hafi nú sérþarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 Report on International Religious Freedom – Greece (United States Department of State, 21. júní 2019);
  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Þá kemur fram í ofangreindri skýrslu Asylum Information Database að dvalarleyfi einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða viðbótarvernd í Grikklandi séu gefin út til þriggja ára í senn. Umsókn um endurnýjun dvalarleyfis þurfi að berast 30 dögum áður en að leyfið renni út en ef umsókn berist eftir þann tíma leiði það þó ekki eitt og sér til þess að umsókn sé synjað. Umsókn sé þá að jafnaði endurnýjuð. Við málsmeðferð umsókna um endurnýjun dvalarleyfis sé þó framkvæmd könnun á sakaferli sem geti leitt til þess að alþjóðleg vernd umsækjanda sé afturkölluð og honum í kjölfarið synjað um endurnýjun dvalarleyfis. Þá sé málsmeðferðartími umsókna um endurnýjun dvalarleyfis u.þ.b. tveir mánuðir en þó séu dæmi um að það tímabil geti lengst upp í sex mánuði, en á meðan umsókn sé í vinnslu fái umsækjendur sérstakt kort sem veiti þeim sömu réttindi og fylgi dvalarleyfinu útgefið til tveggja mánaða í senn.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Kærunefnd tekur ekki undir þá málsástæðu kærenda að sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu þeirra til Grikklands. Þá fellst nefndin ekki á að lífskjör kærenda í Grikklandi séu lífshættuleg, líkt og haldið var fram í greinargerð, eða að öðru leyti þess eðlis að flutningur þeirra til Grikklands myndi fela í sér brot á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærendur njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kærenda. Hafa kærendur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður eigi við í málum þeirra þar sem þau verði fyrir mismunun í Grikklandi og staða þeirra þar sé verulega síðri en almennings. Skortur sé á atvinnu, húsnæði, viðhlítandi heilbrigðisþjónustu og annarri félagslegri þjónustu, þeim til handa í Grikklandi. Kærendur hafi þá einnig borið fyrir sig að hafa orðið fyrir fordómum í Grikklandi og upplifi þau sig ekki örugga þar í landi.

Þrátt fyrir aðgangshindranir sem lýst hefur verið hér að framan hafa kærendur heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og eiga rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Samkvæmt framburði kærenda nutu þau aðstoðar í Grikklandi frá frjálsum félagasamtökum í formi mánaðarlegra greiðslna áður en þau yfirgáfu landið auk þess sem þau fengu úthlutað húsnæði á vegum frjálsra félagasamtaka þar í landi. Kærendur hafa jafnframt greint frá því að fjölskylda þeirra hafi fengið tekjur frá heimaríki sem hafi verið notaðar til framfærslu fjölskyldunnar. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærendur geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði þau fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærendur um öryggi sitt í Grikklandi geti þau leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þau geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Svo sem áður hefur komið fram þá hefur kærandi A verið greind með […] og verið ávísað lyfjum vegna þess. Aftur á móti benda gögn málsins til þess að A hafi lokið meðferð sinni […]. Af framburði kærenda svo og af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi, verður ráðið að kærendur eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu og nauðsynlegum lyfjum þar í landi. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærendur geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Því telur kærunefnd gögn málsins ekki benda til þess að kærendur glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki séu fyrir hendi ástæður í málum kærenda er varðar heilsufar þeirra sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kærenda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í málinu byggja kærendur á því að taka eigi umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi á þeim grundvelli að þau hafi slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að þau fái hér vernd, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi vísa kærendur einkum til þess að þau eigi tvær systur, bróður og móður hér á landi. Líkt og að framan greinir var bróður kærenda veitt viðbótarvernd hér á landi þann […], sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Lög um útlendinga veita ekki skýrar leiðbeiningar um hvernig hugtakið sérstök tengsl skv. 2. mgr. 36. gr. skuli túlkað í framkvæmd. Við túlkun ákvæðisins telur kærunefnd að líta verði til athugasemda sem fylgdu ákvæðinu í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Þannig verði að leggja til grundvallar að ákvæðinu sé ætlað að taka m.a. til þeirra tilfella þegar umsækjendur eiga ættingja hér á landi en ekki í því ríki sem þeir yrðu aftur sendir til. Þetta geti einnig átt við í öðrum tilfellum þar sem tengsl eru ríkari við Ísland en við viðtökuríki, svo sem vegna fyrri dvalar. Þá gera athugasemdirnar í frumvarpi og ákvæði 32. gr. b reglugerðar um útlendinga ráð fyrir því að fyrri dvöl umsækjanda hér á landi geti leitt til þess að um sérstök tengsl sé að ræða.

Samkvæmt framansögðu getur komið til skoðunar hvort kærandi hafi sérstök tengsl við landið í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þegar hann á ættingja hér á landi. Kærunefnd telur að leggja skuli til grundvallar að ef umsækjandi um alþjóðlega vernd á sannanlega ættingja hér á landi, sem hefur heimild til dvalar hér, sem hann hefur raunveruleg og sérstök tengsl við hér á landi en ekki í viðtökuríki, geti umsókn hans verið tekin til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra tengsla hans við landið.

Kærendur kváðust í viðtali hjá Útlendingastofnun eiga uppkomin systkini og móður hér á landi en þau eru einnig umsækjendur um alþjóðlega vernd. Þá hefur bróður kærenda verið veitt viðbótarvernd hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í málum kærenda kemur ekkert fram sem dregur í efa að tengsl kærenda við fjölskyldu þeirra séu raunveruleg og eðlileg fjölskyldutengsl. Í ákvörðun stofnunarinnar í málum kærenda var lagt til grundvallar að gera þyrfti þá kröfu að ættingi umsækjanda um alþjóðlega vernd þyrfti að hafa fasta búsetu hér á landi og þá þyrfti að vera fyrirséð að svo yrði um einhvern tíma svo að um sérstök tengsl við landið gæti verið að ræða í skilningi ákvæðisins. Ljóst er að ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda voru teknar áður en bróður kærenda var veitt viðbótarvernd hér á landi. Í framangreindu ljósi telur kærunefnd sig ekki hafa forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærendur eigi bróður með fasta búsetu hér á landi enda liggja ekki fyrir gögn í málinu sem benda til annars. Þá er ekkert sem bendir til annars en að tengsl kærenda við fjölskyldu sína séu sterk. Kærunefnd telur því að kærendur hafi tengsl við landið í gegnum ættingja sem hefur leyfi til dvalar hér á landi.

Líkt og að framan greinir kemur fram í athugasemdum sem fylgdu 36. gr. frumvarps til laga um útlendinga að sérstök tengsl geti átt við þau tilfelli þegar umsækjandi um alþjóðlega vernd hér á landi á ættingja hér á landi en ekki í viðtökuríki og í þeim tilfellum þar sem tengsl eru ríkari við Ísland en við viðtökuríki, svo sem vegna fyrri dvalar. Fyrir liggur að kærendum hefur verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og hafa þau dvalið þar í tæplega þrjú ár. Þá benda gögn málsins til þess að móður kærenda og tveimur uppkomnum systrum þeirra hafi jafnframt verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og hafa þau dvalið saman þar í landi undanfarin ár. Er því ljóst að A og B, ásamt móður sinni og tveimur systkinum, hafa dvalið í Grikklandi lengur en á Íslandi auk þess sem þau hafa heimild til dvalar þar en ekki hér á landi. Er það mat kærunefndar að gögn málsins verði ekki túlkuð á annan veg en svo að tengsl þeirra við Grikkland séu ríkari en tengsl þeirra við Ísland. Af öllu framangreindu röktu er það niðurstaða kærunefndar að ekki séu fyrir hendi slík sérstök tengsl við Ísland að nærtækast sé að kærendur fái hér vernd í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 23. nóvember 2018.

Frávísun

Kærendur komu hingað til lands þann 22. nóvember 2018 og sóttu um alþjóðlega vernd þann 23. nóvember 2018. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Anna Tryggvadóttir                                                            Árni Helgason


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta