Nr. 198/2022 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Hinn 23. júní 2022 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 198/2022
í stjórnsýslumáli nr. KNU22030054
Kæra […]
og barns hennar
á ákvörðunum
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 29. mars 2022 kærði […], fd. […], ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 14. mars 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kæranda og barns hennar, […], fd. […], ríkisborgara Sómalíu (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.
Þess er krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir kæranda og barns hennar til efnismeðferðar hér á landi, aðallega á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 1. mgr. 42. gr. sömu laga, en til vara á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum. Til þrautavara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi til meðferðar á ný á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 4. september 2021. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum 10. september 2021, kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Hinn 20. september 2021 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 19. janúar 2022, kom fram að kæranda og barni hennar hafi verið veitt alþjóðleg vernd 11. september 2020 og væru handhafar viðbótarverndar í Grikklandi. Þá kom fram að dvalarleyfi þeirra hafi verið með gildistíma til 10. september 2021. Með umsókn framvísaði kærandi m.a. sómölsku vegabréfi með gildistíma til 21. ágúst 2026 og grísku flóttamannavegabréfi f.h. A með gildistíma til 14. janúar 2024. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. 6. október 2021, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 14. mars 2022 að taka umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kæranda 15. mars 2022 og kærði hún ákvarðanirnar 29. mars 2022 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 13. apríl 2022 ásamt fylgigögnum.
III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda og barni hennar hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda og barns hennar til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi og barn hennar hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þær fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir kæranda og barns hennar til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þær fluttar til Grikklands.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins A kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli móður hennar, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum hennar væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja móður sinni til Grikklands.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og endurrita viðtala hennar hjá stofnuninni hvað málsatvik varðar. Þar kemur m.a. fram að aðstæður kæranda og barns hennar hafi verið afar slæmar í Grikklandi og versnað til muna eftir að þeim hafi verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi. Grísk stjórnvöld hafi ekki útvegað þeim húsnæði eða veitt þeim fjárhagsaðstoð. Þá hafi kærandi þurft að treysta á matargjafir til að framfleyta sér og barni sínu. Auk þess hafi aðgangur að heilbrigðisþjónustu verið takmarkaður. Kærandi hafi ekki búið við öryggi, orðið fyrir ofbeldi og upplifað fordóma.
Kærandi gerir margvíslegar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun, þ. á m. við mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og barns hennar. Kærandi byggir m.a. á því að þær þjáist af líkamlegum og andlegum veikindum og þurfi á umfangsmikilli heilbrigðisþjónustu að halda, sem þær hafi ekki aðgengi að í Grikklandi. Þá sé í hinni kærðu ákvörðun ekki tekið mið af því að þær séu ekki með almannatrygginganúmer, sem skerði aðgengi þeirra að þjónustu. Auk þess gerir kærandi athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um þá félagsþjónustu, atvinnumöguleika og húsnæði sem þeim standi til boða þar í landi. Tilvísaðar heimildir í greinargerð kæranda beri með sér að þeir sem hafi hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi verði fyrir alvarlegri mismunun af hálfu grískra stjórnvalda og séu á margvíslegan hátt útilokaðir frá nauðsynlegum skráningum. Jafnvel þó flóttafólki sé ekki með öllu ómögulegt að verða sér úti um tiltekin réttindi, standi handhafar alþjóðlegrar verndar frammi fyrir ítrekuðum hindrunum varðandi aðgengi að skráningum. Hindranirnar feli í sér mismunun sem leiði til þess að staða flóttafólks sé verulega síðri en staða almennings í Grikklandi. Þá gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að henni standi raunhæf úrræði til boða í Grikklandi vegna kynþáttafordóma og mismununar. Kærandi og barn hennar hafi orðið fyrir ofbeldi og aðkasti í Grikklandi , m.a. þegar eggjum og steinum hafi verið kastað í þær og vatni hellt yfir þær. Jafnframt telur kærandi túlkun Útlendingastofnunar á barnaverndarlögum, barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og nálgun stofnunarinnar á hagsmunamati barnsins, vera ranga. Kærandi vísar til þess að endursending þeirra til Grikklands sé A augljóslega ekki fyrir bestu. Þá hafi skort umfjöllun um stöðu kvenna þar í landi.
Kærandi byggir á því að taka beri umsóknir þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi vísar til þess að íslensk stjórnvöld hafi ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar frá því í október 2010. Þá gerir kærandi athugasemd við að enga umfjöllun sé að finna um dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi og N.H. o.fl. gegn Frakklandi. Kærandi telur í ljósi frásagnar sinnar af aðstæðum sínum í Grikklandi og heimilda sem beri saman um óviðunandi aðstæður flóttafólks í Grikklandi, að endursending þeirra til Grikklands feli í sér verulega hættu á því að þær verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð og því skuli umsóknir þeirra teknar til efnismeðferðar
Kærandi krefst þess til vara að málin verði tekin til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga séu sett fram almenn viðmið sem taka skuli tillit til við mat á því hvort taka megi umsókn til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra ástæðna. Kærandi og barn hennar, sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu, muni sæta hindrunum við aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, barnavernd, húsnæði, atvinnuþátttöku og menntun á grundvelli kynþáttar og kyns auk þess sem þær megi vænta þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í Grikklandi. Kærandi leggur sérstaka áherslu á að hún sé einstæð móðir sem hafi orðið fyrir ítrekuðu og alvarlegu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Kærandi telur að hún uppfylli þau skilyrði sem sett séu fram í framangreindri reglugerð að öllu leyti. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU21120063, frá 24. febrúar 2022, sem hún telur að hafi fordæmisgildi í máli hennar. Þá vísar kærandi jafnframt til þess að staða flóttafólks í Grikklandi sé erfiðari en áður vegna áhrifa Covid-19 faraldursins.
Til þrautavara krefst kærandi þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir þeirra til meðferðar á ný á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að ákvarðanir Útlendingastofnunar séu haldnar svo alvarlegum ágöllum að ekki verði komist hjá því að fella þær úr gildi og fela stofnuninni að taka mál þeirra til nýrrar meðferðar. Kærandi telur að mat Útlendingastofnunar á raunverulegri stöðu þeirra sé byggt á ónægum og ófullnægjandi upplýsingum auk þess sem ekki hafi farið fram einstaklingsbundið mat á stöðu þeirra.
Þá gerir kærandi kröfu um að kærunefnd hlutist til um að mat verði framkvæmt á andlegu heilsufari hennar en slíkt kunni að hafa þýðingu þegar tekin sé ákvörðun um það hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn sé tekin til efnismeðferðar samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Sérstaklega í ljósi þess að sálfræðitímar sem kærandi hafi sótt hafi nýst illa þar sem kærandi hafi ekki fengið barnagæslu fyrir A á meðan á þeim hafi staðið. Vísar kærandi í því samhengi til dóms Héraðsdóms Reykjavíkur, í máli nr. E-6459/2019, máli sínu til stuðnings.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Aðstæður kæranda og barns hennar
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi kona á […] sem er stödd hér á landi ásamt dóttur sinni sem er […]. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hún sé kvænt og eigi fjögur börn. Eitt þeirra sé með henni í för en hún hafi þurft að skilja hin eftir hjá móður sinni í heimaríki. Kærandi hafi lagt á flótta frá heimaríki sínu, þá þunguð af A, m.a. sökum þess að maðurinn hennar hafi tilheyrt minnihlutahópi og hún hafi orðið fyrir aðkasti vegna þess. Þá hafi hún upplifað kynferðis- og líkamlegt ofbeldi í heimaríki en hún viti ekki hvar fjölskylda sín sé niðurkomin í dag. Kærandi hafi hlotið alþjóðlega vernd í viðtökuríki í september 2020 og dvalið þar til ársins 2021, þegar hún hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún hafi ekki atvinnuleyfi, almannatrygginga- eða skattnúmer í Grikklandi. Þá hafi hún ekki haft aðgengi að húsnæði, atvinnu eða fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi. Auk þess hafi A ekki haft aðgengi að leikskóla. Þá hafi þær mátt þola fordóma og ofbeldi af hálfu almennings í Grikklandi. Framlögð heilsufarsgögn bera með sér að kærandi glími við andþyngsli og bakverki. Þá hafi barnið A sögu um eyrnasýkingu og meltingarvandamál.
Réttarstaða barns kæranda
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.
Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna þ. á m. viðtal við kæranda hjá Útlendingastofnun og læknisfræðileg gögn og bera þau að mati kærunefndar með sér að A eigi í góðum tengslum við móður sína. Það er því mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Barnið A er í fylgd móður sinnar og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var kæranda og barni hennar veitt viðbótarvernd í Grikklandi 11. september 2020 og fengu þær dvalarleyfi þar í landi sem nú er runnið út. Þá hefur kærandi framvísað grísku flóttamannavegabréfi f.h. A með gildistíma til 14. janúar 2024. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður ráðið að alþjóðleg vernd kæranda og barns hennar haldi áfram að vera gild þótt dvalarleyfi þeirra renni út en sækja þurfi sérstaklega um endurnýjun á dvalarleyfum. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi og barn hennar njóta í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Aðstæður í Grikklandi
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- 2021 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 12. apríl 2022);
- Amnesty International Report 2021/22 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 29. mars 2022);
- Annual report 2020 (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2020);
- Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 30. maí 2022);
- Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 31. mars 2022);
- Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
- EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
- Excluded and segregated – The vanishing education of refugee children in Greece (Refugee Support Aegean, 13. apríl 2021);
- Freedom in the World 2021 – Greece (Freedom House, 26. febrúar 2021);
- Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
- Growing up in lockdown: Europe´s children in the age of Covid-19 – Eurochild report (Eurochild, nóvember 2020);
- Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
- Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
- Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
- Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
- State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
- Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
- Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
- Upplýsingar af vefsíðu Eurochild (http://eurochild.org);
- Upplýsingar af vefsíðu Unicef (http://unicef.org);
- Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 23. júní 2022);
- Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/), sótt 23. júní 2022;
- Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 23. júní 2022) og
- World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).
Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifi oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.
Samkvæmt skýrslum European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í maí 2022 og Passerell frá því í nóvember 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Þá eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.
Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.
Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir flóttafólk þurfa einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt skýrslu ECRE er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað. Samkvæmt skýrslum ECRE og Passerell hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggist sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.
Vegna upplýsinga um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þurfi að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjái um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.
Í skýrslu ECRE kemur fram að samkvæmt grískum lögum sé skólaskylda fyrir börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi á grunnskólaaldri. Í skýrslu Refugee Support Aegean (RSA) kemur fram að Covid-19 faraldurinn hafi haft neikvæð áhrif á menntun flóttabarna. Mörg börn hafi ekki náð að sækja skóla í meira en ár auk þess sem það hafi verið erfiðleikum bundið að skrá sig til náms. Jafnframt eigi stór hluti flóttabarna í erfiðleikum með fjarnám vegna tungumálaerfiðleika og skorts á nauðsynlegum búnaði. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Þá kemur fram að flóttabörn hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi. Þrátt fyrir að lögin kveði á um bann við líkamlegum refsingum og illri meðferð á börnum sé framfylgni laganna af hálfu stjórnvalda ekki talin fullnægjandi. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.
Í skýrslu ECRE kemur fram að handhöfum alþjóðlegrar verndar í Grikklandi sé veitt dvalarleyfi (ADET) til þriggja ára. Þá fá einstaklingar sem hafa hlotið viðbótarvernd, dvalarleyfi til eins árs sem sé hægt að framlengja að þeim tíma loknum til tveggja ára og sama gildir um þá sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. Þá kemur fram að umsókn um framlengingu dvalarleyfis skuli fara fram ekki seinna en 30 dögum áður en leyfið rennur út. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint kemur fram að það eitt og sér hafi ekki í för með sér að umsókninni verði synjað. Frá árinu 2017 hefur umsókn um endurnýjun farið fram í gegnum tölvubréf. Þeir einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru ólæsir hafi því mætt hindrunum við að fá endurnýjun á dvalarleyfum sínum. Þá kemur fram í skýrslunni að yfirleitt taki um einn og hálfan mánuð að fá dvalarleyfi endurnýjað þó dæmi séu um að endurnýjun hafi tekið um sex mánuði. Við endurnýjun fer fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun á hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefur til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun og er gilt í fjóra mánuði. Dæmi séu þó um að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Þá sé vinnumálastofnun Grikklands (e. Manpower Employment Organization) gjarnan treg til að taka á móti slíkum vottorðum þar sem vottorðin eru m.a. án myndar af einstaklingnum og ekki vatnsmerkt.
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.
Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.
Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.
Líkt og komið hefur fram er kærandi kona á […] sem sækir um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt dóttur sinni. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún glími við öndunarerfiðleika og eymsli í baki. Þá kvað hún andlega heilsu sína vera slæma, hún eigi erfitt með svefn og sé kvíðin. Í heilsufarsgögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. október 2021, kemur fram að kærandi sé hraustleg. Hún sé með […] við hlustun lungna en röntgenmynd hafi litið eðlilega út. Samkvæmt samskiptaseðlum frá Heilsugæslunni Firði, dags. 21. október 2021 til 8. febrúar 2022, leitaði kærandi þangað m.a. vegna mæði, litabreytinga í andliti og verks í hné og baki. Kærandi hafi notið þar aðhlynningar og m.a. fengið útgefna tilvísun til sjúkraþjálfara. Þá var kærandi greind með […] og ávísað […]. Samkvæmt gögnum málsins fór kærandi í skoðun hjá kvensjúkdómalækni, dags. 28. október 2021, þar sem m.a. hafi verið staðfest að kærandi sé þolandi kynfæralimlestinga. Í samskiptaseðli frá sálfræðiþjónustu Göngudeildar sóttvarna, dags 17. janúar 2022, kemur fram að kærandi hafi upplifað mikið ofbeldi, þ. á m. kynferðisofbeldi. Hún eigi erfitt með að einbeita sér, sé ólæs og gleymin.
Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. og 16. október 2021, kemur fram að A sé almennt hraustleg stúlka. Hún hafi sögu um meltingarvandamál og eyrnasýkingar og hafi fengið meðferð vegna þess. Samkvæmt gögnum málsins fór A á bráðamóttöku Landsspítalans 26. desember 2021, vegna bráðra uppkasta. Samkvæmt samskiptaseðlum frá 15. september til 1. apríl 2022 hefur A verið í reglulegum skoðunum hjá Heilsugæslunni Firði og fengið ráðgjöf og aðhlynningu vegna hita og uppkasta.
Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 6. október 2021, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 29. mars 2022, um framlagningu frekari gagna í málinu. Viðbótargögn bárust samhliða greinargerð 13. apríl 2022. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda og A sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar þeirra og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar þeirra geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Að teknu tilliti til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 setur fram í dæmaskyni og heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda telur kærunefnd jafnframt að ekki sé þörf á að afla sálfræðimats á kæranda.
Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda og A sé með þeim hætti að þær teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda og A ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi og A hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda og A tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda og A geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið félagslega framfærslu eða atvinnu í Grikklandi. Kærandi hafi greint frá því að enga vinnu sé að hafa í Grikklandi en hún hafi ekki leitað á náðir félagsmálayfirvalda þar í landi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, sbr. framangreint. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hún geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hún á að lögum rétt á og þarf á að halda í Grikklandi. Líkt og komið hefur fram eiga handhafar alþjóðlegar verndar í Grikklandi sem búa undir fátæktarmörkum m.a. rétt á fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna.
Í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051 er fjallað um skattnúmer í Grikklandi. Skattnúmer er nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Í því máli sem hér er til meðferðar er kærandi að mestu heilbrigð og vinnufær. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hún þarf á að halda í viðtökuríki, þ. á m. afla sér skattnúmers og almannatrygginganúmers, hafi hún ekki þegar fengið þau útgefin, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar. Þá kemur fram í svari frá grískum stjórnvöldum við upplýsingabeiðni Útlendingastofnunar, dags. 19. janúar 2022, að í samræmi við grísk lög eigi verndarhafar rétt á almannatrygginga- og skattnúmeri.
Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hún og A hafi upplifað fordóma og mátt þola ofbeldi í Grikklandi. Þá telji kærandi sig vera í aukinni hættu á að verða fyrir ofbeldi stöðu sinnar vegna sem flóttakona. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi, þ. á m. hafi konur verið þolendur kynbundins ofbeldis í flóttamannabúðunum þar í landi. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði hún eða A fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt eða barns hennar geti hún leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Þá telur kærunefnd að barnaverndarkerfi sé fyrir hendi í Grikklandi og að kærandi og barn hennar geti notið stuðnings þess. Þá má ráða af skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins að konum sem séu þolendur kynbundins ofbeldis, standi til boða úrræði, þ. á m. aðgangur að athvörfum á vegum grískra stjórnvalda. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða hún vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi.
Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsóknir kæranda og A hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi skerst á síðustu mánuðum þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá er bólusetning langt á veg komin í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu.
Þá lítur kærunefnd einnig til þess að samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.
Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Grikklands geti ekki eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsóknir kæranda og A verði teknar til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Líkt og að framan er rakið eru kærandi og barn hennar handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi og gagna málsins að flutningur kæranda og barns hennar til Grikklands muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist. Að því er varðar aðgengi A að menntun tekur kærunefnd fram að þótt skýrslur bendi til þess að kærandi þurfi að yfirstíga ákveðnar stjórnsýsluhindranir til að skrá barn sitt í skóla er að mati kærunefndar ljóst að A eigi lagalegan rétt á menntun í Grikklandi fram til 15 ára aldurs og í kjölfarið
rétt til endurgjaldslausrar grískukennslu. Jafnframt geti börn fengið pláss á sérstökum ungbarnaleikskólum frá sex mánaða aldri og á leikskóla frá tveggja ára aldri. Til þess að sækja um pláss á leikskóla þurfi að sýna fram á staðfestingu á heimilisfangi og staðfestingu á því að barnið hafi verið bólusett.
Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kæranda og barns hennar og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Grikklands samrýmist hagsmunum barnsins þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.
Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja beiðni um að taka til efnismeðferðar umsókn barns kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barns kæranda að umsókn þess verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barns hennar og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður þeirra er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 6. október 2021 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að kærandi eða barn hennar hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að hún sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína 4. september 2021. Samkvæmt 32. gr. c reglugerðar um útlendinga, eins og henni var breytt með reglugerð nr. 638/2019, er Útlendingastofnun heimilt að taka til efnismeðferðar umsókn barns sem hefur fengið vernd í öðru ríki, séu meira en 10 mánuðir liðnir frá því umsókn barst íslenskum stjórnvöldum.
Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.
Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.
Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.
Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.
Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi og barn hennar njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að þær verði ekki sendar áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Athugasemdir kæranda við ákvarðanir Útlendingastofnunar og reglur stjórnsýsluréttar
Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og mat stofnunarinnar á stöðu kæranda og A.
Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu frá 2. júlí 2020 í málum nr. 2880/13, 75547/13 og 13114/15, N.H. o.fl. gegn Frakklandi tekur kærunefnd fram að málið varðaði fimm einstaklinga sem sóttu um alþjóðlega vernd í Frakklandi árið 2013. Skráning umsókna þriggja þeirra tafðist um meira en þrjá mánuði og á þeim tíma þurftu þeir að mestu að búa á götunni án aðstoðar, án aðgangs að hreinlætisaðstöðu, án möguleika á að sjá sér farborða og í stöðugum ótta við að verða fyrir ofbeldi. Dómurinn taldi að þær aðstæður sem þessir þrír einstaklingar þurftu að búa við hefðu verið þess eðlis og náð því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Atvik þessi áttu sér stað fyrir sjö árum í Frakklandi. Í því máli sem hér er til meðferðar eru kærandi og barn hennar handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Af þeim sökum telur kærunefnd að dómurinn hafi ekki þýðingu fyrir niðurstöðu þess máls sem hér er til umfjöllunar. Þá hefur kærunefnd ítrekað í úrskurðarframkvæmd sinni fjallað um þann mun sem er á stöðu einstaklinga með virka alþjóðlega vernd í Grikklandi og þeirra sem falla undir gildissvið Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærunefnd áréttar að ekki er um sambærileg tilvik að ræða og því eigi tilvísun kæranda til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu frá 21. janúar 2011 nr. 30696/09 í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi ekki við í því máli sem hér er til meðferðar.
Vegna tilvísunar kæranda til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU21120063 frá 24. febrúar 2022, tekur kærunefnd fram að í því máli lágu fyrir gögn m.a. frá Barnavernd Reykjavíkur, Kvennaathvarfinu og Bjarkarhlíð um meint andlegt, kynferðislegt og fjárhagslegt ofbeldi af hálfu maka kæranda. Var það niðurstaða kærunefndar með vísan til gagna málsins að kærandi og barn hennar væru í þörf fyrir áframhaldandi félagslegan stuðning barnaverndarþjónustu. Að mati kærunefndar er ekki hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu kæranda í þeim úrskurði. Þrátt fyrir að um sama viðtökuríki sé að ræða eru einstaklingsbundnar aðstæður þeirra ólíkar að öðru leyti.
Þá telur kærandi það vera forsendu fyrir því að taka ákvörðun í máli kæranda að fyrir liggi sálfræðimat og mat á hæfni hennar til að sinna umönnunar og uppeldisskyldum sínum sem einstætt foreldri. Telur kærandi Útlendingastofnun ekki hafa fullnægt rannsóknarskyldu sinni samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga hvað þetta atriði varðar. Sérstaklega í ljósi þess að kærandi hafi tvívegis hitt sálfræðing en tíminn hafi nýst illa þar sem hún hafi þurft að vera með A með sér. Samkvæmt gögnum málsins fór kærandi í viðtal hjá Útlendingastofnun, dagana 16. september og 6. október 2021, ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi þar frá heilsufari sínu. Af endurriti viðtalsins má ráða að fulltrúi Útlendingastofnunar hafi spurt kæranda nánar út í heilsufar hennar, sérstaklega andlega heilsu hennar. Þar hafi hún m.a. greint frá andlegri vanlíðan og líkamlegu- og kynferðislegu ofbeldi. Kærandi lagði fram ýmis gögn er varðar heilsufar hennar og A við meðferð málsins hjá stofnuninni. Í samskiptaseðli sálfræðings hjá Göngudeild sóttvarna dags. 17. janúar 2022, kemur fram að þrátt fyrir að tíminn hafi ekki nýst nægjanlega vel, hafi þær náð ágætu samtali. Auk þess kom fram að kæranda liði illa andlega en að hún hugsi vel um A. Með tilliti til heildarmats í máli kæranda er ekki að sjá að ítarlegri rannsókn Útlendingastofnunar á heilsufari kæranda og framlagning frekari gagna hefði haft áhrif á niðurstöðu í máli hennar. Kærunefnd áréttar jafnframt að við meðferð málsins hjá bæði nefndinni og Útlendingastofnun hafi verið fallist á og lagt til grundvallar að kærandi glími við þá heilsufarskvilla sem hún hefur greint frá við meðferð málsins. Varðandi tilvísun kæranda til til dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-6459/2019 frá 20. desember 2019, hefur kærunefnd endurtekið komist að þeirri niðurstöðu að sá dómur hafi hvorki þýðingu fyrir aðila dómsmálsins né almennt fordæmis- eða leiðbeiningargildi. Ljóst er að gerð var dómssátt á grundvelli 4. mgr. 108. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 um þau álitaefni sem dómurinn fjallaði um með vísan til þeirra sérstöku aðstæðna sem uppi voru á Ítalíu vegna Covid-19 faraldursins. Með dómsáttinni féllu öll réttaráhrif dómsins niður. Kærunefnd hefur jafnframt talið að dómur héraðsdóms í þessu máli hafi vikið í veigamiklum atriðum frá viðteknum viðmiðum um umfang og eðli rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, en dóminum hafði verið áfrýjað Landsréttar þegar sáttin var gerð. Kærunefnd telur því að dómurinn hafi ekki almennt leiðbeiningargildi um eðli og umfang rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar eða þá aðferðarfræði sem leggja beri til grundvallar. Þá telur kærunefnd að málsatvik þessa máls séu í veigamiklum atriðum frábrugðin þeim aðstæðum sem voru uppi í dómsmálinu sem kærandi vísar til. Er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda er þetta varðar og með hliðsjón af framangreindu er þrautavarakröfu kæranda hafnað.
Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við þær.
Frávísun
Samkvæmt gögnum máls kom kærandi hingað til lands 4. september 2021 ásamt barni sínu og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þær verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Bjarnveig Eiríksdóttir Sandra Hlíf Ocares