Hoppa yfir valmynd

Nr. 33/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 29. janúar 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 33/2020

í stjórnsýslumálum nr. KNU19100026 og KNU19100027

Kæra […],

[…] og barns þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 8. október 2019 kærðu einstaklingar er kveðast heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir K) og […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 18. september 2019 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda og barns þeirra, […], fd. […], ríkisborgara […] (hér eftir A) um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Kærendur krefjast þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærendur og barn þeirra lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 26. júlí 2019 ásamt […]. Við leit að fingraförum kærenda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför þeirra höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þann 31. júlí 2019 var upplýsingabeiðnum beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 30. ágúst og 5. september 2019, kom fram að K, M og A hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns þann 8. desember 2017 og væru með gilt dvalarleyfi í Grikklandi til 21. desember 2020. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þá 6. og 8. ágúst 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þá kom A til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 22. ágúst s.á., ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 18. september 2019 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 24. september 2019 og kærðu þau ákvarðanirnar þann 8. október 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda, ásamt fylgigögnum, bárust kærunefnd þann 17. október 2019. Viðbótargögn bárust þann 15. nóvember 2019, 9. og 17. janúar 2020.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kom fram að kærendum hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Grikklands.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins A kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum foreldra hennar, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum hennar væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í sameiginlegri greinargerð fjölskyldunnar kemur m.a. fram að þau hafi búið við bágbornar aðstæður í Grikklandi. Þau hafi ekki fengið stuðning frá grískum stjórnvöldum og þurft að hafast við í tjaldi sem enga vernd veitti. Barn þeirra, A, hafi jafnframt ekki getað sótt skóla. Hreinlæti hafi verið af afar skornum skammti í flóttamannabúðunum og drykkjarvatn hafi verið skammtað. Þá hafi aðgangur þeirra að heilbrigðisþjónustu verið afar takmarkaður og erfiður en þau hafi þurft að greiða fyrir allt. M hafi þurft að nálgast […]. Þá hafi K […] í flóttamannabúðunum vegna allra þeirra erfiðleika sem þau bjuggu við þar. Ómögulegt hafi verið að fá atvinnu í Grikklandi. Mikið hafi verið um ofbeldi, eiturlyf og jafnvel sjálfsvíg í flóttamannabúðunum. Þá hafi almenningur í Grikklandi sýnt flóttafólki mikla fordóma og lögreglan verið með yfirgang og beitt flóttafólk ofbeldi. Þá kemur fram að barn kærenda, A, hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá því að hún vilji ekki fara aftur til Grikklands. Þar hafi hún verið hrædd, sofið í tjaldi, oft orðið veik, fötunum hennar stolið og hún hafi ekki getað farið í skóla nema til þess að teikna.

Í greinargerð kærenda er vísað til umfjöllunar í greinargerð kærenda til Útlendingastofnunar um aðstæður flóttamanna í Grikklandi. Þar kemur m.a. fram að hatursglæpir gagnvart einstaklingum með alþjóðlega vernd í Grikklandi séu algengir og að stjórnvöld hafi ekki brugðist nægilega við þeim. Auk þess séu lögreglumenn oft gerendur í slíkum málum eða hafa orðið uppvísir að því að veita þeim einstaklingum ekki næga vernd. Þá vísa kærendur einkum til þess að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi lögum samkvæmt rétt á heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, atvinnu og húsnæði en það skorti á að lögunum sé framfylgt og fólk fái raunverulega ekki notið þeirra réttinda.

Þá telja kærendur að fjölskyldan í heild sinni séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga m.a. í ljósi heilsufars þeirra. Hafi K og M bæði verið að glíma við líkamlega kvilla og M sé þar að auki að glíma við andleg veikindi. Samkvæmt gögnum máls sé M illa staddur andlega og eigi það m.a. til að frjósa og missa raunveruleikaskyn. Þá sé það mat lækna á Göngudeild geðsviðs að M hafi sýnt einkenni áfallastreituröskunar.

Þá vísa kærendur til þess að börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau séu í fylgd umönnunaraðila eða ekki. Í greinargerð kærenda kemur jafnframt fram að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að hafa ávallt það sem barni er fyrir bestu í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess og sé það A fyrir bestu að íslensk stjórnvöld taki mál þeirra til efnismeðferðar hér á landi.

Í greinargerð kærenda eru gerðar nokkrar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, m.a við þær fullyrðingar um að kærendum standi til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta í Grikklandi, að þau njóti réttar til að sækja þjónustu úr félagslegu kerfi landsins og fái þar nauðsynlega aðstoð. Jafnframt gera kærendur athugasemd við staðhæfingu Útlendingastofnunar um að lögregluyfirvöld í Grikklandi skorti hvorki getu né vilja til að vernda flóttafólk. Kærendur vísi í því sambandi til umfjöllunar í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar um aðstæður flóttafólks í Grikklandi. Telji kærendur að í hinum kærðu ákvörðunum sé litið til lagalegs réttar flóttafólks framyfir raunverulegt aðgengi að lögvörðum réttindum. Kveði kærendur að stofnunin vísi til skráningar hatursglæpa og máttlausra viðbragða yfirvalda sem svar við þeim fordómum sem flóttafólk upplifi frá lögreglu og almenningi. Auk þess líti stofnunin framhjá þeim raunveruleika sem langflest flóttafólk búi við í Grikklandi og sem heimildir kveði á um. Þá eru gerðar athugasemdir við umfjöllun stofnunarinnar um möguleika A á að ganga í skóla í Grikklandi. Þar vísi Útlendingastofnun með öðrum orðum aðeins til lagabreytinga og hins formlega aðgangs flóttabarna að námi en ekki raunverulegrar menntunar þeirra. Loks telji kærendur að við mat á mögulegri endursendingu þeirra til Grikklands beri að tryggja vandaðan og einstaklingsbundinn rökstuðning.

Krafa kærenda er í fyrsta lagi byggð á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem þau njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laganna, sbr. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sbr. lög nr. 62/1994. Íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglunni um að vísa fólki ekki brott þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement), sbr. framangreind lagaákvæði. Muni kærendur standa frammi fyrir ómannúðlegum og vanvirðandi aðstæðum í Grikklandi. Telji kærendur að túlkun íslenskra stjórnvalda á fordæmum Mannréttindadómstóls Evrópu sé röng þegar komi að fyrrgreindri grundvallarreglu og vísi í því sambandi til tiltekinna dóma Mannréttindadómstóls Evrópu. Þá telji kærendur að við endursendingu þeirra til Grikklands muni lífsgæði þeirra ekki aðeins versna verulega heldur muni lífskjör þeirra ekki ná því lágmarki sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kveði á um. Vísi kærendur til þess að þau hafi fullnýtt rétt sinn til búsetu í flóttamannabúðunum og til framfærslu. Þeim muni því hvorki standa til boða húsnæði né framfærsla. Þá hafi þeim verið ómögulegt að finna sér löglega atvinnu í Grikklandi og þau hafi lent í miklum erfiðleikum með að verða sér úti um nauðsynlegar skráningar. Kærendur hafi fengið lágmarksheilbrigðisþjónustu, að mestu innan flóttamannabúðanna, en sú þjónusta muni ekki standa þeim til boða verði þeim snúið aftur til Grikklands. Þau hafi upplifað fordóma og ofbeldi í Grikklandi. Við endursendingu til Grikklands muni þau búa við heimilisleysi. Þörf þeirra fyrir mannúðarvernd hér á landi sé sérstaklega brýn og fyrir hendi séu sannfærandi mannúðarástæður. Því beri að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kröfu sína um efnismeðferð byggja kærendur í öðru lagi á því að uppi séu sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísa í því sambandi til lagaáskilnaðarreglu 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem setji stjórnvöldum afar þröngar skorður við setningu stjórnvaldsfyrirmæla vegna meðferða umsókna um alþjóðlega vernd. Kærendur telji að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, brjóti gegn lögmætisreglunni. Þar sé að finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem ekki hafi stoð í settum lögum og önnur sem beinlínis gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Í ljósi markmiðs laga um útlendinga hafna kærendur því að við mat á sérstökum ástæðum hafi sjónarmið um skilvirkni umsóknarferilsins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkurt vægi. Þá vísa kærendur til þess að hvergi í lögskýringargögnum sé að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur hafi enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Kærendur telja að K, M og fjölskyldan í heild sinni séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Vísa kærendur til þess að fjölskyldan hafi átt mjög erfitt uppdráttar í Grikklandi, m.a. vegna þeirrar kerfislægu og alvarlegu mismununar sem þar þrífst gagnvart flóttafólki. Hin alvarlega mismunun birtist m.a. í fordómum grísks samfélags, samansafni þeirra fjölmörgu reglna sem geri flóttafólki nær ómögulegt að nálgast lífsnauðsynlega þjónustu í Grikklandi, skorti á aðstoð og fræðslu grískra stjórnvalda sem og þeirri útilokun sem þau verða fyrir frá menntun og atvinnuþátttöku, m.a. vegna tungumálaerfiðleika. Að öllu þessu virtu telja kærendur að ekki sé hægt að jafna stöðu þeirra við stöðu almennings í Grikklandi. Þá vísi kærendur til þess að í Grikklandi hafi þau ekki það net fjölskyldu og vina sem grískur almenningur hefur til að lifa af við það ástand sem þar ríki nú um mundir. Kærendur vísa einnig til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 393/2018 frá 27. september 2018 þar sem það hafi verið niðurstaða kærunefndar að taka til efnismeðferðar umsóknir fjölskyldu sem fengið höfðu alþjóðlega vernd í Grikklandi vegna sérstakra ástæðna.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barns kærenda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna, þ. á m. viðtöl við K, M og A hjá Útlendingastofnun, og er það mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Barnið A er í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var K, M og A veitt réttarstaða flóttamanns í Grikklandi þann 8. desember 2017 og hafa þau gilt dvalarleyfi þar í landi til 21. desember 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærendur og barn þeirra njóta í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Samkvæmt gögnum málanna eru K og M hjón með eitt barn sem er 8 ára gamalt. Þau komu hingað til lands ásamt […]. Í gögnum um heilsufar K kemur m.a. fram að hún hafi leitað á bráðamóttöku Landspítalans þann 2. ágúst 2019 eftir að hafa að eigin sögn verið með hita og ýmis önnur einkenni í þrjá til fjóra mánuði. Á bráðamóttöku hafi K verið greind með […] og […] og fékk hún uppáskrifuð sýklalyf. Í heilsufarsgögnum kemur þá fram að K sé líklegast með […]. Af heilsufarsgögnum K má sjá að hún hefur ítrekað sótt sér heilbrigðisþjónustu hér á landi, þ.m.t. á Göngudeild sóttvarna og Landspítala, vegna ýmissa líkamlegra kvilla, m.a. vegna slappleika, verkja, vegna þess að hún sjái illa og sé með verki í hnjám. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvað K andlega heilsu sína vera góða.

Af gögnum um heilsufar M má sjá að kærandi hafi ítrekað leitað sér heilbrigðisþjónustu hér á landi, þ.á m. hjá læknum á Göngudeild sóttvarna og Landspítala auk sálfræðinga hjá Göngudeild sóttvarna og hjá Reykjavíkurborg. Í heilsufarsgögnum M kemur m.a. fram að hann sé með […], hefur átt við andleg veikindi að stríða og erfiðleika með svefn. Honum hafi verið ávísað lyfjum vegna þessara heilsufarsvandamála sinna. Þá kemur fram að M hafi leitað á […]bráðamóttöku Landspítalans þann 16. ágúst 2019 og 13. janúar 2020 vegna kviðverkja. Ekki hafi fundist orsök kviðverkjanna en var M greindur með […]. M hafi þá m.a. leitað sér aðstoðar á […] þann 17. september 2019, en í gögnum þaðan komi m.a. fram að kærandi lýsi einkennum áfallastreituröskunar. Þá hafi hann verið í viðtölum hjá sálfræðingum hjá Reykjavíkurborg og á Göngudeild sóttvarna.

Meðal gagna málsins er bréf frá félagsráðgjafa teymis Reykjavíkurborgar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, þar sem m.a. kemur fram að frá því að fjölskyldan kom í þjónustu Reykjavíkurborgar hafi hún glímt við mikla vanlíðan sem hafi dregið úr lífsgæðum og getu til að takast á við daglegar athafnir. M sé hjá sálfræðingi í teyminu þar sem hann leggi áherslu á að bæta eigin líðan og fá aðstoð við áfallastreitu. Þá hafi K mætt í einstaklingsviðtöl hjá málstjóra þar sem helstu markmið séu að styrkja hana og efla virkni með valdeflingu. Þá er einnig vottorð frá sálfræðingi teymis Reykjavíkurborgar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd meðal gagna málsins, dags. 13. nóvember 2019, þar sem fram kemur að ekki hafi verið unnt að gera formlega greiningu á því hvort M þjáist af áfallastreituröskun en hann lýsi þó miklum einkennum áfallastreituröskunar. Hann sé ekki við góða andlega heilsu og mikilvægt sé að hann fái viðeigandi geðheilbrigðisþjónustu og mikinn sálrænan og félagslegan stuðning. Af viðtölum við K, M og A hjá Útlendingastofnun má m.a. ráða að A fái stundum höfuðverk og að henni hafi liðið illa í Grikklandi. Að öðru leyti benda gögn málsins ekki til annars en að hún sé almennt við góða líkamlega og andlega heilsu, en engin heilsufarsgögn hafa verið lögð fram í málinu fyrir utan vottorð frá Göngudeild sóttvarna um að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.Í málinu liggja fyrir talsvert af gögnum um heilsufar M og K og gögn frá málastjóra og sálfræðingi teymis Reykjavíkurborgar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, auk frásögn þeirra af aðstæðum þeirra M, K og A og heilsufari þeirra. Þá tekur kærunefnd fram að kærendum hefur við meðferð málsins verið leiðbeint um framlagningu frekari gagna í málinu, sbr. t.d. tölvupóst kærunefndar dags. 3. janúar 2020. Það er mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem liggja fyrir, að málið sé nægjanlega upplýst er varðar heilsufar þeirra. Aðstæður í GrikklandiKærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2019 – Greece (Freedom House, 2019);• Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 2020).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veita einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í skýrslu Asylum Information Database, kemur fram að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur grísk börn fram að 15 ára aldri. Þrátt fyrir það þá kemur fram að einungis rúmlega helmingur barna á flótta sækir skóla í Grikklandi. Er ástæðan fyrir þessu m.a. rakin til tungumálahindrana og þess að námið hentar ekki endilega börnum á flótta í Grikklandi.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi eru um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kærenda að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Þá er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður sem mæli gegn endursendingu kærenda til Grikklands. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærendur og barn þeirra njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kærenda og barns þeirra, en meðal annars hefur komið fram að M glími við andlega erfiðleika auk þess sem bæði M og K hafa leitað sér heilbrigðisþjónustu vegna ýmissa líkamlegra kvilla. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærendur og barn þeirra eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málanna að kærendur hafi aðgang að viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna, þ.m.t. geðheilbrigðisþjónustu og nauðsynlegum lyfjum. Kærunefnd telur gögn málanna ekki benda til þess að kærendur glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, en í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í málum kærenda og barns þeirra er varðar heilsufar þeirra sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi áréttar kærunefnd að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar að þau geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið af alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu.

Kærendur hafa m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málum þeirra þar sem þau hafi ekki fengið félagslega framfærslu eða atvinnu í Grikklandi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þá má einnig ráða að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi að lögum rétt til menntunar fram til 15 ára aldurs og í kjölfarið eigi þau rétt til endurgjaldslausrar grískukennslu. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a. reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kærenda, eða heilsufar, séu ekki slíkar að þau geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu sem þau og barn þeirra eiga lagalegan rétt á í Grikklandi og þau þurfa á að halda. Af gögnum málsins má jafnframt ráða að barn kærenda njóti umönnunar foreldra sinna sem geti sinnt hagsmunum barnsins og veitt því þá vernd og stuðning sem það þarfnast.

Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærendur geta leitað ásjár grískra yfirvalda verði þau fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærendur um öryggi sitt og barn síns geta þau leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Eins og að framan greinir hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar sambærilegan aðgang að lögum að félagsþjónustu á vegum gríska ríkisins og grískir ríkisborgarar. Hindranir sem einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar þar kunna að þurfa að yfirstíga til að fá aðgang að umræddri þjónustu fela að mati nefndarinnar ekki í sér alvarlega mismunun. Að mati kærunefndar bera gögn málanna því ekki með sér að kærendur og barn þeirra muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þau geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Líkt og að framan er rakið eru kærendur og barn þeirra handhafar alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og hafa þau gilt dvalarleyfi þar í landi. Þá hafa þau dvalið í Grikklandi í um tvö ár og komu hingað í sameiningu. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi og gagna málanna að flutningur kærenda og barns þeirra muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist. Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Grikklands samrýmist hagsmunum barnsins þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn barns kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barns kærenda að umsókn þess verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

Vegna tilvísunar kærenda til úrskurðar í máli nr. 393/2018 tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kærenda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum úrskurði enda séu einstaklingsbundnar aðstæður þeirra ólíkar, en t.a.m. var þar um að ræða barnmarga fjölskyldu, einn kærenda var barnshafandi og gögn málsins bentu til þess að foreldrarnir ættu við andlega erfiðleika að stríða. Það var mat kærunefndar að aðstæður fjölskyldunnar væru slíkar að þeim yrði það vandkvæðum bundið að sækja rétt hjá grískum stjórnvöldum sem þau ættu lagalegt tilkall til.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kærenda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtölum hjá Útlendingastofnun dagana 6. og 8. ágúst 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að þau hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 26. júlí 2019. Samkvæmt 32. gr. c reglugerðar um útlendinga, eins og henni var breytt með reglugerð nr. 638/2019, er Útlendingastofnun heimilt að taka til efnismeðferðar umsókn barns sem hefur fengið vernd í öðru ríki, séu meira en 10 mánuðir liðnir frá því umsókn barst íslenskum stjórnvöldum. Ljóst er af gögnum málsins að ákvæðið eigi ekki við um kærendur enda séu ekki liðnir 10 mánuðir frá því umsókn þeirra barst íslenskum stjórnvöldum.

Athugasemdir kærenda við ákvarðanir Útlendingastofnunar

Svo sem áður hefur komið fram gera kærendur í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. við mat stofnunarinnar á þeirri þjónustu sem standi kærendum til boða í viðtökuríki. Þá gera kærendur einnig athugasemd við lagastoð og beitingu reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsóknir kærenda og komist að niðurstöðu um að synja þeim um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málunum byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að það sé mat nefndarinnar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við þær. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málanna og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærendur ásamt barni sínu sóttu um alþjóðlega vernd þann 26. júlí 2019. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kærendum og barni þeirra því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda bendir allt til þess að þau hafi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin. 

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Áslaug Magnúsdóttir

 

Árni Helgason                                                                                             Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta