Hoppa yfir valmynd

Nr. 518/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 7. nóvember 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 518/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19080029 og KNU19080030

Kæra [...]og barna hans

á ákvörðunum Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 19. ágúst 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 2. ágúst 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir hans og barna hans, [...], fd. [...] (hér eftir A), og [...], fd. [...] (hér eftir B), sem einnig eru ríkisborgarar [...], um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu. Þann 19. ágúst sl. kærði jafnframt sonur M, er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir C) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. ágúst 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd og vísa honum frá landinu. Í ljósi fjölskyldutengsla aðila og gagna málsins, þ.m.t. sameiginlegrar greinargerðar þeirra, eru málin afgreidd í einum úrskurði.

Þess er krafist að hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 24. febrúar 2019. Við leit að fingraförum þeirra í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að þau höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Frakklandi. Þann 7. mars 2019 var beiðni um viðtöku kærenda og umsókna þeirra um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Frakklandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá frönskum yfirvöldum, dags. 19. mars 2019, samþykktu þau viðtöku kærenda á grundvelli 15. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 2. ágúst 2019 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 6. ágúst 2019 og kærðu þau ákvarðanirnar þann 19. ágúst 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda barst kærunefnd 27. ágúst 2019 ásamt fylgigögnum.

[...].

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kom fram að frönsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknirnar yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Frakklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefðu kærendur ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsóknir þeirra til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Frakklands.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum A og B kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli föður þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, útlendingalaga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum þeirra væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja föður sínum til Frakklands.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í sameiginlegri greinargerð M, A, B og C kemur fram fjölskyldan hafi flúið heimaríki vegna ótta um líf sitt og öryggi þar vegna fjölskyldudeilna. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi M og C mótmælt því að fjölskyldan skuli send aftur til Frakklands en M óttist að fjölskyldan verði ekki sameinuð í Frakklandi. Hvað aðstæður sínar í Frakklandi varðar hafi M og C lýst því að þeir hafi verið í haldi lögreglu á flugvelli þar í landi. Hafi M verið í yfirheyrslum vegna komu sinnar til landsins og hafi hann ekki notið aðstoðar lögfræðings né túlks. Því hafi dóttir hans verið látin túlka fyrir hann, en hún hafi ekki haft neitt val um það. Þá hafi kærendur lýst þeim jákvæðu breytingum sem hafi orðið á þeim hér á landi og að hér liði þeim betur en áður.

Í greinargerð kærenda eru gerðar athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar, m.a. við mat stofnunarinnar á trúverðugleika M. Í ákvörðunum stofnunarinnar sé vísað til skýrslu AIDA frá 2018. Að mati kærenda sneiði Útlendingastofnun algjörlega framhjá umfjöllun skýrslunnar um aðstæður einstaklinga sem endursendir séu til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, en af viðtölum við kærendur hjá Útlendingastofnun að dæma geri þau sér ekki grein fyrir því að þau hafi lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærendur benda á að kerfið sem þjónusti slíka einstaklinga sé verulega flókið. Rauði krossinn í Frakklandi hafi ekki fengið neinn fjárstuðning til þess að taka á móti umsækjendum um alþjóðlega vernd sem snúið sé aftur til landsins á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, en tiltekin mannúðar- og neyðarmóttökumiðstöð sem rekin sé af Rauða krossinum sé eina sjálfstæða einingin sem taki á móti og styðji við þessa umsækjendur við komu þeirra á flugvöllinn. Nyti þessarar þjónustu ekki við þá myndi þessi hópur umsækjenda ekki hljóta neina móttökuþjónustu. Þá geti þessum hópi verið gert að leggja fram umsókn sína um alþjóðlega vernd í mikilli fjarlægð frá Parísarborg og sé þeim þá gert að koma sér sjálf til viðkomandi sveitarfélags. Ýmsar aðstæður geti þá komið upp þegar einstaklingum sé gert að leggja fram umsókn sína á Parísarsvæðinu, t.d. sé umsækjendum stundum vísað til PADA, sem sé eins konar formóttaka fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Aðgengi að PADA sé verulega flókið og sumir umsækjendur þurfi að bíða í nokkrar vikur áður en þeir fá viðtal þar. Kærendur vísa þá enn fremur til niðurstöðu nýlegs dóms frá Þýskalandi þar sem fjallað hafi verið um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd sem endursendir séu til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærendur gera einnig athugasemd við beitingu reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, auk þess að gera athugasemd við lagastoð hennar. Kærendur telji þá að aðstæður þeirra séu það einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Frásögn kærenda og heimildir sem þau hafi vísað til í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar bendi, að mati kærenda, til þess að þau muni eiga erfitt uppdráttar þar í landi vegna andlegrar vanlíðanar, fyrri reynslu og þeirra hindrana sem við þeim blasa við að fá umsóknir sínar um alþjóðlega vernd skráðar í Frakklandi. Slíkt muni jafnframt leiða til takmarkaðs aðgengis að nauðsynlegri þjónustu, húsnæði og framfærslu.

Kærendur hafna þá því mati Útlendingastofnunar að þau teljist ekki vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu og að sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga séu ekki fyrir hendi í málum þeirra. Framburður M sýni fram á að hann þjáist af alvarlegum afleiðingum líkamlegs og andlegs ofbeldis, auk þess sem hann hafi lagt á flótta frá heimaríki vegna öryggisleysis og hótana, og sé jafnframt staddur einn hérlendis með börnum sínum. M hafi enn fremur lýst [...]. Þá séu A og B í sérstaklega viðkvæmri stöðu vegna ungs aldurs síns. A, B og C hafi enn fremur sótt tíma hjá sálfræðingi á Göngudeild sóttvarna þar sem þau hafi öll lýst vanlíðan sinni og ótta. Ljóst sé að þau hafi þörf fyrir sérhæfðri aðstoð vegna stöðu sinnar.

Varðandi aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi vísa kærendur til ítarlegrar umfjöllunar um það í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar. Þar hafi m.a. verið fjallað um þá erfiðleika sem umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi búi við m.a. hvað varðar húsnæðismál, heilbrigðismál, atvinnu og fordóma. [...] og vísa kærendur þá til þess að börn teljist ávallt til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau séu í fylgd umönnunaraðila sinna eða ekki. Íslenskum stjórnvöldum sé skylt að hafa ávallt það sem barni sé fyrir bestu í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar, 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Að mati kærenda sé það ekki [...] fyrir bestu að verða sendar, ásamt föður sínum og bróður, til Frakklands þar sem þeirra bíði veruleg óvissa. Kærendur telji það því þeim fyrir bestu að íslensk stjórnvöld taki mál allrar fjölskyldunnar til efnislegrar meðferðar og veiti þeim alþjóðlega vernd, sbr. fyrirmæli 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Krafa kærenda er byggð á því að taka skuli mál þeirra til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísa kærendur í því sambandi m.a. til lögskýringargagna að baki ákvæðinu og úrskurðarframkvæmdar kærunefndar útlendingamála. Að mati kærenda hvíli rík skylda á stjórnvöldum að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og þær afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér, bæði líkamlegar og andlegar. Kærendur vísi jafnframt til þess að heimildir bendi til þess að móttöku- og hæliskerfið í Frakklandi eigi undir högg að sækja vegna mikils álags og telji kærendur ljóst að staða fjölskyldunnar þar verði mun verri en staða almennings þar í landi. Þá vísi kærendur enn fremur til þess að fjölskyldan þekki ekki aðstæður í Frakklandi af öðru en því að þau hafi dvalið langdvölum í haldi lögreglu á flugvelli. Auk þess hafi kærendur orðið viðskila við tvo aðra fjölskyldumeðlimi og óttist kærendur að fjölskyldan geti ekki sameinast í Frakklandi. Kærendur vísi þá einnig til þess að A og B hafi aðlagast íslensku samfélagi vel og væri þeim það einstaklega þungbært að snúa aftur til Frakklands. Telji kærendur að það sé hvorki skilvirkni fyrir kerfið í heild sinni né kærendur sjálfa að vera send aftur í þær aðstæður sem bíði þeirra í Frakklandi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barns kæranda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

[...].Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ. á m. viðtöl M [...] hjá Útlendingastofnun og framlögð heilsufarsgögn. Það er mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum [...] sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða [...] verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Frakklands á umsóknum kærenda er byggð á 15. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærendur hafi lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd á alþjóðlegu gegnumferðarsvæði flughafnar þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja frönsk stjórnvöld um að taka við kærendum, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Kærandi M er karlmaður á fimmtugsaldri sem kom hingað til lands ásamt börnum sínum A, B og C. [...]. Í fyrirliggjandi gögnum kemur fram að kærandi kveði sig glíma við andlega erfiðleika, m.a. vegna [...]. Í framlögðum heilsufarsgögnum M kemur fram að hann hafi m.a. leitað á bráðamóttöku Landspítalans í byrjun mars sl. vegna [...]. Í komunótu frá lækni hjá Göngudeild sóttvarna dags. 14. mars sl. kemur þá fram að M hafi verið greindur með [...]. Fékk hann ávísað viðeigandi lyfjum vegna þessa auk lyfja vegna svefnvandamála.

Í gögnum um heilsufar A, B og C kemur m.a. fram að þau séu almennt við góða líkamlega heilsu en [...]. Jafnframt hefur C greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi [...]. Þá kemur fram að A, B og C hafi sótt einn tíma hjá sálfræðingi hjá Göngudeild sóttvarna í mars sl. þar sem þau hafi lýst andlegri vanlíðan.Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. viðtöl við M, A, B og C hjá Útlendingastofnun og framlögð heilsufarsgögn, beri ekki með sér að þau hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Frakklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 13. mars 2019),
  • 4th quarterly activity report 2016 by Nils Muižnieks, Council of Europe Commissioner for Human Rights (1 October to 31 December 2016) (Council of Europe, 22. febrúar 2017),
  • Amnesty International Report 2017/18 – France (22. febrúar 2018),
  • Annual Report 2017 – Paris (International Committee of the Red Cross (ICRC), 13. júní 2018),
  • Applying for asylum in France (Groupe d‘information et de soutien des immigrés, http://www.gisti.org. Síðast uppfært 5. september 2019),
  • Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 20. mars 2019),
  • France - Country report - Non-discrimination (European Commission, 21. nóvember 2018),
  • First Steps for Demanding Asylum (Dom‘Asile, nóvember 2015),
  • Freedom in the World 2019 – France (Freedom House, 4. febrúar 2019),
  • Guide for Asylum Seekers in France (Ministry of the Interior, General Directorate for Foreign Nationals in France, 1. nóvember 2015),
  • Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, http://www.conseil-constitutionnel.fr/),
  • Universal Periodic Review. National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 – France (United Nations Human Rights Council, 13. nóvember 2017),
  • Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (https://www.police-nationale.interieur.gouv.fr) og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fær umsókn þeirra hefðbundna meðferð í hæliskerfi landsins. Umsækjendur geta sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fer greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), tekur svo efnisákvörðun í málinu.

Umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni hjá OFPRA geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d’asile (CNDA)). Kæra til dómstólsins frestar almennt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, en dómstóllinn endurskoðar bæði málsástæður og lagarök í hverju máli. Niðurstöðu CNDA er hægt að áfrýja til héraðsdómstóls (f. Conseil d’Etat) þar sem fram fer formleg endurskoðun. Þeim umsækjendum sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd eiga möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjenda geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn sína. Þegar umsókn hefur verið lögð fram geta þeir þó óskað eftir gjaldfrjálsri lögfræðilegri aðstoð á grundvelli efnahags, en slíka beiðni skal leggja fram hjá þar til bærri skrifstofu hjá stjórnsýsludómstól. Umsækjendur geta einnig leitað aðstoðar hjá frjálsum félagasamtökum sem veita lögfræðilega aðstoð, þ. á m. í viðtölum umsækjenda hjá OFII og OFPRA. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd einnig rétt á lögfræðiaðstoð við áfrýjun neikvæðrar niðurstöðu þeirra til CNDA stjórnsýsludómstólsins, en slík aðstoð er í mörgum tilvikum gjaldfrjáls. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga einnig rétt á að því að hafa túlk viðstaddan málsmeðferðina, en það geti þó verið vandkvæðum bundið að fá túlkaþjónustu þegar um sjaldgæf tungumál er að ræða.

Í skýrslu Asylum Information Database frá 20. mars 2019 kemur fram að umsækjendur eigi möguleika á að fá húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum, CADA (f. Centre d‘accueil de demandeurs d‘asile) eða í tímabundnum miðstöðvum. Þeir sem eru endursendir til Frakklands geta leitað til móttökumiðstöðvanna AT-SA (f. Accueil temporaire – serivce de l‘asile), PRADHA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile), CAO (f. Centre d’accueil et d’orientation) eða HUDA (f. hébergement d‘urgence dédié aux demandeurs d‘asile). Árið 2017 var einnig komið á fót tímabundnum úrræðum, CAES (f. centres d‘accueil et d‘examen de situation administrative), þar sem einstaklingar geta verið á meðan beðið er eftir úthlutun á gistirými í hefðbundnum móttökumiðstöðvum. Sökum mikils álags á hæliskerfinu í Frakklandi hefur þó reynst nokkur bið á því að umsækjendur komist að í móttökumiðstöðvum. Umsækjendur sem fá úthlutað gistirými í þessum miðstöðvum fá gefin út vottorð um búsetu (f. attestation de domiciliation) sem gildir í eitt ár, en slíkt vottorð gerir umsækjendum m.a. kleift að stofna bankareikning og fá greiðslukort. Fái umsækjendur ekki pláss í framangreindum miðstöðvum geti umsækjendur leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða m.a. upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd, líkt og áður hefur komið fram.

Þá kemur fram í skýrslu Asylum Information Database að fjölskyldur og einstæðir foreldrar með börn njóti forgangs við úthlutun á húsnæði og margar móttökumiðstöðvar eru sérstaklega skipulagðar til að taka á móti fjölskyldum. Að öllu jöfnu eru fjölskyldur vistaðar saman í húsnæði á meðan umsókn þeirra um alþjóðlega vernd er til meðferðar. Sé nauðsynlegt að vista fjölskyldur í neyðarskýli eru herbergi kynjanna þó stundum aðskilin. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á fjárstyrk að vissum skilyrðum uppfylltum. Hversu háa fjárhæð þeir eiga rétt á fer eftir aldri, fjárhagsstöðu viðkomandi og hvers konar gistingu viðkomandi fær úthlutað, og eru fjárstyrkirnir almennt greiddir inn á greiðslukort í lok hvers mánaðar. Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga rétt á fjölskyldusameiningu samkvæmt frönskum lögum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum en slík sameining nær m.a. til maka og barna.

Í fyrrgreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Frakklandi kemur fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi er tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í frönskum lögum. Umsækjendur sem sæta hefðbundinni málsmeðferð hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfa þó að sækja um aðgang að kerfinu. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geti þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem séu til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Á grundvelli PUMA eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi einnig rétt á nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu en í skýrslum kemur þó fram að dæmi séu um að læknar neiti að veita einstaklingum sem ekki tala frönsku þjónustu.

Í framangreindum gögnum kemur fram að börn umsækjenda um alþjóðlega vernd eigi sama rétt og frönsk börn til endurgjaldslausrar menntunar til 16 ára aldurs. Þrátt fyrir þetta eru hindranir í framkvæmd, svo sem skortur á frönskukunnáttu barnanna, auk þess sem erfitt getur reynst að koma börnum í skóla sem e.t.v. hafa ekki sótt skóla áður vegna aðstæðna. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að börn sem ekki eru frönskumælandi taki próf sem metur þörf þeirra fyrir sérhæfðari kennslu sem undirbýr þau til þess að geta hlotið menntun við hæfi.

Framangreindar skýrslur bera þá með sér að heimilt sé að setja umsækjendur um alþjóðlega vernd í varðhald í Frakklandi en einungis að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, t.d. ef þeir hafa fengið synjun á umsókn sinni og talin sé hætta á að þeir muni koma sér undan brottvísun. Fjölskyldur með börn eru almennt ekki settar í varðhald nema í undantekningartilfellum og er frekar leitað vægari leiða að sama markmiði, t.d. með gæslu í heimahúsi (e. house arrest). Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að löggæsluyfirvöld í Frakklandi hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd gegn einstaklingum sem þeir óttist.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærendur hafi raunhæf úrræði í Frakklandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kærenda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að viðmið sem talin eru upp í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málunum. Það er mat kærunefndar að gögn málanna bendi ekki til þess að heilsufar kærenda sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður þeirra að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verið framhjá þeim litið. Samkvæmt gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Frakklandi eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu samkvæmt frönskum lögum, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu.

Að mati kærunefndar bera gögn málanna þá ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærendur geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærendur hafa þá borið fyrir sig að hafa orðið viðskila við tvo aðra fjölskyldumeðlimi og að þau óttist að fjölskyldan geti ekki sameinast í Frakklandi. Kærunefnd áréttar að samkvæmt frönskum lögum geta einstaklingar sem hljóta alþjóðlega vernd í Frakklandi sótt um fjölskyldusameiningu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum líkt og áður hefur verið greint frá. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta jafnframt óskað eftir því að sameinast öðrum fjölskyldumeðlimum sínum á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar í ákveðnum tilfellum.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma jafnframt fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Sem fyrr segir eru fjölskyldur sem leggja fram umsóknir um alþjóðlega vernd í Frakklandi vistaðar saman og njóta þær forgangs við úthlutun gistirýma. Þá verður jafnframt ráðið af framangreindum skýrslum að leyst sé úr umsóknum þeirra m.t.t. meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar. Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd í Frakklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Frakklands samrýmist hagsmunum [...] þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar [...] um alþjóðlega vernd hér á landi og senda það til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum [...] að umsókn þess verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kærenda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur M og C kváðust í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 17. apríl 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að kærendur hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 24. febrúar 2019.

Athugasemdir kærenda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gera kærendur nokkrar athugasemdir við hinar kærðu ákvarðanir, m.a. við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar og mat stofnunarinnar á viðkvæmri stöðu kærenda. Þá gera kærendur athugasemd við beitingu og lagastoð reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsóknir kærenda og komist að niðurstöðu um að synja þeim um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málunum byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð.

Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við þær. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málanna og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins komu kærendur hingað til lands þann 24. febrúar 2019 og sóttu um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærendur skulu flutt til Frakklands innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kærenda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í málum þessum hafa frönsk stjórnvöld fallist á að taka við kærendum og umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda þau til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er því staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kærendum er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kærenda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til. 

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Áslaug Magnúsdóttir

 

Árni Helgason                                                                                   Bjarnveig Eiríksdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta