Hoppa yfir valmynd

Nr. 448/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 17. september 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 448/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19070041

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 16. júlí 2019 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Úkraína (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. júní 2019, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda til meðferðar að nýju vegna alvarlegra ágalla á málsmeðferð stofnunarinnar og rökstuðningi hinnar kærðu ákvörðunar.

Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 17. október 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 6. júní 2019 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 25. júní 2019, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 16. júlí 2019. Kærunefnd barst greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum þann 1. ágúst 2019. Kærunefnd sendi gögn í þýðingu og veitti kæranda kost á að gera athugasemdir við þýðingar þann 11. september 2019. Athugasemdir bárust kærunefnd þann 13. september s.á.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna stríðsátaka sem þar geisa. Þá byggir kærandi á því að hann sé í hættu vegna herkvaðningar aðskilnaðarsinna í heimahéraði og aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi. Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við málsmeðferð og rökstuðning hinnar kærðu ákvörðunar. Séu ágallarnir svo alvarlegir að ekki nægi að kærunefnd bæti úr þeim á kærustigi. Í fyrsta lagi gerir kærandi athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um herkvaðningu sem kærandi kveðst hafa sætt. Þá gerir kærandi í öðru lagi athugasemd við að vísað sé til rússneskrar löggjafar varðandi möguleika kæranda á að skorast undan herkvaðningu. Þá er í greinargerð í þriðja lagi gerð athugasemd við það að Útlendingastofnun hafi í ákvörðun sinni ekki tekið afstöðu og fjallað um málsástæðu hans er lýtur að ótta hans við ofsóknir á yfirráðasvæði úkraínskra stjórnvalda þar sem hann sé á skrá hjá aðskilnaðarsinnum. Með vísan til framangreinds telur kærandi að um verulegan annmarka sé að ræða á rannsókn og rökstuðningi Útlendingastofnunar í máli hans og hafi stofnunin því brotið gegn ákvæðum 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því gerð sú krafa að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Í greinargerð er á því byggt að kærandi sé flóttamaður samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem hann hafi ástæðuríkan ótta við að vera ofsóttur í Úkraínu, annars vegar af hálfu aðskilnaðarsinna sem krefjist þess að hann taki þátt í vopnuðum átökum fyrir þeirra hönd en sæta ella fangelsisvist, og hins vegar af hálfu úkraínskra stjórnvalda vegna ætlaðra stjórnmálaskoðana og tengingar við vopnaðar sveitir aðskilnaðarsinna. Að auki er á því byggt að kærandi sé flóttamaður í skilningi 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vegna aðstæðna í heimaríki, alvarlegrar mismununar vegna uppruna hans og skorts á möguleikum á flutningi innanlands. Til þrautavara er á því byggt að kærandi uppfylli skilyrði um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga þar eð hann hafi ríka þörf fyrir vernd vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki.

Til stuðnings kröfu sinni um viðurkenningu á stöðu flóttamanna byggir kærandi á því að hann sæti ofsóknum af hálfu de facto stjórnvalda í Luhansk þar sem neyða eigi hann til þess að ganga til liðs við vopnaðar sveitir þeirra og berjast gegn sinni eigin þjóð, en slíkt feli í sér stríðsglæp og teljist til ofsókna í skilningi flóttamannahugtaksins. Kærandi vísar til leiðbeininga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir ákvarðanir um umsóknir um alþjóðlega vernd í tengslum við þátttöku í hernaði. Fram hafi komið að kærandi sé mótfallinn aðgerðum aðskilnaðarsinna og liggi undir þrýstingi um að taka þátt í þeim, en verða ella látinn sæta fangelsisvist. Þannig sé kvaðning kæranda til þátttöku í vopnuðum átökum fyrir hönd aðskilnaðarsinna ólögmæt og feli í sér ofsóknir. Verði ekki fallist á það sé ljóst að um ofsóknir sé engu að síður að ræða þar sem kærandi eigi enga möguleika á undanþágu frá slíkri kvaðningu af samviskuástæðum. Í lögum lýðveldisins Luhansk sé ekki gert ráð fyrir slíkum undanþágum. Herkvaðning kæranda teljist auk þess til ofsókna vegna hugsanlegrar þátttöku í aðgerðum sem myndu fela í sér brot á mannúðarlögum eða glæpi gegn mannkyni en samkvæmt heimildum hafi vopnaðar sveitir beggja vegna deilunnar gerst sekar um mannréttindabrot og stríðsglæpi. Kærandi eigi á hættu að vera þvingaður til þátttöku í stríði sem brjóti gegn alþjóðlegum mannúðar- og sakamálalögum. Geri hann það ekki eigi hann yfir höfði sér refsingu.

Kærandi gerir athugasemd við að Útlendingastofnun taki ekki afstöðu til þarfar kæranda á vernd á yfirráðasvæði úkraínskra stjórnvalda gegn ofsóknum af hálfu aðskilnaðarsinna á átakasvæðum eða möguleika hans á slíkri vernd. Kærandi hafi greint frá því að hann óttist að verða handtekinn af hálfu úkraínskra stjórnvalda vegna skráningar sinnar hjá vopnuðum sveitum aðskilnaðarsinna, hljóta refsingu fyrir eða aðra illa meðferð og jafnvel að verða framseldur aftur til hernámsyfirvalda á átakasvæðum landsins. Heimildir bendi til þess að þessi ótti kæranda sé ástæðuríkur, þar sem úkraínsk stjórnvöld hafi gerst sek um fjöldahandtökur á þeim svæðum Donetsk og Luhansk sem enn lúti stjórn þeirra, í nafni laga gegn hryðjuverkum.

Kærandi kveðst munu verða fyrir mismunum á úkraínsku yfirráðasvæði þar sem hann komi frá Luhansk héraði í Úkraínu. Kærandi vísar til þess að samkvæmt heimildum eigi einstaklingar sem neyðist til að flytja sig um set innan Úkraínu í verulegum erfiðleikum með að nálgast grunnþjónustu á borð við menntun, læknisþjónustu, fá útgefið vegabréf og þá sé oft vandkvæðum bundið fyrir fólk að finna húsnæði og skrá lögheimili sitt. Þrátt fyrir opinberar og áreiðanlegar upplýsingar um það hversu takmörkuð aðstoð sé í boði fyrir fólk á vergangi og að heimildir sem Útlendingastofnun vísi til staðfesti frásögn kæranda, byggi stofnunin á ófullkomnum lögum og loforðum um úrbætur sem vitað sé og viðurkennt að séu að langstærstum hluta innantóm. Sú aðstoð sem eigi að vera í boði sé í raun ekki til staðar. Reki Útlendingastofnun þannig í ákvörðun sinni heimildir sem staðfesti að úkraínsk stjórnvöld skorti bæði vilja og getu til að veita vegalausu fólki viðeigandi aðstoð og vernd en kemst síðan að andstæðri niðurstöðu án frekari rökstuðnings.

Að lokum telji kærandi, með vísan til ofangreinds, hvorki raunhæft né sanngjarnt að ætlast til þess að hann geti leitað verndar með flutningi innanlands.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað úkraínsku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé úkraínskur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Úkraínu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Access to Justice and the Conflict in Ukraine (Organization for Security and Co-operation in Europe, desember 2015);
  • Conflict- related Displacement in Ukraine: Increased Vulnerabilities of Affected Populations and Triggers of Tension within Communities (Organization for Security and Co-operation in Europe, júlí 2016);
  • Fact Finding Mission Report (Austrian Federal Office for Immigration and Asylum (BFA), Country of Origin Information Department & French Office for the Protection of Refugees and Stateless persons (OFPRA), maí 2017);
  • Conflict-related Displacement in Ukraine: Increased Vulnerabilities of Affected Populations and Triggers of Tension within Communities (Organization for Security and Co-operation in Europe (OSCE), júlí 2017);
  • World Report 2019 – Ukraine (Human Rights Watch, 15. janúar 2019);
  • 2016 Annual Report of UHHRU (Ukrainian Helsinki Human Rights Union, 16. ágúst 2017);
  • Amnesty International Report 2017/2018: Ukraine (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Association Implementation Report on Ukraine (European Commission, 14. nóvember 2017);
  • Association Implementation Report on Ukraine (European Commission, 7. nóvember 2018);
  • Country Information and Guidance – Ukraine: Background Information, including actors of protection and internal relocation (UK Home Office, ágúst 2016);
  • Country Policy and Information Note – Ukraine: Military Service (UK Home Office, október 2018);
  • Luhansk People´s Republic Law (https://nslnr.su/zakonodatelstvo/normativno-pravovaya-baza/6453/);
  • Luhansk People´s Republic Law (https://nslnr.su/zakonodatelstvo/normativno-pravovaya-baza/1870/);
  • Freedom in the World 2019 - Ukraine (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • Human Rights Observance in Ukraine: The Situation Analysis (UNDP Ukraine, 13. nóvember 2018);
  • International Protection Considerations related to developments in Ukraine – Update III (UNHCR, 24. september 2015);
  • Nations in Transit 2018 – Ukraine (Freedom House, 11. apríl 2018);
  • “Nobody wants us”: The Alienated Civilians of Eastern Ukraine (International Crisis Group, 1. október 2018);
  • Report on the human rights situation in Ukraine 16 August to 15 November 2018 (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 17. desember 2018);
  • Report on the human rights situation in Ukraine 16 November 2018 to 15 February 2019 (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 12. mars 2019);
  • Report on the human rights situation in Ukraine 16 February 15 May 2019 (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 13. júní 2019);
  • Security and Justice in Ukraine: Perspectives from Communities in Donetsk, Luhansk and Zhytomy Oblasts (UNDP Ukraine, 7. nóvember 2018);
  • Temanotat Ukraina. Domstolene – korrupsjon og manglende uavhengighet (Landinfo, 6. júlí 2015);
  • Ukraine - Country Reports on Human Rights Practices for 2018 (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  • Lugansk People´s Republic Code: Criminal Code of the Lugansk People´s Republic;
  • Lugansk People´s Republic Law: On conscription and military service;
  • Upplýsingar af vef United States Agency for International Development (USAID) - https://www.usaid.gov/where-we-work/europe-and-eurasia/ukraine/global-health og
  • World Report 2019 – Ukraine (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Úkraína er lýðræðisríki með um 44 milljónir íbúa og eru mannréttindi almennt talin virt af úkraínskum stjórnvöldum á þeim svæðum sem lúta stjórn þeirra. Úkraína gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1995 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1997. Landið gerðist aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna 10. júní 2002, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi 12. nóvember 1973 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu þann 24. febrúar 1987. Meirihluti íbúa landsins eru af úkraínskum uppruna eða um 78% en um 17% íbúa eru af rússneskum uppruna og 5% eru af hinum ýmsu þjóðarbrotum. Úkraína er á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki, að undanskildum héruðunum Donetsk, Luhansk og Krím.

Í ofangreindum gögnum kemur m.a. fram að í lok árs 2013 hafi mótmæli hafist í Kænugarði og öðrum borgum Úkraínu. Upphaflega hafi verið um friðsöm mótmæli að ræða en síðar hafi átt sér stað átök fylkinga óeirðalögreglu og mótmælenda sem hafi leitt til mannfalls. Í kjölfar ofangreindra mótmæla og innlimunar Rússa á Krímskaga í mars 2014 hafi brotist út átök á milli hersveita aðskilnaðarsinna og Úkraínuhers í austurhluta Úkraínu. Í gögnunum greinir að fulltrúar frá Úkraínu, Rússlandi og aðskilnaðarsinnum hafi undirritað samkomulag um vopnahlé í september 2014, en að átök eigi sér enn stað á víð og dreif á svæðinu milli stjórnarhers og aðskilnaðarsinna, sem studdir séu af yfirvöldum í Rússlandi. Þrátt fyrir að átökin séu að mestu bundin við héruðin Donetsk og Luhansk í austurhluta Úkraínu hafi önnur svæði einnig orðið fyrir árásum og séu áhrif stríðsins margskonar. Samkvæmt ofangreindum gögnum sé vegalaust fólk innan landsins u.þ.b. 1,7 milljón manns.

Þá kemur fram í gögnum, m.a. ofangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, að spilling sé viðvarandi vandamál í Úkraínu og birtist helst innan löggæslu- og dómskerfisins. Þá séu margar stofnanir sem starfi við að rannsaka og ákæra í spillingarmálum. Samtökin The National Anti Corruption Bureu (NABU) rannsaki spillingu hjá yfirvöldum á meðan lögreglan annist rannsókn spillingarmála á lægri stigum löggæslu. Í skýrslunni komi fram að NABU rannsaki spillingu með skilvirkum hætti en rannsókn lögreglunnar hafi ekki verið mjög árangursrík. Þá veigri margir íbúar landsins sér við því að tilkynna spillingu innan stjórnkerfisins vegna skorts á viðeigandi úrræðum til að veita þeim stuðning og vernd. Þá kemur fram í ofangreindri skýrslu kanadísku útlendingamálanefndarinnar frá 2017 að í úkraínskum sakamálalögum sé kveðið á um framkvæmd þess að leggja fram kvörtun til lögreglu og saksóknarembættisins. Þá sé í sakamálalögum kveðið á um við hvaða aðstæður heimilt sé að áfrýja athöfnum eða athafnaleysi lögreglu, falla undir þau tilvik m.a. ákvörðun lögreglu um að neita að rannsaka brotlega háttsemi, stöðva rannsókn eða fella rannsókn niður.

Í ákvæðum herlaga Luhansk héraðs er kveðið á um herskyldu fyrir karlmenn á aldrinum 18 til 27 ára. Þeir sem séu undanskyldir herskyldu séu meðal annars einstaklingar sem eigi við heilsufarsvanda að stríða, eigi yfir höfði sér refsingu eða afpláni refsingu eða eru synir eða bræður einstaklings sem hafi látist við herskyldu. Þá sé kveðið á um að undanþágu fyrir þá sem gegnt hafa eða gegna annarri samfélagsþjónustu. Einnig sé í lögunum að finna ákvæði sem kveði á um heimild til að fresta herskyldu vegna heilsufarsvanda, náms eða umönnunar náinna fjölskyldumeðlima. Í hegningarlögum Luhansk sé síðan kveðið á um allt að sjö ára fangelsisrefsingu við því að gegna ekki herkvaðningu og 10 ára fangelsisrefsingu við liðhlaupi. Þá komi fram að einstaklingi verði ekki refsað gegni hann ekki fyrstu herkvaðningu vegna erfiðra aðstæðna.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að í Úkraínu er til staðar almannatrygginga- og velferðarkerfi sem allir íbúar landsins eigi aðgang að. Allir ríkisborgarar eigi rétt á atvinnuleysisbótum og þá sé ákveðnum hópum tryggður ríkari réttur til slíkra bóta, þ. á m. einstæðum mæðrum með börn undir 14 ára aldri á sínu framfæri. Í ofangreindum gögnum um aðstæður í Úkraínu kemur fram að öllum íbúum landsins sé tryggður réttur til heilbrigðisþjónustu samkvæmt stjórnarskrá ríkisins.

Í skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna segir m.a. að aðgengi að húsnæði hafi verið eitt helsta áhyggjuefni Úkraínumanna sem hafi lagt á flótta innanlands vegna átakanna í austurhluta landsins. Við aukinn flutning fólks innanlands hafi leiguverð hækkað í mörgum borgum sem hafi leitt af sér gremju meðal íbúa þeirra borga. Það hafi m.a. stuðlað að mismunun gegn fólki á flótta innanlands á atvinnu- og húsnæðismarkaði, sem eigi mörg hver í erfiðleikum með að aðlagast á nýjum stað. Þá er greint frá því að í einhverjum tilvikum hafi börn fólks sem hafi lagt á flótta innanlands mátt þola útskúfun í skóla af hálfu skólafélaga. Í skýrslunni segir að úrræði stjórnvalda sem ætlað sé að styðja við fólk sem hafi flust innanlands nái ekki að mæta þörfum margra einstaklinga og fjölskyldna, einkum þeirra sem hafi sérþarfir, svo sem vegna aldurs eða kyns. Þá dugi fjárhagsleg aðstoð stjórnvalda til þessa hóps ekki fyrir leigukostnaði og standi einungis til boða í takmarkaðan tíma. Þá er greint frá því að stjórnvöld hafi hætt félagslegum greiðslum til fólks sem lagt hafi á flótta innanlands vegna gruns um svik þar til einstaklingur hafi lagt fram staðfestingu á búsetu. Í öðrum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér kemur fram að einstaklingur sem lagt hafi á flótta innanlands í Úkraínu hafi orðið fyrir mismunun og vart hafi verið við spennu og átök milli þeirra og heimafólks. Aftur á móti benda gögn málsins ekki til þess að fyrrgreindir einstaklingar hafi orðið fyrir alvarlegu ofbeldi á þeim grundvelli.

Stjórnarskrá landsins tryggi jafnrétti og banni mismunun og ívilnun á grundvelli kynþáttar, hörundslitar, stjórnmála-, trúar-, eða lífsskoðunum, kyns, þjóðernisuppruna, eignastöðu, búsetu, tungumáli og öðrum einkennum. Þá sé refsivert að hvetja til haturs eða mismununar, skv. 161. gr. refsilaga landsins, á grundvelli þjóðernis, kynþáttar eða trúar. Einnig sé heimild til refsihækkunar séu afbrot framin vegna haturs. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni af hálfu alþjóðastofnana fyrir að framfylgja þessum lögum ekki fyllilega. Þrátt fyrir að úkraínska sé viðurkennt tungumál landsins þá sé rússneska töluð víða og algengt að einstaklingar tali bæði tungumál. Rússneskumælandi einstaklingar séu fjölmennastir í austur- og suðurhluta landsins einkum í Kharkiv, Donetsk, Luhansk, Krím og Ódessa. Samkvæmt ofangreindum gögnum sé viðhorf til rússneska minnihlutans almennt gott og hafi verið það alla tíð, þó að einstaka tilvik mismununar hafi átt sér stað. Þá bendi gögn ekki til þess að átökin í austurhluta landsins hafi breytt miklu hvað þetta varðar.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd aðallega á því að hann óttist að vera þvingaður til að berjast með aðskilnaðarsinnum í Luhansk eða að þurfa að sæta fangelsisrefsingu neiti hann að sinna slíkri herþjónustu. Ennfremur sé hann í hættu á yfirráðasvæði úkraínskra stjórnvalda vegna ætlaðra stjórnmálaskoðana og tenginga hans við vopnaðar sveitir aðskilnaðarsinna í heimahéraði. Þar sem nafn kæranda sé í skrám aðskilnaðarsinna í Luhansk óttist hann að verða settur í fangelsi af úkraínskum stjórnvöldum. Þá byggir kærandi á því að hann tilheyri þjóðfélagshópi sem sæti mismunun á yfirráðasvæði úkraínskra stjórnvalda.

Samkvæmt gögnum um heimaríki kæranda sem kærunefnd hefur yfirfarið við meðferð málsins eru í gildi lög sem kveða á um herþjónustu í Luhansk héraði. Þá kveði lög héraðsins á um að sá sem forðast herkvaðningu þurfi að sæta allt að sjö ára fangelsi en allt að tíu ára fangelsisrefsingu fyrir að gerast liðhlaupi. Í lögunum kemur fram að herskylda sé lögbundin fyrir karlmenn á aldrinum 18-27 ára. Kærandi er [...] gamall og því ekki á þeim aldri sem herkvaðning nær að jafnaði til samkvæmt lögum Luhansk. Í gögnum sem kærandi lagði fram er að finna bréf sem kærandi kveður vera kvaðningu í her aðskilnaðarsinna. Framlögð gögn kæranda voru send til þýðingar og er sú þýðing að mestu í samræmi við þá þýðingu sem gerð var á skjölunum í viðtali við kæranda hjá Útlendingastofnun. Fram kemur að kærandi sé með skráð lögheimili í Luhansk, að hann sé á skráður á herskrá í Luhansk og að hann hafi verið boðaður til að mæta á lögreglustöð í Luhansk þann 28. júní 2018 á milli 8.00 og 17.00. Gögnin bera ekki með sér í hvaða tilgangi kærandi er boðaður á lögreglustöðina og verður af þeim sökum með vísan til heimilda um heimaríki kæranda ekki fallist á það að framlögð gögn sýni fram á að kærandi hafi verið kvaddur í her aðskilnaðarsinna í Luhansk. Í viðtali við kæranda hjá Útlendingastofnun kom fram að kærandi hefði ekki áður verið kvaddur til að gegna herþjónustu í her aðskilnaðarsinna í Luhansk. Þá benda gögn málsins ekki til þess að sérstök herkvaðning sé í gangi eða fyrirhuguð í Luhansk. Af gögnum málsins má jafnframt ráða að þó svo að spenna ríki enn á svæðinu og að mannfall á meðal almennra borgara þekkist sé ófriðarhætta ekki að aukast. Í ljósi þess telur kærunefnd að ekki hafi verið sýnt fram á að líkur séu á að kærandi hafi verið eða verði boðaður til að gegna herþjónustu fyrir aðskilnaðarsinna í Luhansk.

Kærandi hefur greint frá því að í heimahéraði hans, Luhansk, hafi hann verið handtekinn eitt skipti fyrir að virða ekki útgöngubann og þurft að greiða sekt. Kærandi hefur ekki greint frá því að hafa sætt áreiti eða ofbeldi af hálfu hersveita aðskilnaðarsinna í heimahéraði hans.

Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki leitt að því líkur að hafa orðið fyrir eða eiga á hættu að verða fyrir áreiti í Luhansk sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Kærandi hefur borið fyrir sig að verða fyrir mismunun á yfirráðasvæði úkraínskra stjórnvalda vegna uppruna hans frá Luhansk auk þess eigi hann á hættu að verða handtekinn vegna þess að nafn hans sé á skrá aðskilnaðarsinna í Luhansk. Samkvæmt 9. gr. herlaga Luhansk þá skulu allir íbúar héraðsins vera skráðir hjá hernum að undanskildum einstaklingum sem séu undanþegnir herþjónustu skv. lögunum, gegni herþjónustu, afpláni fangelsisrefsingu, konum sem hafi ekki reynslu af herþjónustu og einstaklingum sem hafi fasta búsetu utan Luhansk héraðs. Af þessu er ljóst að langflestir íbúar Luhansk eru eða ættu að vera á skrá hjá her aðskilnaðarsinna í Luhansk og sé aðstaða kæranda því að þessu leyti ekki frábrugðin stöðu annarra einstaklinga frá Luhansk sem dvelja á eða flytjast til yfirráðasvæðis úkraínskra stjórnvalda. Þau gögn sem kærunefnd hefur kannað um aðstæður á yfirráðasvæði úkraínskra yfirvalda styðja þá frásögn kæranda að einstaklingar frá svæðum sem séu undir yfirráðum aðskilnaðarsinna verði fyrir einhverri mismunun og áreitni en ekkert í gögnunum bendir til þess að aðilar sem séu á skrá hers aðskilnaðarsinna í Luhansk eigi sérstaklega á hættu áreiti af hálfu stjórnvalda í Úkraínu. Þá hefur kærandi hvorki lagt fram né vísað til trúverðugra gagna sem styðja við þessa málsástæðu.

Framburður kæranda og gögn málsins sýna auk þess ekki fram á það að kærandi hafi orðið fyrir eða eigi á hættu að verða fyrir áreiti af hálfu stjórnvalda í Úkraínu sem hafi eða geti náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Í ákvörðun sinni féllst Útlendingastofnun á að kærandi ætti á hættu að verða fyrir meðferð sem lýst er í 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga í heimahéraði sínu, Luhansk. Að virtum framburði kæranda hjá Útlendingastofnun og framangreindum upplýsingum um aðstæður í heimaríki hans telur kærunefnd að ekki séu forsendur til þess að hnekkja mati Útlendingastofnunar um að kærandi eigi á hættu að verða fyrir meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á því svæði.

Mat á möguleika á flutningi innanlands

Í 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga segir að ef útlendingur getur fengið raunverulega vernd í öðrum landshluta heimalands síns en hann flúði frá, viðkomandi getur ferðast þangað á öruggan og löglegan hátt og hægt er með sanngirni að ætlast til þess af viðkomandi að hann setjist að á því svæði getur verið að 1. og 2. mgr. eigi ekki við í þeim tilvikum og hann teljist ekki flóttamaður. Niðurstaða um hvort útlendingur geti fengið raunverulega vernd í öðrum hluta heimalands skuli byggð á einstaklingsbundnu mati á persónulegum aðstæðum útlendingsins og þeim aðstæðum sem séu í því landi. Við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði sem talið er öruggt samkvæmt ákvæði þessu skuli tekið tillit til ýmissa þátta, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á vinnu eða menntun. Við mat samkvæmt ákvæðinu skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Guidelines on International Protection: „Internal Flight or Relocation Alternative“ within the Context og Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees, frá 23. júlí 2003).

Í leiðbeiningunum, sem varða möguleika á flutningi innanlands þegar einstaklingur hefur flúið heimaríki af ástæðuríkum ótta við ofsóknir, er lagt til grundvallar að mat á því hvort möguleiki sé á að einstaklingur geti flust búferlum til annars svæðis í heimaríki sé tvíþætt. Annars vegar verði að kanna hvort flutningur innanlands sé raunhæft úrræði. Að því er mál kæranda varðar kemur í þessu sambandi einkum til athugunar hvort það svæði sem lagt er til að hann flytjist til sé aðgengilegt á öruggan og löglegan hátt og hvort flutningur hans þangað skapi hættu á að kærandi verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Hins vegar beri að kanna hvort viðkomandi geti, með hliðsjón af aðstæðum í heimaríki hans, lifað tiltölulega eðlilegu lífi án þess að standa frammi fyrir óþarfa erfiðleikum. Við þann þátt matsins verður m.a. að horfa til persónulegra aðstæðna viðkomandi, t.a.m. félags- og efnahagslegra aðstæðna á því svæði sem lagt er til. Í leiðbeiningunum segir m.a. um síðastnefnt atriði að það sé ósanngjarnt að ætlast til þess lífsviðurværi einstaklings verði lægra en það sem talist geti viðunandi eða að viðkomandi búi við eymd.

Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér kemur fram að átök í austurhluta Úkraínu hafi að mestu verið staðbundin við héröðin Luhansk og Donetsk og að úkraínsk stjórnvöld ráði ekki lengur yfir þeim héruðum landsins. Samkvæmt stjórnarskrá Úkraínu hafi ríkisborgarar landsins og aðrir sem séu í löglegri dvöl þar frelsi til frjálsar farar innanlands og til að ráða búsetustað sínum. Í ofangreindum gögnum má sjá að úkraínsk yfirvöld hafi reynt að aðstoða vegalausa við að setjast að á yfirráðasvæðum sínum. Hins vegar sé ljóst af sömu gögnum að einstaklingar, sem hafa flust innanlands í Úkraínu vegna átaka í austurhluta landsins, eigi í mörgum tilvikum erfitt um vik með að aðlagast á nýjum stað. Samkeppni um atvinnu og húsnæði hafi leitt af sér mismunun gegn flóttafólki á húsnæðis- og vinnumarkaði og þá fyrirfinnist gremja í garð flóttafólks af ýmsum ástæðum. Hins vegar kemur fram í gögnunum að til staðar sé í landinu almannatrygginga- og velferðarkerfi sem hægt sé að leita til svo sem með aðstoð við að fá atvinnu og atvinnuleysisbætur og húsnæði.

Þá er ljóst að ferðafrelsi fólks frá þeim héruðum yfir til þess hluta Úkraínu sem lýtur stjórn úkraínskra stjórnvalda er að einhverju leyti takmarkað. Hins vegar kemur fram í gögnum að fjöldi fólks hafi flust frá átakasvæðum í austri og sest að í öðrum héruðum Úkraínu. Þá kemur einnig fram að úkraínsk yfirvöld geti almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna á öðrum svæðum í Úkraínu. Að mati kærunefndar bendir ekkert til annars en að önnur svæði í heimaríki kæranda, sem eru undir stjórn úkraínskra stjórnvalda, séu honum aðgengileg á raunhæfan, öruggan og löglegan hátt. Þá liggur fyrir að kærandi er staddur hér á landi, er handhafi úkraínsks vegabréfs sem hann hefur lagt fram hjá íslenskum stjórnvöldum og ætti því ekki að vera vandkvæðum bundið fyrir hann að komast til þess hluta Úkraínu sem sé undir stjórn úkraínska stjórnvalda.

Með hliðsjón af fyrri umfjöllun um aðstæður í Úkraínu verður heldur ekki talið að flutningur kæranda innanlands, til svæða undir stjórn úkraínskra stjórnvalda, skapi honum hættu á að verða fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að flutningur innanlands komi til álita í máli kæranda. Að uppfylltu fyrra skilyrði við mat á möguleika á flutningi innanlands verður því næst að taka afstöðu til þess hvort unnt sé, með hliðsjón af einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og aðstæðum í heimaríki hans, að ætlast með sanngirni til þess að kærandi setjist að á öðru svæði í Úkraínu.

Kærandi hefur borið fyrir sig að hann geti ekki flust til yfirráðasvæðis úkraínskra stjórnvalda þar sem hann sé á herskrá aðskilnaðarsinna í heimahéraði sínu. Kærandi hefur greint frá því að hann telji erfitt að breyta lögheimilisskráningu sinni. Kærandi hefur að eigin sögn ekki skráð sig sem vegalausan í heimaríki sínu. Að mati kærunefndar stendur það honum til boða að flytjast yfir á yfirráðasvæði úkraínskra stjórnvalda. Samkvæmt ofangreindum gögnum standi þeim ríkisborgurum Úkraínu sem skrái sig sem vegalausa til boða fjárhagsaðstoð og húsnæði á yfirráðasvæði úkraínskra stjórnvalda. Þó svo að heimildir beri með sér að einstaklingar á skrá sem vegalausir hafi upplifað mismunun varðandi atvinnu, menntun, heilbrigðisþjónustu vegna búsetu sinnar í Donetsk og Luhansk. Kærandi er [...] gamall einhleypur karlmaður við góða heilsu. Kærandi hefur að eigin sögn lokið framhaldsmenntun og hefur ekki annað komið fram en að hann sé vinnufær. Er það mat kærunefndar að kærandi hefur ekki gert líklegt að staða hans sé verri en annarra einstaklinga almennt.

Er það mat kærunefndar að hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að kærandi setjist að annars staðar í Úkraínu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að skilyrði 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um flutning innanlands séu uppfyllt og telst kærandi því ekki flóttamaður. Samkvæmt framansögðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar um þetta atriði staðfest.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi ber fyrir sig að verði hann sendur aftur til heimaríkis muni bíða hans erfiðar almennar aðstæður þar. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki telur kærunefnd að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að unnt sé að veita kæranda dvalarleyfi á þeim grundvelli.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Athugasemdir kæranda við málsmeðferð Útlendingastofnunar

Í greinargerð sinni gerir kærandi athugasemdir við málsmeðferð og úrlausn Útlendingastofnunar í málinu. Kærandi vísar meðal annars til þess að Útlendingastofnun hafi vísað til rússneskrar löggjafar varðandi möguleika kæranda á að skorast undan herkvaðningu. Kærunefnd telur óvarlegt af hálfu Útlendingastofnunar að gera ráð fyrir að rússnesk lög gildi á svæði undir stjórn aðskilnaðarsinna án þess að hafa traustar heimildir um það til að styðjast við. Af ákvörðun Útlendingastofnunar verður ekki ráðið að stuðst hafi verið við slíkar heimildir og er því gerð athugasemd við þann þátt röksemdafærslu Útlendingastofnunar. Að öðru leyti er það er mat kærunefndar að ekkert hafi komið fram í málinu sem bendir til þess að skort hafi á að nauðsynlegar upplýsingar lægju fyrir um ástandið í heimaríki kæranda við ákvörðunartöku hjá Útlendingastofnun. Í því sambandi er tekið fram að kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem aflað var við rekstur málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 10. október 2018 og sótti um alþjóðlega vernd þann 17. október s.á. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave the country voluntarily.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                          Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta