Mál nr. 146/2021 Úrskurður 17. nóvember 2021
Mál nr. 146/2021 Eiginnafn: Erykah (kvk.)
Hinn 17. nóvember 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 146/2021 en erindið barst nefndinni 6. október.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Erykah, borið fram Erika, uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, telst ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú þar sem rithátturinn Erykah er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Rittáknið y er ekki ritað í íslenskum orðum nema það styðjist við uppruna. Upphaflega táknaði y í íslensku hljóð sem var svipað y í dönsku og varð til við viss skilyrði. Það á ekki við um það nafn sem hér er sótt um. Í uppruna þess orðs er ekkert sem styður rithátt með y. Einnig brýtur það í bág við almennar ritreglur íslensku að rita h í lok orðs.
Af ofangreindum ástæðum er einungis hægt að fallast á ritháttinn Erykah að hann teljist hafa unnið sér hefð. Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2021 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:
- Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
- Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
- Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
- Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
- Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
- Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.
- Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
- Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
- Ritun tökunafns með þeim hætti sem gjaldgengur er í veitimálinu telst hefðbundinn. Frávik eru heimil ef um er að ræða aðlögun að almennum íslenskum ritreglum. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber ein kona nafnið Erykah í þjóðskrá. Nafnið kemur hins vegar ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Nafnið uppfyllir því ekki skilyrði 1. liðar vinnulagsreglnanna. Eiginnafnið Erika er dregið af karlmannsnafninu Erik sem er af sömu norrænu rótum og íslenska nafnið Eiríkur. Nafnið hefur mikla útbreiðslu í löndum hins vestræna heims og er þar ritað með ýmsu móti. Rithátturinn Erykah þekkist m.a. í enskumælandi löndum og telst nafnið því uppfylla skilyrði 4. liðar vinnulagsreglnanna.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Erykah (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttarmynd eiginnafnsins Erika (kvk.).