Hoppa yfir valmynd

Nr. 89/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 4. mars 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 89/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU20120061

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 29. desember 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. desember 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi verði tekin til efnismeðferðar hér á landi annars vegar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en verði ekki fallist á það er þess krafist hins vegar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 25. júlí 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 1. ágúst 2020, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að kærandi hafi hlotið alþjóðlega vernd þar í landi þann 25. október 2019. Við umsókn framvísaði kærandi dvalarleyfisskírteini útgefnu af grískum yfirvöldum með gildistíma frá 3. nóvember 2019 til 2. nóvember 2022 og flóttamannavegabréfi gefnu út af grískum stjórnvöldum með gildistíma til 2. júlí 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 14. september 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 3. desember 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 15. desember 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 29. desember 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 11. janúar 2021 ásamt fylgigögnum. Þá bárust viðbótargögn dagana 22. og 25. janúar 2021.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar til viðtals sem tekið var við hann hjá Útlendingastofnun, greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og annarra gagna málsins er varðar málavexti. Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að hann þjáist af verkjum í nýrum vegna nýrnasteina auk þess sem að hann sé sykursjúkur og blindur á auga eftir árás sem hafi átt sér stað í Grikklandi. Þá endurupplifi kærandi tiltekna atburði í Grikklandi í formi martraða sem og grát- og reiðikasta. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi fengið aðstoð meðan hann hafi verið umsækjandi um alþjóðlega vernd í Grikklandi en misst allan stuðning þegar hann hafi fengið alþjóðlega vernd. Kærandi hafi ekki haft aðgang að húsnæði, atvinnu eða heilbrigðisþjónustu auk þess að verða fyrir fordómum, áreiti og ofbeldi. Stjórnvöld hafi aðeins gefið út skilríki en hvorki leiðbeint né sinnt honum frekar.

Kærandi vísar til skjals með greinargerð sinni til Útlendingastofnunar sem hann kallar fylgiskjal en skjalið rekur afstöðu kæranda til réttinda, framkvæmdar og aðstæðna flóttafólks á Grikklandi. Í greinargerð kæranda til kærunefndar er einnig að finna almenna umfjöllun um aðstæður í Grikklandi, þ. á m. umfjöllun um aðgengi að húsnæði, heilbrigðiskerfinu og atvinnu. Þá fjallar kærandi um hatursglæpi og fordóma sem flóttafólk verði fyrir í Grikklandi auk nýlegra lagabreytinga þar í landi. Þá bendir kærandi á að það sé ekki ástæða til þess að greina sérstaklega á milli umsækjenda um alþjóðlega vernd og þeirra sem hafi hlotið alþjóðlega vernd við mat á því hvort skilyrðum 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé fullnægt. Aðalatriðið sé ekki hvort um sé að ræða umsækjanda um alþjóðlega vernd eða einstakling með alþjóðlega vernd heldur hvort viðkomandi einstaklingur eigi á hættu að sæta illri meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og sambærilegra ákvæða. Þá hafi kærunefnd fallist á að staða einstaklinga sem hlotið hafa vernd sé ekki í öllum tilvikum sambærileg stöðu ríkisborgara og að meta verði stöðu þeirra sjálfstætt. Kærandi leggur þá áherslu á að kærunefnd kynni sér nýlega skýrslu tiltekinna samtaka um aðstæður í Grikklandi.

Kærandi gerir athugasemd við að í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar sé ekki farið að fordæmi kærunefndar í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020 og vísar til þess að niðurstaða kærunefndar hafi byggst á samverkandi áhrifum á stöðu kæranda í Grikklandi, áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Grikklands og þeirri óvissu sem af faraldrinum leiði að öðru leyti. Í hinni kærðu ákvörðun sé farið yfir umfangsmiklar aðgerðir í Grikklandi til þess að sporna gegn útbreiðslu Covid-19 faraldursins en kærandi mótmælir þeim rökum sem þar séu færð fram. Aðstæður í Grikklandi hafi ekki breyst til batnaðar frá því að kærunefnd kvað upp úrskurð sinn sem geti hrundið fordæmisgefandi gildi hans. Í rökstuðningi Útlendingastofnunar sé lögð áhersla á að þær takmarkanir sem séu við lýði í Grikklandi vegna faraldursins séu takmarkaðar og tímabundnar. Kærandi gerir athugasemd við framangreint en um sé að ræða víðtækar og íþyngjandi takmarkanir og Útlendingastofnun beri að meta hvaða afleiðingar umræddar takmarkanir, Covid-19 faraldurinn og eldsvoðinn í flóttamannabúðunum í Moria muni hafa á lífsskilyrði kæranda. Stofnuninni sé ekki heimilt að meta aðstæður með tilliti til getgáta um framtíðarhorfur enda hafi stofnunin engar forsendur til þess að meta hvaða áhrif Covid-19 faraldurinn muni hafa á lífsviðurværi flóttafólks í Grikklandi. Kærandi fjallar í greinargerð sinni um úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. KNU20110009 og KNU20110005 frá 10. desember 2020 en hann sé ósammála því mati nefndarinnar að sú óvissa sem hafi verið uppi og leiddi til þess að umsóknir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi verið teknar til efnismeðferðar sé ekki lengur til staðar. Að mati kæranda sé óvissan sem fylgt hafi faraldrinum hvergi nærri liðin hjá og vísar því til stuðnings til umfjöllunar um aðstæður í Grikklandi og tiltekinna heimilda.

Kærandi gerir einnig athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar er varðar frásögn kæranda af aðstæðum í Grikklandi. Kærandi gerir þ. á m. athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um þá heilbrigðis- og félagsþjónustu, atvinnumöguleika og húsnæði sem kæranda standi til boða í Grikklandi. Kærandi vísar í greinargerð sinni og fylgiskjali með henni til fjölmargra heimilda sem hann telur að gefi til kynna að raunveruleg staða flóttamanna í Grikklandi sé önnur en Útlendingastofnun leggi til grundvallar í máli kæranda. Þá gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að kæranda standi raunhæf úrræði til boða vegna kynþáttafordóma og mismununar. Þær heimildir sem kærandi hafi vísað til hafi aðra sögu að segja og vísar kærandi til ýmissa skýrslna máli sínu til stuðnings auk ummæla mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins.

Þá gerir kærandi athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á því hvort taka þurfi tillit til sérstakrar stöðu kæranda. Í viðtali kæranda hafi hann greint frá tilteknum líkamlegum veikindum og andlegri vanlíðan. Kærandi telji Útlendingastofnun afgreiða vandamál kæranda sem smávægileg án þess að fjalla ítarlega um orsakir veikinda og afleiðingar vanlíðanar á andlega og líkamlega heilsu hans. Það sé lögbundið hlutverk Útlendingastofnunar að fá aðstoð utanaðkomandi sérfræðinga við mat á heilsufari umsækjenda um alþjóðlega vernd. Kærandi sé enn að bíða eftir að komast að hjá nýrnasérfræðingi en hann sé í áframhaldandi meðferð hjá heimilislækni. Þá hafi kærandi ekki fengið upplýsingar um hvenær hann komist að hjá sálfræðingi og því hafi ekki verið lagt faglegt mat á andlega heilsu hans. Kærandi telji þá afstöðu Útlendingastofnunar að reyna að finna að því að hann hafi ekki aflað gagna þegar kærandi hafi ekki komist að hjá viðeigandi heilbrigðisstarfsfólki óeðlilega. Áréttar kærandi að hann geti ekki pantað tíma sjálfur heldur sé hann háður tímapöntunum frá þjónustuteymi Útlendingastofnunar.

Varðandi kröfur kæranda og málsástæður er vísað til greinargerðar hans til Útlendingastofnunar. Kærandi byggir á því að taka skuli umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi vegna sérstakra ástæðna hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi gert grein fyrir fyrri reynslu hans í Grikklandi auk þess að vísa til heimilda sem fjalli um aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks þar í landi. Íslenskum stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og þær afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér fyrir hann, líkamlegar og andlegar, auk þess að meta hvort kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga. Með tilliti til frásagnar kæranda af dvöl sinni í Grikklandi og með vísan til tilvísaðra heimilda um aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi sé ljóst að hann muni verða fyrir alvarlegri mismunun þar í landi, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Um mat á því hvenær einstaklingur telst eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vísar kærandi til úrskurða kærunefndar frá 10. október 2017, KNU17080037 og KNU17070049, og 24. október 2017, KNU17080006 og KNU17070041. Kærandi hafi lýst aðstæðum sínum í Grikklandi þar sem hann hafi ekki haft aðgang að húsnæði, framfærslu, heilbrigðisþjónustu og atvinnumarkaði auk þess að þurfa að þola fordóma og ofbeldi. Þannig hafi staða kæranda verið mun verri en staða almennings í Grikklandi.

Þá byggir kærandi á því að ótækt sé að beita heimildinni í a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem kærandi njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið mælir fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement en reglan hefur verið tekin beint eða óbeint upp í fjölda alþjóðlegra samninga sem Ísland er aðili að. Í fylgiskjali með greinargerð sé að finna fjölmargar tilvitnanir í áreiðanlegar heimildir um aðstæður flóttafólks í Grikklandi sem komi heim og saman við lýsingar kæranda á aðstæðum þar í landi. Með vísan til framanritaðs beri íslenskum stjórnvöldum skylda til þess að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 25. október 2019 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 2. nóvember 2022. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 11. mars 2020);

·         Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);

·         Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2020);

·         Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);

·         EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);

·         Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);

·         Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);

·         Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);

·         Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);

·         Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);

·         Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

·         World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);

·         Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 4. mars 2021) og

·         Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 4. mars 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu undir sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hefur útgáfa kennitalna (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi fengu allir umsækjendur um alþjóðlega vernd svokallað AMKA eða kennitölu (g. Αριθμός Μητρώου Κοινωνικής Ασφάλισης) sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 breyttust skilyrði fyrir útgáfu kennitalna (AMKA) og fá umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin ákveðin heilbrigðisþjónustunúmer (g. Προσωρινός Αριθμός Ασφάλισης και Υγειονομικής Περίθαλψης Αλλοδαπού) sem er tímabundið úrræði, meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fá útgefið kennitölu (AMKA) sem telst varanlegt úrræði. Þegar umsækjandi hlýtur alþjóðlega vernd í Grikklandi verður heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hlýtur dvalarleyfi. Einstaklingar geta þá í kjölfarið sótt um kennitölu (AMKA) í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um kennitölu (AMKA) þurfa einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá kennitölu gefna út er nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli.    

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið kynntar lagabreytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveða á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhafar alþjóðlegrar verndar sem dvelja í svokölluðu ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, er skylt að yfirgefa þau innan 30 daga. Þó eru undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um er að ræða fólk sem glímir við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði uppá gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði eru í Grikklandi eru t.d. bætur fyrir fjölskyldur (e. Family allowance) en skilyrði fyrir slíkum bótum er að sýnt sé fram á tíu ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veita grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk (g. Κοινωνικό Επίδομα Αλληλεγγύης, KEA). Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfa m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá eru engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði í reynd. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki er þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi er hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga ásamt erfiðleikum við að fá skattnúmerið (g. Αριθμός Φορολογικού Μητρώου, AFM) útgefið dregur úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Samkvæmt rannsókn frá 2018 hafi þeir flóttamenn sem hafi verið með atvinnu þar í landi venjulega verið í óskráðu starfi sem leiðir m.a. til þess að þeir hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur reiða sig á dreifingu matvæla, muna og fjárhagsaðstoð við grunnþörfum sínum. Þetta leiðir oft til þess að einstaklingar fari út í ólöglega tekjuöflun sem hindrar þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega á Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fer einungis fram á grísku en umsækjendur geta leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála á síðasta ári fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þarf að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir skv. lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu lengdist töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó þurfi enn frekari aðgerðir. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 kemur fram að dæmi eru um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára karlmaður. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hann sé með sykursýki og upplifi vandamál í tengslum við nýrun í sér auk þess sem að hann sé blindur á vinstra auga. Þá hafi hann greint frá því að hann fái martraðir vegna atburða sem hann hafi upplifað í Grikklandi. Í framlögðum heilsufarsgögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 25. ágúst til 4. september 2020, kemur m.a. fram að kærandi hafi lýst því að honum líði líkamlega illa. Hann hafi að eigin sögn grennst mikið og sé með ónýtt nýra hægra megin. Þá glími hann við mikla svefnörðugleika vegna verkja, sé með þvagtregðu og háan blóðþrýsting. Samkvæmt samskiptaseðli frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 17. nóvember 2020, er kærandi ekki í lyfjameðferð vegna sykursýki. Þá lagði kærandi fram beiðni um myndgreiningu frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 17. nóvember 2020, þar sem fram kemur að kærandi sé með skerta nýrnastarfsemi, verk í hægri olnbogabót og sé kraftminni í fingrum hægri handar. Kærandi lagði þá fram heilbrigðisgögn frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 11. nóvember 2020 til 20. janúar 2021, og Göngudeild þvagfæra, dags. 11. nóvember 2020, þar sem fram kemur að hringt hafi verið vegna kæranda en hann hafi leitað á heilsugæslu Keflavíkur vegna verkja í vinstri síðu. Rýrt hægra nýra kæranda sé með stórum steini í nýrnaskjóðu og a.m.k. tvo steina í hægri þvagpípu (e. ureter). Vinstra nýra kæranda sé tormetið en það sjáist engir steinar þar. Þá kemur fram að ekki sé hægt að bjarga hægra nýranu en ef það verði til vandræða væri líklega best að fjarlægja það. Að mati læknis sé ekki þörf á eftirliti þvagfæraskurðlækna en það gæti verið þörf á eftirliti hjá nýrnalæknum. Kærandi hefur við meðferð málsins einnig lagt fram gögn um heilsufar sitt frá heilbrigðisstofnunum í heimaríki, Tyrklandi og Grikklandi. Í gögnunum komi m.a. fram að nýrnastarfsemi hægra nýrans sé verulega skert og að kærandi hafi nokkrum sinnum verið lagður inn á spítala vegna tiltekinna vandamála tengdum nýrum.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 24. september 2020 um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Útlendingastofnun leiðbeindi kæranda einnig með tölvupósti, dags. 16. nóvember 2020, um framlagningu frekari gagna í málinu. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða kross Íslands, jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 4. janúar 2021, um framlagningu frekari gagna í málinu.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra upplýsinga, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Þar kemur fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja á til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð. 

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Þá skuli líta til þess, í tilviki þungunar, hvort umsækjanda standi til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til gagna frá heilbrigðisstarfsfólki sem sýna fram á slíkt og, telji kærunefnd að umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, hlutlægra og trúverðugra gagna sem sýna fram á að sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandi þarfnast sé ekki í boði í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun að neðan.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og sú aðstoð sem hann hefur notið hér á landi verið rakin. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans vegna slæmra aðstæðna í Grikklandi. Kærandi hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu, félagsaðstoð eða atvinnu í Grikklandi. Af framlögðum heilsufarsgögnum má sjá að kærandi hefur skerta nýrnastarfsemi og gæti haft þörf á eftirliti nýrnalækna.

Aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hafa þegar verið raktar. Eins og komið hefur fram hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að mestu sambærileg réttindi að lögum og grískir ríkisborgarar, m.a. hvað varðar grunnheilbrigðisþjónustu, félagslega aðstoð og rétt til að stunda atvinnu. Aftur á móti, líkt og að framan greinir og fram kom m.a. í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051, virðast vera ýmsar hindranir á möguleikum flóttamanna til þess að sækja réttindi sín, t. a. m. við að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Þá hafi gögn bent til þess að útgáfa kennitalna (AMKA) til flóttamanna hafi falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu í landinu. Það er þó almennt mat kærunefndar, m.a. með vísan til gagna sem kærunefnd aflaði sérstaklega frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti mætt ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt. Þá hefur kærunefnd talið það sama eiga við um útgáfu kennitalna til flóttamanna. Í fyrrgreindum málum var það þó m.a. mat nefndarinnar að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi, og þeirrar stöðu sem uppi var á þeim tíma vegna átaka við landamærin og fordæmalausrar stöðu vegna Covid-19 faraldursins, að ástæða hafi verið til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri aðstöðu en áður til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldu sinni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barnanna.

Í því máli sem hér er til meðferðar er kærandi, samkvæmt framlögðum heilsufarsgögnum, með skerta nýrnastarfsemi en hægra nýra hans er með litla virkni. Þá kemur fram það mat læknis að það gæti verið þörf á eftirliti hjá nýrnalæknum.

Í hinni kærðu ákvörðun fjallaði Útlendingastofnun um aðgengi flóttafólks að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi. Er þar m.a. rakið að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi rétt á heilbrigðisþjónustu til jafns við gríska ríkisborgara. Þá rakti Útlendingastofnun þau heilsufarsgögn sem lágu fyrir í málinu en þar er m.a. vikið að nýrnastarfsemi kæranda. Með tölvupósti, dags. 9. febrúar 2021, óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun um hvort að upplýsingar hafi legið fyrir um hvort kærandi hefði kennitölu og skattnúmer í Grikklandi fyrir ákvarðanatöku í máli hans. Samkvæmt svari frá Útlendingastofnun, dags. 10. febrúar 2021, höfðu engar upplýsingar legið fyrir um fyrrgreint í máli kæranda og þá hafi hann ekki verið spurður að því sérstaklega í viðtali hjá Útlendingastofnun.

Af gögnum málsins má ráða að heilsufar kæranda sé þess eðlis að þörf sé á eftirfylgni og hugsanlega frekari meðferð en ekki liggur fyrir greining eða álit læknis eða heilbrigðisstarfsmanna á afleiðingum þess fyrir kæranda ef slík eftirfylgni og meðferð verði ekki veitt. Kærunefnd telur sig ekki vera í aðstöðu til að draga nægilega skýrar ályktanir af þeim læknisfræðilegu gögnum sem þó liggja fyrir í málinu um alvarleika veikinda kæranda eða hvaða afleiðingar það hafi fái hann ekki viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Kærunefnd telur að í ljósi þess, þeirra aðgangshindrana sem geti verið til staðar að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og fjallað hefur verið um hér að framan og þess álags sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á heilbrigðiskerfið í Grikklandi hafi einnig verið sérstakt tilefni til að afla upplýsinga um hvort kærandi hefði kennitölu í Grikklandi ásamt því að kanna hvort hann hefði skattnúmer þar í landi. Kærunefnd telur í ljósi framangreinds að nægilega skýrar upplýsingar um þessa þætti málsins hafi þurft að liggja fyrir áður en að ákvörðun hafi verið tekin í máli kæranda og telur kærunefnd að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið áfátt að þessu leyti. Kærunefnd telur að þessi skortur á fullnægjandi rannsókn gæti hafa haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra gagna og upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar.

Er það mat kærunefndar að með framangreindum annmörkum á málsmeðferð kæranda hjá Útlendingastofnun hafi stofnunin ekki fullnægt skyldu sinni skv. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Eins og að framan greinir telur kærunefnd að annmarkar hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar í máli kæranda. Kærunefnd telur jafnframt í ljósi aðstæðna að ekki sé unnt að bæta úr þeim annmörkum á kærustigi og því rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

Athugasemdir við vinnubrögð talsmanns kæranda

Í ljósi athugasemdar kæranda í greinargerð sinni til kærunefndar um starfshætti Útlendingastofnunar er varðar mat á heilsufari kæranda telur nefndin óhjákvæmilegt að fjalla um vinnubrögð talsmanns í málinu og gagnaöflun. Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar, dags. 30. september 2020, gerði talsmaður m.a. kröfu um að Útlendingastofnun hlutaðist til um öflun ítarlegs heilbrigðisvottorðs ásamt sálfræðimati á kæranda áður en ákvörðun yrði tekin í málinu. Líkt og áður hefur komið fram var kæranda leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 24. september 2020 um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint um framlagningu frekari gagna með tölvupósti Útlendingastofnunar þann 16. nóvember 2020. Þann 24. nóvember 2020 barst Útlendingastofnun ljósmynd af frekari heilsufarsgögnum og tók stofnunin ákvörðun í máli kæranda þann 3. desember 2020 á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Þann 29. desember 2020 kærði kærandi ákvörðun Útlendingastofnunar til kærunefndar og var kæranda með tölvupósti nefndarinnar þann sama dag veittur frestur til framlagningar greinargerðar og gagna til stuðnings kröfum sínum. Með greinargerð sinni til kærunefndar, dags. 11. janúar 2021, lagði kærandi fram skjáskot af skilaboðum kæranda til talsmanns þar sem fram kemur að hann hafi í tvígang farið og hitt lækni en engin frekari heilsufarsgögn fylgdu með greinargerðinni. Með tölvupósti kærunefndar, dags. 19. janúar 2021, var kæranda leiðbeint um framlagningu frekari gagna í málinu, t.a.m. heilbrigðisgagna. Lagði kærandi í kjölfarið fram annars vegar gagn frá þvagfæraskurðlækni, dags. 11. nóvember 2020, og gögn frá heilsugæslu Suðurnesja, dags. 11. nóvember 2020 til 20. janúar 2021. Af framangreindu er ljóst að þegar Útlendingastofnun leiðbeindi kæranda um framlagningu frekari gagna í málinu þann 16. nóvember 2020 voru til staðar heilbrigðisgögn sem voru ekki lögð fram í málinu og gerði Útlendingastofnun erfiðara fyrir við að leggja mat á heilsufar kæranda í samræmi við nýjustu upplýsingar. Þá lagði kærandi ekki fram frekari heilbrigðisgögn með greinargerð sinni til kærunefndar, þrátt fyrir að þau hafi verið tiltæk. Kærunefnd áréttar að hvorki Útlendingastofnun né kærunefnd hefur heimildir til þess að afla heilbrigðisgagna að eigin frumkvæði. Með hliðsjón af framangreindu gerir kærunefnd athugasemd við umrædd vinnubrögð og áréttar mikilvægi þess að leggja fram þau gögn sem eru til þess fallin að styðja við framburð og kröfur umsækjenda um alþjóðlega vernd.

 

 

 


 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

 

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                     Þorbjörg I. Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta