Mál nr. 7/2020 Úrskurður 20. febrúar 2020
Mál nr. 7/2020 Eiginnafn: Art (kk.)
Hinn 20. febrúar 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 7/2020 en erindið barst nefndinni 22. janúar.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Art (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Arts, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.