Mál nr. 39/2013, úrskurður 5. júlí 2013
Mál nr. 39/2013 Eiginnafn: Venný
Hinn 5. júlí 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 39/2013 en erindið barst nefndinni sama dag:
Eiginnafnið Venný (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Vennýjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Venný (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.