Mál nr. 83/2023 Úrskurður 25. ágúst 2023
Mál nr. 83/2023 Eiginnafn: Þórberg (kk.)
Hinn 25. ágúst 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 83/2023 en erindið barst nefndinni 21. ágúst.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Þórberg (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Þórbergs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn. Til samanburðar má vísa til fjölda líkra eiginnafna, s.s. Auðberg, Eyberg, Hafberg, Hallberg og Vilberg.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Þórberg (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.