Mál nr. 77/2018 úrskurður 20. september 2018
Mál nr. 77/2018 Millinafn: Ká
Hinn 20. september 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 77/2018 en erindið barst nefndinni 19. september.
Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:
-
Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
-
Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
-
Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
-
Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Millinafnið Ká er dregið af íslenskum orðstofni, sbr. bókstafsnafnið ká og sagnorðið ká sem meðal annars merkir ‚róta í‘ eða ‚snúa e-u við‘. Millinafnið Ká telst einnig að öðru leyti uppfylla skilyrði 6. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Ká er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.