Hoppa yfir valmynd

Nr. 229/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 25. júní 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 229/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20010045

 

Kæra [...]

og barns hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 28. janúar 2020 kærði einstaklingur sem kveðst heita [...], vera fædd [...], vera ríkisborgari Nígeríu (hér eftir nefnd kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 8. janúar 2020 um að synja kæranda og barni, [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir A) um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og kæranda verði veitt alþjóðleg vernd hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að kæranda verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga, en samkvæmt ákvæðinu eigi maki eða sambúðarmaki þess sem nýtur alþjóðlegrar verndar og börn hans yngri en 18 ára einnig rétt á alþjóðlegri vernd nema sérstakar ástæður mæli því í mót. Viðbótarkrafa kæranda er sú að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og kæranda veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi með vísan til 1. gr. reglugerðar nr. 122/2020 um breytingu á reglugerð um útlendinga, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 2. janúar 2019. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 14. og 17. október 2019 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 8. janúar 2020, synjaði Útlendingastofnun kæranda og barni hennar um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Einnig synjaði Útlendingastofnun kæranda um dvalarleyfi vegna mansals eða gruns þar um. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála þann 28. janúar 2020. Kærunefnd barst greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum þann 16. febrúar 2020. Kærunefnd óskaði eftir því við Útlendingastofnun þann 20. febrúar 2020 að fram færi sálfræðimat á kæranda og barst kærunefnd matið þann 16. apríl 2020. Kærandi kom til viðtals hjá kærunefnd útlendingamála þann 4. júní 2020 ásamt talsmanni sínum. Viðbótargögn bárust þann 12. júní 2020.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir sem rekja megi til aðildar hennar að tilteknum þjóðfélagshópi. Jafnframt byggi kærandi umsókn sína á því að hún og barn hennar séu í hættu á að verða beitt ofbeldi af hálfu föðurbróður hennar. Þá geti hún og barn hennar ekki leitað ásjár yfirvalda í heimaríki.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og henni skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Ennfremur var kæranda synjað um dvalarleyfi sem fórnarlambi mansals skv. 76. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barns kæranda, kom fram að það væri svo ungt að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtal við það. Fram kom að umsókn barns kæranda væri grundvölluð á framburði móður þess og henni hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. og 76. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun móður hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnsins og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli móður þess, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, útlendingalaga og barnaverndarlaga, að barni kæranda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja móður sinni til heimaríkis. Barni kæranda var vísað frá landinu.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 14. og 17. október 2019 og framhaldsviðtali 2. desember 2019 hafi kærandi greint frá ástæðum flótta síns frá Nígeríu og slæmum aðstæðum sínum á Ítalíu þar sem hún hafi dvalið í um átta ár og verið seld í mansal. Kærandi hafi mætt í öll viðtölin með nokkurra mánaða gamlan son sinn, þar sem hún hafi ekki haft kost á öðru, en kærandi kveður að það hafi haft áhrif á einbeitingu hennar í viðtölunum. Kærandi hafi greint frá því að hún sé uppalin í Benín borg í Nígeríu og tilheyri þjóðfélagshópnum Igbo. Þá eigi hún engan að í Nígeríu en hún hafi misst báða foreldra sína og hafi ekkert tengslanet þar í landi. Eftir að foreldrar kæranda hafi fallið frá hafi hún og bróðir hennar farið í umsjá frænda þeirra sem hafi beitt þau ofbeldi. Einn daginn hafi bróðir hennar orðið fyrir bíl og látist í kjölfarið. Kærandi greindi frá því að henni hafi verið nauðgað af hópi fimm manna þegar hún hafi verið við sölu varnings á götum úti í Benín borg. Hún hafi verið verulega óhamingjusöm á þessum tíma og stundum hafi liðið margir dagar án þess að hún hafi fengið að borða. Frændi hennar hafi vísvitandi svelt hana og ef hann hafi komist að því að hún hafi fengið mat frá vinkonu sinni hafi hann lamið hana og sett pipar í augu hennar og kynfærasvæði. Þá hafi kona frænda kæranda einnig komið illa fram við hana og beitt hana ofbeldi. Kærandi hafi flúið þessar aðstæður í Nígeríu og farið til Evrópu árið 2010. Vinkona kæranda hafi sagt henni frá konu, sem kölluð sé maddama, sem aðstoði fólk við að flýja Nígeríu. Hafi hún þurft að sverja eið og hún hafi átt að vinna sem sölukona í Evrópu til að greiða upp skuld sína við maddömuna. Leiðin til Evrópu hafi verið erfið en kærandi hafi verið handtekin í Líbíu þar sem hún hafi verið í haldi við slæmar aðstæður í u.þ.b. eitt ár. Kærandi hafi verið beitt ofbeldi í fangelsinu, m.a. kynferðislegu ofbeldi. Í Dyflinnarviðtali og efnisviðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að maddaman, sem hafi smyglað kæranda til Evrópu, hafi greitt lausnargjald og þannig hafi henni verið smyglað út úr fangelsi í Líbíu. Í þjónustuviðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi hins vegar greint frá því að hún hafi náð að sleppa úr fangelsinu þegar einstaklingar hafi náð að opna fangelsið og hún flúið ásamt öðrum.

Framangreint misræmi skýri kærandi á þá leið að hún hafi sloppið þrisvar sinnum úr fangelsi í Líbíu. Í þriðja skiptið hafi það verið vegna lausnargjalds frá maddömunni. Hún hafi í kjölfarið ferðast sjóleiðina til Ítalíu og endað í flóttamannabúðum. Í flóttamannabúðunum hafi kæranda verið afhent símkort og sagt að hringja í maddömuna. Þann dag hafi kærandi komist að því að ekki stæði til að hún færi að vinna í verslun heldur væri búið að leiða hana út í vændi. Eftir dvöl í flóttamannabúðunum hafi kærandi flutt inn í hús á vegum maddömunnar með öðrum konum sem jafnframt hafi verið seldar í vændi. Kærandi hafi greitt tiltekna upphæð fyrir leigu, mat, rafmagni og hita. Gæti hún ekki greitt með þeim peningum sem hún hafi þénað fyrir vændi hafi hún ekki fengið að borða. Kærandi hafi síðan sagt konu er stödd var í húsi þar sem hún stundaði vændi frá þessum erfiðu aðstæðum og í kjölfarið hafi konan boðið kæranda að búa með sér. Einn daginn hafi kærandi haldið til vinnu og ekki komið aftur í hús maddömunnar. Maddaman hafi þá hringt í kæranda og hótað henni lífláti ef hún svaraði ekki símanum í hvert skipti sem hún myndi hafa samband við hana. Kærandi hafi beðið maddömuna um leyfi til þess að búa annars staðar gegn því að senda maddömunni peninga. Kærandi hafi greitt maddömunni allan þann pening sem hún hafi átt en hún skuldi henni enn háa fjárhæð, um 19.000 evrur, vegna ferðarinnar til Evrópu og sé hún í hættu vegna þess. Kærandi óttist maddömuna en hún hafi heyrt af stúlku sem hafi verið leidd út í vændi líkt og hún og verið drepin við komuna aftur til Nígeríu þar sem hún hafi skuldað maddömunni peninga. Maddaman hafi fært kæranda til vúdú prests áður en hún hafi yfirgefið Afríku til þess að sverja þess eið að hún myndi aldrei leita til lögregluyfirvalda, aldrei flýja eða hugsa illa til maddömunnar. Kærandi greindi jafnframt frá því að útilokað sé að hún fái stuðning lögregluyfirvalda í Nígeríu þar sem þau séu spillt og maddaman myndi greiða lögreglunni mútufé. Kærandi óttist margt í Nígeríu og ómögulegt sé fyrir hana að snúa aftur þangað með ungan son sinn. Hún geti ekki tryggt honum framfærslu og líf einstæðra mæðra þar í landi sé erfitt. Hún óttist það að neyðast til þess að setja son sinn á munaðarleysingjaheimili verði hún send aftur til Nígeríu. Kærandi eigi engan að og enga fjölskyldu í Nígeríu fyrir utan tvo frændur sem geti ekki stutt hana og barn hennar. Hún myndi því neyðast til þess að fara til frænda síns sem hafi beitt hana ofbeldi og óttist um líf sitt eða að verða beitt aftur ofbeldi. Auk þess sé ólíklegt að frændi kæranda muni veita henni húsaskjól þar sem hún eigi nú barn. Frændi hennar gæti viljað gera syni hennar mein og jafnvel drepið þau bæði til þess að koma í veg fyrir að sonur hennar erfi eignir hans.

Þá kemur fram í greinargerð að í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því þegar hún hafi kynnst barnsföður sínum og orðið barnshafandi. Greindi kærandi frá því að þau væru stundum saman og stundum ekki. Í síðara viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að hann sé kærasti hennar en að þau séu ekki gift. Kærandi hafi búið með barnsföður sínum um nokkurra mánaða skeið eftir að hún hafi orðið barnshafandi og þar til hún hafi flúið til Íslands. Greindi kærandi frá því að barnsfaðir hennar geti ekki unnið mikið og hún geti engan stuðning fengið frá honum. Þá líki fjölskyldu barnsföður hennar í Nígeríu ekki við hana vegna ættbálks sem hún tilheyri.

Í greinargerð kæranda eru gerðar margvíslegar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar m.a. hvernig trúverðugleikamati hafi verið háttað og að stofnunin hafi litið framhjá ákvörðunum sínum í öðrum málum sem séu sambærileg máli kæranda. En fyrst og fremst er umfjöllun Útlendingastofnunar um A og hagsmuni hans einkum hvað varðar öryggi, velferð, framfærslu og félagslegan þroska hans gagnrýnd. A hafi fæðst hér á landi þann 8. mars 2019. Í Nígeríu bíði hans algjör óvissa en þar eigi hann engan að og faðir hans sé staddur á Ítalíu. Vísar kærandi til ákvæða barnalaga, barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, laga um útlendinga og tilskipunar Evrópusambandsins nr. 2011/95/ESB. Byggir kærandi á því að í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi ekki verið fjallað efnislega um einstaklingsbundnar aðstæður A. Kærandi mótmælir því mati Útlendingastofnunar að það sé A fyrir bestu að snúa aftur til Nígeríu. Vísar kærandi til þess að horft hafi verið framhjá því að faðir A sé ekki staddur hér á landi og að hann njóti ekki stuðnings föður síns. Í ákvörðun Útlendingastofnunar sé aftur á móti tekið fram að kærandi geti ákveðið að sameinast föður A á Ítalíu eða í Nígeríu. Jafnframt sé tekið fram í ákvörðun stofnunarinnar að svo virðist vera sem A njóti stuðnings fjölskyldu föður síns í Nígeríu. Mótmælir kærandi þessu og vísar til þess að Útlendingastofnun hafi engin gögn um að hún hafi gilt dvalarleyfi á Ítalíu og væri þar í löglegri dvöl. Þá hefur stofnunin ekki lagt mat á hver staða A sé á Ítalíu m.a. með tilliti til dvalarleyfis. Þá geti A ekki notið stuðnings fjölskyldu föður síns í Nígeríu. Jafnframt mótmælir kærandi að aðgangur A að menntun og heilbrigðisþjónustu sé tryggður í Nígeríu. Af hálfu kæranda er byggt á því að raunveruleg staða barna í Nígeríu sé ekki í samræmi við lagasetningu stjórnvalda þar í landi. Þá vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála frá 10. nóvember 2016, nr. 427/2016, máli sínu til stuðnings en í því máli skorti einstaklingsbundið mat á hagsmunum barns í ákvörðun Útlendingastofnunar og leiddi það til þess að stofnuninni var gert að taka málið til meðferðar á ný.

Þá telur kærandi að hún sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tl. 3. gr. laga um útlendinga. Hún sé ein hér á landi með ungt barn sitt, hafi orðið fyrir andlegu, líkamlegu og ítrekuðu kynferðislegu ofbeldi auk þess sem hún sé fórnarlamb mansals. Þá hafi stjúpdóttir kæranda verið tekin af henni hér á landi og færð til barnaverndaryfirvalda. Það hafi reynst kæranda erfitt og haft mikil áhrif á andlega heilsu hennar. Í greinargerð kæranda er vísað til þess að lykilatriði í hinum kærðu ákvörðunum Útlendingastofnunar sé að kærandi eigi í ástarsambandi við karlmann og sé það ítrekað tekið fram að kærandi njóti stuðnings hans á Ítalíu og í Nígeríu. Kærandi ítrekar hins vegar að hún og barn hennar njóti ekki stuðnings hans að neinu leyti, hvorki á Íslandi, Nígeríu né á Ítalíu. Vísar kærandi til þess að nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins hafi lýst áhyggjum sínum yfir stöðu einstæðra mæðra í Nígeríu út frá hagsmunum barna þeirra.

Kærandi krefst þess aðallega að henni og barni hennar verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi, skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Rekja megi ástæðu flótta kæranda til þess að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í Nígeríu á grundvelli þess að hún tilheyri sérstökum þjóðfélagshópi, sem kona og fórnarlamb mansals, sbr. 1. mgr. 37. gr. og d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Jafnframt byggir kærandi á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í Nígeríu á grundvelli þjóðernis síns þar sem hún sé af Igbo uppruna, sbr. c-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Fyrst og fremst byggir kærandi þó á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna stöðu sinnar sem einsömul kona í sérstaklega viðkvæmri stöðu og sem mansalsfórnarlamb. Kærandi hafi orðið fyrir nauðgun og verið beitt öðru kynbundnu ofbeldi í heimaríki sínu, hún hafi mátt þola illa meðferð af hálfu frænda síns og hún hafi ekkert stuðningsnet þar í landi. Auk þess sem hún hafi orðið fyrir ofbeldi á flótta sínum frá Nígeríu, þar sem henni hafi m.a. verið nauðgað í Líbíu. Til stuðnings kröfu sinni vísar kærandi til nýlegra ákvarðana Útlendingastofnunar í málum nr. 2018-10936 og 2019-03109, þar sem nígerískum konum hafi verið veitt vernd vegna ástæðuríks ótta við ofbeldi vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi. Þá sé kærandi í sérstaklega viðkvæmri stöðu og í mikilli hættu á að verða neydd aftur í mansal verði henni gert að snúa aftur til Nígeríu. Þeir sem kærandi óttist falli undir a- og c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Annars vegar óttist hún nígerísk stjórnvöld, þar sem heimildir kveði á um að þau séu ekki í stakk búin til þess að vernda konur í eins viðkvæmri stöðu og kærandi sé í og kynbundnar ofsóknir séu á ábyrgð ríkisins í þeim tilfellum sem það láti hjá líða að grípa til aðgerða til verndar slíkum ofsóknum. Loks óttist kærandi áðurnefnda maddömu sem hún skuldi háa fjármuni og frænda sinn sem beitt hafi hana ofbeldi árum saman.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til þrautavara að henni og barni hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis þegar útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Í fyrsta lagi byggir kærandi á því að þeim skuli veitt mannúðarleyfi vegna sérstaklega erfiðra félagslegra aðstæðna sem bíði þeirra í Nígeríu. Kærandi sé lítið menntuð, fátæk og geti ekki séð sér og syni sínum fyrir mat og húsaskjóli. Þá hafi kærandi ekki verið í Nígeríu síðastliðin 10 ár og hún hafi nær aldrei unnið hefðbundna vinnu utan heimilis. Þá sé staða kvenna í Nígeríu erfið og ógiftar konur sérstaklega útsettar fyrir mismunun. Þær verði m.a. fyrir efnahagslegri mismunun og séu möguleikar þeirra til að ráða sig til vinnu almennt takmarkaðri en nígerískra karlmanna. Jafnframt geti hún ekki leitað aðstoðar ættingja í Nígeríu, þar sem hún eigi enga eiginlega fjölskyldu og fái engan stuðning. Nánustu fjölskyldumeðlimir kæranda séu fallnir frá og eftirlifandi frændi hennar hafi beitt hana alvarlegu ofbeldi og myndi ekki samþykkja hana og son hennar inn á heimili sitt þar sem kærandi eigi nú barn og það utan hjónabands. Þá ættu þau á hættu frekara ofbeldi af hans hálfu ef hann myndi samþykkja þau inn á heimilið. Jafnframt bendi heimildir til þess að hún muni enga aðstoð fá frá yfirvöldum og verði þá að horfa til sérstaklega viðkvæmrar stöðu kæranda. Þá kveða heimildir jafnframt á um að einstaklingar sem komi aftur til Nígeríu eftir að hafa sóst eftir vernd annars staðar hafi engan aðgang að þjónustu eða aðstoð nígerískra yfirvalda, nema viðkomandi sé sérstaklega skilgreindur sem þolandi mansals, en kærandi hafi ekki verið formlega skilgreind sem slík. Jafnvel þó að viðkomandi sé skilgreindur sem þolandi mansals standi verulega takmörkuð aðstoð til boða. Þá byggir kærandi á því að það sé jafnframt þekkt að þolendur mansals standi frammi fyrir sérstaklega erfiðum félagslegum aðstæðum, verði fyrir mismunun og útskúfun snúi þau til baka. Í öðru lagi byggir kærandi á því að þeim skuli veitt mannúðarleyfi vegna andlegs heilsufars hennar. Í þriðja lagi byggir kærandi á því að horft skuli til aðstæðna sonar hennar en sérstakt tillit skuli tekið til barna við beitingu 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til greina komi að minni kröfur séu gerðar svo að þau njóti verndar og fái mannúðarleyfi, fái þau ekki alþjóðlega vernd eða eigi rétt á dvalarleyfi á öðrum grundvelli. Þá skuli jafnframt tekið tillit til þess hvort framfærsla barns sé örugg. Líkt og endranær skuli það sem barni sé fyrir bestu haft að leiðarljósi, sbr. m.a. 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, sem og 2. mgr. 1. gr. barnalaga og 1. mgr. 3. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Telur kærandi það ljóst að það sé barninu fyrir bestu að fá dvalarleyfi hér á landi þar sem hann dvelji við öruggar aðstæður og trygga framfærslu. Barnið hafi aldrei komið til Nígeríu og hann eigi á hættu að verða settur á munaðarleysingjaheimili þar í landi. Þá eigi hann á hættu að verða fyrir ofbeldi af hálfu frænda síns.

Kærandi telur að með endursendingu hennar og barns hennar til Nígeríu yrði brotið gegn meginreglunni um non-refoulement, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun muni brjóta í bága við 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem til þess sé fallið að sanna á henni deili og yrði af þeim sökum leyst úr auðkenni hennar á grundvelli trúverðugleikamats. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að A sé fæddur hér á landi og að því virtu sé það mat stofnunarinnar að það hafi verið sannað með fullnægjandi hætti hver hann sé. Verður ekki annað séð af ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda en að stofnunin hafi lagt til grundvallar að kærandi sé ríkisborgari Nígeríu. Fyrir kærunefnd lagði kærandi fram ljósmynd af afriti af kennisíðu vegabréfs. Kærunefnd hefur ekki forsendur til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi og barn hennar séu nígerískir ríkisborgarar. Að öðru leyti er auðkenni kæranda óljóst.

Réttarstaða barns kæranda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Report 2017/18 – Nigeria (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, 28. mars 2019);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Medical and Healthcare issues (U.K. Home Office, janúar 2020);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, 4. júlí 2019);
  • Country Background Note – Nigeria (U.K. Home Office, janúar 2020);
  • Country Information and Guidance – Nigeria – Women fearing gender-based harm or violence (U.K. Home Office, ágúst 2016);
  • Gender in Nigeria Report 2012 – Improving the lives of girls and women in Nigeria (British Council Nigeria, 2012);
  • EASO COI Meeting Report – Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 – Rome (European Asylum Support Office, 1. ágúst 2017);
  • EASO Country Guidance – Nigeria – Guidance note and common analysis (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
  • EASO Country of Origin Information Report – Nigeria – Actors of Protection (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO Country of Origin Information Report – Nigeria – Country Focus (European Asylum Support Office, júní 2017);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Security Situation (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Sex trafficking of women (European Asylum Support Office, október 2015);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Targeting of individuals (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • Freedom in the World 2019 – Nigeria (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • Information on trafficking including, situation for returnees of previous trafficking and risk og re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
  • Nigeria 2018 Human Rights Report (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  • Nigeria 2019 Human Rights Report (U.S. Department of State, 11. mars 2020);
  • Nigeria 2018 International Religious Freedom Report (U.S. Department of State, maí 2019);
  • Nigeria: People with mental health conditions chained, abused (Human Rights Watch, 11. nóvember 2019);
  • Mental health disorders in Nigeria: A highly neglected disease (Ann Nigerian Med, 15. maí 2017);
  • The World Factbook – Nigeria (Central Intelligence Agency, 20. apríl 2020);
  • Nigeria: Returforhold for kvinner som har arbeidet i prostitusjon i Europa (Landinfo, 20. mars 2017) og
  • World Report 2020 – Nigeria (Human Rights Watch, janúar 2020).

Nígería er sambandslýðveldi með rúmlega 203 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna frá árinu 2019 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslímar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslímar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslímar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta.

Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sem gefin var út í mars sl. búi yfir 250 mismunandi þjóðarbrot í Nígeríu. Þrjú stærstu þjóðarbrotin séu Hausa, Igbo og Yoruba, en saman myndi þau um helming íbúafjölda landsins. Meðlimir úr öllum þjóðarbrotum hafi orðið fyrirmismunun en mismununin hafi einkum birts í ráðningum innan einkageirans og hverfaskiptingu í þéttbýli. Fram kemur að spenna milli ákveðinna þjóðarbrota í Nígeríu eigi sér langa sögu. Stjórnvöld í Nígeríu hafi gert tilraunir til að sporna við slíkri mismunun og hafi slíkar tilraunir yfirleitt samanstaðið af öryggisaðgerðum, þar á meðal lögregluaðgerðum og aðgerðum á vegum hersins. Lög í Nígeríu banni mismunun á grundvelli þjóðarbrots. Engu að síður hafi aðilar flestra þjóðarbrota greint frá því að vera jaðarsettir þegar komi að fulltrúum í stjórnmálum landsins og/eða tekjuúthlutun stjórnvalda. Samkvæmt ofangreindum gögnum séu flestir af Igbo þjóðarbrotinu búsettir í suðaustur hluta landsins.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslu EASO frá 2017 séu nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá hafi mannréttindasamtök greint frá því að u.þ.b. 100.000 lögregluþjónar hafi veitt efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu, auk þess sem þjálfun á lögreglumönnum sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar en þó tíðkist í miklum mæli að leysa slík mál á óformlegan hátt. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Mútuþægni sé víðfeðmur vandi í ríkinu og samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2018 hafi stofnanir sem annist kvörtunarmál í ríkinu greint frá uppsögnum lægra settra lögreglumanna vegna kvartana almennings um fjárkúganir af hálfu lögreglu. Þó hafi fá mál verið rannsökuð eða farið fyrir dómstóla. Fram komi í ofangreindum gögnum að töluverð spilling sé innan dómskerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó komi fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2017 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu standi þeim sem óttist einstaklinga sem starfi ekki fyrir ríkið almennt til boða skilvirk vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu og er almennt talið að um sé að ræða skilvirkt úrræði fyrir borgara Nígeríu. Þá kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá mars 2019 að opinberar eftirlitsnefndir (The National Human Rights Commission (NHRC) og The Public Complaints Commission) hafi eftirlit með störfum dómstóla landsins og nígeríska lögregluráðið (e. The Nigerian Police Council) og framkvæmdarstjórn lögreglunnar (e. Police Service Commission) hafi eftirlit með störfum lögreglunnar.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í júlí 2019 komi fram að Nígería sé upprunaland, viðkomustaður og áfangastaður mansals og nauðungarvinnu. Flestir þolendur mansals komi frá borginni Benín í Edo fylki. Fram komi að nígerísk stjórnvöld uppfylli ekki enn lágmarksviðmið ríkja vegna baráttu gegn mansali en hafi þó tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og koma í veg fyrir mansal. Gerðar hafi verið ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök löggjöf sett til að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal. Þá hafi stjórnvöld þjálfað lögreglulið landsins, starfsmenn ríkisins og stofnanir til að gera þeim betur kleift að rannsaka, sækja til saka og sakfella gerendur mansals. Árið 2003 hafi tekið gildi lög sem komu stofnuninni NAPTIP (e. the National Agency for the Prohibition of Traffic in Persons and Other Related Matters) á laggirnar. Markmið NAPTIP sé að vekja athygli á málefninu, fræða þjóðina og með þeim hætti að reyna að koma í veg fyrir frekara mansal, vernda þolendur mansals ásamt því að sækja gerendur til saka. Einnig hafi verið samþykkt sérstök lög gegn mansali árið 2015 en þau hafi gert það refsivert að stunda mansal og mæli ennfremur fyrir um fangelsisvist allt að fimmtán árum fyrir brot gegn þeim. Starf NAPTIP felist í því að stuðla að framfylgni laga og reglugerða gegn mansali í Nígeríu, rannsaka mansalsmál og fræða og efla lögreglu og aðra aðila sem komi að upprætingu mansals í Nígeríu. Einnig aðstoði stofnunin þolendur mansals með því að veita þeim skjól, ráðgjöf, hafa uppi á fjölskyldumeðlimum þeirra, aðstoða við heimkomu og aðlögun að samfélaginu á ný. Samkvæmt skýrslu Landinfo hafi NAPTIP þekkingu og reynslu af því að sinna þolendum mansals sem eigi börn. NAPTIP hafi til umráða húsnæði fyrir þolendur mansals í borgunum Abuja, Lagos, Benín, Uyo, Enugu, Kano, Sokoto, Maiduguri og Markudi. Þá komi fram í skýrslu frá EASO að dvöl í húsnæði NAPTIP sé ekki langtímalausn og dvelji þolendur þar í um tvær til sex vikur. Hafi NAPTIP unnið með frjálsum félagasamtökum sem geti útvegað þolendum mansals langtímahúsnæði. Þá verði konur sem dvelji hjá NAPTIP einatt útskúfaðar úr samfélaginu þar sem gert sé ráð fyrir að þær hafi unnið við vændi erlendis. Af þeim sökum hafi NAPTIP reynt að senda konur eins fljótt og verða megi til fjölskyldu sinnar eða í annað húsnæði. Skortur á fjármagni takmarki getu NAPTIP og frjálsra félagasamtaka við að aðstoða þolendur mansals við að aðlagast samfélaginu og standa á eigin fótum. Nígerísk yfirvöld hafi komið til móts við umræddan fjárskort hjá NAPTIP og veitt þolendum mansals fjárstyrk sem aðstoði við aðlögun að samfélaginu. Þolendur mansals séu líklegri til þess að sæta endurteknu mansali heldur en að sæta líkamlegu ofbeldi í hefndaraðgerðum. Lögreglan í ríkinu hafi þó almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn.

Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sem gefin var út í mars sl. komi fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunum þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimili við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú í mörgum tilfellum að konur erfi ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi allslausar við fráfall þeirra. Þá er kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og eru ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Það sé engin alhliða löggjöf sem verndi konur gegn kynbundnu ofbeldi í Nígeríu en einhver fylki, aðallega í suðurhluta Nígeríu, séu með löggjöf sem eigi að veita vernd gegn tilteknu kynbundnu ofbeldi.

Fram kemur í ofangreindum gögnum að ofbeldi gagnvart börnum sé útbreitt í Nígeríu. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafi unnið í samvinnu með yfirvöldum í Nígeríu, m.a. við að bæta lagaumgjörð um vernd barna gegn ofbeldi, breyta viðurkenndum félagsháttum sem feli í sér hættulegar hefðir líkt og kynfæralimlestingar og barnahjónabönd, auk þess sem unnið hafi verið að styrkingu félagslegrar þjónustu og barnaverndarstarfs þar í landi. Þá hafi yfirvöld samþykkt aðgerðaáætlun, National Strategy to End Child Marriage in Nigeria (2016-2021) með það að markmiði að útrýma barnahjónaböndum fyrir árið 2030. Jafnframt vinni yfirvöld hörðum höndum að aðgerðaáætlun sem feli m.a. í sér forvarnarstarf meðal ráðuneyta og stofnana með það að markmiði að stöðva ofbeldi gagnvart börnum. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að Nígería hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991 og stofnskrá Afríkusambandsins um velferð og réttindi barnsins (e. The African Charter on the Rights and Welfare of the Child) árið 2000. Hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt árið 2003 lög um réttindi barnsins (e. the Child Rights Act) og tóku þau gildi sama ár. Þar sem Nígería sé sambandslýðveldi sé ekki nóg að þjóðþingið samþykki löggjöfina heldur þurfi bæði fylkisþing og landstjóri hvers fylkis að samþykkja lagasetninguna til þess að hún taki gildi í hverju fylki. Árið 2019 hafi 24 fylki af 36 tekið lögin í gildi og séu flest þeirra í suðurhluta Nígeríu m.a. Edo fylki. Lögin kveði á um að allar ákvarðanir eða ráðstafanir er varða börn skuli byggðar á því sem sé barninu fyrir bestu. Í lögunum komi einnig fram að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar og heilbrigðisþjónustu. Árið 2004 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf sem kveði á um ókeypis grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme). Hafi þessi nýjung verið leidd í lög með því markmiði að fjölga nemendum í grunnskóla og koma á fót ókeypis og skyldubundnu skólakerfi fyrir öll börn í Nígeríu.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því janúar 2020 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan- og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stigið sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins feli í sér almenna heilbrigðisþjónustu fyrir borgara Nígeríu og fái jafnframt minnsta fjármagnið af stigunum þremur. Því sé almenn heilbrigðisþjónusta almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Þá komi fram í tímaritsgrein frá árinu 2010 að talið sé að allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í janúar 2020 kemur fram að í Nígeríu séu átta sjúkrahús sem sérhæfð séu í taugageðlækningum staðsett víðsvegar um landið. Geðdeildir séu jafnframt á öllum háskólasjúkrahúsum, auk þess sem starfrækt séu sex opinber geðsjúkrahús í mismunandi fylkjum í landinu. Þá kemur fram að meðferð við geðsjúkdómum sé aðgengileg á almennum sjúkrahúsum og í Nígeríu sé meðferð í boði við öllum geðsjúkdómum. Um 300 geðlæknar starfi í Nígeríu en skortur virðist vera á geðheilbrigðisstarfsfólki og fjöldi þeirra ekki í samræmi við íbúafjölda landsins. Almennir heilbrigðisstarfsmenn hafi þó fengið þjálfun í greiningu algengra geðsjúkdóma og á fjölda opinberra og einkarekinna sjúkrahúsa hafi sjúklingar aðgengi að geðlæknum, geðhjúkrunarfræðingum og sálfræðingum, ráðgjöf og lyfjameðferð. Þá sé einnig boðið upp á meðferð í búsetuúrræðum og heimaþjónustu. Veruleg misskipting sé á fjölda geðheilbrigðisstarfsfólks milli landshluta en talið sé að norðaustur hluti landsins eigi undir högg að sækja hvað það varðar samanborið við aðra landshluta. Geðræn veikindi séu þó ennþá fordæmd í Nígeríu og fjölskyldur eigi það til að fela veikindin eða telji þau stafa af bölvunum eða göldrum. Í skýrslu frá EASO komi einnig fram að andlega veikir einstaklingar verði fyrir mismunun og félagslegri skömm og að flestir þeirra njóti engrar heilbrigðisaðstoðar. Þá bera gögnin einnig með sér að andlega veikir einstaklingar hafi verið lokaðir inni á stofnunum og orðið fyrir alvarlegri misnotkun. Slíkum stofnunum hafi þó í einhverjum mæli verið lokað af lögreglu.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir sem rekja megi til aðildar hennar að tilteknum þjóðfélagshópi sem kona og sem þolandi mansals. Þá hafi hún ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna þjóðernis síns þar sem hún sé af Igbo uppruna. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi jafnframt frá því að hún óttist að frændi hennar muni beita hana ofbeldi ásamt því að hann muni vinna A mein og jafnvel taka þau af lífi vegna erfðaréttar. Í viðtali hjá kærunefndinni greindi kærandi frá því að sonur hennar eigi tilkall til landssvæðis í Imo fylki sem frændi hennar eigi núna. Aðspurð í viðtalinu kvaðst kærandi ekki geta náð landinu frá honum.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, viðtali hjá kærunefnd, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki hennar.

Með vísan til þess sem fram hefur komið í málinu fellst kærunefnd á að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi hafi verið þolandi mansals og verið neydd til að stunda vændi á Ítalíu. Kærunefnd telur jafnframt ekki ástæðu til þess að draga í efa frásögn kæranda um að hún sé af Igbo uppruna.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hún óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í Nígeríu sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi og barn hennar eigi þær á hættu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að konan (maddaman) sem hafi þvingað hana í mansal og hún skuldi pening geti haft uppi á henni í Nígeríu. Greindi kærandi jafnframt frá því að konan þekki til frænda hennar í Nígeríu og geti fengið upplýsingar um hvar kærandi sé niðurkomin. Kærandi óttist m.a. um líf sitt. Kærandi greindi jafnframt frá því að ekki sé hægt að leita til lögreglu í Nígeríu þar sem lögreglan aðstoði einungis fólk sem greiði mútufé. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að þrátt fyrir að þolendur mansals geti átt erfitt uppdráttar við endurkomu til Nígeríu verði þeir almennt ekki fyrir ofsóknum við heimkomu. Þá sé mansal refsivert í Nígeríu og hafi lögregluyfirvöld og stofnunin NAPTIP almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þó þolendur standi enn í skuld við smyglara sinn. Verður að líta til þess að til staðar séu innviðir í heimaríki sem sérhæfi sig í þjónustu og aðstoð við þolendur mansals. Við mat á því hvort konur hafi almennt ástæðuríkan ótta við að vera þvingaðar í endurtekið mansal skal samkvæmt ofangreindum skýrslum, m.a. líta til þess hversu mikið smyglarinn viti um bakgrunn konunnar og fjölskyldu hennar, hvort að fjölskylda konunnar hafi tekið þátt í smyglinu og hvort að konan hafi borið vitni gegn smyglaranum. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vinkona hennar hafi sagt sér frá smyglaranum sem kæmi fólki til Evrópu. Þá má ráða af framburði kæranda að frændi hennar hafi ekki tekið þátt í smyglinu eða að kærandi hafi borið vitni gegn umræddri konu. Kærandi kvaðst hafa yfirgefið maddömuna árið 2014 og aðeins greitt henni til baka skuldina eftir hentugleika frá þeim tíma án vandkvæða. Þá hafi hún hætt að greiða maddömunni og hætt að svara símtölum frá henni þegar hún hafi orðið ólétt af syni sínum árið 2018. Verður ekki ráðið af frásögn kæranda að maddaman eða aðilar á vegum hennar hafi reynt að hafa uppi á kæranda á þessum tíma og verður því ekki lagt til grundvallar að kærandi stafi slík ógn af henni eða að staða maddömunnar sé slík í Nígeríu að kærandi geti ekki leitað aðstoðar yfirvalda telji hún þörf á því. Með vísan til þess sem fram hefur komið telur kærunefnd að kærandi hafi ekki leitt líkur að því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Það er því mat kærunefndar að kærandi eigi þess kost að leita aðstoðar og verndar yfirvalda, bæði hjá stofnuninni NAPTIP og lögreglu. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að borgurum landsins standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Er það því mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kæranda og barni hennar vernd gegn þeim athöfnum sem kærandi telur þeim stafa hætta af, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi því raunhæfa möguleika á að leita ásjár stjórnvalda í heimaríki sínu, m.a. vegna ótta við smyglara og ágreinings við frænda sinn, telji hún sig þurfa þess.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera af Igbo uppruna. Greindi kærandi jafnframt frá því að það að vera af Igbo uppruna hafi ekki haft áhrif á hana þegar hún hafi búið í Benín borg, en þar hafi verið friðsælt. Eins og fyrr greinir er Igbo eitt af þremur stærstu þjóðarbrotunum í Nígeríu og eru flestir af Igbo uppruna búsettir í suðaustur hluta landsins. Imo fylki, þar sem kærandi greindi frá að hafa verið búsett um tíma, er í suðaustur hluta landsins og um 200 kílómetra frá Edo fylki eða Benín borg þar sem kærandi kvaðst hafa búið mest allt sitt líf í Nígeríu. Með vísan til þess sem fram hefur komið telur kærunefnd að kærandi hafi ekki leitt líkur á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir sem rekja megi til þjóðernis hennar.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í ljósi ungs aldurs A taldi Útlendingastofnun ekki þörf á að taka viðtal við hann. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni A samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum A nægilega komið á framfæri með framburði kæranda og hagsmunagæslu talsmanns. Horfir kærunefnd m.a. til þess að barn það sem um ræðir er í fylgd móður sinnar og nýtur stuðnings hennar. Líkt og áður greinir stendur barni kæranda til boða gjaldfrjáls grunnskólamenntun í heimaríki þeirra. Þá beri gögn með sér að barnið muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Það er þá mat kærunefndar að aðstæður barns kæranda, þ.e. að hafa ekki komið til Nígeríu, komi eitt og sér ekki í veg fyrir að það fylgi móðir sinni til heimaríkis þeirra. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að aðstæður A verði ekki taldar slíkar að honum skuli vera veitt vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún og barn hennar hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37.gr. laga um útlendinga.

Telur kærunefndin því ljóst að kærandi og barn hennar uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður kæranda og barns hennar þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi og barn hennar uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi og barn hennar uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Þannig komi til greina að minni kröfur séu gerðar til að börn njóti verndar og fái dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. ef þau fá ekki alþjóðlega vernd samkvæmt umsókn eða eigi ekki rétt á dvalarleyfi á öðrum grundvelli. Í samræmi við framkvæmd annars staðar sé einnig tekið tillit til þess hvernig aðstæður í heimalandi séu, þ.m.t. hvort framfærsla barns sé örugg. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, telur kærunefnd ljóst að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunni að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væri ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Meðal gagna málsins eru komunótur frá Göngudeild sóttvarna, dags. 14. janúar 2019 til 30. júlí 2019 og göngudeildarnóta frá Landspítala dags. 4. júní 2020, þar sem m.a. kemur fram að kærandi sé almennt heilbrigð en hún hafi verið greind með insúlínháða sykursýki og sé á lyfjum vegna þess. Þá eru vottorð frá sálfræðingum teymis Reykjavíkurborgar fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd meðal gagna málsins en í vottorði sálfræðings dags. 27. nóvember 2019 kemur m.a. fram að það sem liggi þyngst á kæranda sé að fá ekki að hitta dóttur barnsföður síns sem kom með henni til Íslands. Þá kemur einnig fram að kærandi hafi mikla þörf fyrir andlegan og félagslegan stuðning. Í vottorði sálfræðings dags. 30. janúar 2020 kemur m.a. fram að kærandi hafi fengið mikinn stuðning og fræðslu frá ljósmóður og stuðningsþjónustu teymisins þar sem erfitt hafi reynst að fá hana til að tileinka sér fræðslu og ráð. Þá kemur jafnframt fram að sálfræðingur telji þörf á nánara sálfræðilegu mati, m.a. til að meta þroska hennar og færnimat til að tryggja öryggis barnsins, velferð og þroska. Í sálfræðimati sálfræðings hjá Domus Mentis geðheilsustöð dags. 14. apríl 2020, sem kærunefnd óskaði eftir að færi fram, kemur m.a. fram að kærandi búi yfir mörgum styrkleikum og svör hennar á sjálfsmatslistum og viðtölum hafi gefið til kynna að hún glími ekki við klínískan vanda. Þá sé það mat sálfræðings að ef kærandi búi við öryggi og fyrirsjáanleika þá geti hún án mikils stuðnings skapað sér og syni sínum gott líf. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar standi íbúum Nígeríu almennt heilbrigðisþjónusta til boða ef á þarf að halda þrátt fyrir að aðgengi kunni að vera takmarkað á ákveðnum svæðum. Aðgengi að heilbrigðisþjónustu í þéttbýli sé talsvert betra en á strjálbýlli svæðum og þá sé aðgengi að heilbrigðisþjónustu betra í suðurhluta landsins en norðurhluta þess. Liggur fyrir að kærandi var búsett í Benín borg í suðurhluta Nígeríu. Af framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd vegna heilbrigðisástæðna.

Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Kærandi byggir á því að hennar og barni hennar bíði erfiðar félagslegar aðstæður í heimaríki vegna þess að kærandi sé einstæð móðir og fái hvorki aðstoð né stuðning frá yfirvöldum eða fjölskyldu. Þrátt fyrir að hún sé í sambandi með barnsföður sínum þá sé hann búsettur á Ítalíu og hún og sonur hennar fái engan stuðning frá honum. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun og kærunefnd að samband hennar og barnsföður hennar hafi verið misjafnt og að hún hafi aðeins búið með honum í nokkra mánuði eftir að hún varð ólétt og áður en hún hafi komið hingað til lands þann 2. janúar 2019. Hún telji hann ekki munu geta aðstoðað hana við framfærslu barns síns og því hafi hún ákveðið að koma hingað til lands. Þau séu ekki gift og fjölskyldu hans líki illa við hana vegna ættbálks hennar og kærandi telji að hann muni ekki fylgja henni og barni þeirra til Nígeríu og styðja við þau þar. Kærandi hafi ekki verið í Nígeríu síðustu tíu ár og hafi aldrei unnið hefðbundna vinnu á ævi sinni. Kærandi hafi jafnframt greint frá því að hún hafi litla sem enga menntun eða tækifæri til að framfæra sér og barni sínu. Þá óttist hún að hún myndi þurfa að gefa hann frá sér á munaðarleysingjaheimili þar sem hún muni ekki geta tryggt öryggi hans og velferð.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. janúar 2020, kemur fram að kærandi sé með dvalarleyfi á Ítalíu og sé í sambúð með barnsföður sínum og geti þau kosið að sameinast á Ítalíu eða Nígeríu kjósi þau þess. Þann 20. febrúar 2020 óskaði kærunefnd eftir því við Útlendingastofnun að haft yrði samband við ítölsk stjórnvöld til þess að fá upplýsingar um hver staða kæranda væri á Ítalíu þar sem í gögnum málsins virtist ekki vera svar frá ítölskum stjórnvöldum varðandi stöðu kæranda þar í landi. Lá því einungis framburður kæranda fyrir því að hún væri handhafi dvalarleyfis á Ítalíu. Þann 20. mars 2020 barst kærunefnd svar ítalskra stjórnvalda þar sem fram kom að kæranda hafi verið veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða þar í landi en dvalarleyfið hafi fallið úr gildi þann 9. júní 2017. Kærandi hafi sótt um endurnýjun en vegna fjarveru hafi umsókninni verið synjað af ítölskum stjórnvöldum. Aðspurð í viðtali hjá kærunefnd kvaðst kærandi ekki hafa vitneskju um að dvalarleyfi hennar á Ítalíu væri fallið úr gildi. Í ljósi þessa upplýsinga telur kærunefnd ekki hægt að ganga að því vísu að kærandi og barn hennar geti sameinast föður barnsins á Ítalíu, líkt og gert er ráð fyrir í ákvörðun Útlendingastofnunar.

Kærunefnd telur ennfremur ekki ástæðu til að draga í efa frásögn kæranda um að hún muni ekki njóta stuðnings fjölskyldu eða maka í heimaríki. Þær skýrslur og gögn sem að kærunefnd hefur yfirfarið um heimaríki kæranda benda til þess að þrátt fyrir vilja yfirvalda til að bæta aðstæður kvenna í Nígeríu geti verið á brattan að sækja fyrir einstæðar konur þar í landi. Efnahagsleg mismunun á grundvelli kynferðis sé landlægt vandamál og mikilvægt sé að konur njóti stuðnings fjölskyldu sinnar eða maka. Einnig sé félagslega kerfið í heimaríki kæranda veikt og einstæðar konur séu útsettari fyrir ofbeldi en aðrar. Kærandi er stödd hér á landi einsömul ásamt ungu barni sínu, en A fæddist hér á landi og hefur aldrei hitt föður sinn eða komið til Nígeríu. Í ljósi þess að kærandi hafi ekkert bakland í heimaríki sínu og ekki er hægt að ganga að því gefnu að að hún muni njóta stuðnings barnsföður síns sem staddur sé á Ítalíu, er það mat kærunefndar að staða barnsins í heimaríki sé óljós m.a. með tilliti til framfærslu hans og húsnæðis. Er það mat kærunefndar að kærandi hafi sýnt fram á að hún og barn hennar muni búa við afar bágar og erfiðar félagslegar aðstæður verði þau send til heimaríkis.

Að öllu framangreindu virtu, og með vísan til mats á hagsmunum A, sbr. 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, er það niðurstaða kærunefndarinnar að veita beri kæranda og barni hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 74. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barns hennar að því er varðar synjun á umsóknum um alþjóðlega vernd. Lagt verður fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda og barni dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 74. gr. laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð

Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda og barni hennar dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Ákvarðanir Útlendingastofnunar hvað varðar umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd eru staðfestar.

The Directorate is instructed to issue the appellants and her child residence permits based on Article 74 of the Act on Foreigners no. 80/2016. The decisions of the Directorate of Immigration with regard to the appellant and her child applications for international protection are affirmed.

 

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Bjarnveig Eiríksdóttir                              Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta