Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 5/2015.  Ákvörðun kærunefnda útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 20. maí 2015

í máli nr. 5/2015:

Jarðlist ehf.

gegn

Ríkiskaupum og

Borgarverki ehf.

Með kæru 4. maí 2015 kærir Jarðlist ehf. útboð varnaraðila Ríkiskaupa nr. 15586 auðkennt „Gjögurflugvöllur. Endurbætur 2015“. Kærandi krefst að kærunefnd útboðsmála stöðvi fyrirhugða samningsgerð um stundarsakir. Þess er jafnframt krafist að kærunefnd „leggi fyrir kærða að ganga til samninga við kæranda vegna þjónustu sem boðin var út“ í hinu kærða útboði. Til vara er þess krafist að kærunefnd ógildi útboðið og leggi fyrir Ríkiskaup „að bjóða út þjónustuna að nýju“. Til þrautavara er þess krafist að kærunefnd láti í té álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila Ríkiskaupa. Auk þess er krafist málskostnaðar. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu varnaraðila um afléttingu sjálfkrafa banns við samningsgerð samkvæmt 1. mgr. 94. gr. a. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup, sbr. 12. gr. laga nr. 58/2013, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

            Mál þetta lýtur að fyrrgreindu útboði Ríkiskaupa um endurbætur á Gjögurflugvelli. Af grein 0.1.4 í útboðsgögnum verður ráðið að verkið felist í því að fjarlægja núverandi slitlag, rétta af þversnið, leggja burðarlag og tvöfalda klæðningu á flugbraut, akbraut og snúningsplön við enda flugbrautar á flugvellinum að Gjögri. Einnig að leggja styrktarlag, afréttingarlag og malarslitlag á tiltekin svæði auk þess að setja út fyrir merkingum á flugbraut. Þá kom fram í grein 0.1.3 að bjóðendur skyldu uppfylla a.m.k. annað af tveimur skilyrðum um tæknilega getu; „að hafa unnið a.m.k. eitt verkefni svipaðs eðlis fyrir verkkaupa eða annan aðila á sl. 5 árum eða tilgreindur yfirstjórnandi (verkefnisstjóri/verkstjóri) stjórnað slíku verki.“ Fyrir liggur að þrjú tilboð bárust í verkið, þ.á m. frá kæranda, sem átti lægsta tilboðið. Varnaraðili Borgarverk ehf. átti næst lægsta tilboðið. Með tölvupósti 21. apríl 2015 var kæranda tilkynnt að hann uppfyllti ekki kröfur greinar 0.1.3. í útboðsgögnum um tæknilegt hæfi. Í rökstuðningi varnaraðila 29. apríl sl. kom fram að tilboði kæranda hefði verið hafnað sem ógildu þar sem ekkert af þeim verkum sem tiltekin voru á ferilskrá kæranda væru sambærileg eða svipuð að eðli og það verk sem boðið var út. Liggur fyrir að varnaraðili hefur ákveðið að ganga til samninga við Borgarverk ehf. um verkið.  

Kröfur kæranda byggja í meginatriðum á því að hann hafi uppfyllt skilyrði útboðsgagna um tæknilega getu. Ekki hafi verið unnið við slitlagsskipti á flugvelli á Íslandi, eins og þau sem útboðsgögn lýsi, á síðustu fimm árum og því verði að túlka vísun til eðlislíkra verkefna í grein 0.1.3. í útboðsgögnum rúmt. Þá hafi verið miklir annmarkar á mati kærða á tilboðum í útboðinu og því beri að víkja skilyrðum um tæknilega getu til hliðar og taka lægsta tilboði eða bjóða út að nýju.

Niðurstaða

Í máli þessu er kærð sú ákvörðun varnaraðila Ríkiskaupa frá 25. apríl 2015 að hafna tilboði kæranda í útboðinu og ganga til samninga við Borgarverk ehf. Verður því að miða við að komist hafi á sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 94. gr. a. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup, sbr. 12. gr. laga nr. 58/2013. Er því ekki tilefni til að taka til greina kröfu kæranda um að samningsgerð beggja varnaraðila verði stöðvuð um stundarsakir samkvæmt 1. mgr. 96. gr. sömu laga.

Í grein 0.1.3 í útboðsgögnum er gerð sú krafa að bjóðandi skuli hafa unnið a.m.k. eitt verkefni svipaðs eðlis og það sem boðið var út fyrir verkkaupa eða annan aðila á síðastliðnum 5 árum eða tilgreindur yfirstjórnandi skuli hafa stjórnað slíku verki. Ekki er að finna skilgreiningu á því í útboðsgögnum hvenær verk teljist „svipað eðlis“ en leggja verður til grundvallar, eins og hér stendur á, að í þessu felist að bjóðendur eða yfirstjórnendur þeirra hafi reynslu af verkum sem felist í því að fjarlægja og leggja slitlag eins og nánar er lýst í útboðsgögnum. Af lista kæranda yfir sambærileg verk, sem fylgdi tilboði hans, verður ráðið að bjóðandi hafi unnið við vetrarþjónustu á Holtavörðuheiði, sandskipti í Reykjavík og hrunvarnir við Hvalnesskriður. Verður ekki talið að verk þessi séu svipaðs eðlis og verk það sem boðið var út í hinu kærða útboði. Þá verður ekki séð að verulegir annmarkar hafi verið á mati Ríkiskaupa á tilboðum í útboðinu að öðru leyti líkt og kærandi heldur fram.

Að öllu framangreindu virtu er það álit nefndarinnar, eins og mál þetta liggur fyrir nú, að ekki hafi verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup sem leitt geti til ógildingar ákvarðana eða annarra athafna varnaraðila samkvæmt 1. mgr. 96. gr. laga um opinber innkaup, sbr. 15. gr. laga nr. 58/2013. Verður því fallist á kröfu varnaraðila um að stöðvun samningsgerðar verði aflétt samkvæmt 2. mgr. 94. gr. a. laga um opinber innkaup, sbr. 12. gr. laga nr. 58/2013.

Ákvörðunarorð:

Aflétt er stöðvun samningsgerðar vegna útboðs Ríkiskaupa nr. 15586 auðkennt „Gjögurflugvöllur. Endurbætur 2015“.

                                                                                        Reykjavík, 20. maí 2015

                                                                                        Skúli Magnússon

                                                                                        Ásgerður Ragnarsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta