Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 365/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 18. október 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 365/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16070007

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 7. júlí 2016 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. júní 2016, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Ítalíu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin).

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 20. maí 2016. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í [...]. Þar sem kærandi hafði áður fengið vegabréfsáritun frá Ítalíu var beiðni um viðtöku send yfirvöldum þar í landi þann 23. maí 2016 á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 7. júní 2016 barst svar frá ítölskum yfirvöldum þar sem beiðni um viðtöku var samþykkt. Kærandi mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun ásamt talsmanni sínum þann 10. júní 2016. Útlendingastofnun ákvað þann 29. júní 2016 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Kærandi kærði ákvörðun Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála við birtingu þann 7. júlí sl. Samdægurs óskaði kærandi eftir frestun réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar. Með bréfi, dags. 7. júlí 2016, féllst kærunefnd á frestun réttaráhrifa meðan málið væri til meðferðar. Kærunefnd útlendingamála barst greinargerð kæranda, dags. 19. júlí 2016. Leiðrétt greinargerð kæranda barst þann 8. ágúst 2016.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að ítölsk yfirvöld hafi samþykkt endurviðtöku á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, enda hafi kærandi fengið útgefna vegabréfsáritun þar í landi.

Í viðtali við kæranda hjá Útlendingastofnun kom fram að hann vilji ekki fara aftur til Ítalíu. Að sögn kæranda hafi hann ekkert að sækja þangað, hvorki vinnu né húsnæði. Kærandi hafi ákveðið að sækja ekki um hæli á Ítalíu vegna slæmra aðstæðna í hæliskerfinu. Aðspurður um heilsufar sitt kvaðst kærandi vera við góða líkamlega og andlega heilsu. Við meðferð málsins lagði kærandi fram fjölda gagna, m.a. um menntun og starfsreynslu sína.

Í niðurstöðu Útlendingastofnunar er rakið að ítölsk yfirvöld hafi verið gagnrýnd vegna þess aðbúnaðar sem hælisleitendur þurfi að búa við, t.a.m. vegna húsnæðisskorts. Er m.a. vísað til þess að samkvæmt skýrslu norsku flóttamannastofnunarinnar sé mælt með því að aðildarríki Dyflinnarreglugerðarinnar endursendi ekki viðkvæma einstaklinga til Ítalíu nema gengið sé úr skugga um að þeir muni hljóta viðeigandi meðferð þar í landi. Þessu næst tekur Útlendingastofnun fram að kærandi sé [...] sem hafi ekki sætt ofsóknum eða pyndingum svo vitað sé. Með hliðsjón af greinargerð innanríkisráðuneytisins um endursendingar til Ítalíu teljist kærandi því ekki einstaklingur í viðkvæmri stöðu.

Útlendingastofnun fjallar um ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013. Þar hafi dómstóllinn slegið því föstu að 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu leggi ekki skyldu á aðildarríki að sjá öllum sem dvelja innan lögsögu þeirra fyrir húsnæði og ekki almenna skyldu á aðildarríki til að veita viðurkenndum flóttamönnum fjárhagsaðstoð í því skyni að gera þeim kleift að viðhalda tilteknum lífskjörum.

Í niðurstöðu Útlendingastofnunar er aðbúnaði hælisleitanda í svokölluðum SPRAR heimilum gerð skil auk þess sem raktar eru breytingar á tilskipun 2013/33/ESB um móttökuaðstæður hælisleitenda og tilskipun 2013/32/ESB um samræmda málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þessar breytingar hafi verið innleiddar í ítalskan rétt 15. september 2015. Þá hafi einnig verið gerðar breytingar á reglum um móttökustöðvar á Ítalíu.

Að mati Útlendingastofnunar bendi engin gögn til þess að slíkur kerfisbundinn galli sé á aðbúnaði og meðferð hælisleitenda á Ítalíu sem leiði til þess að kærandi standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð þar í landi, kjósi hann að sækja um hæli. Leggur Útlendingastofnun til grundvallar að málsmeðferð stjórnvalda á Ítalíu í þessu sambandi sé í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar sem Ítalía og önnur ríki hafi gengist undir að framfylgja við afgreiðslu hælisumsókna. Því bendi ekkert til þess að flutningur kæranda til Ítalíu brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga.

Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu heldur ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga skyldi senda kæranda til Ítalíu.

Varðandi andmæli kæranda um húsnæðisskort og kynþáttafordóma á Ítalíu kvað Útlendingastofnun kæranda eiga rétt á húsnæði við komuna til Ítalíu samkvæmt ítölskum lögum. Þá kvað stofnunin kæranda eiga raunhæfa möguleika á að leita sér verndar af hálfu lögreglu og yfirvalda, telji hann sig verða fyrir einhvers konar áreiti eða fordómum.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi ákveðið að sækja ekki um hæli á Ítalíu vegna slæmra aðstæðna í hæliskerfi landsins. Kærandi kveður hæliskerfið vera yfirfullt og að á Ítalíu sé hvorki hægt að fá vinnu né húsnæði. Þá kveðst kærandi óttast um líf sitt á Ítalíu vegna mikils kynþáttahaturs í garð [...] einstaklinga þar í landi.

Í greinargerð kæranda er fjallað um svokallað „fullveldisákvæði“ 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar sem feli í sér almenna heimild fyrir aðildarríki til að taka til efnismeðferðar umsókn um hæli jafnvel þótt viðkomandi ríki beri ekki ábyrgð á umsókninni samkvæmt viðmiðunum reglugerðarinnar. Kærandi byggir á því að aðbúnaður í hæliskerfi Ítalíu og aðstæður þar í landi varðandi t.a.m. kynþáttahyggju, atvinnu, húsnæði og félagslega þjónustu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þannig sé óheimilt að senda kæranda til Ítalíu vegna 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga, þar sem mælt sé fyrir um bann við því að senda útlending til svæðis þar sem hann sé í yfirvofandi hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.

Kærandi fjallar um tillögur Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá mars 2015 vegna flóttamanna og hælisleitenda í Evrópu. Þar komi m.a. fram að Flóttamannastofnun leggi til að aðildarríki að Dyflinnarreglugerðinni beiti reglugerðinni til fulls og sé sérstaklega bent á fyrrnefnt ákvæði 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar.

Kærandi bendir á að undanfarin ár hafi gríðarlega mikið álag verið á hæliskerfinu á Ítalíu sem hafi sætt gagnrýni varðandi aðbúnað og aðstæður hælisleitenda frá alþjóðlegum aðilum og Mannréttindadómstól Evrópu. Skýrslur alþjóðlegra aðila bendi enn fremur til þess að kynþáttahatur og mismunun á grundvelli kynþáttar sé að aukast á Ítalíu.

Kærandi fjallar því næst um tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2013/33 frá 26. júní 2013 um kröfur varðandi móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Á grundvelli tilskipunarinnar beri ítölsk stjórnvöld ákveðnar skyldur gagnvart hælisleitendum, þ.m.t. að útvega hælisleitendum húsnæði, mat og föt eða fjárhagsaðstoð til að standa straum af slíkum kostnaði. Eins og áður segir telji kærandi að hann standi frammi fyrir raunverulegri hætti á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu verði hann sendur aftur til Ítalíu. Kærandi telji að íslensk stjórnvöld séu meðvituð um galla í hæliskerfinu á Ítalíu, sbr. t.d. greinargerð innanríkisráðuneytisins um endursendingar til Ítalíu frá desember 2015. Með hliðsjón af framangreindu beri kærunefnd útlendingamála að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi og taka mál kæranda til efnismeðferðar m.a. með vísan til 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og 2. mgr. 46. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að ítölsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort Útlendingastofnun hafi tekið rétta ákvörðun þegar ákveðið var að taka ekki umsókn kæranda um hæli til efnismeðferðar og vísa honum til Ítalíu.

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má heldur ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu getur sú staða komið upp að endursending hælisleitenda til einstakra ríkja geti verið í andstöðu við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu vegna aðstæðna í viðkomandi móttökuríki. Við endursendingar innan Dyflinnarsamstafsins ber aðildarríkjum að leggja sjálfstætt mat á hvort meðferð hælisumsókna og móttaka og aðbúnaður hælisleitenda í móttökuríki sé í samræmi við ákvæði sáttmálans og þá að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Ber því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð á Ítalíu.

Kærunefnd útlendingamála hefur m.a. farið yfir skýrslur um aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu:

  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, desember 2015),

  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013)

  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014),

  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, október 2013),

  • Italy 2015 Human Rights Report (United States Department of State, 13. apríl 2016),

  • Information note, dublin transfers post-Tarakhel: update on European case law and practice (Elenea, European legal network on asylum, október 2015),

  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016),

  • Endursendingar hælisleitenda til Ítalíu, greinargerð innanríkisráðuneytisins í desember 2015 (Innanríkisráðuneytið, desember 2015) og

  • Report by the Special Rapporteur on the human rights of migrants, Francouis Crépeau, on his follow-up mission to Italy (2-6 December 2014) (United Nations General Assembly, 1. maí 2015).

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk yfirvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar hælisleitenda og flóttamanna þar í landi. Hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna meðal annars gagnrýnt skipulag og bolmagn ítalsks hæliskerfis til að taka við skyndilegu og verulegu flæði flóttamanna til landsins. Þá hefur stofnunin einnig gert athugasemdir við brotakennd móttökuskilyrði og aðbúnað hælisleitenda og flóttamanna. Jafnframt hefur Flóttamannastofnun gagnrýnt að aðstoð við sérstaklega viðkvæma hælisleitendur sé oft ófullnægjandi vegna skorts á samhæfingu þjónustuaðila og eftirfylgni. Verður af framangreindu ráðið að ítölsk yfirvöld hafa átt við margvíslegan vanda að etja. Hins vegar hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna ekki lagst gegn flutningi flóttamanna til Ítalíu.

Í september á síðasta ári samþykktu ítölsk stjórnvöld tilskipun (LD 142/2015) sem innleiðir ýmsar betrumbætur á ítalska hæliskerfinu. Opnaðar hafa verið stöðvar með gistirýmum (e. hotspots) þar sem þeir einstaklingar sem koma inn fyrir landamæri Ítalíu eru skráðir og fingraför þeirra eru tekin. Um er að ræða samstarf ítalskra stjórnvalda við m.a. Frontex og Europol og markmiðið með stöðvunum er m.a. að auka skilvirkni í hælismálum. Þeir einstaklingar sem skilgreindir eru sem hælisleitendur eru fluttir frá stöðvunum á svokallaðar svæðisbundnar miðstöðvar (e. Regional Hubs) sem skulu leysa af hólmi móttökumiðstöðvar á fyrsta stigi. Þar sækja þeir svo um hæli í landinu. Hið svokallaða SPRAR kerfi móttökumiðstöðva fer nú stækkandi og er fjölgun gistirýma í kerfinu m.a. svar við skorti á gistirýmum í hæliskerfi landsins.

Við mat á aðstæðum á Ítalíu tekur kærunefnd jafnframt mið af dómi Hæstaréttar frá 1. október 2015 í máli nr. 114/2015 þar sem fjallað var um málsmeðferð og skilyrði til móttöku hælisleitanda á Ítalíu og komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri fyrir hendi kerfislægur galli sem leiddi til þess að hælisleitandi standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta þar ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, sbr. 45. gr. útlendingalaga.

Kærunefndin vill einnig benda á að Mannréttindadómstóll Evrópu hefur ítrekað í dómum sínum og ákvörðunum, sbr. t.d. í nýlegum dómi í máli A.S. gegn Sviss (nr. 39350/13) frá 30. júní 2015 og í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, að ekki sé hægt að túlka 3. gr. mannréttindasáttmálans á þá vegu að krafa sé á aðildarríkjunum að veita öllum einstaklingum innan lögsögu þeirra heimili. Dómstóllinn hefur þó ekki útilokað að komið geti til ábyrgðar ríkis undir 3. gr. sáttmálans þegar einstaklingur, sem er alfarið háður stuðningi ríkisins, verður fyrir afskiptaleysi af hálfu hins opinbera sem leiðir til alvarlegs skorts eða aðstæðna sem eru ekki í samræmi við mannlega reisn.

Innanríkisráðuneytið gaf út greinargerð um endursendingar hælisleitenda til Ítalíu í desember 2015. Þar kemur fram að ráðuneytið meti svo að ágallar á aðbúnaði og móttökuskilyrðum hælisleitenda á Ítalíu séu ekki slíkir að þeir gefi ástæðu til að ætla að endursendingar þangað muni almennt brjóta gegn alþjóðlegum skuldbindingum íslenskra stjórnvalda. Lagt er til að meta skuli aðstæður í hverju tilviki fyrir sig og enn fremur að þeir sem teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu skuli ekki sendir til Ítalíu.

Í ljósi dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu og Hæstaréttar sem og framangreindrar greinargerðar innanríkisráðuneytisins um endursendingar hælisleitenda til Ítalíu telur kærunefndin að skoða þurfi sérstaklega hvort kærandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Kærandi er [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 10. júní sl. sagði hann líkamlega og andlega heilsu sína vera góða. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi eigi við líkamleg eða andleg veikindi að stríða auk þess sem kærandi hefur ekki greint frá neinu sem að mati kærunefndar getur leitt til þess að hann teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Í ljósi framangreinds er það því mat kærunefndar að kærandi sé ekki í viðkvæmri stöðu sem komi í veg fyrir endursendingu hans til Ítalíu.

Eins og að framan greinir hefur athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda á Ítalíu ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Ítalíu brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, en við þetta mat hefur verið litið til einstaklingsbundinna aðstæðna hans. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns á Ítalíu bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Með því er tryggt að kærandi verði ekki sendur áfram til svæðis sem 45. gr. laga um útlendinga tekur til. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Athugun kærunefndar hefur einnig leitt í ljós að telji kærandi sig vera í hættu eða öryggi hans sé ógnað á Ítalíu þá geti hann leitað til lögregluyfirvalda í landinu.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 10. júní 2016 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Að þessu virtu og með vísan til gagna málsins er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna, sbr. framangreint ákvæði.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar er fjallað um fyrri hluta 2. mgr. 46. gr. a sem lítur að tengslum kæranda við Ísland. Aftur á móti er ekki vísað til seinni hluta ákvæðisins sem varðar sérstakar ástæður. Þá er eingöngu vísað til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laganna í lok ákvörðunarinnar. Kærunefnd telur skorta á að í rökstuðningi ákvörðunarinnar séu atvik heimfærð til viðeigandi ákvæða íslenskra laga, sbr. 1. mgr. 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærunefnd hefur litið til þess að þrátt fyrir þennan annmarka fjallar ákvörðunin um þær ástæður sem gætu leitt til þess að mál yrði tekið til efnismeðferðar. Kærunefnd telur því að þessi ágalli sé ekki svo verulegur að vísa beri málinu til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun eins og hér stendur sérstaklega á.

Í máli þessu liggur fyrir að ítölsk stjórnvöld bera ábyrgð á umsókn kæranda um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er fallist á að Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja um efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli hér á landi og ákveða að senda kæranda til Ítalíu með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta