Nr. 419/2020 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Þann 10. desember 2020 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 419/2020
í stjórnsýslumáli nr. KNU20110017
Kæra […]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Þann 6. nóvember 2020 kærði […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. október 2020, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.
Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi hvað varðar brottvísun og endurkomubann, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 104 gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautaþrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld út gildi með vísan í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd í fyrsta sinn þann 10. júní 2017. Þann 25. september 2017 tók Útlendingastofnun ákvörðun um að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi með vísan til dvalarleyfis kæranda á Ítalíu. Kærunefnd útlendingamála staðfesti framangreinda ákvörðun með úrskurði sínum dags. 9. janúar 2018. Þann 12. júní 2018 barst kærunefnd endurupptökubeiðni kæranda og féllst kærunefndin á endurupptöku á máli hans með úrskurði sínum dags. 21. júní 2018 og lagði fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 11. september 2018 með talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 9. október 2018, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 31. október 2018. Kærunefnd staðfesti framangreinda ákvörðun með úrskurði nr. 528/2018 dags. 29. nóvember 2018, í máli nr. KNU18110002. Kærandi höfðaði mál á hendur íslenska ríkinu til ógildingar framangreindra stjórnvaldsákvarðana. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði íslenska ríkið af kröfum kæranda hinn 25. mars 2020 með dómi í máli nr. E-5403/2019.
Kærandi sótti aftur um alþjóðlega vernd hér á landi þann 17. ágúst 2020. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 24. september 2020 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 7. október 2020, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Að ósk kæranda var veittur frekari rökstuðningur fyrir ákvörðun Útlendingastofnunar með bréfi stofnunarinnar, dags. 20. október 2020.Var ofangreind ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 6. nóvember 2020. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 20. nóvember 2020. Í greinargerð óskaði kærandi eftir því að koma fyrir kærunefnd og skýra mál sitt. Í ljósi frásagnar kæranda og skýrslna um heimaríki taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að honum og fjölskyldu hans stafi hætta af manni í heimaríki. Þá kveður kærandi barnsmóður sína hafa farið með börnin þeirra til […] í norðanverðri Nígeríu, þar sem ástandið sé óöruggt.
Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.
Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu með vísan til 2. tölul. b-liðar 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, sbr. b-lið 2. mgr. 104. gr. laganna. Var kæranda ákveðið endurkomubann hingað til lands í tvö ár, sbr. 101. gr. sömu laga.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í annað sinn og að í forgangsviðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 24. september 2020, hafi kærandi staðfest frásögn sína frá fyrra viðtali og bætt við lýsingum á breytingum á ástæðum þess að hann flúði. Kærandi hafi flúið heimaríki sitt vegna þess að hann hafi átt í kynferðislegu sambandi við efnaðan mann að nafni [...]. Þegar kærandi hafi slitið sambandinu hafi maðurinn sent menn til kæranda til að ganga í skrokk á honum. Kærandi hafi greint frá því að hann sé ekki samkynhneigður en að samband þetta hafi verið af fjárhagslegum ástæðum. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum leiti [...] enn hefnda og að hans menn hafi verið mættir í jarðarför móður kæranda þar sem þeir hafi búist við að kærandi yrði viðstaddur. Þó svo að langt sé um liðið þá leiti hann kæranda enn eins og fram komi í tölvupósti sem kærandi hafi lagt fram. Kærandi hafi reynt að sættast við aðilann en að hann hafi svarað að hann myndi ekki hætta að leita hefnda og að kærandi og börn hans séu ekki örugg. Kærandi hafi greint frá því að börn hans búi í […] fylki og að þau séu í hættu þar sem kristið fólk sé drepið á svæðinu. Auk þess sé mikið ofbeldi í […]fylki og börnin hans og móðir þeirra séu alltaf í felum. Þá hafi kærandi greint frá verk í kviði vinstra megin. Hann hafi fyrst fundið verkinn á Ítalíu og verið lagður inn á spítala þar sem ókunnur maður hafi verið tilbúinn að borga reikninginn. Kærandi hafi verið greindur með nýrnasteina.
Í greinargerð kæranda er fjallað um ástand mannréttindamála í Nígeríu, m.a. um spillingu innan stjórnkerfisins, bága stöðu LGBT+ fólks og skort á heilbrigðisþjónustu. Kærandi vísar til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.
Kærandi byggir á því að hann sé flóttamaður samkvæmt skilgreiningu 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi vegna ætlaðrar kynhneigðar. Þá vísar kærandi til þess að í 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga komi fram að ekki skipti máli við mat á 1. mgr. 37. gr. hvort umsækjandi hafi þau einkenni eða skoðanir sem vísað er til ef sá sem sé valdur að ofsóknunum telji svo vera. Kærandi sé ekki samkynhneigður en einstaklingar í heimaríki hans telji svo vera þar sem hann hafi átt í sambandi af fjárhagslegum toga við annan karlmann. Kærandi vísar m.a. til athugasemda með frumvarpi að lögum um útlendinga og handbók um réttarstöðu flóttamanna máli sínu til stuðnings. Þá geti kærandi jafnframt ekki leitað ásjár yfirvalda í heimaríki þar sem hann hafi gerst brotlegur við nígerísk lög, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Að mati kæranda beri að veita honum alþjóðlega vernd á grundvelli heildstæðs mats á málinu. Þá ber kærandi fyrir sig að endursending hans til heimaríkis yrði brot gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement sem lögfest sé í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Kærandi krefst þess að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi fjallar í greinargerð um inntak ákvæðisins með vísan til lögskýringargagna máli sínu til stuðnings. Kæranda stafi ógn af efnuðum og valdamiklum einstaklingi sem hann hafi átt í kynferðislegu sambandi við og hafi látið beita kæranda ofbeldi í kjölfar þess að kærandi hafi viljað slíta sambandinu. Þá séu samkynhneigðir einstaklingar minnihlutahópar í heimaríki kæranda sem öfgafullir vígamenn geri markvisst að skotmörkum sínum. Í ljósi framangreinds sé ljóst að kærandi uppfylli öll skilyrði þess að hljóta viðbótarvernd þar sem hann sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í heimaríki, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis ef útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Kærandi vísar til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga máli sínu til stuðnings. Í fyrsta lagi hafi kærandi sætt ofbeldi af hálfu manna sem starfi fyrir manninn sem hann óttist og eigi hann á hættu frekara ofbeldi leiti hann til lögreglu og greini henni fyrir ástæðum árásanna. Í öðru lagi séu félagslegar aðstæður kæranda mjög erfiðar þar sem hann hafi átt í kynferðislegu sambandi við annan karlmann en slíkum samböndum fylgi útskúfun frá nígerísku samfélagi. Í þriðja lagi sé ljóst að lögregla muni ekki veita kæranda vernd gegn því ofbeldi sem hann eigi á hættu að verða fyrir. Í fjórða lagi séu almennar aðstæður í Nígeríu mjög erfiðar þar sem ofbeldisfull átök ríki á mörgum svæðum í landinu og lögreglan ráði ekki við að stilla til friðar. Nauðsynlegt sé því að heildarmat fari fram á aðstæðum kæranda. Þá verði ekki talið að það að kærandi flytji sig um set muni leysa hann undan þeirri kerfisbundnu mismunun og hættu á ofsóknum vegna ætlaðrar kynhneigðar hans, og ljóst sé af þeim sökum sé honum ekki vært að búa neins staðar í landinu.
Kærandi krefst þess til þrautaþrautavara að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi hvað varðar brottvísun og endurkomubann. Kærandi telji að vegna ákvæðis 3. mgr. 102 gr. laga um útlendinga sé óheimilt að ákvarða kæranda brottvísun. Kærandi hafi lagt fram umsókn sína um alþjóðlega vernd í góðri trú, með það að markmiði að tryggja heilsu og tilverurétt sinn og nánustu fjölskyldu. Kærandi hafi lagt fram gögn um að hann sé enn í hættu í heimaríki en að ekki hafi verið tekið tillit til aðstæðna og nýrra gagna í ákvarðanatöku í máli hans. Ljóst sé að Útlendingastofnun hafi þurft 15 daga til að fara í gegnum ný gögn og rannsaka málið í ljósi þessara gagna. Telji kærandi þann tíma sem stofnunin hafi tekið sér til að yfirfara gögn og komast að framangreindri niðurstöðu verða til þess að stofnuninni sé ekki stætt á að meta umsóknina bersýnilega tilhæfulausa, með tilheyrandi íþyngjandi réttaráhrifum á borð við brottvísun og endurkomubann. Þá sé að mati kæranda ákvörðun um brottvísun og endurkomubann í andstöðu við 1. mgr. 31. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna. Þá brjóti slík ákvörðun gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga enda sé ljóst að fleiri úrræði hafi verið í boði til að ná framangreindu markmiði, sem talist geta vægari. Sem dæmi hafi Útlendingastofnun heimild til að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd styttri frest en sjö daga til þess að fara úr landi, sbr. 2. mgr. 104 gr. laga um útlendinga, í stað þess að veita þeim engan frest og þar með að brottvísa viðkomandi einstaklingi.
Kærandi byggir á því að með ákvörðun sinni hafi Útlendingastofnun brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðun stofnunarinnar hafi verið stuttlega fjallað um aðstæður hinsegin fólks í Nígeríu. Þá hafi stofnunin metið frásögn kæranda ótrúverðuga m.a. með vísan til tölvupóstsamskipta án þess að hafa rannsakað þau nánar og sett spurningarmerki við upplýsingar um […]þó ljóst sé að kærandi muni þurfa að fara þangað verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Auðkenni
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað nígerísku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé nígerískur ríkisborgari.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2018 Country Reports on Human Rights Practices – Nigeria (US Department of State, 13. mars 2019);
- 2019 Country Reports on Human Rights Practices – Nigeria (US Department of State, 11. mars 2020);
- Amnesty International Report 2017/18 – Nigeria (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, 28. mars 2019);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Boko Haram (U.K. Home Office, janúar 2019);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Sexual orientation and gender identity (U.K. Home Office, 18. mars 2015);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Medical and Healthcare issues (U.K. Home Office, janúar 2020);
- Country Reports on Terrorism 2019: Nigeria (U.S. Department of State, 24. júní 2020);
- DFAT Country Information Report Nigeria (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 9. mars 2018);
- EASO COI Meeting Report – Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 – Rome (European Asylum Support Office, 1. ágúst 2017);
- EASO Country Guidance – Nigeria – Guidance note and common analysis (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
- EASO Country of Origin Information Report – Nigeria – Actors of Protection (European Asylum Support Office, 25. nóvember 2018);
- EASO Country of Origin Information Report – Nigeria – Country Focus (European Asylum Support Office, 4. júní 2017);
- EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Security Situation (European Asylum Support Office, 25. nóvember 2018);
- EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Targeting of individuals (European Asylum Support Office, 25. nóvember 2018);
- Freedom in the World 2020 – Nigeria (Freedom House, 4. mars 2020);
- Nigeria 2018 Human Rights Report (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
- Nigeria 2018 International Religious Freedom Report (U.S. Department of State, maí 2019);
- Nigeria Launches Community Policing Initiative (Council on Foreign Relations, 15. september 2020);
- Nigeria Security Tracker (Council on Foreign Relations, síðast uppfært 1. ágúst 2020);
- Ninth Report on Violence in Nigeria (Nigeria Watch, 2019);
- Upplýsingar af vefsíðu Interpol (www.interpol.int);
- Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (http://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 27. október 2020);
- The World Factbook – Nigeria (Central Intelligence Agency, 20. apríl 2020) og
- World Report 2020 – Nigeria (Human Rights Watch, janúar 2020).
Nígería er sambandslýðveldi með rúmlega 214 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna frá árinu 2019 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslímar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslímar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslímar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EASO frá 2017 og 2018 séu nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá hafi mannréttindasamtök greint frá því að u.þ.b. 100.000 lögregluþjónar hafi veitt efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu, auk þess sem þjálfun á lögreglumönnum sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar en þó tíðkist í miklum mæli að leysa slík mál á óformlegan hátt. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Mútuþægni sé víðfeðmur vandi í ríkinu og samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2018 hafi stofnanir sem annist kvörtunarmál í ríkinu greint frá uppsögnum lægra settra lögreglumanna vegna kvartana almennings um fjárkúganir af hálfu lögreglu. Þó hafi fá mál verið rannsökuð eða farið fyrir dómstóla.
Fram komi í ofangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019, að töluverð spilling sé innan dómskerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2019 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu standi þeim sem óttist einstaklinga sem starfi ekki fyrir ríkið almennt til boða vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu og er almennt talið að um sé að ræða skilvirkt úrræði fyrir borgara Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Commission (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmanns Nígeríu (e. The Public Complaints Commission) ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigerian Police Council) og lögreglunefndar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í janúar 2020 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan- og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stigið sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins feli í sér almenna heilbrigðisþjónustu fyrir borgara Nígeríu og fái jafnframt minnsta fjármagnið af stigunum þremur. Því sé almenn heilbrigðisþjónusta almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Þá komi fram í tímaritsgrein frá árinu 2010 að talið hafi verið að allt að 60% íbúa Nígeríu hafi þá ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.
Samkvæmt skýrslu áströlsku utanríkisþjónustunnar frá árinu 2018 og bresku innanríkisþjónustunnar frá árinu 2019 verða samkynhneigðir fyrir töluverðri mismunun í Nígeríu. Samkvæmt nígerískum lögum séu kynferðisathafnir milli samkynja einstaklinga refsiverðar en slík brot varði fangelsisrefsingu samkvæmt nígerískum hegningarlögum. Þá hafi árið 2014 tekið gildi lög sem banni samkynja hjónabönd. Heimildirnar beri með sér að lög sem varði kynhneigð fólks sé sjaldan framfylgt í reynd en þau stuðli þó að neikvæðu viðhorfi til samkynhneigðra en mannréttindasamtök hafi bent á að lögregluyfirvöld og almenningur hafi notað lögin til að réttlæta mannréttindabrot gegn LGBTQ+ fólki. Samkvæmt skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar fyrir árið 2019 liggur dauðarefsing við því að stunda kynferðislegar athafnir með einstaklingi af sama kyni á þeim svæðum Nígeríu sem hafa tekið upp Sharia lög. Dómstólar hafi þó ekki kveðið upp slíkan dóm árið 2019 en fyrri ár hafi einstaklingar sem hafi verið fundnir sekir um kynferðislegar athafnir með einstaklingi af sama kyni hafi verið dæmdir til hýðingar.
Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningastofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Nígeríu. Fólksflutningastofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir s.s. innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtíma húsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu.
Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.
Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Krafa kæranda er byggð á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi vegna ætlaðrar kynhneigðar. Í greinargerð kæranda og viðtali hjá Útlendingastofnun hefur kærandi greint frá því að hann óttist að vera beittur ofbeldi við endurkomu til heimaríkis af hálfu aðila sem hann hafi átt í sambandi við. Þá óttist kærandi um öryggi barna sinna, sem búi ásamt móður sinni í Kaduna fylki og geti ekki fært sig um set til Benin borgar vegna hótana umrædds manns.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki hans.
Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á sömu málsástæðum og í umsókn sem hann lagði fram hér á landi árið 2017. Eins og áður greinir staðfesti kærunefnd ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með úrskurði nr. 528/2018 frá 29. október 2019, í máli nr. KNU18110002. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, í máli nr. E-5403/2019, dags. 25. mars 2020, var íslenska ríkið sýknað af kröfum kæranda um ógildingu á úrskurði kærunefndar og ákvörðun Útlendingastofnunar. Eftir að kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd öðru sinni hefur hann lagt fram tölvupóst, dags. 13. september 2020, sem hann kveður vera frá aðila sem kæranda stafi ógn af. Kærandi hafi leitast við að sættast við aðilann með því að biðjast fyrirgefningar í gegnum tölvupóst en hann hafi fengið svar þar sem fram hafi komið hótanir og að aðilinn leiti enn kæranda. Ekki er unnt að rekja uppruna þess tölvupósts sem kærandi hefur lagt fram eða sannreyna að hann komi frá umræddum aðila. Kærunefnd hefur þegar fjallað um málsástæður kæranda í fyrra máli hans hjá nefndinni og komist að þeirri niðurstöðu að kærandi sé ekki flóttamaður. Að mati kærunefndar rennir umræddur tölvupóstur, metinn í samhengi við gögn sem þegar hefur verið litið til í fyrra máli, ekki frekari stoðum undir það að kærandi hafi við ástæðuríkan ótta við það að verða fyrir ofsóknum í heimaríki sínu.
Kærandi lagði auk þess fram gögn um ástandið í […]í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun. Lagði kærandi fram mynd af húsarústum, myndskeið og fréttir af svæðinu. Í gögnunum komi fram að ófriðaralda hafi geisað á svæðinu og mótmæli hafi verið frá því í janúar 2020. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá stofnuninni að börn hans og móðir þeirra séu búsett þar. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun við meðferð málsins að hann hefði ekki hitt barnsmóður sína í rúman áratug og í fyrra máli kæranda kom fram að hann hefði einu sinni farið til heimaríkis í stutta heimsókn, árið 2016 og hitt börn sín. Að mati kærunefndar verður ekki séð að framlögð gögn um ástandið í […]hafi tengsl við kæranda sjálfan eða umsókn hans um alþjóðlega vernd, en kærandi kveðst hafa verið búsettur í Benín í Edo fylki áður en hann hafi lagt á flótta frá heimaríki.
Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í Nígeríu sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu. Jafnframt hefur ekki verið sýnt fram á að stjórnvöld í Nígeríu geti ekki eða vilji ekki veita honum vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að borgurum landsins standi almennt skilvirk vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Eins og að framan greinir hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem leiða líkur að því að hann hafi ekki getað notið verndar lögreglu vegna áreitisins eða sýnt fram á það að öðru leyti. Kærandi hefur því raunhæfan möguleika á því að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi, ef hann telur sig þurfa á aðstoð þeirra að halda.
Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.
Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hætta stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
Kærandi vísar til þess að hann sé í hættu vegna ótryggs ástands í heimaríki. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Nígeríu sé ótryggt á sumum svæðum, þá einkum í norðurhluta landsins. Það er mat kærunefndar að frásögn kæranda af almennu ástandi í Nígeríu sé að mörgu leyti í samræmi við fyrirliggjandi gögn og upplýsingar um heimaríki hans. Þótt hryðjuverkahópar starfi í landinu er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í borginni Benín, sem kærandi kveðst búa og á svæðinu þar í kring, séu slíkar að kærandi eigi á hættu meðferð sem brjóti í bága við 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum er það mat kærunefndar að kærandi eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunni að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væri ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Meðal gagna málsins eru komunótur frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, dags. 18. september 2020. Þá lagði kærandi fram heilbrigðisgögn frá Ítalíu. Kærandi hefur greint frá verk í síðu sem hann hafi fundið fyrst fyrir á Ítalíu. Kærandi hafi leitað til læknis og fengið þær upplýsingar að hann væri með nýrnasteina. Í komunótum frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja kemur fram að ekki væri að sjá steina (concrement) í nýrum eða þvagleiðurum og talið mjög ólíklegt að kærandi væri með nýrnasteina. Var kæranda ávísað bólgueyðandi verkjalyfi. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar standi íbúum Nígeríu almennt heilbrigðisþjónusta til boða ef á þarf að halda þrátt fyrir að aðgengi kunni að vera takmarkað á ákveðnum svæðum. Aðgengi að heilbrigðisþjónustu í þéttbýli sé talsvert betra en á strjálbýlli svæðum og þá sé aðgengi að heilbrigðisþjónustu betra í suðurhluta landsins en norðurhluta þess. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að heilsufar kæranda sé þess eðlis að það geti verið grundvöllur dvalarleyfis skv. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærandi byggir á því að hans bíði erfiðar félagslegar aðstæður í heimaríki. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi óttist ofbeldi af hálfu aðila sem hann hafi átt í kynferðislegu sambandi við. Þá telji kærandi sig í hættu á að verða fyrir félagslegri útskúfun vegna þess. Þá telji kærandi sig ekki geta fengið vernd lögreglu. Í gögnum máls kæranda kemur fram að kærandi sé ekki samkynhneigður og að hann hafi aðeins átt í kynferðislegu sambandi við annan karlmann vegna fjárhagslegra ástæðna og því hafi lokið fyrir meira en áratugi síðan. Það er því mat kærunefndar að kærandi eigi ekki á hættu að verða fyrir útskúfun vegna kynhneigðar sinnar í heimaríki sem hafi þau áhrif á kæranda að hann teljist hafa ríka þörf á vernd vegna erfiðra félagslegra aðstæðna í skilningi 1. mgr. 74. gr.
Þá segir í athugasemdunum að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Þau gögn sem kærunefnd hefur skoðað bera ekki með sér að viðvarandi mannréttindabrot eigi sér stað í Nígeríu eða að yfirvöld þar í landi hafi ekki vilja eða getu til að veita þegnum sínum vernd. Ennfremur, með vísan til umfjöllunar um löggæslu í heimaríki og þörf kæranda á slíkri vernd, telur kærunefnd að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að unnt sé að veita honum dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki telur kærunefnd að aðstæður séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Kærunefnd hefur jafnframt litið til þeirra tímabundnu erfiðleika sem heimaríki kæranda kann að þurfa að glíma við vegna Covid-19 faraldursins. Kærunefnd telur þá erfiðleika ekki vera þess eðlis að þeir leiði, einir og sér eða í samhengi við önnur gögn málsins, að heilmilt sé að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun
Í greinargerð sinni gerir kærandi athugasemdir við málsmeðferð og úrlausn Útlendingastofnunar í máli hans. Kærandi gerir athugasemd við að stofnunin hafi borið að afla gagna um stöðu hinsegin fólks í heimaríki kæranda. Þá hafi stofnuninni borið að rannsaka frekar umrædd tölvupóstsamskipti kæranda og gögn sem hann hafi lagt fram. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til að gera athugasemdir við hana. Í því sambandi er tekið fram að kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem aflað var við rekstur málsins, svo sem skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Þá lítur kærunefnd til þess að mál kæranda hafi hlotið umfjöllun dómstóla og að aðstæður hans og aðstæður í heimaríki hans hafi ekki breyst svo, frá því að Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið af kröfu kæranda um ógildingu á fyrri úrskurði kærunefndar og Útlendingastofnunar í mars á þessu ári, þannig að það hafi þýðingu fyrir þetta mál.
Brottvísun og endurkomubann
Í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og ákvarðað endurkomubann, sbr. 2. tölul. b-liðar. 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Ástæða þess er að Útlendingastofnun mat umsókn kæranda bersýnilega tilhæfulausa í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, sbr. e-lið 2. tölul. 1. mgr. 29. gr. sömu laga, en ákvæðið veitir stjórnvöldum heimild til að fella niður frest sem að jafnaði er veittur útlendingi til að yfirgefa landið sjálfviljugur í kjölfar ákvörðunar um að yfirgefa landið í þeim tilvikum þegar umsókn útlendings um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd telst bersýnilega tilhæfulaus eða hann hefur vísvitandi gefið misvísandi eða rangar upplýsingar við umsókn.
Lög um útlendinga skilgreina ekki hvað felist í orðalaginu „bersýnilega tilhæfulaus“ í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna. Við túlkun ákvæðisins telur kærunefnd að líta verði til þess að orðið tilhæfulaus lýsir einhverju sem byggir ekki á staðreyndum eða á ekki við rök að styðjast. Þá leiðir af orðalagi ákvæðisins að tilhæfuleysi umsóknar þarf að vera bersýnilegt, þ.e. blasa við stjórnvaldi við skoðun málsins. Með vísan til orðalags ákvæðisins og til samræmis við ákvæði tilskipunar 2008/115/EB um brottvísun útlendinga í ólögmætri dvöl telur kærunefnd að umsókn um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd sé bersýnilega tilhæfulaus í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna ef eftirfarandi tilvik eiga einkum við þegar:
a) ljóst er, við fyrstu sýn, að málsástæður umsækjanda varða ekki þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taka til,
b) ljóst er, við fyrstu sýn, að málsástæður umsækjanda séu ekki þess eðlis eða nái ekki því alvarleikastigi að þær gætu leitt til þeirrar niðurstöðu að heimilt væri að veita umsækjenda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, og
c) frekara mat og gagnaöflun, þar með talið viðtal við umsækjanda, hafi ekki breytt ofangreindu upphaflegu mati.
Eins og fram hefur komið þá lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd árið 2017 og kærunefnd kvað upp úrskurð í máli hans þann 29. nóvember 2018. Kærandi hefur byggt umsókn sína um alþjóðlega vernd á sömu málsástæðum, að viðbættum gögnum. Umsókn kæranda sætti forgangsmeðferð á grundvelli e-liðar 2. tölul. 1. mgr. 29. gr. laga um útlendinga hjá Útlendingastofnun og var metin bersýnilega tilhæfulaus. Þótt kærandi hafi lagt fram umsókn öðru sinni sem byggði á sömu málsástæðum og í fyrri umsókn hans er það mat kærunefndar, í ljósi atvika málsins og aðstæðna í heimaríki kæranda, að ekki sé unnt að ganga út frá því að skilyrði b-liðar 2. mgr. 104 gr. laga um útlendinga eigi við í máli hans. Telur kærunefnd að þær málástæður sem kærandi bar fyrir sig hafi varðað þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taka til.
Þar af leiðir að heimild til að fella niður frest til kæranda til að yfirgefa landið sjálfviljugur var ekki fyrir hendi, sbr. b-lið 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til ofangreinds eru ekki forsendur til að staðfesta þann hluta ákvarðana Útlendingastofnunar er varðar brottvísun og tveggja ára endurkomubann. Verður sá þáttur ákvörðunar Útlendingastofnunar því felldur úr gildi.
Frávísun og frestur til að yfirgefa landið
Kærandi kom hingað til lands þann 20. júlí 2020 og sótti um alþjóðlega vernd þann 17. ágúst 2020. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilið leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 106. gr. laganna, enda hefur hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærandi er við ágæta heilsu. Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og þegar litið er til ferðatakmarkana vegna Covid-19 faraldursins teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.
Í ljósi Covid-19 faraldursins er athygli kæranda einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar er varðar umsókn um alþjóðlega vernd, dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda er felld úr gildi.
Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda að því er varðar umsókn hans um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða er staðfest. Felld er úr gildi ákvörðun um brottvísun og endurkomubann. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.
The decision of the Directorate of Immigration regarding the application for international protection and residence permit on humanitarian grounds is affirmed. The Directorate´s decision on expulsion and re-entry ban is vacated. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 30 days to leave the country voluntarily.
Hjörtur Bragi Sverrisson
Sandra Hlíf Ocares Þorbjörg Inga Jónsdóttir