Mál nr. 42/2013, úrskurður 29. júlí 2013
Mál nr. 42/2013
Eiginnafn: Karmen
Hinn 29. júlí 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 42/2013 en erindið barst nefndinni 25. júlí:
Eiginnafnið Karmen (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Karmenar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Karmen (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.