Mál nr. 43/2013, úrskurður 29. júlí 2013
Mál nr. 43/2013
Eiginnafn: Fold
Hinn 29. júlí 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 43/2013 en erindið barst nefndinni 25. júlí:
Eiginnafnið Fold (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Foldar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Fold (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.