Mál nr. 48/2013, úrskurður 29. júlí 2013
Mál nr. 48/2013
Eiginnafn: Sjana
Hinn 29. júlí 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 48/2013 en erindið barst nefndinni 25. júlí:
Eiginnafnið Sjana (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Sjönu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Sjana (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.