Hoppa yfir valmynd

Nr. 146/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 28. mars 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 146/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19020038 og KNU19020039

 

Kæra [...] og

[...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 12. febrúar 2019 kærðu [...9, fd. [...], (hér eftir K) og [...], fd. [...], (hér eftir M), ríkisborgarar Úkraínu, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 11. febrúar 2019 að synja kærendum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærendur krefjast þess aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og þeim verði veitt staða flóttamanna með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og kærendum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að kærendum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi þann 30. október 2018. Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 8. nóvember 2018 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 11. febrúar 2019, synjaði Útlendingastofnun kærendum um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála þann 12. febrúar 2019. Kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgigögnum þann 19. febrúar 2019.

III.       Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að kærendur séu í hættu í heimaríki sínu vegna uppruna síns og meintra stjórnmálaskoðana.

Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærendur séu ekki flóttamenn og þeim skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kærendum var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kærendum jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.       Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að þau hafi greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að þau hafi orðið fyrir miklu áreiti, mismunun og hótunum í sinn garð í heimaríki allt frá árinu 2014. Eitt sinn er þau hafi verið á göngu í heimaborg sinni Kharkiv, hafi þau gengið fram hjá almenningsgarði þar sem staðið hafi yfir fjöldafundur um hvort borgin ætti að sameinast Rússlandi. Nokkrum vikum síðar hafi þrír menn komið heim til kærenda og tjáð þeim að þau væru á svörtum lista hjá úkraínskum yfirvöldum vegna stuðnings þeirra við Rússa og veru þeirra á fjöldafundinum. Hafi mennirnir tjáð kærendum að þau skyldu hafa varann á og yfirgefa Úkraínu. Þá hafi svipað atvik átt sér stað í annað sinn þegar þau hafi gengið framhjá öðrum fjöldafundi en þá hafi tveir menn nálgast þau og tjáð þeim að þau ættu ekki að vera þarna. Þá hafi þau fengið símtöl þar sem þeim hafi verið hótað og rist hafi verið hatursfull skilaboð ásamt hakakrossinum á útidyrahurð þeirra. Kærendur kváðust ekki vera þátttakendur í stjórnmálastarfi og hefðu aldrei tekið þátt í opinberum mótmælum. Í greinargerð kemur fram að kærendur telji að þeir einstaklingar sem hafi áreitt þau og hótað séu að öllum líkindum meðlimir í öfgafullum og þjóðernissinnuðum samtökum sem berjist gegn veru Rússa í Úkraínu, svo sem C14 eða öðrum fasískum eða nýnasískum samtökum, sem séu í samstarfi við og styrkt af stjórnvöldum. Þá hafi grímuklæddur maður ráðist að K er hún hafi verið að koma út úr kirkju og tekið hana hálstaki. Hafi hann tjáð K að hún ætti ekki rétt á að sækja þessa kirkju. Það sem hafi hins vegar endanlega orðið til þess að þau hafi farið frá heimaríki hafi verið atvik þar sem þau hafi orðið vitni að fjölda fólks sem hafi ráðist með vopnum að opinberri byggingu. Kærendur hafi við það séð að fyrst að yfirvöld gætu ekki verndað sínar eigin byggingar og haft stjórn á aðstæðum sem þessum, gætu þau útilokað að yfirvöld gætu aðstoðað þau í aðstæðum sínum. Kærendur hafi tilkynnt fyrsta atvikið til lögreglu sem hafi ekki tekið á móti kvörtun þeirra og hafi tjáð þeim að margar samskonar tilkynningar hafi borist en það væri ekkert hægt að gera vegna þess. Þá hafi kærendur leitað til lögreglu þegar ráðist hafi verið á K en lögreglan hafi tjáð þeim að ekkert væri hægt að gera vegna þess að ríki og kirkja væru aðskilin samkvæmt lögum þar í landi. Kærendur hafi því ekki trú á að yfirvöld geti aðstoðað þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá hafi kærendum nýlega borist upplýsingar frá nágranna sínum í Kharkiv um að óþekktir aðilar hafi tekið íbúð þeirra í hústöku á meðan á dvöl þeirra hefur staðið hér á landi.

Í greinargerð kærenda er m.a. almennt fjallað um aðstæður og ástand mála í Úkraínu. Fram kemur m.a. að í kjölfar átakanna sem hafi hafist þar í landi árið 2014 hafi ástandið verið mjög viðkvæmt og óstöðugt og hafi átökunum ekki linnt þrátt fyrir að samkomulag hafi verið gert um vopnahlé. Hafi átökin leitt til versnandi efnahags, mikillar verðbólgu og erfiðleika á vinnumarkaði þar í landi. Þá ríki sérstök hætta á þeim svæðum sem ekki sé stjórnað af úkraínsku ríkisstjórninni, svo sem í Donetsk og Luhansk. Þá er fjallað almennt um stöðu mannréttindamála í Úkraínu og er vísað til heimilda í alþjóðlegum skýrslum. Í þeim komi m.a. fram að aðstæður í fangelsum séu slæmar, mikil spilling ríki hjá stjórnvöldum og refsileysi gagnvart brotum opinberra starfsmanna sé mikið vandamál.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi greint frá því að eftir að þau hafi gengið fram hjá fundi stuðningsmanna Rússa hafi þau upplifað mótstöðu, áreiti, hótanir og ofbeldi vegna meintra stjórnmálaskoðana. Þá hafi kærendur jafnframt greint frá því að móðurmál þeirra væri rússneska og mættu þau einnig mótstöðu og yrðu fyrir áreiti vegna þess. Með vísan til framangreinds og þess sem hafi verið rakið um ástæður fyrir flótta frá heimaríki telji kærendur að þau uppfylli skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. sömu laga.

Til vara gera kærendur kröfu um viðbótarvernd, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Með hliðsjón af því sem rakið hafi verið að framan í tengslum við aðalkröfu kærenda telja þau að ljóst sé að þau uppfylli skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem raunhæf ástæða sé til að ætla að þau eigi hættu á að sæta pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í heimaríki. Þá telja kærendur að með því að senda þau aftur til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki muni slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. samnings um borgaralega og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Þá gera kærendur þá kröfu til þrautavara að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 74. gr. laga um útlendinga. Vísa kærendur til athugasemda með frumvarpi til laga nr. 80/2016 um útlendinga. Þá vísa kærendur enn fremur til þeirrar umfjöllunar sem rakin hafi verið að framan um aðstæður þeirra í heimaríki.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað úkraínskum vegabréfum. Telur kærunefndin því ljóst að kærendur séu úkraínskir ríkisborgarar.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Úkraínu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Access to Justice and the Conflict in Ukraine (Organization for Security and Co-operation in Europe, desember 2015);
  • Amnesty International Report 2017/2018: Ukraine (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Association Implementation Report on Ukraine (European Commission, 14. nóvember 2017);

  • Freedom in the World 2018 - Ukraine (Freedom House, 16. janúar 2018);
  • Freedom in the World 2019 - Ukraine (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • Country Information and Guidance – Ukraine: Background Information, including actors of protection and internal relocation (UK Home Office, ágúst 2016);
  • How Eastern Ukraine is Adapting and Surviving: The Case of Kharkiv (Carnegie Europe, September 2018);
  • International Protection Considerations related to developments in Ukraine – Update III (UNHCR, 24. september 2015);
  • Nations in Transit 2018 – Ukraine (Freedom House, 11. apríl 2018);
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council of Europe Following his visit to Ukraine from 21 to 25 March 2016 (Council of Europe, 11. júlí 2016);
  • Temanotat Ukraina. Domstolene – korrupsjon og manglende uavhengighet (Landinfo, 6. júlí 2015);
  • Ukraine: UNHCR Operational Update, September 2016 (UNHCR, 21. september 2016);
  • 2016 Annual Report of UHHRU (Ukrainian Helsinki Human Rights Union, 2017);

  • Ukraine - Country Reports on Human Rights Practices for 2017 (U.S. Department of State, 20. apríl 2018);
  • Ukraine - Country Reports on Human Rights Practices for 2018 (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  • Ukraine: Whether a victim of a crime can request that the Public Prosecutor's Office or another public agency initiate an investigation into the alleged crime if the police have failed to act (January-November 2017) (Immigration and Refugee of Canada, 27. nóvember 2017);
  • Ukraine: standardized police reporting forms, including appearance; whether police are required to submit a written response to a complainant regardless of whether they pursue an investigation, appearance and content of the written response; police procedures for following up on physical assaults reported by hospitals and medical practitioners, including type of report generated; whether these policies and reports are standardized or if there are regional variations (Immigration and Refugee of Canada, 19. október 2015);
  • Upplýsingar af vef United States Agency for International Development (USAID) - https://www.usaid.gov/where-we-work/europe-and-eurasia/ukraine/global-health og
  • World Report 2019 – Ukraine (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Úkraína er lýðræðisríki með um 44 milljónir íbúa og eru mannréttindi almennt talin virt af úkraínskum stjórnvöldum á þeim svæðum sem lúta stjórn þeirra. Úkraína gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1995 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1997. Landið gerðist aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna 10. júní 2002, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi 12. nóvember 1973 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu þann 24. febrúar 1987. Meirihluti íbúa landsins eru af úkraínskum uppruna eða um 78% en um 17% íbúa eru af rússneskum uppruna og 5% eru af hinum ýmsu þjóðarbrotum. Úkraína er á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki, að undanskildum héruðunum Donetsk, Luhansk og Krím.

Í ofangreindum gögnum kemur m.a. fram að í lok árs 2013 hafi mótmæli hafist í Kænugarði og öðrum borgum Úkraínu. Upphaflega hafi verið um friðsöm mótmæli að ræða en síðar hafi átt sér stað átök fylkinga óeirðalögreglu og mótmælenda sem hafi leitt til mannfalls. Í kjölfar ofangreindra mótmæla og innlimunar Rússa á Krímskaga í mars 2014 hafi brotist út átök á milli hersveita aðskilnaðarsinna og Úkraínuhers í austurhluta Úkraínu. Í gögnunum greinir að fulltrúar frá Úkraínu, Rússlandi og aðskilnaðarsinnum hafi undirritað samkomulag um vopnahlé í september 2014, en að átök eigi sér enn stað á víð og dreif á svæðinu milli stjórnarhers og aðskilnaðarsinna, sem studdir séu af yfirvöldum í Rússlandi. Þrátt fyrir að átökin séu að mestu bundin við héruðin Donetsk og Luhansk í austurhluta Úkraínu hafi önnur svæði einnig orðið fyrir árásum og séu áhrif stríðsins margskonar. Samkvæmt ofangreindum gögnum sé vegalaust fólk innan landsins u.þ.b. 1,7 milljón manns.

Þá kemur fram í gögnum, m.a. ofangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, að spilling sé viðvarandi vandamál í Úkraínu og birtist helst innan löggæslu- og dómskerfisins. Þá séu margar stofnanir sem starfi við að rannsaka og ákæra í spillingarmálum. Samtökin The National Anti Corruption Bureu (NABU) rannsaki spillingu hjá yfirvöldum á meðan lögreglan annist rannsókn spillingarmála á lægri stigum löggæslu. Í skýrslunni komi fram að NABU rannsaki spillingu með skilvirkum hætti en rannsókn lögreglunnar hafi ekki verið mjög árangursrík. Þá veigri margir íbúar landsins sér við því að tilkynna spillingu innan stjórnkerfisins vegna skorts á viðeigandi úrræðum til að veita þeim stuðning og vernd.

Stjórnarskrá landsins tryggi jafnrétti og banni mismunun og ívilnun á grundvelli kynþáttar, hörundslitar, stjórnmála-, trúar-, eða lífsskoðunum, kyns, þjóðernisuppruna , eignastöðu, búsetu, tungumáli og öðrum einkennum. Einnig er refsivert að hvetja til haturs eða mismununar, skv. 161. gr. refsilaga landsins, á grundvelli þjóðerni, kynþætti eða trú. Einnig er heimild til refsihækkunar séu afbrot framin vegna haturs. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni af hálfu alþjóðastofnana fyrir að framfylgja þessum lögum ekki fyllilega. Þrátt fyrir að úkraínska sé viðurkennt tungumál landsins þá er rússneska töluð víða og algengt að einstaklingar tali bæði tungumál. Rússneskumælandi einstaklingar eru fjölmennastir í austur- og suðurhluta landsins einkum í Kharkiv, Donetsk, Luhansk, Krím og Ódessa. Samkvæmt ofangreindum gögnum sé viðhorf til rússneska minnihlutans almennt gott og hafi verið alla tíð, þó að einstaka tilvik mismununar hafi átt sér stað. Þá bendi gögn ekki til þess að átökin í austurhluta landsins hafi breytt miklu hvað þetta varðar.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærendur hafa byggt umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna rússnesks uppruna síns og að þau séu talin vera stuðningsmenn sameiningar heimaborgar þeirra, Kharkiv, við Rússland. Hafi þeim verið hótað og þau áreitt og beitt ofbeldi af óþekktum einstaklingum sem þau telji að séu meðlimir þjóðernissinnaðra hópa. Kærendur telji að þau geti ekki leitað til lögreglu í heimaríki.

Kærendur hafa ekki lagt fram gögn er styðja frásögn þeirra um hótanir, ofbeldi og áreiti sem þau kveðast hafa orðið fyrir í heimaríki. Við meðferð máls hjá kærunefnd lögðu kærendur fram afrit af átta myndum af fréttaflutningi er varði þjóðernissinnaða hópa í Úkraínu. Framlagðar myndir varða ekki kærendur persónulega og leggja ekki frekari grundvöll að frásögn þeirra. Af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um heimaríki kærenda er það mat nefndarinnar að þau hafi ekki leitt að því líkur að hafa orðið fyrir eða eigi á hættu að verða fyrir áreiti í heimaríki sínu sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Kærendur hafa ekki byggt á því að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda og ekkert bendir til þess að þau eigi slíkt á hættu. Gögn um heimaríki kærenda benda til þess að til staðar sé kerfi sem kærendur geti leitað til telji þau að lögregla bregðist ekki rétt við leiti þau til þeirra eða ef þau telja sig hafa verið beitt órétti af lögreglu. Gögn benda til þess að slík úrræði séu almennt aðgengileg og ekki hefur verið sýnt fram á að aðgengi kærenda að þessum úrræðum sé verra en almennt gerist. Eins og fram hefur komið telja kærendur að þau verði fyrir ofsóknum og áreiti vegna rússnesks uppruna þeirra. Af gögnum málsins verður ekki séð að einstaklingar af rússneskum uppruna sæti mismunun eða áreiti af hálfu úkraínskra stjórnvalda á grundvelli uppruna síns. Verður því ekki fallist á að kærendur hafi takmarkaðan aðgang að viðhlítandi vernd stjórnvalda vegna uppruna síns. Það er því mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kærendum vernd gegn þeim athöfnum sem þau telja að feli í sér ofsóknir, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir. Kærendur hafa því raunhæfan möguleika á að leita ásjár úkraínskra stjórnvalda.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. og 3. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 4. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefndin því ljóst að kærendur uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kærenda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Umsækjandi um alþjóðlega vernd verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn umsækjanda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda telur kærunefndin að aðstæður kærenda þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærendur uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi. 

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærendur hafa greint frá erfiðum aðstæðum í heimaríki vegna ótta við ótilgreinda einstaklinga eða samtök og að stjórnvöld geti ekki veitt þeim viðeigandi vernd. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki telur kærunefnd að aðstæður kærenda séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða.   

Af gögnum málsins verður ekki annað ráðið en að kærendur séu við góða líkamlega og andlega heilsu. Þegar upplýsingar um heimaríki kærenda og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kærenda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærendur komu hingað til lands 30. október 2018 og sóttu um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn þeirra um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærendur eru við ágæta heilsu og koma frá öruggu héraði ríkis sem hefur verið talið að mestu leyti öruggt. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast sjö dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kærenda er vakin á því að ef þau yfirgefa ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa þeim. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda.

Athygli er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda eru staðfestar. Lagt er fyrir kærendur að hverfa af landi brott. Kærendum er veittur sjö daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljug.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellants are affirmed. The appellants are requested to leave the country. The appellants have seven days to leave the country voluntarily.

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Erna Kristín Blöndal                                                                                       Ívar Örn Ívarsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta