Nr. 140/2018 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Þann 22. mars 2018 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 140/2018
í stjórnsýslumáli nr. KNU18020004
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Þann 4. febrúar 2018 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Georgíu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. janúar 2018, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga. Kærandi sótti um vernd ásamt eiginkonu sinni og barni.
Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt staða flóttamanns með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
- Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 27. júní 2017. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 17. október 2017 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 15. janúar 2018, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 4. febrúar 2018. Kærunefnd barst greinargerð kæranda og fjölskyldu hans þann 13. febrúar 2018, ásamt fylgigögnum.
- Ákvörðun Útlendingastofnunar
Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun byggði hann umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna stöðu sinnar sem fyrrum hermaður í georgíska hernum og vegna búsetu sinnar nálægt stjórnsýslumörkum Suður-Ossetíu.
Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.
Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kæranda var veittur sjö daga frestur til að yfirgefa landið. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.
- Málsástæður og rök kæranda
Í sameiginlegri greinargerð kæranda og eiginkonu hans kemur fram að þau hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að flótta fjölskyldunnar mætti rekja annars vegar til búsetu þeirra í þorpinu [...] í Gori héraðinu sem sé við stjórnsýslumörk Suður-Ossetíu og hins vegar til þátttöku kæranda í stríði Georgíu við Rússland árið 2008 en þar sem Rússar hafi upplýsingar um að kærandi hafi verið í georgíska hernum sé fjölskyldan í hættu. Kærandi hafi verið í stórskotaliði hersins og gegnt veigamiklu hlutverki í stríðinu. Þá hafi kærandi jafnframt greint frá því að eftir ríkisstjórnarskipti árið 2012 hafi vandamál hans byrjað og séu hann og fjölskylda hans í hættu vegna tengsla núverandi ríkisstjórnar við Rússa. Þá hafi tryggingafyrirtæki eða önnur sambærileg stofnun komið til Georgíu undir því yfirskyni að hjálpa Georgíumönnum en í staðinn hafi stofnunin fengið trúnaðarupplýsingar um þá einstaklinga sem hafi tekið þátt í stríðinu árið 2008, þ. á m. upplýsingar um kæranda. Kærandi óttist að hann muni hljóta sömu örlög og 14 einstaklingar sem hafi starfað innan sömu deildar og hann í hernum en þeir hafi horfið og telji kærandi að þeir hafi verið ráðnir af dögum. Kærandi telji að georgísk yfirvöld geti ekki verndað þau.
Í greinargerð kæranda er að finna almenna umfjöllun um ástand mannréttindamála í Georgíu. Helstu vandamál tengd mannréttindum í Georgíu séu m.a. annmarkar í réttarkerfinu, þ.m.t þrýstingur á dómstóla í tilteknum málum, umdeildar skipanir á dómurum og ófullnægjandi rannsóknir á sakamálum. Þá er í greinargerð umfjöllun um átök Rússlands og Georgíu, árið 2008, um Suður-Ossetíu og Abkhazíu. Vísað er til þess að í gegnum tíðina hafi blossað upp deilur og stríð vegna yfirráða um Suður-Ossetíu. Hafi togsteita, spenna og átök ríkt í langan tíma á milli Georgíu annars vegar og Suður-Ossetíu og Rússlands hins vegar og sé ljóst af lestri mannréttindaskýrslna að þetta samband sé áhyggjuefni meðal mannréttindasamtaka, alþjóðastofnana og fleiri aðila. Þá hermi heimildir að Rússar fikri sig sífellt lengra inn í Georgíu og séu að taka yfir fleiri svæði sem hafi leitt til þess að georgískir ríkisborgarar sem búsettir séu í grennd við Suður-Ossetíu hafi margir hverjir misst ræktarlönd sín og orðið fyrir margs konar áreiti af hálfu Rússa. Jafnframt er vísað til þess í greinargerð að heimildir bendi til þess að íbúar á svæðinu búi við bág félags- og efnahagsleg skilyrði sem séu afleiðingar stríðsins og stirðs sambands milli Georgíu og Rússlands. Kærandi telji með vísan til framangreinds að meta þurfi aðstæður hans í ljósi sögunnar, ríkisstjórnarskipta árið 2012 og þeirra atburða sem hafi átt sér stað í Georgíu.
Aðalkrafa kæranda er að ákvörðun Útlendingastofnanir verði felld úr gildi og að honum verði veitt alþjóðleg vernd, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, enda sæti hann ofsóknum í heimaríki og séu grundvallarmannréttindi hans ekki tryggð þar. Til stuðnings þeirri kröfu vísar kærandi m.a. í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga, skilgreiningar á flóttamannahugtakinu, sbr. A-lið 1. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna og skilgreiningar d-liðs 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á því hvaða hópar einstaklinga geti fallið undir hugtakið þjóðfélagshópur. Kærandi telji að þar sem að hann hafi starfað sem hermaður tilheyri hann þar með tilteknum þjóðfélagshópi sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Jafnframt uppfylli hann skilyrði sama ákvæðis þar sem hann sé ofsóttur sökum þjóðernis í ljósi þess að heimildir greini að Rússar herji á Georgíumenn sem búi við stjórnsýslumörkin við Suður-Ossetíu. Þá vísar kærandi til skilgreiningar á hugtakinu ástæðuríkur ótti í handbók um réttarstöðu flóttamanna. Kærandi telji að með vísan til þeirra heimilda sem raktar hafi verið í greinargerð um ástand á stjórnsýslumörkum Suður-Ossetíu hafi hann og fjölskylda hans ástæðuríkan ótta til þess að óttast ofsóknir. Kærandi telji að þeir sem standi að ofsóknum gegn sér séu m.a. Suður-Ossetíumenn og Rússar. Vísar kærandi til b-liðar 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga en í ákvæðinu komi fram að þeir sem geti verið valdir að ofsóknum séu til að mynda hópar sem stjórni ríkinu eða verulegum hluta landssvæðis þess. Í greinargerð er jafnframt til stuðnings framangreindu vísað til þess að samkvæmt heimildum hafi Rússar undanfarið fært stjórnsýslumörkin lengra inn í Georgíu og þá hafi þeir tryggt sér yfirráð yfir landssvæði nálægt Suður-Ossetíu með því að setja upp gaddavír og eftirlitsturna. Kærandi telji að sú staðreynd ásamt því að georgísk stjórnvöld verndi ekki Georgíumenn nálægt stjórnsýslumörkunum geri það að verkum að Rússar og bandamenn þeirra falli undir b-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga og því sé einnig uppfyllt skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um að kærandi og fjölskylda hans geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda í heimaríki þeirra.
Í greinargerð er því mótmælt að Útlendingastofnun hafi metið það svo að kærandi sé ekki skotmark Rússa vegna þátttöku sinnar í stríðinu gegn Rússum árið 2008. Er vísað til þess sem fram hafi komið um þá ólgu sem ríki á milli Georgíu og Rússlands og þeirra ítaka sem Rússar hafi á yfirráðasvæði Georgíu og geti kærandi því hæglega verið í hættu vegna fyrrum starfa hans fyrir herinn. Þá sé því mótmælt að aðilar innan réttarvörslukerfis Georgíu bregðist við þegar brotið sé gegn þegnum ríkisins af hálfu eiginlegra yfirvalda í Suður-Ossetíu og Abkhazíu. Nýlegar heimildir bendi til þess að georgísk stjórnvöld beiti sér ekki nægilega gegn Rússum til þess að vernda þá Georgíumenn sem búi nálægt stjórnsýslumörkunum. Með vísan til framangreinds er því þar af leiðandi mótmælt að kæranda standi til boða aðstoð og vernd viðeigandi stjórnvalda í Georgíu vegna vandamála sinna. Þá er mótmælt því mati Útlendingastofnunar að ástandið á og við stjórnsýslumörk Georgíu og Suður-Ossetíu sé stöðugt. Með vísan til þess sem að framan greinir telur kærandi að skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga séu uppfyllt og að veita beri honum alþjóðlega vernd á Íslandi.
Verði ekki fallist á aðalkröfu kæranda, er gerð sú krafa til vara að kæranda verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að ákvæðið taki mið af tilskipun Evrópusambandsins nr. 2004/83/EB um lágmarksskilyrði þess að ríkisborgarar þriðju landa eða ríkisfangslausir einstaklingar teljist flóttamenn eða menn sem að öðru leyti þarfnist alþjóðlegrar verndar. Vegna þess ástands sem ríki á stjórnsýslumörkum Suður-Ossetíu skammt frá heimabæ kæranda, sem og stöðu hans sem fyrrum hermanns telur kærandi að ekki sé ljóst að stjórnvöld uppfylli grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sem lögfest sé í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Telur kærandi sig og fjölskyldu sína vera í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í heimaríki.
Til þrautavara gerir kærandi kröfu um að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu dvalarleyfis á þeim grundvelli geti útlendingur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða vegna annarra atvika sem ekki megi með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Kærandi vísar til greinargerðar með frumvarpi til laganna en þar komi fram að taka verði mið af svipuðum sjónarmiðum og gert sé við mat á öðrum ákvæðum kaflans s.s. almennra aðstæðna í heimalandi, þ. á m. hvort grundvallarmannréttindi séu nægilega tryggð. Heildarmat skuli fara fram á öllum þáttum máls áður en leyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé veitt. Til stuðnings framangreindri kröfu er vísað til þess í greinargerð að líkt og fram komi í ákvörðun Útlendingastofnunar í málum kæranda og fjölskyldu hans bendi heimildir til þess að íbúar á svæðum nálægt stjórnsýslumörkum Suður-Ossetíu búi við bág félags- og efnahagsleg skilyrði, sem m.a. séu afleiðingar stríðsins á milli Rússlands og Georgíu árið 2008 og stirðs sambands landanna í kjölfarið. Skortur sé á ferðafrelsi yfir stjórnsýslumörk Suður-Ossetíu og hafi það slæm áhrif á daglegt líf íbúa á svæðinu. Það hafi m.a. í för með sér skort á aðgengi að menntun og heilsugæslu. Kærandi og fjölskylda hans séu í erfiðri stöðu í heimaríki, m.a. vegna þess á hvaða svæði þau hafi búið í heimaríki og vegna þátttöku kæranda í stríðinu árið 2008.
Í greinargerð kemur fram að kærandi hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að eftir ríkisstjórnarskipti árið 2012 hafi vandamál hans hafist og hann hafi misst starf sitt vegna fyrirskipana um að reka ætti alla þá sem hafi tekið þátt í stríðinu árið 2008 og hafi þeir helst átt að fara úr landi. Þá hafi hann ekki getað fundið vinnu þar sem hann hafi alltaf fengið það svar að þar sem hann hafi tekið þátt í stríðinu árið 2008 yrði hann ekki ráðinn. Þá séu Rússar sífellt að færa stjórnsýslumörkin til og séu kærandi og fjölskylda hans í hættu á að missa heimili sitt og eignir og þar af leiðandi séu þau í mjög erfiðum félagslegum aðstæðum. Með vísan til búsetu kæranda og fjölskyldu hans, sem m.a. kunni að hamla aðgengi þeirra að heilbrigðisþjónustu og leggi þau að öðru leyti í hættu vegna ítaka Rússa á svæðinu, og þeirrar stöðu sem fjölskyldan sé í vegna þátttöku kæranda í stríðinu gegn Rússum hafi þau ríka þörf fyrir vernd hér á landi. Því skuli ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og kæranda og fjölskyldu hans veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Að lokum bendir kærandi á að við mat á möguleika á flótta innanlands beri að líta til þess hvort slíkur flutningur geti talist viðeigandi úrræði og hvort krafan sé sanngjörn. Almennt séu ekki forsendur til þess að kanna möguleika á flótta innan heimaríkis ef ljóst sé að ríkið skorti vilja eða getu til að vernda einstaklinga gegn ofsóknum. Kærandi og fjölskylda hans óttist m.a. ofsóknir af hálfu yfirvalda og bendi kærandi á að í samræmi við ákvæði 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og lögskýringargagna að baki ákvæðinu þá skuli ganga út frá því að raunverulega vernd sé ekki að fá í neinum hluta Georgíu. Með hliðsjón af heildarmati á aðstæðum kæranda og fjölskyldu hans verði ekki talið að flutningur innan Georgíu muni leysa þau undan þeirri ógn sem þau búi við, m.a. vegna fyrrum starfa kæranda í hernum. Með hliðsjón af öllu framangreindu og þeirri staðreynd að Georgía sé frekar lítið land muni stoða lítið fyrir kæranda að setjast að á öðrum stað í heimaríki hans.
- Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Auðkenni
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi lagt fram georgískt kennivottorð með gildistíma til 15. janúar 2025, ökuskírteini og greiðslukort þar sem fram komi nafn hans. Kærandi hafi hins vegar ekki lagt fram vegabréf. Var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sannað með fullnægjandi hætti hver hann væri. Yrði því leyst úr auðkenni hans á grundvelli trúverðugleikamats. Að því loknu lagði Útlendingastofnun til grundvallar að kærandi væri frá Georgíu. Með vísan til þess og þeirra gagna sem kærandi hefur lagt fram um auðkenni sitt telur kærunefnd að ekki sé tilefni til að draga í efa þjóðerni kæranda og verður því lagt til grundvallar að hann sé georgískur ríkisborgari. Að öðru leyti er óljóst hver kærandi sé.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Georgíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- Amnesty International Report 2017/2018: Georgia (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
- Council of Europe – Action Plan for Georgia 2016-2019 (Council of Europe, 25. febrúar 2016);
- Constitution of Georgia (http://www.parliament.ge/uploads/other/28/28803.pdf, sótt 17. janúar 2018);
- Corruption prevention in respect of members of parliament, judges and prosecutors (Group of States Against Corruption, Council of Europe, 17. janúar 2017);
- ECRI Report on Georgia (European Commission against Racism and Intolerance, 1. mars 2016);
- Freedom in the World 2017 - Georgia (Freedom House, 16. febrúar 2018);
- Freedom in the World 2017 - South Ossetia (Freedom House, 1. september 2017);
- Georgia - Country Reports on Human Rights Practices for 2016 (U.S. Department of State, 3. mars 2017);
- Georgia – Parliamentary Elections 8 and 30 October (OSCE – Office for Democratic Institutions and Human Rights, 3. febrúar 2017);
- Georgia 2017 Crime and Safety Report (OSAC, mars 2017);
- Georgia: Korrupsjon i politi og rettsvesen (Landinfo, 9. mars 2017);
- Georgia: Situasjonen for politisk opposisjonelle UNM medlemmer (Landinfo, 23. mars 2017);
- Georgia: The Human Rights Education and Monitoring Center (EMC), including office location and source of funding; relationship with the government, including treatment of its members by the police and other authorities (Canada: Immigration and Refugee Board of Canada, 30. júní 2015);
- Joint Staff Working Document – Association Implementation Report on Georgia (European Commission, 25. nóvember 2016);
- National Strategy for the Protection of Human Rights in Georgia 2014-2020 (Ministry of Internal Affairs in Georgia, 17. september 2015);
- Nations in Transit 2017 - Georgia (Freedom House, 9. maí 2017);
- Report on Progress in the Implementation of the National Strategy for the Protection of Human Rights in Georgia 2014-2020 (United States Agency for International Development (USAID), mars 2017);
- Second Report Submitted by Georgia Pursuant to Article 25, Paragraph 2 of the Framework Convention for the Protection of National Minorities (Council of Europe, 30. maí 2012);
- World Report 2018 – Georgia (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
- Temarapport: Georgien - Politiskt motiverade repressalier och våld mot oppositionella (version 1.0) (Lifos, 30. maí 2017);
- Temarapport: Georgien – Rätts- och säkerhetssektorn (Lifos, 3. október 2017) og
- 10 December Report on the situation of Protection of Human Rights and Freedoms in Georgia 2016 (Public Defender of Georgia, 2016).
Georgía er lýðræðisríki með um 3,7 milljónir íbúa. Georgía gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1999 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu það sama ár. Georgía gerðist aðili að flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna þann 9. ágúst 1999, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi þann 3. ágúst 1994 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu þann 8. júlí 2005. Þann 1. júlí 2016 gekk í gildi samstarfssamningur milli Evrópusambandsins og Georgíu. Með þeim samningi hefur Georgía meðal annars skuldbundið sig til að efna víðtækar skuldbindingar á sviði lýðræðis, mannréttinda og réttarríkis. Þann 19. júlí 2017 setti Útlendingastofnun Georgíu á lista stofnunarinnar yfir örugg upprunaríki.
Í ofangreindum gögnum kemur fram að stjórnarskrá Georgíu kveði á um jafnrétti allra fyrir lögunum og mismunun á grundvelli kynþáttar, litarháttar, tungumáls, kyns, trúar- og lífsskoðana, stjórnmálaskoðana, þjóðernis, félagslegrar stöðu eða tengsla, uppruna, búsetu eða efnahagslegrar stöðu sé refsiverð skv. refsilöggjöf landsins. Umboðsmaður (e. Public Defender (Ombudsman)) hafi verið starfandi í Georgíu frá árinu 1997. Umboðsmaðurinn hafi eftirlit með mannréttindum og frelsi borgaranna í Georgíu innan lögsögu ríkisins. Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. stjórnarskrár Georgíu gangi alþjóðasamningar, sem fullgiltir hafi verið af hálfu Georgíu, framar landslögum. Svo framarlega sem slíkir samningar gangi ekki gegn stjórnarskrá landsins sé hægt að beita þeim sem hluta af almennri löggjöf.
Þá kemur fram að fyrstu lýðræðislegu stjórnarskiptin í sögu sjálfstæðrar Georgíu hafi átt sér stað í október 2012. Þá hafi síðustu þingkosningar í október 2016 að mestu leyti farið vel fram að mati kosningaeftirlitsmanna þrátt fyrir harða kosningabaráttu. Flokkur Georgíska draumsins hafi aukið við fylgi sitt þar sem flokkurinn hafi hlotið 44 þingmenn af 73. Þá komi fram í ofangreindum gögnum að spilling sé þó nokkur í georgíska stjórnkerfinu. Yfirvöld hafi hins vegar gripið til ýmissa aðgerða til að sporna við spillingu og hafi miklar framfarir átt sér stað á undanförnum árum, m.a. hafi verið sett á fót sérstök landsáætlun til að sporna við skipulögðum glæpum í landinu fyrir árin 2015-2018. Þá beri stjórnvöldum að taka allar tilkynningar um misferli lögreglu til skoðunar og aðili sem telji að brotið sé á réttindum sínum geti kært til æðra stjórnvalds eða farið með mál sitt fyrir dómstóla. Einnig komi fram að stofnun sem heyri undir innanríkisráðuneyti landsins (e. General Inspection Department) sé ábyrg fyrir því að rannsaka brot sem framin séu af lögreglumönnum og hafi sú stofnun heimild til að beita agaviðurlögum. Frjáls félagasamtök líkt og GYLA (e. Georgian Young Lawyer Association) hafi hins vegar gagnrýnt þetta fyrirkomulag og bendi m.a. á að stjórnvöld hafi ekki alltaf rannsakað málin með fullnægjandi hætti.
Suður-Ossetía er formlega hluti af Georgíu en það er landlukt svæði sem staðsett er í suðurhluta Kákasusfjalla, nyrst í Georgíu. Landamæri þess eru við Norður-Ossetíu sem er hluti af Rússlandi. Í framangreindum gögnum kemur meðal annars fram að ýmis togstreita, spenna og átök hafi ríkt í langan tíma á milli Georgíu annars vegar og Suður-Ossetíu og Rússlands hins vegar. Árið 2008 hafi brotist út stríð milli Georgíu og Suður-Ossetíumanna, en þeir síðarnefndu hafi notið stuðnings Rússa. Átökin, sem hafi farið fram innan alþjóðlegra skilgreindra landamæra Georgíu, hafi t.d. leitt af sér mannfall og eyðileggingu innviða, auk þess sem fjöldi fólks hafi misst heimili sín og lífsviðurværi. Vopnahlé hafi komist á fyrir tilstilli Evrópusambandsins þann 12. ágúst 2008. Suður-Ossetía hafi í kjölfarið lýst yfir sjálfstæði sínu en það sé almennt ekki viðurkennt af alþjóðasamfélaginu. Flestir Georgíubúar hafi flúið Suður-Ossetíu í kjölfar átakanna árið 2008 og séu íbúar svæðisins því flestir Ossetíumenn sem vilji ekki vera undir stjórn Georgíu heldur vilji sjálfstæði og nánari tengsl við Rússland.
Samkvæmt framangreindum skýrslum sé ríkjandi ástand mála á stjórnsýslumörkum (e. administrative boundary) Georgíu og Suður-Ossetíu tiltölulega stöðugt. Þó sé enn nokkur spenna á svæðinu sem stafi m.a. af því að rússneskir hermenn og landamæraverðir séu á ferli í kringum stjórnsýslumörkin og haldi þar uppi ýmsu eftirliti. Lega stjórnsýslumarkanna sé óljós og georgískir borgarar sem fari yfir þau, t.d. vegna misskilnings, hafi verið hnepptir í hald af rússneskum hermönnum eða landamæravörðum og gjalds sé krafist svo þeim sé sleppt. Þá er í skýrslum fjallað um að georgískir borgarar sem sætt hafi slíku haldi hafi kvartað yfir slæmri meðferð. Ennfremur hafi rússneskir hermenn og Suður-Ossetíubúar nýverið fært stjórnsýslumörk Suður-Ossetíu lengra inn á georgískt yfirráðasvæði og í þeim tilgangi sett upp girðingar, aðvörunarskilti o.fl. Í skýrslum er tekið fram að sú framkvæmd hafi leitt til margvíslegra neikvæðra áhrifa fyrir georgíska ríkisborgara sem búsettir séu í grennd við Suður-Ossetíu, s.s. missi ræktarlands og vatnsbóla.
Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 37. gr. sömu laga. Kærandi byggir á því að hann og fjölskylda hans sé í hættu í heimaríki vegna stöðu kæranda sem fyrrum hermanns í georgíska hernum og vegna búsetu þeirra nálægt stjórnsýslumörkum Suður-Ossetíu og Georgíu.
Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Almennt ber að telja ótta umsækjanda um alþjóðlega vernd ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimaríki sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Hugtakið „ástæðuríkur ótti við ofsóknir“ inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn a.m.k. að sýna fram á að ákveðnar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Kærandi kveður að vegna fyrrum stöðu sinnar sem hermaður í georgíska hernum verði hann fyrir ofsóknum í Georgíu af hálfu rússneskra hermanna. Ofsóknirnar stafi m.a. af því að hann tilheyri sérstökum þjóðfélagshópi, þ.e. hópi hermanna sem tekið hafi þátt í átökum Georgíu gagnvart Suður-Ossetíu og Rússlandi árið 2008. Þá hafi kærandi ekki getað fundið vinnu í heimaríki þar sem hann hafi alltaf fengið það svar að þar sem hann hafi tekið þátt í stríðinu árið 2008 yrði hann ekki ráðinn. Kærandi hafi ekki leitað aðstoðar hjá lögreglu eða öðrum yfirvöldum þar sem þau geri ekkert til að vernda fólk, það sé því enginn tilgangur með því að óska eftir aðstoð lögreglu.
Af ofangreindum skýrslum er ljóst að staða mála á stjórnsýslumörkum Georgíu og Suður-Ossetíu séu að nokkru leyti varhugaverð. Skýrslur alþjóðastofnana, mannréttindasamtaka, eftirlitsaðila o.fl. renni stoðum undir þá frásögn kæranda að rússneskir hermenn hafi undanfarið fært stjórnsýslumörk Georgíu og Suður-Ossetíu lengra inn á georgískt yfirráðasvæði. Þá telur kærunefnd að gögn málsins styðji frásögn kæranda um handahófskenndar handtökur rússneskra hermanna og landamæravarða á georgískum borgunum sem staddir séu á eða við umrædd stjórnsýslumörk. Ennfremur telur kærunefnd að leggja megi til grundvallar að rússneskir hermenn hafi í einhverjum mæli áreitt, hótað og beitt ofbeldi gagnvart georgískum ríkisborgurum sem staddir séu við stjórnsýslumörkin.
Kærandi hefur ekki lagt fram gögn við meðferð málsins sem varpað geta ljósi á frásögn hans af hótunum þeim sem hann kveðst hafa orðið fyrir. Í greinargerð kæranda er vísað í fjögur myndbönd, ásamt skýringum, til stuðnings frásagnar hans af þeirri hættu sem hann kunni að vera í sem fyrrum hermaður í georgíska hernum og vegna búsetu á svæði við stjórnsýslumörk Georgíu og Suður-Ossetíu. Kærunefnd fær ekki séð af skýringum við framangreind myndbönd að atvik í þeim snerti kæranda persónulega eða leggi grundvöll að frásögn hans. Kærandi bar ekki fyrir sig að hafa sjálfur orðið fyrir áreiti af hálfu rússneskra hermanna. Þá benda þær heimildir sem kærunefnd hefur kynnt sér ekki til þess að fyrrum georgískir hermenn búsettir á því svæði sem heimaþorp kæranda sé staðsett sæti áreiti af hálfu rússneskra hermanna sem nái því alvarleikastigi að geta talist ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Þá hefur kærandi ekki gert líklegt að hans aðstæður séu þess eðlis að hann sé útsettari fyrir áreiti en aðrir í sambærilegri stöðu í því þorpi sem hann kveðst búa í.
Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hann fái ekki starf í heimaríki þar sem hann hafi tekið þátt í stríðinu við Rússland og Suður-Ossetíu árið 2008. Kærandi greindi frá því að vandamál hans hafi byrjað eftir ríkisstjórnarskipti í landinu árið 2012. Með gögnum málsins fylgdi afrit frá georgíska hernum þar sem fram kemur að kærandi hafi starfað í hernum frá 30. ágúst 2005 til 30. ágúst 2015. Þá kemur fram í endurriti af fyrsta viðtali við kæranda hjá Útlendingastofnun þann 29. júní 2017 að kærandi hafi verið með ráðningarsamning í 10 ár í georgíska hernum. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Georgíu er ekki að finna heimildir um það að fyrrum hermenn í georgíska hernum hafi verið útilokaðir frá störfum í Georgíu eftir að ríkisstjórnarskiptin urðu árið 2012, þeim hafi verið hótað eða að þeir hafi verið þvingaðir til að yfirgefa Georgíu.
Kærunefnd telur í ljósi ofangreinds að ekki hafi verið sýnt fram á með nægilega skýrum hætti að kærandi hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi er áréttað að efnahagslegar ástæður teljast almennt ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 6. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal stjórnvald sem kemst að því að ákvæði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna eigi ekki við um útlending að eigin frumkvæði taka til skoðunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. sömu laga. Þrátt fyrir að orðalag 1. mgr. 74. gr. kveði ekki með skýrum hætti á um veitingu dvalarleyfis má skilja af athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga nr. 80/2016, fyrirsögn greinarinnar og af 6. mgr. 37. gr. laganna að það hafi þó verið ætlunin með ákvæðinu. Kærunefnd telur því rétt að túlka ákvæðið sem heimild til veitingar dvalarleyfis þegar skilyrði þess eru uppfyllt.
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga má líta til mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. í greinargerð með frumvarpi til laga um útlendinga segir m.a. að með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti sé einnig vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Kærandi ber m.a. fyrir sig að hvorki lögregla né önnur yfirvöld í heimaríki hans séu fær um að vernda hann fyrir ágangi Rússa og því til stuðnings er bent á að Rússar hafi innlimað mikið land á áðurnefndum stjórnsýslumörkum og heimaríki kæranda hafi ekki tekist að koma böndum á það ástand. Þá telur kærandi að staða hans sé sérstaklega slæm þar sem hann hafi áður þjónað í georgíska hernum og sæti því ofsóknum. Kærunefnd telur, á grundvelli fyrirliggjandi gagna og með vísan til þess sem áður hefur komið fram um aðstæður kæranda, að ekki hafi verið sýnt fram á að sú hætta sem hann telur sig vera í vegna ágangs rússneskra hermanna sé þess eðlis eða svo alvarleg að heimilt sé að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða vegna hennar.
Kærandi kom hingað til lands ásamt eiginkonu sinni og barni. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi líkamlega og andlega heilsuhraustur. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
Frávísun og frestur til að yfirgefa landið
Kærandi kom hingað til lands 27. júní 2017 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærandi er hér á landi ásamt einkonu sinni og heyrnarskertu barni þeirra. Þá kemur kærandi frá nokkuð óstöðugu svæði í Georgíu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.
Kæranda er leiðbeint um í 5. málsl. 7. mgr. 104. gr. laga um útlendinga segir að útlendingur skuli tilkynna Útlendingastofnun um fyrirhugaða brottför sína og leggja fram sönnun þess að hann hafi yfirgefið landið. Þar segir jafnframt að ef útlendingurinn fer ekki úr landi svo sem fyrir hann er lagt eða líkur eru á að hann muni ekki fara sjálfviljugur má lögregla færa hann úr landi. Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests kann að vera heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave Iceland voluntarily.
Hjörtur Bragi Sverrisson
Anna Tryggvadóttir Pétur Dam Leifsson