Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 80/2012.

 

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 7. maí 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 80/2012.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 10. apríl 2012, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar sem hún hafi verið við vinnu samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hafi starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 10. maí 2012. Hún krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að hin kærða ákvörðun hafi verið rétt.

 

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 8. mars 2010. Kæranda var sent erindi, dags. 20. mars 2012, þar sem henni var tilkynnt að samkvæmt gögnum frá aðilum vinnumarkaðarins frá 20. febrúar 2012 hefði hún verið við störf hjá B, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að tilkynna það til stofnunarinnar. Óskað hafi verið eftir skýringum á þessu hjá kæranda og athugasemdir hennar bárust Vinnumálastofnun 23. mars 2012. Í skýringarbréfi kæranda kemur fram að hún sé ekki starfsmaður hjá B heldur hafi hún verið þar í fimmtán mínútur umræddan dag er móðir hennar þurfti að skreppa frá og kaupa pylsubrauð.

 

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 19. júní 2012, bendir Vinnumálastofnun á að lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Vinnumálastofnun greinir frá því að mál þetta varði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kærandi hafi verið í starfi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hún fékk greiddar atvinnuleysistryggingar, án þess að tilkynna til stofnunarinnar að atvinnuleit væri hætt skv. 10. gr. eða 35. gr. a laganna. Jafnframt er vísað til laga nr. 134/2009 um breytingar á atvinnuleysistryggingum, en með þeim lögum hafi verið gerðar veigamiklar breytingar á 60. gr. laganna.

 

Vinnumálastofnun bendir á að verknaðarlýsing ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar geri grein fyrir því hvaða atvik geta leitt til þess að viðurlögum á grundvelli ákvæðisins sé beitt. Segi í athugasemdum með 23. gr. frumvarpsins er varð að lögum nr. 134/2009 að Vinnumálastofnun skuli beita viðurlögunum ef atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna stofnuninni að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða 35. gr. a laganna.

Vinnumálastofnun vísar til þess að í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. sömu laga sé að finna nánari útfærslu á því hvað telst til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfar á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar, hvort sem hann þiggi laun fyrir eða ekki.

Vinnumálastofnun greinir frá því að af gögnum málsins megi ráða að kærandi hafi verið við störf fyrir B 20. febrúar 2012 þegar aðilar vinnumarkaðarins hittu hana fyrir á vinnustað. Þá segi enn fremur í gögnum frá aðilum vinnumarkaðarins að hún hafi verið við störf í pylsuvagninum 21. og 24. febrúar 2012. Enn fremur megi ráða af tölvubréfi sem barst Vinnumálastofnun 29. mars 2012 frá starfsmanni ríkisskattstjóra að kærandi hafi verið í vinnu 29. mars 2012.

 

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum að tilkynna að atvinnuleit sé hætt eða tilkynningu um tekjur, sbr. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum við stofnunina og eigi að sæta viðurlögum í samræmi við brot sitt.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 21. júní 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 5. júlí 2012. Athugasemdir bárust frá móður kæranda í bréfi, dags. 26. júlí 2012. Þar greinir hún frá því að kærandi hafi leyst sig af annað slagið þegar hún hafi þurft að skreppa frá en þær hafi talið að það þyrfti ekki að láta Vinnumálastofnun vita því kærandi hafi ekki fengið greitt fyrir þetta. Móðir kæranda greinir frá því að hún sé með einn starfsmann í vinnu en sá hafi verið erlendis í febrúar og mars og hafi kærandi verið afar hjálpsöm. Þá hafi móðir kæranda axlarbrotnað og kærandi hafi leyst hana af meðan hún fór í sjúkraþjálfun.

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að því hvort kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með hliðsjón af mikilvægi ákvæðisins við framkvæmd atvinnuleysistryggingakerfisins þykir réttlætanlegt að varpa ítarlegu ljósi á forsögu þess og tilgang. Markmiðið með þessu er að setja fram skýr viðmið um hvernig beri að túlka ákvæðið.

 

Þegar lög um atvinnuleysistryggingar voru upphaflega sett var kveðið á um þá meginreglu í fyrstu málsgrein 60. gr. laganna að sá sem aflar sér eða reynir að afla sér atvinnuleysisbóta samkvæmt lögunum með svikum getur misst rétt sinn í allt að tvö ár og þurft að sæta sektum. Það var hvergi skýrlega skilgreint hvað væru svik í skilningi ákvæðisins og er sú ályktun nærtæk að ákvæðinu hafi sjaldan verið beitt fram til þess tíma sem því var breytt með setningu 23. gr. laga nr. 134/2009. Þessi nýja regla tók gildi 1. janúar 2010 og veigamesti tilgangur hennar var að sporna gegn „svartri atvinnustarfsemi“.

 

Í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009 kom meðal annars fram að beita ætti ákvæðinu í þrenns konar tilvikum, í fyrsta lagi þegar atvinnuleitandi veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögunum, í öðru lagi þegar atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. laganna og í þriðja lagi þegar atvinnuleitandi verður uppvís að þátttöku á vinnumarkaði án þess að hafa tilkynnt um tilfallandi vinnu, sbr. nú 35. gr. a.

 

Með setningu 4. gr. laga nr. 103/2011 var orðalagi 1. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar breytt. Frá og með 3. september 2011 hefur ákvæðið verið svohljóðandi:

 

Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

 

Þegar þessi texti er skýrður er óhjákvæmilegt að horfa til þeirra athugasemda sem vitnað var hér til að framan um 23. gr. laga nr. 134/2009. Þannig er ljóst að 1. málsl. ákvæðisins á við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir 2. málsl. ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að 2. málsl. tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku.

 

Sérstök ástæða er til að taka fram að orðalagið „[h]ið sama gildir“ í upphafi 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vísar einvörðungu til viðurlaganna sem upp eru talin í 1. málsl. ákvæðisins en ekki til þeirra huglægu skilyrða sem þar þurfa að vera uppfyllt. Þessi túlkun byggir meðal annars á því að greiðsla atvinnuleysisbóta er ekki ætluð þeim sem sinna störfum á vinnumarkaði og því teljast það svik í skilningi 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ef atvinnuleitandi sinnir starfi á vinnumarkaði án þess að láta Vinnumálastofnun vita af því með þeim hætti sem kveðið er á um í 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Þessi skilningur er í samræmi við orðalag 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og fær einnig stoð í athugasemdum greinargerðar við 23. gr. frumvarps þess er síðar varð að lögum nr. 134/2009.

 

Hvort sem háttsemi fellur undir 1. eða 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eru viðurlög við bótasvikum ströng en þau fela í sér að atvinnuleitanda ber ekki að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Jafnframt ber atvinnuleitanda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr. laganna, sbr. lokamálslið 60. gr. laganna.

 

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi að sinna afgreiðslu hjá B er aðilar vinnumarkaðarins hittu hana fyrir þar 20. febrúar 2012. Kærandi hefur ítrekað haldið því fram að á þessum tíma hafi hún einfaldlega staðið þarna í 15 mínútur svo móðir sín gæti farið í verslun að kaupa pylsubrauð. Fram kemur í skýrslu eftirlitsmanns aðila vinnumarkaðarins, dags. 20. mars 2012, að kærandi hafi verið í afgreiðslu hjá B 21. febrúar 2012, kl. 13.30 og kl. 15.30 sem og kl. 14.50 hinn 24. febrúar 2012. Jafnframt liggja fyrir upplýsingar frá ríkisskattstjóra sem benda til þess að kærandi hafi sinnt þessu sömu afgreiðslustörfum 29. mars 2012 og 19. júlí 2010.

 

Með vísan til ofangreinds, og þrátt fyrir andmæli kæranda, verður talið sannað að kærandi hafi sinnt störfum í þágu B án þess að láta Vinnumálastofnun af því vita fyrir fram. Ekki skiptir máli í þessu sambandi hvort litið sé á að kærandi hafi verið að sinna tilfallandi starfi eða hafa gegnt starfi á vinnumarkaði. Aðalatriðið er að sannað þykir að kærandi hafi með háttsemi sinni brotið gegn 2. málsl. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Með vísan til ofangreinds, og þeirra röksemda sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, þá verður hún staðfest.

 

Úrskurðarorð

 

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar, frá 10. apríl 2012, í máli A, þess efnis að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir,

formaður

 

 

 

            Hulda Rós Rúriksdóttir                                             Helgi Áss Grétarsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta