Mál nr. 63/2016 Úrskurður 5. ágúst 2016
Mál nr. 63/2016 Eiginnafn: Elíanna
Hinn 5. ágúst 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 63/2016 en erindið barst nefndinni sama dag:
Eiginnafnið Elíanna (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Elíönnu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Elíanna (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.