Mál nr. 65/2016 Úrskurður 5. ágúst 2016
Mál nr. 65/2016 Eiginnafn: Kaía
Hinn 5. ágúst 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 65/2016 en erindið barst nefndinni sama dag:
Eiginnafnið Kaía (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kaíu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Kaía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.